Þjóðviljinn - 25.09.1977, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 25.09.1977, Blaðsíða 3
Sunnudagur 25. september 1877 ÞJOÐVILJINN — SIÐA 3 „Austurstöpull” úr suðri, „Búöartóft” frá norövestri Kerlingakvos og Norðuralda aö baki. „Beinakerling” úr suövestri BEINAKERLINGAR BJÖSSA BOMM... „Mæögurnar úr suövestri, Trölladyngja I baksýn.” Austurstöpult lengst til hægri i hópnum. Fyrir nokkrum vikum birtist hér i blaðinu viötal við Björn Jónsson, lækni á Álftá i Manitoba. Er þar m.a. sagt nokkuö frá för hans upp á Sprengisand i sumar, en hún var til þess gerð aö huga aö beinakerlingum, sem engar sögur hafa farið af' í 200 ár og allir töldu týndar og tröllum gefnar. Nema Björn. Hann hafði trú á þvi, að enn væri hægt að ná fundi þeirra mæðgna, ef nógu fast væri eftir leitað. Þvi lagði hann nú ótrauður á eyðimörkina, með einvalalið sér til fylgdar og fulltingis þótt fámennt væri, — en vel búið „vopnum og vistum”. Og viti menn. Þessi för tókst stórum bet— ur en sú, er hann hugðist sigla á smjörlikiskassanum úr fjöru— borðinu á Króknum og til Þýskalands forðum daga, að sækja Valgarð fóstbróður sinn. í. þetta sinn hafði Björn árangur sem erfiði. Hann fann þessar vin- konur sinar, að visu nokkuð lúðar af timans tönn og langri vanrækslu byggðamanna, — en furðu brattar og ásjálegar samt. Sjálfsagt þekkir þorri þjóðarinn- ar ekkert orðið til fyrirbærisins beinakerling og hefur þar með tekist að tá út i ekkert skemmti— legan þátt i sögu sinni, en vonandi verða þó einhverjir til þess að veita Birni aðstoð er hann kemur frá Alftá öðru sinni til þess að hressa upp á vinkonur sinar á Sandinum, svo þær megi aftur öðlast sinn fyrri glæsileik. Nú hefur Björn sent Þjóðviljan- um myndir, sem hann tók i Sprengisandsleiðangrinum I sumar og birtast þær hér með þessu rabbi. — Hafi hann heiia þökk fyrir. —mhg Sonna býður allt það besta á Kanaríeyjum FERD&SKBIFSTOFáN SUNNA Reykjavík: Lækjargötu 2 - símar 16400 - 12070 Akureyri: Hafnarstræti 94 sími 21835 TAKIÐ EFTIR Þúsundir Islendinga hafa notið hvíldar og skemmtunar í sumarsól á Kanaríeyjum, meðan skammdegi og vetrarkuldi ríkir heima. Sunna býður upp á fjölbreyttar Kanaríeyjaferðir til Gran Canary og Tenerife.íbúðir, hótel, smáhýsi og villur í besta gæðaflokki, svosem Kóka, Corona Roja, Corona Blanca, Rondo, Producasa, Eguenia Victoria, Carmen o.m. fl. íslensk skrifstofa með þjálfuðu starfsfólki Sunnu, veitir farþegum þjónustu og öryggi. Vegna fyrirsjáanlegrar mikillar aðsóknar, biðjum við þá, hina fjölmörgu, sem árlega fara með okkur til Kanaríeyja, og vilja búa á „sínum stað“ að panta nú snemma. ■ PLAYA DEL INGLES - PUERTO RICO . LAS PALMAS - TENERIFE. Það léttir okkur störfin og kemur í veg fyrir það sem okkur leiðist mest, að þurfa að neita föstum viðskiptavinum um óskaferðina, vegna þess að pöntun berst seint. Plássið er því miður takmarkað, og ekki hægt að fá aukarými á hinum eftirsóttu gististöðum. BROTTFARARDAGAR: Hægt er að velja um ferðir í 1,2,3 eða 4 vikur 16. október, 5, 26 nóvember, 10, 17, 29 desember, 7, 14, 28 janúar, 4,11,18,25 febrúar,4,11,18,25 marz,1, 8, 15, 29 apríl

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.