Þjóðviljinn - 14.08.1977, Page 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 14. ágúst 1977
Málgagn sósíalisma,
verkalýóshreyfmgar
og þjóðfrelsis.
Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans.
Framkvæmdastjóri: Eiöur Bergmann
Ritstjórar: Kjartan ólafsson, Svavar
Gestsson
Fréttastjóri: Einar Karl Haraldsson.
Umsjón meö sunnudagsblaöi Arni Berg-
mann
Auglýsingastjóri: Úlfar Þormóösson
Ritstjórn, afgreiösla, auglýsingar:
Siðumúla 6. Sfmi 81333.
Prentun: Biaöaprent hf.
Einar Olgeirs-
son 75 ára
Engum einum manni á Þjóðviljinn og öll
sósialisk stjórnmálahreyfing á íslandi
meira að þakka en Einari Olgeirssyni,
sem er 75 ára i dag.
Með ungum þrótti og fullur eldmóðs
gekk Einar til starfa i verkalýðshreyfing-
unni snemma á þriðja áratug þessarar
aldar, — staðráðinn i þvi að kosta sér öll-
um til i baráttunni fyrir framgangi hug-
sjóna sósialismans, fyrir rétti alþýðu og
reisn fátæks fólks. Þótt siðan sé liðin
meira en hálf öld, þá er Einar enn sami
eldhuginn sem fyrr. Margur hefur bognað
i sviptivindum aldarinnar, sumir brotnað,
— en Einar hefur verið sá gæfumaður að
aka heilum vagni frá hvern raun.
Áratugur er nú liðinn siðan Einar kaus
að hætta störfum á Alþingi Islendinga eft-
ir 30 ára setu þar, löngum sem helsti tals-
maður sósialista, en formennsku i Sam-
einingarfl. alþýðu — Sósialistaflokknum
gegndi hann i álika langan tima. Þvi fer þó
fjarri að Einar hafi látið af þátttöku i
pólitisku starfi nú þessi siðustu ár.Hann er
enn sem fyrr ritstjóri timaritsins Réttur,
og skrifar þar fjölmargar greinar sem
ungur væri, en yfir 50 ár eru nú liðin siðan
Einar tók við ritstjórn Réttar árið 1926.
Þótt enn sé framtiðarlandið fjarri þá eru
umskiptin mikil bæði hér heima og um
veröld alla á þeim tima, sem starfsævi
Einars Olgeirssonar spannar. Ekkert
þjóðfélagsafl hefur á þessum tima átt
stærri hlut en verkalýðshreyfingin að
þeim breytingum, er til heilla horfa. Og sé
litið hálfa öld til baka virðist ljóst, að inn-
an verkalýðshreyfingarinnar á íslandi og
stjórnmálasamtaka hennar hafi fáir eða
engir verið áhrifameiri, lagt fram drýgri
skerf, en Einar Olgeirsson.
Framvinda sögunnar er margbrotin, og
þótt efnahagsleg lögmál ráði þar ærið
miklu um, þá verður þvi með engu móti
neitað að hlutur einstakra manna verður
stundum ótrúlega stór.
Það kall timans, sem barst Einari ung-
um og kvaddi hann til verka var sannar-
lega bæði máttugt og mikils varðandi. —
En margir eru kallaðir, fáir hins vegar
útvaldir. Þess vegna var það gæfa
islenskrar alþýðu, að Einar Olgeirsson
hlýddi kalli timans og kostaði sér öllum til
fyrir hennar málstað.
Þeir sem kynnast vilja þvi þjóðfélags-
lega umhverfi, sem blasti við Einari á
hans uppvaxtarárum ættu að taka sér i
hönd bók Tryggva Emilssonar — Fátækt
fólk —, en þeir Einar og Tryggvi eru jafn-
aldra og gamlir grannar frá höfuðstað
Norðurlands.
Hvað er það sem knýr menn áfram i
ölduróti lifsins, — einn inn á þessa braut,
annan á hina?
Sliku er ekki auðsvarað.
Hvers vegna hlýddi Einar Olgeirsson
kalli timans, meðan ýmsir aðrir, sem
máske hefðu lika getað orðið liðtækir,
kusu fremur að hlifa sér, eða jafnvel að
ganga braut sérhyggjunnar?
Fræðileg þekking á lögmálum sam-
félagsins og möguleikum mannsins til að
byggja réttlátt þjóðfélag dugar ekki ein
sér til þess að menn leggi fram allt sem
þeir megna, kosti sér öllum til i pólitiskri
baráttu. Vissulega hefur fræðikenning
sósialismans verið Einari Olgeirssyni
ómetanlegur styrkur, en aflvakinn sem
dýpstum rótum stendur er þó sú mannúð,
eða mannást, sem auðkennir Einar.
Ungur að árum drakk Einar i sig
boðskap þeirra manna islenskra, sem
fyrstir kveiktu hér þá elda, sem verka-
lýðshreyfingin og stjórnmálasamtök
sósialista siðan hafa glætt og reynt að
magna. — Boðskap Skúla Thoroddsen,
Stephans G. Stephanssonar, Þorsteins Er-
lingssonar og fleiri frumherja.
— ,,En þú sem að hefur i hjartanu blóð,
úr hrakinni smáðri og kúgaðri þjóð...”
Það er stolt Einars að geta kallað sig
lærisvein þessara ágætu manna, þótt
margt hafi hann einnig lært af þeim félög-
um Marx, Engels og Lenin og mörgum
fleiri baráttumönnum sósialismans um
viða veröld fyrr og siðar.
Að standa djúpum rótum i eigin jörð, en
hafa skarpa sjón um alla veröld er aðals-
merki.
Einar Olgeirsson er íslendingur á 20.
öld, en þrautir islenskrar alþýðu á öllum
öldum íslandsbyggðar brenna honum i
blóði. Og hann mun að sjálfsögðu ekki
setjast á friðarstól fyrr en járnhæl hefur
verið létt af alþýðu manna i Chile, i
Tékkóslóvakiu, og hvarvetna annars stað-
ar, — fyrr en frjálst jafnréttisþjóðfélag
sósialisma og lýðræðis er orðið að veru-
leika á jarðarkringlunni, fyrr en niðurlæg-
ingu óhófs og örbirgðar hefur verið út-
rýmt, en maðurinn skipar öndvegi með
þeirri reisn, sem hann á, þegar best gegn-
ir.
Slikra tima kann að visu að vera nokkuð
langt að biða, en hugurinn ber menn hálfa
leið, og góðu heilli hefur Einar aldrei skort
hug, enda verið bjartsýnismaður, og séð
framtiðarlandið i ekki svo ýkjamikilli
fjarlægð. Annars er heldur ekki að vita
hvernig farið hefði.
Það er sagt að á okkur, sem nú skrifum
Þjóðviljann, hvili engu minni ábyrgð en
þeim, sem fyrr stýrðu þessu blaði. Sagan
og timinn velja okkur öll með breytilegum
hætti. Sérhver einstaklingur er barn sins
tima, háður þeim takmörkunum, sem
hraðfleygt timaskeið setur. Svo var um
þá, sem hleyptu Þjóðviljanum úr vör fyrir
röskum 40 árum, og svo er um okkur, sem
nú sitjum hér undir árum. Enginn axlar
þyngri byrði ábyrgðar en kraftar og
samviska leyfa.
En gæfa Þjóðviljans og stjórnmálasam-
taka islenskra sósialista hefur verið sú, að
þráðurinn frá þvi fyrsta til þessa dags er
þrátt fyrir sitthvað sem á milli ber óslit-
inn.
Þótt framtiðin sé verkefnið lifir fortiðin
i okkur og við i henni.
Með þeim orðum þakkar Þjóðviljinn
Einari Olgeirssyni, fyrsta ritstjóra sinum,
á heiðursdegi hans, fyrir allt, sem hann
var, er og verður.
Einari og fjölskyldu hans árnum við
allra heilla. _ k.
Happaáætlunin
Okkur er alltaf talin trú um aö öliu sé
óhætt eöa er það ekki?
Þessi skóli litur á málin sem
hér segir:
Til þess að byrja styrjöld
verður einhver að þrýsta á
hnapp. Til þess að tryggja að
enginn ýti á hnappinn af tilvilj-
un er hann falinn á nýjum stað á
hverjum degi.
Þaö eru aðeins tveir menn,
báðir lágt settir liðsforingjar
sinn úr hvorri deild hersins. sem
vita nákvæmlega hvar hnapp-
urinn er niður kominn hverju
sinni. En þeir þekkja ekki hvor
annan. Hvor um sig hefur um-
boð til að þrýstaá hnappinn þeg-
ar svo er fyrir skipað af hátt-
settari mönnum. En hnappurinn
virkar ekki nema fingur þeirra
beggja séu á honum samtimis.
Nú skulum við reyna á hug-
myndaflugið og gera ráð fyrir
þvi, að báðir hittist þessir menn
á sama stað og sama tima og
ákveði að þrýsta á hnappinn
samtimis. Þetta leiðir ekki
sjálfkrafa til þess að heims-
styrjöldin siðari hefjist. Þegar
ýtt er á hnappinn gerir hann
ekki annað en aö kveikja á
grænu ljósi i sprengjuheldu og
geislavirkniheldu neðanjarðar-
byrgi, sem er falið á leyndum
stað nálægt Cheyenne i
Wyoming. I byrginu eru tveir
menn sem báðir hafa lykil að
hvitum sima, sem þar er. Um
leið og þeir sjá græna ljósið
hringja þeir i leynilegt númer i
Suður-Dakota og segja: Grænt
ástand.
Þessum boðum er komið lil
yfirmanns herstöðvarinnar i
Dakota sem reynir umsvifa-
laust að ná sambandi við Was-
hington. En með þvi að hann
hefur ekki leyninúmerin i Was-
hington þá getur hann ekki
hringt beint. Hann sendir þvi
boðin með bréfdúfu. Þetta heitir
,,Rautt ástand” .
Um leið og dúfan kemur til
Washington er varnarmálaráð-
herrann látinn vita, og hann
kemur svo boðum áfram til for-
setans.
En forsetinn getur ekki gefið
merki um að gera neitt án þess
að kveikja á slökkvara og á
slökkvaranum eru sjö lásar.
Sérhver meðlimur fjölskyldu
forsetans hefur lykil að einum
lási, og það er ekki hægt að
nálgast slökkvarann fyrr en all-
ir lásar eru opnaðir samtimis.
Með þvi að fjölskyldumeðlim-
irnir eru aldrei i Washington
samtimis, þá er það i reynd
óhugsandi að hægt sé að kveikja
á slökkvaranum.
Þvi er það nú svo, að mögu-
leikar á þvi að strið brjótist út af
slysni eða jafnvel af ásettu rái
eru harla litlir og ættu ekki að
halda vöku fyrir neinum. Ef
ekki væru allar þessar öryggis-
ráðstafanir þá væri ég mjög
áhyggjufullur sjálfur.
Eitt af því sem allir
þurfa að hafa áhyggjur
af a þessum síðustu og
verstu timum er sú hætta,
að k jarnorkustyrjöld
hefjist af tilviljun. Þið
munið eftir metsölubók-
inni sem var skrifuð um
þetta efni og hét ,,Fail
Safe". Þar segir frá því,
að bandarískir sprengju-
stjórar hafa gengið of
langt vegna einhvers
ruglings i litlum svörtum
kassa — sprengjuf lugvél-
unum geta ekki framar
borist boð um að snúa við.
Þær eiga að sprengja Moskvu
i loft upp. Til þess að sýna rúss-
um að hér sé um slys að ræða,
sprengir forseti Bandarikjanna
heldur þvi fram, að það sé búiö
aö setja svo marga öryggislása
á kjarnorkuvopn, að enginn gæti
skotið kjarnorkuskeyti jafnvel
þótt hann feginn vildi.
New York i loft upp, enda þótt
konan hans sé þar i innkaupa-
ferð.
En það er til annar heim-
spekiskóli i Washington sem