Þjóðviljinn - 08.09.1977, Blaðsíða 11
Fimmtudagur 8. september 1977 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 11
BIKARÚRSLITIN
NÁLGAST ÓÐUM
Valur og Fram leika tiM^slita á sunnudaginn.
18. úrslitaleikurinn frá upphafi keppninnar
Næstkomandi sunnudag
fer fram á Laugardals-
vellinum úrslita leikur
Bikarkeppni KSI. Fram og
Valur leika til úrslita i
þessari 18. bikarkeppni.
Fyrst var leikiö 1960 og
KR-ingar unnu þá keppni
og síðan allar götur til
ársins 1968, með einni
undantekningu þó. Árið
1965 léku Valur og IA.
Valsmenn sigruðu þá i
mjög fjörugum og eftir-
minnilegum leik, 5:3. KR-
ingar hafa orðið Bikar-
meistarar.langoftast, eða 7
sinnum, en Valur kemur
næst með sigur þrisvar.
Fram, IBK og IBV hafa
unnið keppnina tvívegis.
Stjórn KSÍ hélt blaða-
mannafund i gær þar sem fyrir-
li&ar beggja liöa voru,þeir Asgeir
Eliasson og Ingi Björn Alberts-
son, sem og talsmenn beggja liöa.
Það er greinilegt að menn búast
við jöfnum og spennandi leik á
sunnudaginn. Viðureign Vals og
Fram undangengin ár hefur verið
geysilega spennandi og jöfn og i
samanlögðum leikjum þessara
liða siðustu 6 árin i tslandsmótum
eru þau jöfn að stigum. Undan-
farin ár hefur sá háttur verið
hafður á að forsætisráðherra
hefur heilsað mönnum áður en
leikurinn hefst og afhent sigur-
launin að leikslokum. Þar sem
tvö Reykjavikurlið eigast viö að
þessu sinni mun Birgir tsleifur
Gunnarsson borgarstjóri taka að
sér hlutverk forsætisráðherra að
þessu sinni.
Vegna sjónvarpsins hefur
komið fram sú ósk að annað liðið
breyti búningi sinum þar sem i
sjónvarpi eru búningarnir mjög
áþekkir. Félögin voru látin draga
um hvort liðið verðBF
að gera svo. Kom það i hlut
Valsmanna þannig að á sunnu-
daginn munu þeir að öllum líkind-
um leika á rauðum buxum i stað
hvitra, með öðrum orðum i
alrauðum búingi.
Bæði liðin verða með sitt sterk-
asta lið með einni undantekningu
þó. Guðmundur Kjartansson
hefur verið settur i leikbann en
ekki er vitaö hver kemur i hans
stað. Þá er Kristinn Atlason á
sjúkralista hjá Fram. Dómari i
leiknum verður Magnús V.
Pétursson. Forsala aðgöngumiða
hefst viö tJtvegsbankann á
morgun, föstudag, og hefst kl. 12
og stendur til 18. tlrslitin i
bikarnum frá upphafi hafa orðið
þessi:
1960KR —Fram 2:0
1961KR-IA 4:3
1962 KR-Fram 3:0
1963 KR — 1A 4:1
1964 KR — IA 4:0
1965Valur — IA 5:3
1966KR —Valur 1:0
1967 KR — V ikingur 3:0
1968 ÍBV — ÍR 2:1
1069IBA — IA 1:1, 3:2
1970 Fram — IBV 2:1
1971 Vikingur — UBK 1:0
1972IBV—FH 2:0
1973 Fram —ÍBK 2:1
1974 Valur—-1A 4:1
1975IBK — ÍA 1:0
1976Valur — IA 3:0
—hól
Ingi Björn Albertsson leiddi liðsmenn sina til sigurs i Bikarkeppninni i
fyrra. A sunnudaginn fæst úr þvi skorið hvort Ingi og félagar leika
sama Ieikinn aftur. Ef svo verður mun mörgum finnast erfitt að sætta
sig við að Valur vinni ekki eitt einasta mót i sumar.
Olympíuleikamir og
framkvæmdavaldið
Eftir I. Vinogradsky, for-
stjóra þeirrar stofnunar í
Moskvu er annast hönnun
menningar-, tómstunda-,
íþrótta- og heilsu-
mannvirkja.
Undirbúningur Ólympiuleika er
alltaf tengdur þvi að finna lausn
á flóknum vandamálum
mannvirkjagerðar. Við athugun á
reynslu þeirra sem skipulagt hafa
undangengin ólympiumót koma i
ljós tvær meginstefnur. 1 fyrsta
lagi færast þægindin stööugt i
aukana, bæði hvað snertir aöbún-
aö iþróttamannanna sjálfra og
áhorfenda. 1 ööru lagi er um að
ræöa stööugt meiri dreifingu leik-
anna á fleiri iþróttasvæði. Auk
þess ber nú meira á þeirri viö-
leitni að nýta þær aðstæður sem
þegar eru fyrir hendi og byggja
ný mannvirki á þann hátt að þau
megi koma að gagni eftir aö
Ölympiuleikunum er lokið.
Að öllum likindum munu
Ólympiuleikarnir i Moskvu 1980
einkennast af þessum stefnum, og
þróa þær áfram.
Svæðin þar sem keppt verður
1980 hafa verið valin með tilliti
þeirrar stefnu sem mörkuð er i
heildarskipulagi Moskvuborgar.
Þau iþróttamannvirki, sem fyrir
eru eða i smiðum nú samkvæmt
aðalskipulaginu, verða nýtt svo
sem kostur er. Að ólympiuleikun-
um loknum munu þessi
mannvirki notuð fyrir tóm-
stundastörf og likamsþjálfun
borgarbúa.
1 áætlunum er gert ráö fyrir 6
ólympiumiðstöðvum i Moskvu.
Höfuðstöðvarnar verða I
Luzhniki. Stóra iþróttasvæðið þar
verður endurnýjað og bætt, þar
munu fara fram hátiðahöldin i
sambandi við opnun og lokun Ól-
80 og auk þess kepnni i knatt-
spynu (lokakeppni) og kappreið-
um (Prix des Nations).
Blakkeppni i karlaflokki verður
haldin á ,,mini”-iþróttavellinum,
póló-keppnin i sundlaug Luzhniki
og keppni i júdó og fimleikum
verður háð i íþróttahöllinni. Nú
stendur yfir smiði iþróttahúss
sem nota má til ýmissa hluta á
Luzhniki-svæðinu, og verður
blakkeppni i kvennaflokki þar.
Nálægt þessum mannvirkjum á
aðalmiöstöð Ói-80 að rísa, þ.e.
sjálfvirka eftirlitsstööin. Allt
svæðið verður endurbætt og búið
öllum nýjustu tækjum, þar verður
sköpuð ákjósanleg aðstaða fyrir
dómara, fréttamenn, sjónvarps-
og útvarpsupptöku osfrv. Ahorf-
endabekkirnir I Luzhniki munu
samtals rúma 146.000 manns, og
um 350.000 manns munu geta
fylgst þar með keppninni á dag.
1 norðurhluta sovésku höfuð-
borgarinnar er verið að reisa nýtt
iþróttasvæði. Meðal mannvirkja
þar verður innanhússvöllur fyrir
45.000 áhorfendur — sá stærsti i
Evrópu — þar sem keppt verður i
hnefaleikum og körfubolta
(karlaflokki). Moskvubúar
þarfnast sliks vallar, sem siðar
verður notaður fyrir stærri viö-
buröi i iþrótta- og menningar-
lifinu. Innanhtisssundlaug fyrir
10.000 áhorfendur — sú stærsta i
Sovétrikjunum — verður byggð
nálægt vellinum og verður þar
keppt i sundi og dýfingum. Þetta
iþróttasvæði verður þaö mikil-
vægasta af öllum þeim nýju
mannvirkjum sem reist verða
fyrir Ói-80.
Iþróttasvæðið við Leningrad-
breiðstræti verður fullkomnað og
byggt upp að fullu. Nálægt þvi fer
nú fram smiði á knattspynuvelli
undir þaki með sæti fyrir 5000
áhorfendur, og verður keppt i
glimu. t hverfinu Khimki-
Khovrinl verður byggður iþrótta-
salur, einnig fyrir 5000 áhorfend-
ur.
Verið er að byggja upp stórt
iþróttasvæði i norð-vestur hluta
borgarinnar. Þar er verið að
koma upp öðrum áfanga róðrar-
skurðar- og innanhússhjólabraut
fyrir 6000 áhorfendur og er það
stærsta braut sinnar tegundar i
Sovétrikjunum. Einnig er verið
að leggja þar 15 km langa hjól-
reiðabraut utanhúss. Þetta svæði,
ásamt skiðasvæðinu sem þegar
hefur veriö starfrækt lengi þarna
i grenndinni, verður eit't af
stærstu útivistar- og iþróttasvæð-
um sem verkalýðshreyfingin fær
til sinna umráða að Ól. afstöðn-
um.
I Izmailovo-hverfinu í austur-
hluta Moskvu er verið að reisa
aðra ól-miðstöð i tengslum við
nýtt iþróttasvæði sem iþrótta-
háskóli borgarinnar ræður yfir.
Þar er salur fyrir 5000 áhorfendur
sem veröur vettvangur lyftinga-
keppninnar. Iþróttahöllin i
Sokolniki verður endurbætt til
þess að handboltakeppni
Ólympiuleikanna geti farið þar
fram.
Árangurinn af öllum þessum
framkvæmdum verður i fyrsta
lagi sá að uppfylltar verða allar
kröfur alþjóölegu ólympiunefnd-
arinnar og i öðru lagi fá Moskvu-
búar til sinna afnota mikiö af
iþróttamannvirkjum sem eru
skemmtileg frá sjónvarhorni
byggingarlistar og koma að góðu
gagni i framtiðinni.
Flest mannvirkjanna verða
staðsett þannig i borginni að
greiður aðgangur verður að al-
menningsfarartækjum, neðan-
jarðarjárnbrautarlest og
skemmtigörðum.
Ólympiuþorpið er eitt stærsta
atriðið i áætlunum þessum. Mikil-
vægasta krafan sem gerð er til
staðsetningar þess er að þaðan sé
auðvelt að komast til allra þeirra
staða þar sem þjálfun og keppni
fer fram. Þessvegna hefur veriö
Likan af Oly mpiuþorpinu
Oiympiuleikar fram.
ákveðiö að byggja þorpið i suð-
vesturhluta borgarinnar.
Ólympiuþorpið verður notað sem
ibúðarhverfi aö 01 afstöðnum.
Einnig er gert ráð fyrir tals-
verðum byggingaframkvæmdum
til þess að tryggja eðlilegt starf
fulltrúa fjölmiðlanna. Meðal
þeirra er smiði alþjóðlegrar
sjónvarpsstöðvar i nágrenni
þeirrar stöðvar sem þegar er
fyrir hendi i Ostankino, og blaða-
I Moskvu, en þar fara næstu
mannamiðstöð fyrir 3000
fréttamenn.
Gistihúsum i borginni verður
fjölgað talsvert, og einnig veit-
ingahúsum, kaffihúsum, og versl-
unum.
Mikið starf veröur unniö aö þvi
að leggja fleiri hraðbrautir,
byggja brýr,skipuleggja bilastæði
á iþróttasvæðunum.
I Moskvu er allt i fullum gangi
við undirbúning þessarar miklu
hátiðar iþrótta, friðar og vináttu.