Þjóðviljinn - 08.09.1977, Blaðsíða 13
Fimmtudagur 8. september 1977 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 13
Á Bessastööum ólst Benedikt Gröndal upp hjá fööur sfnum Svein-
birni Egilssyni, grisku-og latinuspekingnum, sem á leiö til kennsl-
unnar i Bessastaöaskóla vóg sig á stöng yfir mýrarpolla, eins og
Þórarinn Eldjárn kveöur um hann.
„...en ég er skáld-
lega yforliftur’ í
öllu kvenfólki”
s/onvarp
I kvöld tekur Flosi
ólafsson til viö annan
lestur æviminninga Bene-
dikts Gröndals, og á nú
engum aö þurfa að leið-
ast, þvi hér er á f erð mik-
ið afbragðsefni, eftir af-
braðsmann, sem varð
einn mesti kennari seinni
íslenskra ritsnillinga.
Benedikt Gröndal hefur
lýst sér sjálfur í Dægra-
dvöl, og er rétt að sú
sjálfslýsing verði nú birt
hér, því enginn skyldi
reyna betur að gera:
Ég er 64 þumlungar á hæö, vel
vaxinn og kviklegur, en sjaldan
held ég mönnum hafi greint
meir á en um mig, hvort ég væri
„laglegur” eöa „ólaglegur”.
Sumir hafa fengið óbeit á mér
einungis af að sjá mig, en marg-
ir hafa og getað fellt sig við mig,
þegar þeir kynntust mér betur. I
rauninni er ég eftir minum dómi
„ólaglegur”, mig vantar alveg
það, sem kallaö er friðleikur eða
andlitsfegurð. Ég hef allsæmi-
lega krafta samsvarandi minni
stærð, hörku og fylgi, en ekki þol
að þvi skapi. Heilsu hef ég alltaf
haft góða, og mundu ekki allir
hafa þolað það, sem ég hef
gengiö i gegnum. Gáfur minar
eru ekki neitt framúrskarandi
næmi, en ég man alltaf það, sem
ég les eða heyri, flest allt, en
ekki orðrétt utan að — nema
sumt óvart. Hugmyndaflug mitt
er fjörugt og rifandi, og þó ég
þyki excentriskur og undarleg-
ur, þá hef ég samt getað haldið
mér meir i skefjum en margur
mundi trúa, ef hann þekkti míg
alveg. Hugmyndir minar hafa
fylgt mér ávallt, og ég hef aldrei
misst sjónar á þeim, og þær
hafa aldrei dofnað, þó ég hafi
orðið að biöa árum saman. Ég
er hamhleypa að lesa og fljótur
að skilja, en að ritverkum er ég
misjafn eftir þvi, sem þaö grip-
ur mig. Hugmyndirnar veltast
stundum svo ótt inn á mig, að ég
hef ekki viö og missi helminginn
af þeim. Þetta kemur raunar af
þvi, hvaö ég hef lesið mikið af
alls konar ritum. En ég hef aldr-
ei tekið neitt frá neinum, nema
ég hafi getið um það. Kvenna-
maður er ég ekki eða flagari, en
ég er skáldlega „forliftur” i öllu
kvenfólki. Mér þykir meira
gaman að aimúgafólki en hinu
fina, þvi okkar „finheit” eru
carrikeruð civilisation, en hitt
er grófara og náttúrlegra. Fyrir
hinum yngri skáldum ber ég
litla viröingu, þeir eru smá-
menni i poetisku tilliti, hversu
mikið sem látið er með þá i
blöðunum. Latínu og grisku
útvarp
skoða ég sem óumflýjanlegan
grundvöli æðrimenntunar, hvað
sem þjóðbusamir segja. Hin is-
lenzku fornrit og skáldskapur
eru minar aðalstoðir fyrir utan
classicos. Þeir, sem ekki þekkja
þetta, eru ónýtir, — þvi þó að
menn haldi fram þvi, sem menn
kalla „Folkedikter” á dönsku
(sem er allt annað en það, sem
með ljótu nafni er kallaö „þjóö-
skáld” hér), þá er sjóndeildar-
hringur þessara skálda ætiö
mjög þröngur. Yfir höfuð hef ég
aldrei haldið mér til annarra en
höfuðskáldanna — i þeim mál-
um, sem ég annars skil (dönsku,
sænsku, þýzku, ensku, frakk-
nesku, latinu og grisku), — um
hina varðar mig ekki. — Föður-
landsást min er hrein og stöðug,
en ég held ég haldi meir af land-
inu en þjóðinni, að minnsta kosti
eins og hún er nú orðin. — t
kunningsskap og vináttu er ég
stöðugur og tryggur, og það hef-
ur aldrei verið mér að kenna, þó
slikt hafi losazt upp. Annars á
ég litiö af vináttu manna að
segja, enda finnst mér hún vera
orðin eins og annað hjá flestum.
Dani hataði ég lengi framan af,
en ég hef hætt þvi við nánari
skoðun, þegar ég lit á, hversu
mikla yfirburði þeir hafa yfir
okkur að ýmsu leyti. Föður-
landsást vantar Islendinga
gjörsamlega og hefur alltaf
vantað, þvi þótt einstakir fáir
menn hafi verið svo, þá hefur
þetta aldrei gengið i gegnum
alla þjóöina. Nú sem stendur, er
hér ekkert prentfrelsi nema á
pappirnum. Blöðin „tyranni-
sera” allt hér með sinum vit-
leysum og ofstæki, óþrifarit-
gjörðum og alls konar slúöri og
eru ekkert annað en vopn I hendi
beinasna til að yfirfalla hvern
þann með persónulegum
skömmum, sem þau þora til við
eða sem ekki er samdóma öllum
þeirra uppáfinningum. — Þjóðin
er véluö, og mest af blöðunum.
Leikrit vikunnar:
PAFAGAUKAR
eftir Jónu Rúnu Kvaran
t kvöld, 8. september kl.
20.25 verður flutt leikritiö
Páfagaukar eftir Jónu Rúnu
Kvaran. Leikstjóri er Ævar R.
Kvaran. Leikendur eru aðeins
tveir, ungur maður og eldri kona
og eru þau leikin af Sigriði
Hagalin og Hjalta Rögnvalds-
syni. Höfundur leiksins Jóna
Rúna Kvaran hefur stundað
leiklistarnám hjá Ævari R.
Kvaran. Til þess að kynna sér
jafnframt byggingu leikrita og
meðferð hefur hún verið leik-
þulur I Þjóðleikhúsinu. Þá hefur
hún og leikið i hljóðvarpsleikrit-
um og lesið upp. Páfagaukar er
fyrsta leikrit hennar sem birtist
opinberlega.
Leikritið fjallar um viðkynn-
ingu miðaldra konu og ungs
manns og sýnir hvernig honum
tekst að breyta afstöðu hennar
til eigin vandamála.
7.00 Morgunútvarp Veður-
fregnirkl. 7.00, 8.15og 10.10.
Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og for-
ustugr. dagbl.), 9.00 og
10.00. Morgunbæn kl. 7.50.
Morgunstund barnanna kl.
8.00: Ármann Kr. Einarsson
les sögu sina „Ævintýri I
borginni” (2). Tilkynningar
kl. 9.30. Léttlög milli atriöa.
Við sjóinnkl. 10.25: Ingólfur
Stefánsson ræðir vð Pétur
Guðjónsson, formann
Félags áhugamanna um
sjávarútveg. Þriðji og sið-
asti þáttur. Tónleikar kl.
10.40. Morguntónleikar kl.
11.00: Rikishljómsveitin I
Berlln leikur Ballettsvitu
op. 130 eftir Max Reger:
Otmar Suitner stj./Irmgard
Seefried syngur „Sólsetur”,
tónverk fyrir mezzó-sópran
og strengi eftir Ottorino
Respighi. Hátiðarhljóm-
sveitin i Lucerne leikur
með: Rudolf Baumgartner
stj. / Felicja Blumental og
Sinfónluhljómsveit Lundúna
leika „Fantaslu Polonaise”
fyrir pianóog hljómsveit op.
19 eftir Ignaz Paderewski:
Anatole Fistoulari stj.
12.00 Dagskráin. Tónleikar
Tilkynningar.
12.25 Veðurfregnir og fréttir.
Tilkynningar. A frívaktinni
Margrét Guðmundsdóttir
kynnir óskalög sjómanna.
14.30 Miðdegissagan: ,,Úlf-
hildur” eftir Hugrúnu Höf-
undur les (7).
15.00 Miðdegistónleikar
Arthur Grumiaux og Istvan
Hajdu leika Sónötu I g-moll
fyrir fiðlu og pianó eftir
Claude Debussy. Radoslav
Kvapil leikur á pianó „Hirð-
ingjaljóð” op. 56 eftir
Antonin Dvorák. Suk-trióið
leikur Trió i g-moll fyrir
pianó, fiölu og selló op. 15
eftir Bedrich Smetana.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.20 Tónleikar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Daglegt mál Gísli Jóns-
son menntaskólakennari
flytur þáttinn.
19.40 Fjöllin okkar Ingólfur
Þorsteinsson fyrrverandi
yfirlögregluþjónn talar um
Hengil.
20.05 Samieikur i útvarpssal
Berhard Wilkinson, John
Collins og Sveinbjörg
Vilhjálmsdóttir leika á
flautu, selló og pianó Trió
eftir Bohuslav Martinu.
20.25 Leikrit: „Páfagaukar”
eftir Jónu Rúnu Kvaran
Leikstjóri: Ævar R.
Kvaran. Persónur og
leikendur: Konan: Sigriöur
Hagalin, Ungi maðurinn:
Hjalti Rögnvaldsson.
21.25 Fiðlukonsert i D-dúr op.
35 eftir Pjotr Tsjalkovský
Viktór Tretjakoff og
Filharmoniusveitin i
Moskvu leika: Dmitri
Kitajenkó stjórnar (Frá
Moskvuútvarpinu).
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir Kvöldsag-
an: „Dægradvöl” eftir
Benedikt Gröndal Flosi
Olafsson leikari les (2).
22.40 Kvöldtónleikar a. Trió i
F-dúr fyrir fiðlu, horn og
fagott op. 24 eftir Franz
Danzi. Taras Gabora,
George Zukerman og Barry
Tuckwell leika. b. Sónata
nr. 2 i d-moll fyrir fiðlu og
pianó op. 121 eftir Robert
Schumann. Christian
Ferras og Pierre Barbizet
leika.
23.30 Fréttir. Dagskrárlok.
Tónleikar
Finnska sópransöngkonan
RITVA AUVINEN
heldur tónleika i Norræna húsinu fimmtu-
daginn 8. sept. kl. 20.30, við undirleik
Agnesar Löve.
Á efnisskránni eru verk eftir Y. Kilpinen,
E. Grieg, S. Rachmaninov, Hugo Wolf og
R. Strauss.
Aðgöngumiðar við innganginn.
NORRÆNA
HUSIÐ
Frá Listdansskóla
Þjóðleikhússins
Nokkrir nýir nemendur verða teknir inn i
skólann i haust. Inntökupróf verður
mánudaginn 12. sept. kl. 17. Gengið inn um
dyr á austurhlið hússins. Umsækjendur
hafi með sér æfingaföt og stundatöflu og
séu ekki yngri en 9 ára.
Eldri nemendur komi föstudaginn 9.
september.
Þeir sem voru i I. fl. i fyrra komi kl. 17.30,
i II. fl. kl. 18.00, i III. fl. kl. 18.30, i IV. fl.
kl. 19.
----------------------------------------
Fjölbreytt og skemmtilegt
tungumálanám
ENSKA, ÞYSKA, FRANSKA, SPANSKA, NORÐUR-
LANDAMALIN. ISLENSKA fyrir útlendinga.
Ahersla er lögð á létt og skemmtileg samtöl I kennslu-
stundum. Samtölin fara fram á þvl máli sem nemandinn
er að læra, svo hann æfist I TALMÁLI.
Síðdegistimar — Kvöldtímar
Simi 10004 og 11109 (kl. 1—7 e.h.)
Mímir
Brautarholti 4 — sími 11109
V_______________________________________J
Alhliða
Sími 43330
innrömmunarþjónusta
• u Blikkiðjan fc^ Ásgarði 7/ Garðabæ
f 1 f r Önnumst þakrennusmiði og uppsetningu — ennfremur bverskonar blikksmiði.
w 1 1 Gerum föst verðtilboð
il § SÍMI 53468