Þjóðviljinn - 25.09.1977, Side 4
4 SÍÐA — ÞJ6ÐVILJINN Sunnudagur 25. september 1977
Málgagn sósíalisma,
xerkalýdshreyfmgar
og þjóðfrelsis.
Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans.
Framkvæmdastjóri: Eiður Bergmann
Ritstjórar: Kjartan Ólafsson, Svavar
Gestsson
Fréttastjóri: Einar Karl Haraldsson.
Umsjón með sunnudagsblaOi'Árni Berg-
mann
Auglýsingastjóri: úlfar ÞormóOsson
Ritstjórn, afgreiösla, auglýsingar:
SiOumúia 6. Simi 81333.
Prentun: BlaOaprent hf.
Höll Vilhjálms
Eitt helsta umræðuefni i dagblöðum og
manna á milli siðustu daga hafa verið
fyrirhuguð kaup rikisins á gömlum og
ónýtum húshjalli i eigu eins af máttar-
stólpum Sjálfstæðisflokksins.
Þjóðviljinn birti á fimmtudaginn var i
heiíd úttekt Innkaupastofnunar rikisins,
sem gerð var i júnimánuði s.l. á ástandi
Viðishússins, að Laugavegi 166 i Reykja-
vik.
Þar kemur m.a. fram að um miðjan júni
i sumar hefur fulltrúi Innkaupa-
stofnunarinnar talið húshróið 135 miljón
króna virði. Nú hafa hins vegar forsætis-
ráðherrann , fjármálaráðherrann og
menntamálaráðherrann ásamt fulltrúum
rikisstjórnarflokkanna i fjárveitinganefnd
Alþingis lýst þvi yfir að þeir vilji kaupa
hjallinn á 260 miljónir, og Vilhjálmur
menntamálaráðherra, segir i einu dag-
blaðanna að sér lítist bara vel á húsið.
í skýrslu Innkaupastofnunar rikisins,
sem Þjóðviljinn birti i heild, kemur fram
að kostnaður við endurbyggingu þessa
fyrirheitna vinnustaðar menntamála-
ráðherrans er áætlaður 380 miljónir
króna, og heildarkostnaður við kaup og
viðgerðir þvi samtals kr. 640 miljónir.
Þetta eru yfir 130 þúsund krónur á
fermeter. Samkvæmt skýrslu Innkaupa-
stofnunarinnar, sem Þjóðviljinn birti i
vikunni, þá var byggingarkostnaður
visitöluhússins hins vegar talinn kr. 71.143
á fermeter i aprilmánuði s.l., og
samkvæmt upplýsingum embættismanna,
þá er kostnaður við byggingu nýs sér-
hannaðs skrifstofuhúsnæðis nú talinn kr.
110 þús. á fermeter.
Það eru sem sagt nógir peningar i rikis-
sjóði þegar kaupa á Viðishúsið, þótt oftast
sé tómahljóð i kassanum endranær.
Dagblaðið Vísir, sem eigandi Viðis-
hússins gefur út ásamt nokkrum félögum
sinum, segir að Þjóðviljinn hafi falsað
myndir af höllinni. En hér þarf hvorki orð
eða myndir Þjóðviljans. Látum skýrslu
Innkaupastofnunar rikisins tala. Þar
segir m.a.: „Húsið hentar ekki vel sem
skrifstofubygging. Allur frágangur er
óvandaður, svo sem einangrun,
múrhúðun, gluggar, hitalögn, hreinlætis-
aðstaða, stigahús o.s.frv. Utanhúss er
ýmislegt að svo sem stórgallað þak
útfellingar úr einangrun og sprungur
meðfram gluggum.... Hreinlætisaðstaða
sú sem nú er i húsinu, er svo litilfjörleg að
telja má að hreinlætisaðstaða sé ekki fyrir
hendi, nema hvað viðvikur stofnlögn á
einum stað.... Mikill leki virðist vera á
þaki... Múrhúðun er gróf og ójöfn, kantar
skakkir og skemmdir. Á nokkrum stöðum
er múrhúðun dottin af .... Hornskekkja
verður áberandi i herbergjum. Karmar
eru sums staðar skemmdir af fúa.... Ætti
að gera bót á stigum hússins kæmi helst til
greina að byggja nýtt stigahús utan við
bygginguna.”
Þetta eru nú bara nokkrir punktar á við
og dreif, orðréttir úr skýrslu Innkaupa-
stofnunarinnar, en f jölmarga fleiri er þar
að finna.
En Vilhjálmur Hjálmarsson segir að sér
litist vel á húsið og málgagn eigandans
segir að Þjóðviljinn falsi af þvi ljósmynd-
ir.
Látum það vera. Hitt er staðreynd, að
ráðherrar og fjárveitinganefndarmenn
hafa alls enga lagaheimild til að ráðstafa
640 miljónum króna til kaupa og viðgerða
á húshjalli Trésmiðjunnar Viðis, enda þótt
svo vilji til, að eigandinn sé úr innsta hring
Sjálfstæðisflokksins, og einn af helstu
fjáraflamönnum flokks forsætis-
ráðherrans og fjármálaráðherrans.
1 Viðishúsinu á menntamálaráðuneytið
að fá um helmingi meira húsnæði til um-
ráða en það hefur nú. Alþingi hefur aldrei
samþykkt slika útþenslu, og þar hefur
aldrei verið minnst á fyrirhuguð ,,kosta-
kaup” á hjallinum við Laugaveg. Samt er
það Alþingi, sem samkvæmt islenskum
lögum fer með allt ákvörðunarvald i slik-
um efnum.
Á að brjóta lög til að auðmaður úr innsta
hring Sjálfstæðisflokksins geti makað
krók sinn?
Eða á að stilla Alþingi upp eftir nokkrar
vikur frammi fyrir gerðum hlut, og láta
þingmenn blessa yfir ósómann eftir á?
Sú upphæð, sem Geir Hallgrimsson,
Matthias A. Matthiesen, Vilhjálmur
Hjálmarsson og þingmenn sem þeim
fylgja vilja verja til kaupa og viðgerða á
Viðishúsinu er 14-15 sinnum hærri en allt
það fé, sem varið er til stofnkostnaðar
allra iðnskóla á landinu samkvæmt fjár-
lögum i ár.
Fyrir þessa upphæð hefði verið hægt að
hækka samanlagðar fjárveitingar i ár til
allra grunnskóla i landinu um nálægt 50%
Fyrir þessa upphæð hefði verið hægt að
hækka samanlagða fjárveitingar til allra
menntaskóla i landinu yfir 70%.
Fyrir þessa upphæð hefði verið hægt að
hækka samanlagðar fjárveitingar til
sjúkrahúsa og læknamiðstöðva (annarra
en rikissjúkrahúsa) um 70-80%.
Fyrir þessa upphæð hefði verið hægt að
hækka fjárveitingu til fjárfestinga i flug-
málum um 170%
Og fyrir þessa upphæð hefði verið hægt
að nær sexfalda samanlagða fjárveitingu
til allra dagvistunarheimila i landinu.
— En það er hátt til lofts og vitt til veggja
i Viðishúsinu, og nú er jafnvel ekki talin
þörf á að spyrja Alþingi, — enda
fjáraflaklær Sjálfstæðisflokksins, annars
vegar, með Vilhjálm Hjálmarsson á milli
sin.
k
Miklar framkvæmdir munu gera
Jangtse Kiang, sem er 5800 km.
langt, aO auösveipum þénara
iandsmanna. Fljótiö er þaö
breitt aö hafskip geta siglt allt
til Vúhan.
[ byrjun sjötta áratugar
var I Kína haf ist handa um
mikið starf sem beindist að
því að temja helstu fljót
landsins, koma í veg fyrir
flóðahættu. Einn liður í því
starf i var mikil rannsókn á
þýðingarmesta fljóti Kína,
Jangtse Kíang.
Fréttastofan Hsinhua skýrir frá
hinni fjölþættu rannsókn, sem er
einhver hin umfangsmesta sinnar
tegundar. Nú þegar hefur mikiö
veriö gert við Jangtse (sem kin-
verjar sjálfir kalla reyndar ööru
nafni,sem þýðir Langafljót) —
m.a. hlaönir 4000 km. langir
stiflugaröar. En fram til þessa
hefur þaö verið látið ganga fyrir
aö hemja annað fljót sem er norð-
ar i landinu, Gulafljót, sem hefur
um árþúsundir valdið miklum
flóðum og drekkt miljónum
manna — af þeim sökum hefur
Gulafljót verið kallað ,,sorg
Kina”.
Kínversk risaáætlun
um að temja Langá
Vatni er veitt úr fljótinu á firnastórt svæöi.
40 þús.
kílómetrar
verða
skipgengir
og rafmagns-
framleiðsla
mun
stóraukast
Nú er svo komið aö miklum
framkvæmdum við stjórnun á
Jangtse Kiang alla hina 5.800 km.
löngu leið þess frá 5000 metra hæö
i Tibet og til ósa, sem eru skammt
fyrir norðan stærstu borga Kina,
Sjanghæ.
Á leiöinni blandast vatn Jang-
tse við önnur fljót og er þeirra
mest hliðarfljótið Han Kiang.
Hsinhua hefur skýrt frá þvi, að
Han Kiang, sem rennur i Jangtse
við borgina Vúhan, hafi nú verið I
fjötra færö. Það fljót hefur um
langan aldur valdið miklum flóö-
um, ekki siður en Gulafljót. Við
það fljót hefur verið komiö upp
fjórum uppistööuvötnum sem
geta tekið alls tuttugu miljónir
rúmmetra af vatni. 1 framhaldi af
þessu hefur áin verið virkjuð um
alls 1.2 milj. kw.
Áveitur.
Útreikningar sýna og að sjálft
Jangtse Klang getur gefið af sér
217 milj. kw. og éru það 40% af
virkjanlegri vatnsorku Kina. Sú
áætlun sem hér er frá sagt gerir
ráð fyrir smfði meiriháttar raf-
stöðva. Kina hefur nú þegar reist
12.500 smærri og stærri vatnsafl-
stöövar.
Orkuverin við Jangtse eiga að
vera búin viðsnúanlegum túrbin-
um, þannig að fyrir utan að fram-
leiða rafstraum geti þær á hinum
þurru vetrarmánuðum notað raf-
orku til að dæla vatni úr ánni upp i
áveituskurði.
Langafljót hefur gifurlega þýð-
ingu fyrir áveitur i landi þar sem
er að finna um 45% af áveitulandi
heims. Vatnasvæði fljótsins er 1,8
milj. ferkilómetra eða um fimmt-
ungur af flatarmáli landsins, og
enda þótt að eitt af sjö stærstu
vatnakerfum heims sé innan
landamæra Kina (árlegt rennsli
2.700 rúmkilómetrar) renna 38%
um Jangtsekiang eitt saman.
Þetta eru 32.400 kúbikmetrar á
sekúndu en það ætti — fræöilega
séð, að nægja til að sjá hverjum
hinna 800 miljóna kinverja fyrir
3,5 rúmmetrum af vatni á dag.
Helstu samgönguleiöir
Þær framkvæmdir sem fyrir-
hugaðar eru viö Jangtse Kiang,
sem er ásamt þverám alls 40.000
km. að lengd, munu einnig skipta
miklu um hlutverk fljótsins sem
samgönguleiðar. Umferð um
fljótiö hefur ekki minnkaö siðan
feneyjamaðurinn Marco Polo
skýrði frá þvi á 13. öld aö um
fljótið færu „meiri auðæfi og vör-
ur en til væru i samanlögöum höf-
um og fljótum kristindóms.” •
Framhald af bls. 22.