Þjóðviljinn - 08.09.1977, Qupperneq 3

Þjóðviljinn - 08.09.1977, Qupperneq 3
Fimmtudagur 8. september 1977 ÞJÓDVILJINN — SIÐA 3 Mannránið í V-Þýskalandi: Þess er krafist að fang- ar verði látnir lausir Stjórnmálamenn eru eins og kunnugt er misjafnlega heppnir i viðskiptum sinum viökýr. Hugh Carey rikisstjóri I New York var þó aö þvi ieyti hugaöur aö hann geröi heiðarlega tiiraun til að mjólka kú eina, sem bar heitiö Rósa, og fór þaö eins og myndin sýnir. Seinna gerði hann aö sögn aöra tilraun sem tókst betur. Efnahagsáætlun sam- þykkt í Danmörku KAUPMANNAHÖFN 7/9 Reuter — Danska þingiö samþykkti I gær efnahagsáætlun til þriggja ára, sem miðar að því aö bæta úr atvinnuleysi og gera greiðslu- jöfnuöinn hagstæðari. Búist er við þvi að þessi efna- hagsáætlun, sem samþykkt var á þinginu í gærkvöld eftir tveggja vikna aukafund, gefi 6,5 miljaröa danskra króna i aukatekjur, en 800 miljónum af þvi fé verður varið til að örva atvinnu i landinu. Mestur hluti af þessum auka- tekjum kemur af auknum sölu- skatti (sem verður hækkaöur úr 15% i 18%) og auknum skatti á bensin, oliu, tóbak og áfengi. Stjórnin vonast til þess að þessi efnahagsáætlun, sem kemur i kjölfar 5% gengislækkunar, muni draga úr óhagstæðum greiðslu- jönfuði og minnka atvinnuleysiö sem nær nú til sjö af hundraði manna i Danmörku. Framhald á bls. 14. Endurnýjið fyrir sumarfrí Missið ekki af góðum vinningi fyrir það eitt, að þið voruð fjarverandi þegar endurnýjun fór fram. Nú er endurnýjun fyrir 9. flokk í fullum gangi hjá umboðsmönnum okkar. En umboðsmennirnir taka einnig við endurnýjunum einn, tvo, eða þrjá mánuði fram í tímann til þess að tryggja ykkur möguleika á vinningi á meðan þið eruð í sumarleyfi. Endurnýjið fyrir sumarfrí, endurnýjið fram í tímann! Dregið 13. september. 9 flokkur 9 á 1.000.000.— 9 — 500.000,— 9 — 200.000 — 207 — 100.000,— 675 — 50.000.— 8.973 — 10.000,— 9.882 18 — 50.000,— 9.900 HAPPDRÆTTl HÁSKÖLA ÍSLANDS Tvö púsund milljónir í boÓi BONN 7/9 Reuter — Mannræningjarnir, sem rændu Hanns-Martin Schleyer, formanni vestur- þýska vinnuveitendasam- bandsins, hafa nú hótað því að bana honum nema ellefu men, sem sitja í fangelsi fyrir hryðjuverk, verði látnir lausir. Vestur-þýskar útvarpsstöðvar skýröu frá þvi að ræningjarnir hefðu krafist þess að þessir ellefumenningar, þ.á.m. leiðtog- ar hdns svokallaða Baader-Mein- hof hóps, yröu fluttir úr landi i flugvél til ónefnds ákvörðunar- staöar I fylgd með presti. En vestur-þýska stjórnin neitaði hins vegar að staöfesta þessar fréttir eða bera þær til baka, en fól útvarpsstöðvunum að útvarpa ávarpi til mannræningjanna. Þar voru þeir beðnir að sanna að Schleyer væri enn á lifi með þvi að senda lögreglunni segulbands- spólu, þar sem hann svaraði tveimur persónulegum spurningum. Eina opinbera yfirlýsingin um kröfur mannræningjanna kom i dag frá KarliSchiess, innanrikis- ráðherra i Baden-Wurttemberg, en hann sagði fréttamönnum i dag að sex af þeim ellefu mönnum, sem krafist hefði verið að yrðu látnir lausir, væru i fang- elsum eöa sjúkrahúsi i þvi fylki. Þrir helstu leiðtogar hins svo- kallaða Baader-Meinhof hóps, Andreas Baader, Jan-Carl Raspe og Gudrun Ensslin, eru i fangelsi i Stuttgart. Karl Schiess gaf engin nöfn, en hann sagði að einn hinna sex væri illa haldinn og ekki ferðafær. Samkvæmt frásögnum útvarpsstöðva hafa mannræn- ingjarnir krafist þess að þegar fangarnir verði látnir lausir fái þeir sem fylgdarmenn fulltrúa Sameinuðu þjóðanna og dr. Martin Niemöller, sem er 85 ára að aldri, einn þekktasti prestur Þýskalands og frægur friöarsinni. Var þessi háttur hafður á, þegar fimm „stjórnleysingjar” voru látnir lausir 1975 i skiptum fyrir vestur-þýska stjórnmálamanninn Peter Lorenz, en þá var þess krafist að þekktur guðfræðingur fylgdi „stjórnleysingjunum” til Suður-Jemen. Dr. Niemöller var kafbátsforingi i fyrri heimsstyrj- öldinni, en siðan áhrifamikilll prestur i þýsku mótmælenda- kirkjunni. Hann sat i fangabúðum nasista frá 1937 til 1945 fyrir and- stöðu gegn stjórn Hitlers. Hann var formaður alkirkjuráðsins i Genf 1961-68. Fyrir skömmu skrifaði hann grein i franska dag- blaðið „Le Monde”, þar sem hann lýsti áhyggjum sinum vegna brota á mannréttindum i Vestur- Þýskalandi. Útvarpsstöðvarnar sögðu einnig að mannræningjarnir heföu lofað þvi að Hanns-Martin Schleyer yrði látinn laus, strax og flugvélin meö fangana um borð heföi komisttiláfangastaðar. Var sagt að þessi orðsending hefði borist vestur-þýsku stjórninni i bréfi i gær, og hefði bréfið verið undirritað „Siegfried Hausner’ Sjö tæki ósótt 1 gestahappdrætti sýningarinn- ar Heimilið ’77 er dregið um lit- sjónvarpstæki daglega. Dregið hefur verið 12 sinnum og er búið aö vitja um 5 sjónvarpstæki en 7 eru ennþá ósótt. Meðfylgjandi mynd vartekin af þeim vinnings- höfum ervitjaðhafa um tækisin. ósóttir vinningar hafa fallið á eftirfarandi númer: 5066 43661 14760 45983 27501 50644 32558 Gestum sýningarinnar er hér með bent á að aögæta hvort þeir hafi í fórum sínum happdrættis- miða með einhverju áðurgreindu númeri og séu þar með lit- sjónvarpstæki rikari. HEIMILIÐ ’77 Frönsk þing- kona gerir hungurverk- fall PARÍS 7/9 Reuter — Kona ein, sem á sæti i öldungadeild franska þingsins, hefur gert hungurvcrkfall til aö mótmæla þvi að karlmaður skuli hafa verið settur I hennar stað i framboð I næstu kosningum tii öldungadeildarinnar. Kona þessi, frú Janine Alexandre-Debray, situr i Oldungadeildinni fyrir lýðveldisflokkinn, sem er flokkur Giscards d’Estaing Frakklandsforseta. Hún er móðir hins kunna vinstri manns og rithöfundur Regis Debray. Hóf hún hungurverkfall fyrir niu dögum aö sögn eiginmanns hennar og er hún nú illa haldin. Sagði eiginmaðurinn að hún hefði gert hungurverkfallið „i nafni þeirra kvenréttinda að taka þátt i stjórnmálalifi”. Lýðveldisflokkurinn hefur ákveðið að bjóða fram Pierre- Christian Taittinger, aðstoðar- utanrikisráðherra, i stað frú Alexandre-Debray i næstu kosningum til öldunga- deildarinnar, en þær eiga að fara fram 25. september.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.