Þjóðviljinn - 02.07.1977, Qupperneq 1
UOÐVIUINN
Laugardagur 2. júli 1977 —42. árg. 139. tbl.
Matthías ógild-
Olíumöl á ýmsa vegi
sunnanlands í sumar
Vegagerð rikisins hefur nú
óskað eftir tilboöum i lögn oliu-
malarslitlags á ýmsa vegar-
kafla á Suðurlandi og er ætlunin
að það verði lagt á tveimur
næstu mánuöum. En hér er um
að ræða 72.000 ferm nýlögn og
um 74.000 ferm yfirlögn.
Samkvæmt uppiýsingum Jóns
Rögnvaldssonar yfirverk-
fræðings hjá Vegagerðinni
verður nýlögnin á eftirtöldum
vegum: 1,5 km af Eyrarbakka-
vegi næst Selfossi, 2,5 km af
Suðurlandsvegi austan Þjórsár,
3,5 km af Þingvallavegi upp
Mosfellsdalinn. Þá veröur lagt
slitlag á afleggjara frá Kefla-
vikurvegi ofan i Voga og Njarð-
vikur og haldið áfram með
Hafnaveg 3 km aö Stapafells-
vegi. Yfirlagnir eru hins vegar á
Reykjanesbraut, Hafravatns-
vegi og Suðurlandsvegi.
—GFr
ír ákvörðun Hafrannsókna
stofnunarínnar
um nýjar viömiðunarreglur varöandi togveiðar
í siðustu viku breytti Hafrann- *ng á veikum þorskstofnum af ár-
sóknarstofnunin reglum um göngunum 1974 og 1975 verði sem
veiðitakmarkanir til þess aö nýt- skynsamlegust. Kveða þessar
reglur á um að ef meira en 43%
aflans séu undir 64 sm að stærð
megi loka viðkomandi veiðisvæði
en áður voru mörkin 58 sm. pess-
ar nýju viðmiðunarreglur voru
auglýstar i útvarpi en i gær barst
tilkynning frá sjávarútvegsráðu-
neytinu um að fyrri viðmiðunar-
reglur skuli vera óbreyttar og
Matthias Bjarnason hefur lýst þvi
yfir að hann telji vinnubrögð Haf-
rannsóknarstofnunarinnar óskilj-
anleg og hafi það i för með sér að
öllum togaramiðum verði lokaö
fyrir norðan og austan land. Þjóð-
Einn angi kjarabaráttunnar:
Lækkun á
landbúnaðar
afurðum
vegna aukinna nidurgreiöslna
Á mánudaginn gengur
i gildi nýtt verð á land-
búnaðarafurðum. Þó að
vinnslu- og dreifingar-
kostnaður hækki þá
munu flestar búvörur
samt lækka i verði til
neytenda þvi auknar
niðurgreiðslur gera
betur en að mæta hækk-
unum.
Niðurgreiðslur á 1. verðfl.
dilkakjöts hækka úr kr. 122,- pr.
kg i kr. 210,-.
Verð á dilkakjöti breytist
þannig:
Heildsöluverð i heilum og
hálfum skrokkum er nú kr. 555,-
pr. kg, verður kr. 472,-.
Smásöluverð á dilkakjöti
breytist þannig:
Súpukjöt fer úr kr. 758,- pr. kg i
kr. 667,-.
Læri, heil eða niðursneidd, fara
úr kr. 854,- i kr. 772,-.
Verð á heilum skrokkum i
fyrsta verðflokki fer úr kr. 719,-
pr. kg. i kr. 636,-.
En heilsdölukostnaöur hækkar
um kr. 5,- pr. kg og smásölu-
álagning hækkar einnig. Álagning
á súpukjöt fer t.d. úr kr. 76,36 pr
kg i kr. 83,44.Smásöluálagning á
mjólk, rjóma og skyri hækkar um
16,09% og á smöri fer álagningin
úrkr, 77,-prkg ikr. 85,90.
Smásöluverð á mjólk breytist
þannig- að t.d. 2ja litra ferna
lækkar úr kr. 160,- i kr. 152,-.
Smjör kg. lækkar úr kr. 1186,- i
kr. 1096,-.
A hinn bóginn hækkar verð á
skyri þannig að kg. sem er nú kr.
177,-verður mánudaginn kr. 184.-
—mhg
Hér er veriö aö vinna viö tiltekt I kringum Volgu, en meö bættri aö-
stööu vonast menn eftir bættri umgengni viö lækinn. Hvort tekst aö
bæta umgengni viö sjálfann Fossvoginn er önnur saga, en ótrúleg-
asta drasli er fleygt i sjóinn þarna I kring.
Sjá frétt á baksíðu
viljinn sneri sér til Guðna Þor-
steinssonar fiskifræðings sem á
sæti i vinnuhópnum sem sam-
þykkti nýju reglurnar og spurði
hann álits á þessu máli.
Guðni sagði að hinar nýju regl-
ur hefðu verið samþykktar á
fundi i stofnuninni og siðan til-
kynntar munnlega embættis-
manni i sjávarútvegsráöuneytinu
og væru það alvanalegar vinnu-
reglur i svona tilvikum. Þá teldi
hann að breytingin úr 58 sm i 64
sm. væri algjörlega i ákvöröunar-
valdi stofnunarinnar. Ef hins
vegar svæðum er lokað verður að
nást samkomulag við sjávarút-
vegsráðuneytið innan einnar viku
um frekari aðgerðir.
Ekki vildi Guðni tjá sig um að-
gerðir sjávarútvegsráðuneytisins
i þessu máli þar sem eiginlega
enginn formlegur forstjóri er nú
um þessar mundir i Hafrann-
sóknarstofnuninni og hér væri um
faglegan ágreining að ræða.
Guöni sagði að nú væru góð átu-
skilyrði i sjónum og þvi afar
mikilvægt að árgangarnir frá
1974 og 1975 næðu að vaxa i sum-
ar. A þessum árstima ættu togar-
arnir lika auðveldara með að
veiða aðrar fisktegundir. Ekki
taldi hann liklegt að öllu svæðinu
frá Djúpi og að Hornafirði yrði
lokað eins og haldiö hefur verið
fram. Td. hefði hann fengið
fregnir i gær frá eftirlitsmanni á
Hvalbakssvæðinu fyrir Austur-
landi. Þar var togaraaflinn svo
vænn að ekki væri hægt að loka
þar. Auk þess væri það ákvörðun-
aratriði hverju sinni hvort loka
ætti eða ekki. Það færi ma. eftir
aflamagni og fjölda skipa á slóð-
inni.
Bréfið sem sjávarútvegsráðu-
neytið skrifaði Hafrannsóknar-
stofnuninni i gær er á þessa leið:
„Með fréttatilkynningu stofn-
unarinnar i Rikisútvarpinu hinn
28. f.m. barst ráöuneytinu vitn-
eskja um ákvörðun hennar um
nýjar viðmiðunarreglur, sem
nota á við skyndilokanir svæða
vegna smáfisks, og gert ráö fyrir
að þær tækju gildi frá deginum i
dag.
Ráðuneytið telur að slikar
ákvarðanir Hafrannsóknastofn-
unarinnar eigi að berast ráöu-
Framhald á bls. 14.
Fyrsti áningarstaöur veröur viö hina frægu Strandarkirkju og þar
mun Jón Ilnefill Aöalsteinsson segja sögu hennar. (Ljósm.: GFr.)
Sumarferðin um Reykjanes á morgun:
Skrifstofan opin til kl. 21
Síðustu forvöð uð sækja farmiða í dag
Þeir sem ekki hafa þegar sótt
farmiða i sumarferð Alþýðu-
bandalagsins um Reykjanes á
morgun verða að gera það I dag.
Skrifstofan að Grettisgötu 3 er
opin til kl. 21 i kvöld og er sim-
inn þar 17500.
Fargjald fyrir fullorðna er
1900 kr. — fyrir aldraða og
öryrkja 1300 kr. — og fyrir börn
1100 kr. Þátttakendur eiga að
vera komnir á Umferðarmið-
stöð kl. 8.30 og lagt verður af
staö þaðan kl. 9.00 stundvislega.
Þá er rúta frá sérleyfinu i
Keflavik til Reykjavikur kl. 7.45
og frá iþróttahúsinu i Strand-
götu i Hafnarfirði kl. 8.20 og frá
Þinghól i Kópavogi kl. 8.30.
Fólk er hvatt til að klæða sig
vel og nesta sig vel en gosdrykk-
ir verða seldir i rútunum.
Helstu áfangastaðir eru:
Strandarkirkja i Krýsuvik —
Méltunnuklif i ögmundarhrauni
— Festi — Reykjanestá og
Hvalsnes.
Munið aö i Alþýðubandalags-
feröunum sameinast fræösla
um land og sögu skemmtun og
félagsskap. Látiö ykkur þvi ekki
vanta!