Þjóðviljinn - 11.06.1977, Qupperneq 20
DWÐVIUINN
Laugardagur 11 júnl 1977
AAalslmi Þjóftviljans er 81333 kl. 9-21 mánudaga til föstii-
daga, kl. 9-12 i laugardögum og sunnudögum.
Utan þessa tima er hægtaft ná i blaftamenn og aftra starfs-*
menn blaftsins i þessum simum. Ritstjórn 81382, 81527,
81257 og 81285, útbreiftsla 81482 og Blaftaprent 81348.
&81333
Einnig skalbentá heima-
sima starfsmanna undir
nafni Þjóftviljans i síma-
skrá. •*
..<9
Skráning
hefst á
mánudag
Skráiö ykkur sem
fyrst í ferdina
Eins og þegar hefur verið
sagt frá I Þjóftviljanum verft-
ur sumarferð Alþýðubanda-
lagsins aft öllu óbreyttu farin
laugardaginn 25. júni nk. A
mánudaginn getur fólk farift
að láta skrá sig á skrifstofu
Alþýftubandalagsins, Grett-
isgötu 3 eða i sima 17500 (op-
iö verftur fram á kvöld). Til
aft auövelda allan undirbún-
ing er æskilegt að þeir sem
ráðnir eru i að fara skrái sig
sem fyrst.
Farið verður um Reykja-
nesskagann með góðum leið-
sögumönnum i hverri rútu og
er það einstakt tækifæri til að
fræðast um næstu nágranna-
byggðir Reykjavikur sem
eru rikar að sögu og náttúru-
fyrirbærum.
— GFr
iean Jensen
Rafvirkjar
enn í
verkfalli
Rafvirkjar hjá Rafmagnsveitu
Reykjavikur eru enn i verkfalli.
Að sögn Jcan Jensen, trúnaftar-
manns rafvirkja, er málift i bið-
stöðu eins og er. Bifta rafvirkjar
eftir útspili frá Rafmagnsveit-
unni.
Allt er með kyrrum kjörum i
þessu verkfalli og þær deilur sem
voru uppi fyrstu tvo dagana um
það hvaða störf mætti vinna með-
an á verkfalli rafvirkjanna stend-
ur hafa nú verið leystar.
Eins og áður hefur verið skýrt
frá stendur deilan um ákveðnar
sérkröfur rafvirkja, einkum
samninga svonefndra linumanna.
eng.
Lögreglan tekur yfir inn-
heimtu umferðarsekta:
Sækja og
senda
menn heim
Héðinn Skúlason.
Þröstur Eyvindsson.
sinni þeir ekki kvaðningu og standi fyrir máli sínu
Hafir þú lesandi göður
gerst sekur um umferðar-
lagabrot og fengið tilkynn-
ingu um að þú eigir ó-
greidda sekt og ekki sinnt
þvi, getur þú átt von á því
að heima hjá þér eða á
vinnustað birtist menn frá
lögreglunni í Reykjavik,
sem biðja þig að koma með
sér niður á stöð, þar sem
þú verður að standa fyrir
máli þínu og semja um lok
málsins. Síðan er þér aftur
ekið heim eða á vinnustað.
Þessi þjónusta, ef svo má að
orði komast, er ný af nálinni hjá
lögreglunni i Reykjavik. Og þetta
kemur til af þeim breytingum,
sem eiga sér stað hjá lögreglunni
og sakadómi vegna tilkomu rann-
sóknarlögreglu rikisins.
Áður var það svo, að þegar
menn gerðust brotlegir i umferð-
inní, fengu þeir bréf frá lögregl-
unni þar sem þeim var tilkynnt
um sekt. Ef menn sinntu þessu
ekki, sem raunar mjög margir
gerðu, þá var málið sent til Saka-
dóms Reykjavikur sem sá siðan
um framhald málsins. Sú stofnun
var og er sem kunnugt er störf-
um hlaðin og mjög litið var um að
aðgerðum væri beitt til að fá
menn til að greiða sektir og þær
hrönnuðust upp. Til að mynda var
það svo með stöðumælasektir að
hreinlega var gefist upp við að
reyna að einnheimta þær.
En nú, þegar rannsóknarlög-
regla rikisinserað taka til starfa,
flytjast svona minniháttarmál til
lögreglunnar, og þeir hjá lögregl-
unni i Reykjavik eru byrjaðir að
vinna eftir þessu nýja kerfi.
„Það er okkar starf, að inn-
heimta þessar sektir, og ef menn
neita að greiða þær einhverra
hluia vegna að ganga þá svo frá
málinu að hægt sé að taka það
beint til dóms,” sagði Héftinn
Skúlason, einn af þeim 4 sem hafa
það starf með höndum að inn-
heimta sektir fyrir umferðar-
lagabrot.
Við heimsóttum Héðin og fé-
laga hans Þröst Eyvindsson á
lögreglustöðina í gær til að kynna
okkur þessa starfsemi.
„Fyrir mig er þetta svo sem
ekkert nýtt”, sagöi Héðinn, „ég
hef verið i þessu starfi siðan 1969
en þó var það ekki alveg sama
starf og nú þvi að ef menn ekkí
svöruðu bréfum frá okkur, þá af-
hentum við Sakadómi Reykjavik-
ur málið, en nú verðum við að
ljúka málinu þannig,að það sé til-
búið til dóms,neiti menn að greiða
sektina.”
Þröstur sagði að það væri ekki
erfitt að fá menn til að mæta, þeg-
ar þeir væru sóttir heim.
„Það er rétt að sumir hrökkva
við, en þegar útskýrt hefur verið
fyrir þeim að það sé aðeins verið
að fá þá til að mæta og gera útum
sitt mál og að þeir verði svo
keyrðir heim aftur, bregðast
menn vel við.”
„Gangur málsins hjá okkur er
sá,” sagði Héðinn, „að fyrst fá
menn sent heim sektarbréf, ef
þeir ansa þvi ekki, er hringt i þá
og þeir beðnir um að mæta og
gera útum málið. Sé þvi heldur
ekki sinnt sendum við menn til
viðkomandi og biðjum hann aö
koma með þeim niður á stöð og
það heppnast alltaf með góðu,
enda eru menn ekki handteknir,
aðeins beðnir kurteislega að
koma með og að þeim verði ekið
aftur heim.”
Þeir félagar sögðu að þar væru
svona 1800 til 2000 mál i gangi hjá
þeim og sú tala breyttist litið.
Alltaf eiga sér stað umferðar-
lagabrot, sem menn verða að
gjalda fyrir með sektum, þannig
að þessu starfi lýkur aldrei, þaft
heldur ævinlega áfram.
—S.dór