Þjóðviljinn - 14.08.1977, Qupperneq 20

Þjóðviljinn - 14.08.1977, Qupperneq 20
DMÐMJJNN Sunnudagur 14. ágúst 1977 Aðalsimi Þjóöviljans er 81333 kl. 9-20 mánudaga til föstu- daga, kl. 9-12 á laugardögum og sunnudögum. Utan þessa tlma er hægt að ná I blaöamenn og aðra starfs- menn blaðsins I þessum simum: Hitstjórn 81382, 81527, 81257 og 81285, útbreiösla 81482 og Blaðaprent 81348. <-81333 Einnig skal bent á heima- sima starfsmanna undir nafni Þjóöviljans i sima- skrá. Tómatar hækka og lækka í heildsölu, en hvað kemur það neytandanum við? Tómatar eru, ásamt öðru grænmeti frá Sölufélagi garðyrkjumanna,ein fárra vörutegunda hér á landi, sem hækka og lækka í verði eftir framboði og eftir- spurn. í sumar hafa orðið miklar verö- sveiflur á tómötum, allt frá 675 krónur kilóið niður i 475 kr. og aft- ur upp i 600 kr. nú i fyrstu vikunni i ágúst. Allt er þetta heildsölu- verð, sem Sölufélag garðyrkju- manna selur tómatana á til kaup- manna, en álagning þeirra er misjöfn, allt upp i 38,8%, en sölu- skattur á grænmeti er enginn. Þótt kaupmenn verði varir við þessa „frjálsu verðlagningu”, er neytendum i flestum tilfellum hulin ráðgáta, hvort tómatar eru dýrir eða ódýrir frá degi til dags. Þar er þvi um að kenna, að auk mismikillar álagningar eru tómatar seldir i neytendapakkn- ingum á misstórum bökkum, sem verðið er skrifað á, en engar upp- lýsingar er þar að finna um hvað kflóið kostar. Þcss utan eru tó- matar i a.m.k. tveimur misdýr- um neysluflokkum, og vegna mis- munandi stærðar eru ýmist fleiri eða færri i kilóinu, en á neytenda- pakkningunum vantar einnig all- ar upplýsingar um þyngd. Þjóðviljinn hafði samband við Þorvald Þorsteinsson, fram- kvæmdastjóra Sölufélags garð- yrkjumanna, og fékk hjá honum upplýsingar um framleiöslu, nýt-' ingu, sölu og verðlagningu á tó- mötum og öðru grænmeti, sem Sölufélagið hefur nú á boðstólun- um. Þorvaldur sagði, að eftir óvenju bjartan og góðan vetur hafi tómatauppskeran strax i enda mai og byrjun júni orðið mun meiri en i venjulegu árferði. t júni barst Sölufélaginu 90 tonn af tó- mötum, en i fyrra aðeins 60 tonn i sama mánuöi. Fyrsta verðákvörðunin, sem gilti fram til 6. júni var 675 kr. kilóið, en lækkaði þá niður i 475 kr og hélst þannig fram til 1. ágúst. Þá hækkaði verðið fyrst i 525 kr. og siðan i 600 krónur. Landbúnaðarvörur hafa al- mennt hækkað um 30% siðan i fyrra, en verðið sem tómatarnir voru á i júni og júli er lægra en var á sama tima i fyrra, og er þvi Sex tómalar á 450 krónur. Hvað skyldi kilóið af þeim kosta? í verösamanburöi sem Þjóðviijinn gerði I gær getur þaö verið á bilinu 675 krónur til 846 krónur. Hvernig væri að fara að merkja slíkar pakkningar með verði hvers kilós og greina frá þyngdinni? Eru tómatar græn- meti eða ávextir? Álagning á grænmeti er 34,7% en á ávexti 38,8% Það er ekki nema von að fólk ruglist i riminu og lægri. Ef tómatar eru gi ænmeti ætti kilóið að hafi iitinn áhuga á breytingum á heildsöluverði kosta 808.20. tómata, jafn breytiiegt og verðið er I hinum ýmsu Fer samanburður á verði verslananna hér á verslunum i borginni. eftir: —AI Þjóðviljinn kannaði litillega i gær verðlagning- una, en kilóið i heildsölu kostar nú 600 krónur og Síld og Fiskur, Bergstaðastr. 675,- enginn söluskattur er innheimtur af þeim. Hagkaup, Skeifunni 680,- Kaupmenn mega leggja 34,7 á grænmeti, en Kron,Snorrabraut 729,- 38,8% á ávexti, samkvæmt upplýsingum sem við Vörðufell, Breiðholti 730.- fengum hjá Verðlagsstjóra. Hjá Kaupmannasam- Kaupgarður, Kópavogi 740.- tökunum íengum við þær upplýsingar, að álagn- Viðir, Austurstræti 750.- ingin væri 38,8% þ.e. að tómatar væru ávextir, en Valgarður, Breiðholti 830,- hjá Búnaðarfélaginu að tómatar væru að sjálf- Hjá Tómasi, Laugavegi 830,- sögðu grænmeti og ætti álagningin þvi að vera Holtskjör, Langholtsvegi 833,- 34,7%. Kron, Breiðholti 833,- Þjóðviljinn fékk uppgefið verð á fyrsta flokks Dalver, Dalbraut 833.- tómötum i 14 verslunum i gær. 8 verslananna S.S.Glæsibæ 833.- leggja um eða yfir 38,8% á, en samkvæmt þvi á Hólagarður, Breiðholti 835,- verðið að vera 832 kr. kilóið. Hinar 6 eru mun S.S. Matardeildin Hafnarstr. 846.- i raun um 30% verðlækkun að ræða i þessum tveimur mánuð- um. Þorvaldur sagði, aö fólk væri óvenju áhugalaust um þaö hvert verðið væri. Komið hefði i ljós viö nær 40% verðlækkun að salan hefði aðeins aukist um 10-12%. Fólk væri að visu ánægt með að varan lækkaði, en yki neysluna ekki að sama skapi. Þegar framleiðslan var sem mest i vor, var hent tonni eftir tonni af tómötum á haugana. Þor- valdur sagði það eingöngu hafa veriö vegna þess að Efnagerðin Valur hefði ekki getað, vegna yf- irvinnubannsins, og siðar vegna vélarbilunar, unnið úr umfram- magninu. Framkvæmdastjóri Vals staðfesti þetta við Þjóðvilj- ann i gær; hann ©gði að verk- smiðjan fengi á hverjum degi allt það sem umfram væri hjá Sölufé- laginu og væri það unnið á kvöldin og næturnar. Vélin hefur þó verið biluð I mestallt sumar, og var það fyrst i gær, að varahlutir fengust i hana. Við eðlilegar aö- stæður getur verksmiðjan annað öllu þvi magni, sem henni berst. Minnkað framboð nú er aðeins timabundið, og vonast framleið- endur til þess að eftir 2-3 vikur verði aftur unnt að lækka verðið á tómötunum. Þorvaldur Þorsteinsson sagði að með auknum feröamanna- straumi og auknum kynnum Is- lendinga af mataræði erlendis hafi grænmetisneysla stóraukist. Matsölustaðir i Reykjavik kaupa um 20% alls grænmetis sem i Reykjavik selst, en grænmetis- ræktun er nær engin i höfuðborg- inni sjálfri. Helstu grænmetis- ræktunarsvæðin eru i Árnessýslu og Borgarfirði. 1 samtalinu við Þorvald bar grænmetismarkað á góma. Hann sagði að hugmyndin um að setja á stofn slikan markað hafi oft skot- ið upp kollinum, en kvaðst ekki búast við, að úr þvi yrði á næst- unni. Það væri of viðamikið fyrir- tæki, auk þess sem Sölufélagið treysti sér ekki i samkeppni við kaupmenn, sem eru aðalvið- skiptavinir félagsins. Nú er komið á markaðinn blómkál, hvitkál, gulrætur og róf- ur, og er verðið almennt um 30% hærra en i fyrra, þ.e. hefur fylgt almennri verölagningu á land- búnaðarvörunum. — AI. Fiðlukonsert eftir Mozart reyndist vera falsaður 1931 Upp hefur komist að verk eitt, sem tit skamms tíma hefur verið talið fyrsti fiðlukonsert Mozarts, er í reynd fölsun. Verkið er sett saman — að vísu á grundvelli nokkurra uppkasta eftir Mozart, af franska fiðluleikaranum Marius Casadesus árið 1931 Reyndar höfðu ýmsir fræði- menn efast um að þessi fiölukon- zert i D-dúr K 294 a, væri ekta. Verkið átti Mozart að hafa samið tiu ára gamall árið 1766 þegar hann gisti Versali. Það var ekki hægtað sýna frumhandrit, en það var útskýrt með þvi að segja, að það væri i eigu einkasafnara sem vildi ekki láta neinn hnýsast i það. Konsert þessum var vel tekið, og sjálfur Yehudi Menuhin gerði hann mjög frægan með þvi að leika hann inn á plötur árið 1934. Casadesus, sem játaði höfund- skap sinn vegna deilna um þókn- un fyrir konsertinn; hann hafði fengið nokkrar tekjur sem „útsetjari”, er nú 84 ára gamall. Casadesus: Hefur loksins játað á sig fölsun

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.