Þjóðviljinn - 25.09.1977, Blaðsíða 14

Þjóðviljinn - 25.09.1977, Blaðsíða 14
14,StÐA — ÞJOÐVILJINN Sunnudagur 25. september 1977 viðurkenndir úrvals pennar fyrir atvinnumenn, kennara og námsfólk. Rotring téiknipennar og teikniáhöld fást í þægilegum einingum fyrir skóia og teiknistofur. FR im\' 1 Ingólfsstræti 2 Sími 13271 Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarðarför Haraldar Jónssonar prentara Laugavegi 155 Sérstakar þakkir til starfsfólks i Hátúni 10 b. Guðrún Guðmundsdóttir. Helgi H. Haraldsson Hörður Haraldsson Jón Þ. Haraldsson Þórir Haraldsson Halldóra Haraldsdóttir Karitas Haraldsdóttir Guðni Gestsson Marzelina Kjartansdóttir Aðalheiður Jónasdóttir Fjóla Helgadóttir Margrét Ásmundsdóttir Hörður Stefánsson Ólafur Rósmundsson Stella ögmúndsdóttir Barnabörn og barnabarnabörn. Þökkum innilega hlýjarkveðjur og vinarhug við andlát og útför eiginmanns mins, föður okkar, tengdaföður og afa Hjálmars Þórðar Jónssonar Efstasundi 7 Kristin Ingimarsdóttir Anna Hjálmarsdóttir, Baldvin Magnússon Aðalsteinn Hjálmarsson, Margrét Arnadóttir, Guðbjörg Hjálmarsdóttir, Pétur Þorleifsson og barnabörn # Olíulitir 2 gæðaflokkar ^ vatnslitir plötur og túpur 0 þekjulitir plötur, túpur og glös # acryl-litir 0 taulitir # postulínslitir # silkiþrykkslitir 2 gerðir # þrykklitir f. dúk. GuObjartur Gunnarsson, forstööumaOur hinnar nýju stofnunar, segir aO tækjabúnaður sé upp á 4-5 mii- jónir og aðstaða gerist varla betri (Ljósm.: — EIK) Námsgagnastofnun tekur til starfa: Svar Síðasta áratug hefur ís- lenskt skólakerf i lent í iðu- föllum gjörbreytinga bæði varðandi ytra skipulag og sjónarmið í námi og kennslu. Einn varði á þess- ari nýju braut hefur nú verið reistuc vonandi til að vísa réttan veg en ekki ein- ungis til að vera til sýndar. Þetta er Námsgagnamið- stöð Fræðsluskrif stof u Reykjavikur sem tók til starfa i byrjun þessa mán- aðar. Þjóðviljanum þótti hnýsilegt að forvitnast um hvað væri á seyði og gekk á fund forstöðumannsins, Guðbjarts Gunnarssonar, og fékk að skoða þessa nýju stofnun og fræðast um hana. Námsgagnamiðstöðin starfar á grundvelli samnings milli fræösluráðs Reykjavikur, skóla- vörubúðar Rikisútgáfu námsbóka og Skólarannsóknardeildar menntamálaráðuneytisins sem geröur var 15. nóvember i fyrra og undir stjórn fræðslustjóra og fræðsluráðs Reykjvavikur. Hlut- verk hennar er að starfa i tengsl- um við skólasöfn að þvi er varðar svokallaða nýsitækni, hafa um- sjón með útbreiðslu- og fræðslu- starfsemi og vinna að framleiðslu námsgagna og veita leiðbeining- ar varðandi kennslutæki. Og hvernig fer stofnunin að þessu? Hún hefur fengið húsnæði i gömlu slökkviliðsstöðinni og þar leiðir Guðbjartur okkur um húsa- kynni. Fyrst fórum við inn i langt hús sem einu sinni var hesthús slökkviliðsins. Þar inni er smiður að störfum til að fullgera aðstöðu til fundarhalda og skoðunar myndefnis og námskeiða fyrir fá- menna hópa. Fyrir endanum er sýningarklefi. YÍð nýrri þróun ✓ í skóla- málum segir Guðbjartur Gunnarsson forstöðumaður hennar Við göngum út og fram hjá klefa sem er gerður fyrir hljóð- vinnslu en ekki tilbúinn enn. Með tilkomu skólasafna eiga þau ekki sist að hafa á boðstólum margs konar hljóðefni svo sem fram- burðaræfingar, ljóðalestur og annan upplestur og hér á að vera aðstaða til að taka slikt efni upp. 1 gömlu varðstofu slökkviliðs- ins er fullkomin vinnustofa fyrir framleiðslu á litskyggnum og # strigi # blindrammar # grunnur og oliur # penslar: marðarhár svinshár ikornahár nylon # olíuiitasett # pallettur # dúkskurðasett # karton ótal gerðir # pallettuhnífar CHUL 1,P- teiknivörudeild Hallarmúla 2 SENDUM í PÓSTKRÖFU „Allt til að auka listina” glærum og hafa þeir Gylfi Reyk- dal teiknari og Kristján Svansson ljósmyndari þegar verið ráðnir til að vinna þar — en þeir kenna jafnframt báðir i skólum hér i Reykjavik. Þarna er að finna margs konar tæki og tól. Hér er hægt að ljós- mynda teikningar og myndir úr bókum og stækka og minnka að vild til að gera eftir þeim glærur og teikna nýjar myndir. Þá er hægt að gera litskyggnur af myndum eða eftir öðrum lit- skyggnum og filmuræmum og fjölfalda skyggnuflokka. Þetta gerist ekki öllu betra hér á landi, segir Guðbjartur. En hvað er stofnunin þá að fást við núna? Guðbjartur segir að hún starfi i nánu sambandi við skólarannsóknadeild mennta- málaráðuneytisins og sá þáttur sem lengst er kominn þar er sam- félagsfræðideildin. Nú er Námsgagnastofnunin að safna efni i skyggnimyndaflokk um þróun iðnaðar i Reykjavik og er Lýður Björnsson sagnfræðing- ur aðalheimildamaður og vinnur söguþráðinn. Guðbjartur sagði að það væri nokkrum erfiðleikum bundið að fá gamlar myndir úr iðnaði i þennan skyggnimynda- flokk og vill vekja athygli þeirra sem kynnu að eiga slikar myndir i fórum sinum að láta vita. Skyggnimyndaflokkurinn á ekki aðeins að koma að haldi i sögukennslu, heldur gæti hann ekki siður notast á ýmsum ald- ursskeiðum sem heimild til skoð- unar á sinu nánasta umhverfi i sambandi við vettvangsferðir. Vinnuhópar gætu tekið hann til meðferðar sem ýtarefni, þ.e. efni sem farið er ýtarlega út i. Eftir að samræmdum prófum lýkur á grunnskólastigi i april myndast oft ládeyða i skólastarf- inu og þá er kjörið tækifæri til að fara i skoðunarferðir t.d. i söfn, til að skoða bæjarstæði eða húsin,svo að eitthvað sé nefnt, og geta skyggnimyndaflokkarnir orðið að miklu gagni til að hjálpa nemend- um að tjá sig um það sem þeir hafa séð. Guðbjartur sagðist einmitt rétt áður en hann talaöi við blaða- mann Þjóðviljans hafa setið fund með fulltrúum i menntamála- ráðuneytinu til að undirbúa fræðslu i sjávarútvegi. t athugun er að gera myndaflokk um þenn- an aðalatvinnuveg tslendinga þar sem fjallað yrði um ýmis frum- atriði svo sem veiðiaðferir,, tegundir afla, magn hans og árs- tima. Nú er lika ekki siður hægt að nota myndir á glærum til viðbótar viö linurit og töflur. Af öðrum viðfangsefnum okkar er lif i heitu landi, og höfum við tekið fyrir Tansaniu i Afriku og erum að gera skyggnimynda- flokk um hana. Við höfum beinast samstarf við

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.