Þjóðviljinn - 11.06.1977, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 11.06.1977, Blaðsíða 15
Laugardagur 11 júnf 1*77 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 15 1 s.l. viku voru leiknar 6.og 7. umferð. Lið vikunnar var K.R. sem hristi af sér slenið það hressilega, að gamlir vestur- bæingar brostu að nýju og all- ur gróður tók fjörkipp þar vestra. Toppbaráttan harðnar enn hjá fjórum efstu liðunum, og má vart á milli sjá hvaða lið ætlar að standast tauga- striðið sem nú fer i hönd. Fastmótaðasta liðið nú er Vikingur-, vörn liðsins er afar sterk og liðiö ósigrað þaö sem af er árinu. Þó að akurnesing- ar og Valur séu i efstu sætun- um eru leikir liðanna ekki nógu sannfærandi, enda sagði formaður knattspyrnudeildar Vals, þegar flautað var til leiksloka hjá Val og F.H.: „Ó, blessuð stund”. Enn tapar F.H. þrátt fyrir ágæta leiki, og virðist nú sem einhverskonar ,,panik” sé komin i liðið. Liðið þarf að vinna sjálfstraust sitt aftur, og þá leikur liðiö skemmtilegasta fótbolta sem hér er leikinn. Fram og Þór virðast hafa gefist upp i baráttunni þessa stundina og jafnvel Fram þarf að fara aö taka sig til i andlit- inu. Eftir að stjörnunöfn þeirra byrjuðu að leika að nýju, hefur allt gengið á aftur- fótunum. Það er ekki nóg að hafa þekkt nöfn, menn verða að vera i þjálfun, og þaö góðri þjálfun. Staða ÍBV er óljós vegna frestaðra leikja, og eru þeir tveimur leikjum á eftir. Breiðablik berst með straumnum að vanda, og kefl- vikingar standa fyrir sinu. Nú verður hlé i vikutima vegna landsleiksins gegn norður-irum, en i næstu umferð verða toppleikir bæði uppi og niðri. Landsleikur við n-íra. I sag verður flautað til leiks Flautað i fyrsta landsleik ársins, þ.e. við n-ira i undankeppni heims- meistarakeppninnar. Ef landsleikir eru ekki i ein- hverskonar „grúppukeppni” þ.e. heimsmeistarakeppni, Evrópukeppni landsliða, Ólympiukeppni, þá eru þaö einhvers konar annars flokks eða æfingalandsleikir, tæp- lega venjulegir millirikjaleik- ir,"þó hinir "séú álvöruleikir. Hinir gömlu millirikjaleikir án stiga eru að verða úr sög- unni. Sterkt landslið.//út með kiippurnar í dag." Það er min skoðun að lands- liðiö sem leikur i dag sé eitt besta landsliö sem stillt hefur verið upp frá upphafi, og til alls liklegt. Nokkrar umræöur hafa verið um hvort nota eigi þá leikmenn i landsliðið sem leika með erlendum liðum eöa atvinnumennina svonefndu. Sitt sýnist hverjum, i þessu sem öðru. Min skoðun er sú, að aöeins eigi að nota þá sem leika með erlendum liðum, ef þeir sýna ótviræöa yfirburðí fram yfir þá sem heima eru, og láta sér enn nægja að dunda við fótboltann hér á Fróni. Hvað lengi sem það nú verður. I þessu tilfellihefði ég aöeins notað tvo, þvi ég álit að þeir sem heima eru séu jafngóðir, og margir betri.en hinir, sem lelks sóttir voru. Ef þeir eru nógu góðir til að leika æfingaleiki, pressuleiki, eða Charlton. og Chaplinleiki, geta þeir alveg eins leikið landsleiki. Ég bið svo allar góðar vættir aö veita islenska landsliðinu brautar- gengi, og endurtek orðin hans Tobba I Val: „Clt með klipp- urnar i dag.” Sjónvarp og útvarp. Litið hefur verið sjónvarpaö af islenskum knattspyrnu- leikjum i vor eða aðeins broti úr tveimur, þrátt fyrir samn- ing K.S.t. og Sjónvarpsins. Helst þyrfti að sjónvarpa ein- um leik úr hverri umferð, þvi allir vita hvað slikt er vinsælt sjónvarpsefni. útvarpið hefur enn ekki farið af stað með lýs- ingar, en vonandi stendur það til bóta þar sem hinn gamal- kunni knattspyrnukappi Hermann Gunnarsson hefur verið ráðinn iþróttafrétta- maður rikisútvarpsins. Frétt- ir af leikjum Islandsmótsins hafa hins vegar verið góðar og komið fljótt, jafnvel fréttir af leikstöðu i leikhléi; slikt er skemmtileg tilbreyting og vinsælt hjá mörgum. íslandsm yngri flokka Islandsmót i yngri flokkun- um hófust nú i vikunni um land allt. Leikir þessara flokka eru oft mjög skemmti- legir og venjulega skemmti- legri eftir þvi sem dreng- irnir eru yngri, t.d. hjá 5. aldursflokki. Ég hvet þvi alla sem unna góðri knattspyrnu að rúlla á góðviðriskvöldum á knattspyrnuvellina, þar sem kappleikir fara fram flest kvöld, og fylgjast með þessu lifi sem þar fer fram, auk þess kostar það ekert. Atvinnumennska — Agentar eða 10% menn Þeir sem lesa um knatt- spyrnufréttir opna tæpast orð- ið blað, án þess að sjá stórar fyrirsagnir um að þessi eða hinn islenski knattspyrnu- maðurinn sé nú undir smásjá njósnara eöa „agenta”, fyrir atvinnulið, ýmist heimsfræg eða 2.- 3. deildar lið i Sviþjóð. Það er auglýst meö pompi og pragt að þessi eða hinn sé að hugsa um félagaskipti viða erlendis, eða þá að þessi og hinn skori mark fyrir 2.deilar- lið i Sviþjóð. Á meðan þetta skeður biða ótrúlega margir spenntir eftir að röðin komi að þeim sem ekki hafa verið nefndir. Það er eðlilegt að unga knattspyrnumenn þyrsti i að leika með heimsþekktum og frægum knattspyrnuliðum við topp-aðstæður fyrir góð laun, annað væri óeðlilegt. En hvað er að gerast i þess- um efnum þá I alvöru? Hafa menn velt þvi fyrir sér? Sagt er að Island sé orðið eina land- ið i knattspyrnuheiminum sem enn sé með áhuga- mennsku að leiöarljósi, og kann svo vel að vera að það heiti áhugamennska eða ama- tör eins og kallað er. Við erum með menn sem iðka sina iþrótt af áhuga og ánægju, en þeir æfa bara alveg eins mikið og atvinnumenn, en bara i viðbót við sinn fulla vinnudag. Eins og áður sagði eru raddir uppi um að ýmsir hyggi á utanför. Hver er ástæðan? Sennilega fleiri en ein eða tvær. Eitt málið er það, að agentar eða 10% menn eins og sumir kalla það gerast nú sjálfskipaðir umboðsmenn fyrir útflutning á islenskum knattspyrnu- mönnum. Islensk knatt- spyrnufélög standa berskjöld- uð fyrir þessu, svo að jafnvel einn góðan veðurdag þegar lið á að fara að leika áriðandi leik þá eru bara allir farnir til Sviþjóðar eða eitthvað annað. A þessum málum hefur islensk iþróttaforusta alltaf tekið með vettlingatökum. Menn hafa næstum engar skyldur við sin félög. Hinn snjalli þjálfari akurnesinga, Kirby, sagði þegar einn af kappliðsmönnunum, var allt i einu kominn tii Sviþjóöar án þess að tala við kóng eða prest; Hvers konar lög eru á Islandi? Fyrirliði islenska landsliðs- ins i knattspyrnu, Jóhannes Eðvaldsson, var spurður eftir- farandi spurningar i viðtali i útvarpi i fyrrakvöld: „Erum við á réttri leið i knattspyrn- unni?” Jóhannes var fljótur að svara og sagði.„Nei, þegar smálið hingað og þangað geta tint menn út úr félögunum hér heima hvenær sem þeim þóknast, þá erum við ekki á réttri leið.” Stopper. Meðan á ráöstefnunni alþjóð- legu um umhverfismál stóöi, sendu Samtök herstöövaandstæð- inga öllum þátttakendum hennar ávarp þaö sem hér fer á eftir: „Samtök herstöðvaandstæð- inga fagna þvi tækifæri sem þessi ráðstefna veitir til að vekja at- hygli yðar á málefni sem viö telj- um afar þýðingarmikið fyrir far- sæld Islensku þjóðarinnar. Alltfrá árinu 1940, þegar bretar hernámu tsland, hafa erlend stór- veldi haft aöstööu fyrir hernaðar- starfsemi sina hér á landi, og frá 1951 hefur verið bandariskt herliö i landinu. Island varð sjálfstætt lýöveldi árið 1944, og þótt Islend- ingar viðurkenndu i raun aö her- nám vesturveldanna væri óhjá- kvæmilegt á striðsárunum og væru einlægir stuðningsmenn bandamanna I baráttu þeirra gegn Þýskalandi nasismans, var þaö von og trú alls þorra þjóðar- innar aö allur erlendur her og Ávarp Samtaka herstöðvaandstæöinga til þátttakenda i alþjóðlegu umhverfisráðstefnunni: Styðjið okkur í baráttu fyrir herlausu landi hernaðaraðstaða mundi hverfa úr landinu I striöslok og að islenska rikiö fengi að halda fram þeirri hlutleysisstefnu sem það haföi markað sér er þaö varð fullvalda riki I konungssambandi við Dan- mörku árið 1918. Þessar vonir brugðust þegar foringjar stærstu islensku stjórnmálaflokkanna létu undan þrýstingi frá rikis- stjórn Bandarikjanna og sam- Iðnkynning á Selfossi Á sunnudaginn hefst iðnkynn- ing á Selfossi. Frá þeim degi og fram til 20. þessa mánaðar verða islenskar iðnaðarvörur kynntar I verslunum á Selfossi, en fimmtu- daginn 16. júni er „Dagur iðnaö- arins” og veröur þá opnuö sýning I Gagnfræöaskólanum á Selfossi. Þar sýna 25 fyrirtæki framleiðslu sina og kynna þjónustu sina. Á sýningunni, sem lýkur á sunnu- dagskvöld, verða seldar veitingar frá fyrirtækjum á Selfossi. Við opnun sýningarinnar á Sel- fossi kl. 13:30 mun Guðmundur Jónsson, skósmiður, flytja ávarp. Kl. 14:00hefst fundur i Selfossbiói um iðnaöarmál. Þar mun iðn- aðarráðherra flytja ávarp, en ræðumenn verða: Bragi Hannesson, bankastjóri, Óli Þ. Guðbjartsson oddviti og Einar Eliasson, framkvæmdastjóri. Fundarstjóri er Haukur Gislason ljósmyndari. Að framsöguræðum loknum verða almennar umræöur og fyrirspurnir. Fundurinn er öll- um opinn. 1 tilefni iðnkynningarinnar veröur gefin út Iönskrá Selfoss. Þar er aö finna upplýsingar um iðnfyrirtæki og iönmeistara. Skránni veröur dreift I öll hús á Selfossi. Sú nýbreytni verður tekin upp á iönkynningunni á Selfossi, að veita viðurkenningu til iðnfyrir- tækja fyrir snyrtimennsku og góða umgengni á athafnasvæði. Hefur Junior Camber klúbburinn á Selfossi gefiö farandbikar, sem afhentur veröur i fyrsta sinn á „Degi iðnaðarins” fimmtudaginn 16. júni. Iönkynningarnefnd Selfoss skipa: Þorsteinn Sigurðsson, for- maöur, Eggert Jóhannesson og Stefán A. Magnússon. Fram- kvæmdastjóri nefndarinnar er Siguröur Jónsson. þykktu fyrst aðild Islands aö NATO og siöan árið 1951 samning sem heimilar Bandarikjunum aö hafa hér herstöövar og herlið. Þessar herstöövar hafa verið hér siöan,og þótt upp hafi komiö oftar en einu sinni pólitiskur meirihluti á alþingi islendinga, sem hefur sett sér það stefnumið að segja upp herstöðvaamningnum, hefur sú stefna ekki náð fram að ganga, m .a. vegna verulegs þrýstings frá öðrum NATO-ríkjum. Viö vildum benda yöur á aö bandariski herinn hefur með her- stöðvum sinum, vigbúnaði og hernaðarumsvifum viös vegar um heim sundraö þjóðum, stund- að markvissa eyðingu á lifrikinu og borið vigvélar og eyðingartól um allar heimsálfur, sem ógna nú öllu mannkyni. Auk þeirrar fé- lagslegu röskunar sem bandarisk herseta hefur valdið i islensku samfélagi höfum viö traustar heimildir fyrir þvi (sbr. t.d. „New Scientist”, 3. 6. 1976), að banda- rikjaher hafi einnig borið kjarn- orkuvopntil Islands og geymi þau hér á þeim alþjóölega flugvelli, sem þér fóruð um við komuna hingað einsog aörir erlendir gest- ir sem sækja Island heim. Flug- vélar bandarikjahers, hlaönar kjarnorkuvopnum, munu sveima yfir hafinu umhverfis landið i reglulegu „eftirlitsflugi”, og við þurfum tæpast að minna yður á, að ekki eru nema tólf ár siöan slik flugvél missti niður kjarnorku- sprengju á ísinn undan Græn- landsströndum. Framh á bls. 18. Mosfellssveit Opið til kl. 22 alla daga Ath. einnig laugard. og sunnud. sími: 66656 >o< >0- > o KV:.. v>-0< j»V;.. > o <: >0' #//»#•**«# J

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.