Þjóðviljinn - 14.08.1977, Blaðsíða 18

Þjóðviljinn - 14.08.1977, Blaðsíða 18
18 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Suimudagur 14. ágúst 1977 Tilkynning um útboð Alþýðusamband Norðurlands óskar eftir tilboði i að leggja veg og göngustiga, leggja vatns- og skolplögn fyrir nýtt or- lofshúsahverfi að Illugastööum i Fnjóskadal. Útboðsgögn verða afhent hjá verkfræði- stofu Sigurðar Thoroddsen, Glerárgötu 36 Akureyri, frá og með þriðjudeginum 16. ágúst 1977 gegn tiu þúsund króna skila- tryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað mánu- daginn 29. ágúst 1977 klukkan 11 fyrir há- degi. Matreiðslu- menn Allsherjaratkvæðagreiðsla um nýgerða kjarasamninga matreiðslumanna á kaup- skipaflotanum mun fara fram frá 17. ágúst til 15. september næstkomandi. Skrifstofa félagsins verður opin mánu- daga, miðvikudaga og fimmtudaga frá kl. 14.30-17.00. Stjórn Félags matreiðslumanna. Einkaritari Þjónustufyrirtæki i austurhluta borgar- innar óskar að ráða einkaritara forstjóra. Góð islenzku-, ensku og vélritunarkunn- átta nauðsynleg. — Góð laun og starfsað- staða i boiSi fyrir hæfan starfskraft. Umsóknir ásamt upplýsingum um aldur, menntun og fyrri störf sendist Þjóðviljan- um sem fyrst merkt: „Einkaritari 1020” X Hafnarfjarðarhöfn óskar'eftir tilboðum i að steypa og mal- bika á Óseyrarbryggju. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu bæjarverkfræðings að Strandgötu 6 frá 15. ágúst. Tilboð verða opnuð á sama stað 25. ágúst klukkan 11. Ilafnarstjórn. Útboð Tilboð óskast i 80 þúsund til 120 þúsund rúmmetra fyllingarefni fyrir Reykjavik- urhöfn, sem flutt yrði sjóleiðis eða með öðrum hætti og losað i hafnarmannvirki i Kleppsvik. Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Frikirkjuvegi 3 Reykjavik. Tilboðin verða opnuð á sama stað fimmtudaginn 25. ágúst næstkomandi klukkan 11 fyrir há- degi. INNKAUPASTOFNUN REYKIAVÍKURBORGAR Fnkirkjuvegi 3 — Sími 2S800 X Hafnarfjörður Bókasafn Hafnarfjarðar óskar eftir að ráða bókavörð. Umsóknir ásamt upplýs- ingum um aldur, menntun og fyrri störf sendist yfirbókaverði fyrir 28. ágúst. Ný tegund gervitanna, sem vaxa inn 1 góminn Tannskemmdir og tannbrot hafa fylgt manninum i margar aldir. Ofteru afleiöingarnar þær, aö rifa verður tönn eöa tennur úr mönnum, og setja gervitennur eöa lausan góm i staöinn. Löngum hafa menn óskaö þess, að þessar þriðju tennur sætu eins fastar og hinar fyrri, helst aö þær væru eins og þær heföu vaxiö i gómnum. Mörg er festingin Hugmyndin um igræðslu tanna úr öðrum mönnum eða ígræðslu gervitanna er alls ekki ný. Róm- verjar létu sig ekki muna um aö draga heilbrigðar tennur úr þræl- um sinum og festa þær i eigin munni, en á siðari timum hafa að- gerðiraf þessu tagi verið bundnar við festingar alls kyns gervi- tanna, Ur stáli, silfri eða postulini og plasti. Sá er þó gallinn á öllum þessum gervitönnum, að fyrr eða siðar lendir sjúklingurinn aftur i tann- læknastólnum. Tönnin nýja er farin að losna. Festingarnar eru af ýmsum toga. Naglar eða skrúfur eru settar of- an i tannbeinið, stálþræðir og brýr festar við aðrar tennur. Álagið á tennurnar er þó svo mik- ið að við sifellda tuggu merst beinið og festingin losnar, auk þess sem bakteriur eiga yfirleitt greiðan aðgang að tannholdinu niður með gervitönninni og geta myndað þar igerð. Innan tveggja ára N'U er þó útlit fyrir að draumur- inn fari að rætast. Visindamenn i Frankfurt hafa fundið upp efni, sem beinlinis vex ofan i tannbein- ið eða góminn og helst þar fast eins lengi og hver vill. Þessi nýja tegund gervitanna hefur verið prófuð á undanförnum 5 árum á sinagandi rottum og kaninum, og nú siðast á hundum, þar sem tennur þeirra eru likari þvi sem gerist hjá manninum. Nýja efnið er bianda af postu- lini og kalsiumfosfati. A neðra borðinu eru smá rætlingar með örsmáum holum. Tönninni er ein- ungis þrýst ofan i góminn, og beinið sýgur til sin kalsiumfosfat- ið. Það er i kúlum i rótinni, en á átta til tiu vikum leysist það upp og vex út i beinið, harðnar og myndar þannig fasta tengingu við beinið sjáift. A málmkjarna rót- arinnar er siðan fest króna. Þessi nýja uppgötvun hefur einnig verið prófuð á mönnum. Þó er ekki farið að festa heilar tenn- ur i menn, en forstöðumaður til- raunanna, dr. Kari Köster, segir aðþessmegi vænta innan tveggja ára. Hingað til hefur efniö ein- ungis verið notað sem fylling i tennur eða bein manna, og hefur það reynst mjög vel. Þrátt fyrir þennan biðtima eru nú þegar farnir að myndast bið- listar af fólki, sem einhverra hluta vegna þarf að láta draga úr sér, en ætlar að reyna að þrauka þar til föstu þriðju tennurnar verða orðnar að veruleika. (Byggt á Spiegel — A1) Vísindi og samfélag: Nýju gervitennurnar hafa veriö reyndar a nunnum meO góöum árangri. \ HENDUR SKULU AF HÖGGNAR KAIRÓ — Að sögn egypska dagblaðsins Al-Ahram, liggur nú fyriregypska þinginu laga- frumvarp um að tekin skuli i gildi sú regla Kóransins aö höggva hægri hönd og vinstri fót af þjófum. Sagði blaðið aö þetta lagafrumvarp hefði ver- ið samið af sérstakri nefnd, sem hefði það hlutverk með höndum að samræma egypska löggjöf lögmálum tslams. I fyrra var tekin i gildi lög- gjöf, sem byggö var á fyrir- mælum Kóransins og bannaði egyptum að neyta áfengra drykkja á almannafæri, en engin mál hafa enn risið út af þeirri löggjöf. Töldu frétta- menn i Kairó að svo gæti einn- ig farið að lögin um handhögg og fóthögg yrðu tekin i gildi, en þeim yrði ekki beitt. Tilgangur þeirrar stefnu aö breyta egypskum lögum i samræmi við reglur Kórans- ins er sá, að koma i veg fyrir þá gagnrýni strangtrúaðra Múhameðstrúarmanna að stjórnin virði ekki trúarhefö landsins. Þessir strangtrúuðu Múhameðstrúarmenn hafa talsveröan hljómgrunn meðal landsmanna og viröist stjórn- in telja að sér stafi hætta af áróðri þeirra. r"-“ Útför eiginmanns mins og föður okkar Hjartar Halldórssonar fyrrverandi inenntaskólakennara fer fram frá Fossvogs- kirkju miðvikudaginn 17. ágúst nk. kl. 10.30. únnur Arnadóttir og synir. - Loksins get ég lesið reyfarann minn í friði

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.