Þjóðviljinn - 11.06.1977, Blaðsíða 14

Þjóðviljinn - 11.06.1977, Blaðsíða 14
14 StÐA — ÞJOÐVILJINN Laugardagur 11 júní 1977 f' JVIEÐ ^ |EYRUN| ■ OPIN ■ QUEEN Enska „hardrokk"- hljómsveitin Queen hélt hljómleika i Scandinavi- um 10. maí s.l. og sóttu þá um 4.500 manns. Þetta voru aðrir hljómleikar hl jómsveitarinnar á Evrópuferðalagi sem endaði í Englandi 5. júní. Hljómsveitina skipa Freddie Mercury söngvari og píanóleik- ari, Roger Taylor trommuleik- ari, Brian May gitarleikari og John Deacon bassaleikari. Þeir eru 25-30 ára. Taylor og May byrju&u a& spila saman 1968 meö hljómsveitinni Smile, sem sendi frá sér eina tveggja laga plötu me& lögunum „Earth” og „Step On Me” sem eru eftir May og Tim Staffell bassaleik- ara Smile. Um svipaö leyti var Mercury aö syngja me& sinni fyrstu hljómsveit Sour Milk Sea, en 1970 gekk hann til liös vi& May og Taylor, og Deacon byrja&i svo aö spila me& þeim 1971, og var þá til oröin hljómsveitin Queen. Fyrsta platan meö þeim kom út 1973 og var þaö einföld og dæmigerö ,,hardrokk”-plata og svo var einnig með tvær næstu plötur þeirra. Fjóröa platan „A Night At The Opera” var hins vegar mun vandaðri en hinar fyrri og á hljómsveitin tæplega eftir aö gera betri plötu i fram- ti&inni. Mercury segir: „Viö er- um búnir aö flytja flestar stemmur sem til eru inn á hljómplötur, og nú höfum viö ekki upp á neitt nýtt aö bjó&a 1 framtlöinni”. Þetta er nokkuö rétt hjá hon- um aö þvi leytinu til, aö á nýj- ustu plötu hljómsveitarinnar, „A Day At The Races”, kemur fram aö Queen eru gjörsamlega staöna&ir tónlistarmenn. Þaö má þvi ætla aö fyrir þeim fari eins og flestum rokkhljómsveit- um á sömu linu, aö þeir hverfi fljótlega úr sviösljósinu eftir stutta veru á toppnum. ööru visi getur ekki fariö fyrir þeim er sl- fellt flytja innihaldslausa tón- iist. Þaö besta hjá Queen er rödd- unin sem oft er mjög skemmti- leg. A hljómplötum þeirra eru raddirnar teknar upp meö mik- illi tæknivinnu, og háir þaö þeim töluvert á hljómleikum aö ráöa þar ekki yfir sömu tæknivinnu. Deacon er sá eini þeirra sem ekki syngur, en hinir gera þaö þeim mun betur, enda hafa þeir veriö fengnir til aö syngja inn á plötur hjá öörum, t.d. Ian Hunter. Hljómleikarnir byrjuöu á þvi a& upphafslagiö á plötunni „A Day At The Races”, var flutt af bandi, en nafnið á þessari plötu er eins og nafn plötunnar „A Night At The Opera” fengiö úr samnefndum kvikmyndum eftir Marxbræöur sem eru I miklu uppáhaldi hjá Queen. Ljósin I salnum og á sviöinu voru slökkt, en skyndilega lýstu sterk, marglit ljós upp svi&iö og meölimir Queen þustu inn á þaö og köstuöu reyksprengjum, og I reykjarkófinu fluttu þeir tvö lög af sömu plötu. Mercury hélt áfram að kasta reyksprengjum á meöan hinir spiluöu og „ljósa- showiö” var skemmtilegt. Næst fluttu þeir lag af plöt- unni „Queen II” og slöan lagiö vinsæla „Somebody To Love” af plötunni „A Day At The Races” og lék Mercury á pianó i báöum þessum lögum. Svo fluttu þeir syrpu meö lögum af plötunni „Sheer Heart Attack” og var eitt af þeim lagiö „Killer Queen” sem eitt sinn var mjög vinsælt, og I einu laganna lék May á banjó. Aö syrpunni lok- inni fluttu þeir lagiö „Death on Two Legs” (Dedicatet To....)” af plötunni „A Night At The Opera” og tók May i þvl 8 mln- útna langt gltarsóló meö alls- kyns tæknibrellum og stundum spilaði hann á gltarinn meö ann- arri hendinni en stjórnaöi magnaratökkum meö hinni. Næst voru lögin „Brighton Rock” af plötunni „Sheer Heart Attack” og „39” af plötunni „A Night At The Opera”, May lék á kassagitar og Taylor færöi sig framar á sviöiö meö bassa- trommuna og lék á hana þar og áhorfendur klöppuöu meö. Þaö vantaöi mikiö upp á aö röddunin I slöarnefnda laginu Stefán Guðmundsson skrifar frá Gautaborg væri eins góö og á plötunni, þó náöi Taylor háu röddinni nokk- uö vel. Næst var hiö fallega lag „You Take My Breath Away” af plöt- unni „A Day At The Races”, Mercury söng þaö lag einn og lék á planó. Lagiö vinsæla „Bohamian Rhapsody” af plöt- unni „A Night At The Opera” var næst á dagskrá og var þaö aö mestu flutt af bandi, enda heföi hljómsveitin aldrei ráöið viö aö flytja þaö á sviöi. Ljósin á sviöinu voru slökkt á meöan lagiö var leikiö. Næst fluttu þeir lögin „White Man” af plötunni „A Day At The Races” og „Lazy On A Sunday” og „Good Save The Queen” af plötunni „A Night At The Opera” og I þvl slöast nefnda tók Taylor trommusóló sem ekki er til frekari frásagnar. A& lokum fluttu Queen lögin „Stone Cold Crazy” af plötunni „Sheer Heart Attack” og „Good Old Fashioner Louet Boy” og „You And I” af plötunni „A Day At The Races”. Eftir uppklapp fluttu þeir lag- ið „Lair” af fyrstu plötu sinni, og eftir aö hafa veriö klappaöir upp aftur lögöust þeir svo lágt aö flytja gamlan rokk & roll slagara I langri útsetningu. Deacon haggaöist ekki á sviöinu allan tlmann sem hljómleikarn- ir stóöu yfir, en May og Mercury eru mjög liflegir, sérstaklega Mercury sem dansar og stekkur um sviöiö eins og ballettdans- ari. Þeir tveir skiptu þrisvar um föt á hljómleikunum og einn búningur Mercurys var einmitt ballettbúningur. Kópavogsbúinn Viðar Jónsson hefur aldrei ver- ið í neinu uppáhaldi hjá mér, né heldur nein af þeim hljómsveitum sem hann hefur spilað með í gegnum árum, sérstak- lega hef ég verið nei- kvæður gagnvart Stuðla- tríóinu sem Viðar hefur nú leikið á gítar í og sung- ið með um nokkurra ára skeið. Er það bæöi vegna þess aö Stuölatrióiö leikur svo til ein- göngu svo kallaöa „brennivíns-" eöa „peningamúslk” en þessi múslktegund er alveg óþolandi I minum eyrum, svo og að trommuleikari hljómsveitar- innar (Þóröur Þóröarson minn-^ ir mig að hann heiti) er næst-lé- legasti trommuleikari landsins (Kristinn Alexandersson trommuleikari Hljómsveitar Þorsteins Guömundssonar er aö sjálfsögöu lélegasti trommu- leikari landsins). Vegna þessa tók ég á móti þessari fyrstu L.P. plötu Viöars meö heldur neikvæöu hugarfari og hefði eflaust skrifaö um hana meö þvi sama hugarfari ef ég heföi ekki lagst inn á Landspl- talann um svipaö leyti og mér barst platan I hendur. A meöan á dvöl minni á spltalanum stóö komst ég aÖ þvl aö þrátt fyrir þaö aö Morgunblaðið sé „blaö allra landsmanna” þá er til fólk hér á landi sem ekki er orðið svo gegn um sýrt af bisnesshugar- fari Morgunblaösins aö þaö hef- ur ánægju af aö stytta sjúkling- um stundir meö þvl aö skemmta á kvöldvökum I sjálfboöaliðs- vinnu. Þaö er maöur aö nafni Jóhann Þorvaldsson sem staöiö hefur um árabil fyrir þessum viku- legu kvöldvökum á Landspltal- anum I sjálfboðaliðsvinnu og var mér tjáö að þessi snillingur heföi tekiö þetta upp hjá sér eft- ir að hann dvaldist sem sjúk- lingur á umræddum spltala og langaði þá til að stytta sjúk- lingunum stundir á fimmtúdög- um þegar ekkert er I sjónvarp- inu nema stillimyndin, og hann lét ekki staðar numiö viö hug- myndina, heldur framkvæmdi hana um leiö og hann útskrif- aðist af spltalanum. Þaö eru svona menn eins og Jóþann sem ættu meö réttu aö fá fálkaorö- una ef ekki væri búiö aö misnota hana svo sem raun ber vitni meö þvl aö klína henni á ein- tóma glæpamenn. Á þessum kvöldvökum hefur Jóhann reynt aö hafa sem fjöl- breyttasta dagskrá, og á þeirri kvöldvöku sem ég varö vitni aö skemmtu m.a. Stuölatrlóiö, Anna Vilhjálms, Guðmundur Guömundsson eftirherma o.m.fl. sem ég þvi miður náöi ekki nöfnunum á og skemmti þetta fólk allt I sjálfboöaliös- vinnu, eins og maöur reyndar gat séö strax vegna þess aö þau skemmtu sér eins vel og oft bet- ur en sjúklingarnir, þvl aö I svona tilfellum er máltækiö aö sælla sé aö gefa en þiggja I fullu gildi, þó aö þaö sé öfugmæli I sambandi viö vinnukaupendur og vinnuseljendur, þvl aö það er allt annaö aö gefa sjúklingum glaöa stund en vinnukaupend- um eitthvaö sem þeir hafa sjálfir ákveðiö aö stela af vinnu- seljendunum. Já þaö er mikill munur á aö sjá skemmtikrafta skemmta svona þar sem þeir fá borgaö meö ánægjunni, en aö sjá þá meö fýlusvip blöandi eftir pás- um eöa að skemmtunin sé búin svo aö þeir geti farið aö sækja þaö litla sem eftir er af kaupinu sinu eftir aö skattar ofl. hefur veriö dregiö af þvl. Þó að Stuölatrlóiö hafi ekki verið meö betri dagskrá en vanalega þetta kvöld, né trommuleikarinn af- sannað aö hann sé næstversti trommuleikari landsins, þá kemst ég ekki hjá þvi aö lita á Stuölatrióiö og þá um leið Viöar Jónsson öörum og jákvæöari augum eftir kvöldiö. Af þeim hljómsveitum sem Viöar hefur veriö I má nefna Garðar & Gosa þar sem hann spilaöi m.a. með Jóni Armanns- syni I Popphúsinu, Plöntuna, Erni og nú slöast Stuölatrlóiö; engin af þessum hljómsveitum hefur leikiö inn á hljómplötu, en áriö 1973 sendi Viðar frá sér tveggja laga plötu sem hann gaf sjálfur út og náöi hún miklum vinsældum, og annaö lagiö sem var á henni, „Sjóarinn slkáti”, er ennþá leikið I óskalagaþátt- um hljóövarpsins af og til. ÞessifyrstaL.P.-plata Viöars veröur aö teljast góö miöað viö aörar Islenskar plötur með svip- aöri tónlist, t.d. er þetta mikiö betri plata en Grásleppuplata Hljómsveitar Þorsteins Guö- mundssonar. Aö mörgu leyti má likja þessari plötu viö sólópl. Gylfa Ægissonar, þvi aö múslk- in er sú sama, nema Viðar notar stálgltar I tveim lögum, þannjg aö þaö er svolitill „Countryfll- ingur” yfir plötunni hans. sem Gylfa plötur eru blessunarlega lausar við. Báöir semja þeir lögin og textana og syngja sjálf- ir, og eiga þeir þaö sameiginlegt aö vera góöir lagasmiöir, og meö fullri virðingu fyrir G. Runari Júlluss. og Viöari, þá heföi mátt auöveldlega vinna betur úr nokkrum laganna á plötunni t.d. heföi veriö gaman aö heyra lagiö „Komdu heim” I svolltiö þyngri og lengri útsetn- ingu. Textarnir hjá Gylfa og Viöari eru mjög svipaöir, þeir sækja yrkisefniö I daglega lifið I kring- um sig, og oftast veröur sjó- mannallfiö og ástin fyrir valinu, en Gylfi er raunsærri textahöf- undur, og textarnir hans hafa oft annan og meiri tilgang en bara aö fylla upp meö laginu. Viöar er betri söngvari en Gylfi, sérstaklega tekst honum betur upp I hærri röddunum, svo fer hann létt meö aö jóöla eins og hann gerir I „Sögu úr sveit”. Hljóöfæraleikurinn rennur I gegn um plötuna án nokkurra erfiöleika eöa áreynslu, léttur og vandvirknislega útsettur. Gúömundur Rúnar Júllusson leikur á bassagitar, klarinett og eins og Viðar þá raddar hann og leikur á gitar, Sigurður Karls- son sér um trommuleikinn, Eric leikur á stálgitarinn og Banjó. Helgi Hjálmarsson (hljóm- borðsleikarinn I Stuölatrlóinu), Karl Sighvatsson og Jakob Magnússon sjá um hljómborðin, Grettir Björnsson leikur á harmónlku, Gunnar Qrmslev leikur á saxófón, Asgeir Stein- grlmsson leikur á trompet og Diddú (söngkona Spilverksins) syngur eitt lagiö, „Komdu heim”, ásamt Viöari. Umslagiö er ósköp ómerki-' legt, og er þaö unnið af Prisma sf., og ekki heföi sakað aö hafa textana fjölritaða meö á blaöi. Bestu lög: Vögguljóö, t húmi nætur, Silfurfugl, Komdu heim, Vorljóð, Bestu textar: Sjómannslif Vorljóö —Jens.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.