Þjóðviljinn - 25.09.1977, Síða 5
af erlendum vettvangí
Sunnudagur 25. september 1977 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 5
Sameinast andstæðingar
atómvera og
kjarnasprengna?
Hvort ber aö leggja meiri áherslu á: hættu af kjarnorkuverum e&a
hættu af kjarnorkustriöi? Myndin sýnir plakat sem útlistar hættu af
kjarnorkuárás og er gefið út af bandariskum almannavörnum.
A sjötta áratuginum lét
allmikiö að sér kveöa í
Bretlandi/ Bandaríkjunum
og víðar hreyfing andstæð-
inga atómvopna. Þessi
hreyfing sameinaði ýmsa
einstaklinga og hópa sem
ekki vildu gleypa við hin-
um opinbera sannleika
sem látinn var gilda í
hverju landi um varnar-
mál og öryggi.
A siðasta áratug þokaði þessi
hreyfing fyrir öörum — fyrir
uppreisn æskunnar og baráttu
gegn striði i Vietnam —■ og ekki er
heldur fyrir það að synja að hún
hafi dofnað blátt áfram vegna
þess að kjarnorkuvigbúnaður
risaveldanna komst i visst jafn-
vægi, sem enginn virtist geta
hnikað við nema þau sjálf. En nú
virðist sú þróun vera aö gerast —
i Bandarikjunum og viöar — að
kjarnorka færist á ný i brenni-
punkt pólitiskrar umræðu.
Ný hreyfing
Aö þessu sinni er hreyfing að
fæðast, sem er ekki takmörkuð
við baráttu gegn kjarnavopnum
einum, enda þótt kjarnavopn séu
á ný i brennidepli vegna þess m .a.
hve mörg ríki ráða nú yfir tækni-
legum möguleikum til aö
framleiða þau. Hreyfingin nær
einnig til þeirra sem hafa áhyggj-
ur af þeim hættum sem fylgja
notkun atómfræða til orkufram-
leiðslu.
t Bandarikjunum hafa þegar
orðiö til samfylkingarsamtök
sem kalla sig Mobilization for
Survival (Herútboð i nafni þess
að lifa af). Þau hófu herferð sina i
ágúst á þvi að andstæbingar
kjarnorkuvera skipulögðu mót-
mælagöngur og stööur á 140 stöö-
um um landið allt — einkum við
kjarnorkuver.
Á breidari grundvelli
En nú i haust á að hefjast handa
fyrir alvöru og þá i háskólunum
fyrst og fremst. Bjartsýnir tals-
menn hreyfingarinnar gera ráð
fyrir þvi að þá risi alda umræðu-
funda og mótmælaaðgerða sem
að umfangi muni helst likjast
Vietnamhreyfingunni á sl.
áratug. t byrjun næsta árs á siðan
aö halda uppi aðgerðum á hinum
ýmsu stöðum gegn neikvæðum
áhrifum vigbúnaðarkapphlaups-
ins á daglegt lif manna.
Það var i fyrravetur aö friðar-
sinnar af ýmsu tagi komu saman i
Boston og ákváðu að endurlifga
baráttuna gegn kjarnorkunni.
Einn þeirra, Sidney Lens, sem
var virkur þegar i hinni gömlu
baráttuhreyfingu gegn atóm-
vopnum segir á þessa leið: „Við
þurfum aö bæta ýmsu við hin
gömlu baráttumál. Við þurftum
að taka sjálfa atómorkufram-
leiðsluna með vegna vaxandi
hættum á útbreiðslu geislavirkni.
Og i öðru lagi þurfum við að gefa
fólki einhverja von um, að það sé
hægt að nýta það fé, sem spara
má i vigbúnaðarkapphlaupi, til að
fullnægja ýmsum brýnum þörf-
um fólks.”
Ágreiningur
Einn af skipuleggjurum hinnar
nýju hreyfingar játar, að ákvörð-
unin um að taka kjarnorku-
framleiðsluna sjálfa á dagskrá
hafi mætt andspyrnu frá þeim
sem einkum hafa til þessa fengist
við kjarnorkuvopn og afvopnun,
en um siðir var komist að sam-
komulagi. David McReynolds,
sem lengi var foringi War
ResistersLeagur (Bandalag and-
stæðinga striðs) er þvi sammála,
að það sé nauðsynlegt að taka
orkuframleiðsluna, sem svo
margir sýna áhuga nú um stund-
ir, inn á dagskrána, einnig til ,,aö
færa út grundvöll okkar. Ef að við
viljum að hreyfingin gegn kjarn-
orkuverum hlusti á röksemdir
okkar i þá veru, að orkufram-
leiðslan sé hættuminnsta aðferðin
til nýtingar kjarnorku en atóm-
sprengjan sé óendanlega miklu
mun hættulegri, þá veröur þessi
hreyfing fyrst að fá það að heyra
af okkar hálfu, að við séum einnig
andvigir kjarnorkuframleiðslu”.
Þvi hafa menn og fengið meö i
framkvæmdanefnd hinnar nýju
hreyfingar þekkta baráttumenn
gegn kjarnorkuverum (t.d. full-
trúa samtaka Ralphs Naders,
Critical Mass, Hinn gagnrýni
fjöldi). En þegar þá heildina er
litið er Mobilization for Survival
fyrst og fremst friðarhreyfing
sem leggur megináherslu á af-
vopnun og baráttu gegn kjarn-
orkuvigbúnaði. En sú áhersla
sem lögð er á baráttu gegn styrj-
aldarhættu hefur að sönnu vakið
upp nokkrar efasemdir hjá
áhrifamönnum i hreyfingunni
gegn atómorkuverum.
r
I hvaða vagni
Sumir af þeim sem hafa látið að
sér kveða i baráttunni gegn atóm-
orkuverum telja, að aögerðir
„Herútboðsins” séu i reynd til-
raunir tiltölulega litils hóps
friðarsinna til að stökkva upp
i vagn andstæðinga atómorkuvera
og reyna siðan að ná taumunum i
sinar hendur.
Svo er mál með vexti, að and-
stæðingar kjarnorkuvera aðhyll-
ast öll hugsanleg stjórnmálavið-
horf, og sumir þeirra eru ein-
dregnir hægrisinnar. Verulegur
hluti þessa fólks getur ekki fallist
á það, að hin nýja samfylking,
Mobilization for Survival, geri
svonefnda „óvirka andstöðu” að
baráttuaðferö sinni. Meðal þeirra
eru ein helstu samtök andstæð-
inga kjarnorkuvera, Friends of
the Earth, Vinir jarðarinnar.
Talsmaður annarrar hreyf-
ingar (The Abalone Alliance i
Kaliforniu) segir sem svo, aö
hann muni reyna að vinna með
samfylkingunni, en þvi aðeins að
orkuverin komi fyrst, en kjarna-
vopnin séu aukaatriði. „Við reyn-
um að setjast i vagn friöarhreyf-
ingarinnar engu siður en hún
reynir að setjast i okkar” segir
hann.
Þessi sambúðarvandamál hafa
þegar komiö fram i dagsljósið á
ráðstefnu samfylkingaraðila i
versturfylkjunum. Þar var innan
tiðar farið að deila hástöfum um
þaö, hvort tiltekinn umræðufund-
ur eða mótmælaaðgerð ætti fyrst
og fremst að snúast um orkuver,
kjarnorkuvopn, vigbúnaðarkapp-
hlaupið almennt — eða jafnvel
efni eins og kynþáttakúgun i
Suður-Afriku. (Liklegt er að
islenskir vinstrisinnar kannist við
hliðstæðar deilur)'.
McReynolds, sem fyrr var
nefndur, telur, að andstæöingar
orkuvera muni fyrr eða siöar
komast að þvi, að orkumálin séu
með vissum hætti aukaatriði i
samanburði við kjarnorkuvig-
búnað. Hann telur að umhverfis-
verndarmenn sem ekki geta einu
sinni fallið á „óvirka mótspyrnu”
sem bafáttuaðferð, hljóti að
lenda til hliðar við hreyfinguna.
„Ogýmsir þeirra munu sjá sig
neydda til að taka til endurskoð-
unar stuðning sinn við Repúblik-
anaflokkinn og trú sina á kapital-
ismann”, segir hann.
Svipad í Evrópu
Hinn mikli pólitiski munur á
þeim hreyfingum, sem nú er
reynt að sameina undir einum'
hatti i Bandarikjunum, kemur
einnig fram meðal andstæðinga
kjarnorkuvopna i Evrópu. Til
dæmis má taka aö i Frakklandi
má finna kommúnista eða
sósialista, sem væru tilbúnir til aö
mótmæia kjarnorkuveri i nám-
unda við sin heimkynni, en gætu
fallist á það (fúsir eða með sem-
ingi) að frakkar héldu áfram
áætlun sinni um eigin kjarnavopn
(force de frappe).
McReynolds viðurkennir, aö at-
riði sem þessi geti gert það erfitt
að gera Mobilization for Survival
að alþjóðlegri hreyfingu. Hann
segir: þegar menn ræða af-
vopnunarmál þá eru þeir að ræða
heimspólitik, en ekki aðeins
bandariska pólitik. Ef að kjarna-
vopn væru frá bæði bandarikja-
mönnum og sovétmönnum tekin,
ættu vesturevrópumenn kröfu á
svari við þvi, hvort þeir ættu
áfram að búa við öflugan „hefð-
bundinn” sovéskan herafla um
austanverða Evrópu. Við getum
ekki búist við pólitiskum stuðn-
ingi við hreyfingu okkar i Evrópu
án þess að ræða staðreyndir eins
og valdajafnvægi i heild.
Úr tveím áttum
Sidney Lens (höfundur bókar-
innar „Daginn fyrir dómsdag” )
vonast til að hreyfingin geti yfir-
stigið hina pólitisku erfiðleika
bæði i Evrópu og Bandarikjunum.
„Við teljum að atómvopn séu
stærsta vandamál sem mannkyni
mætir i dag, segir hann. Eftir átta
ár i viðbót geta 40 lönd framleitt
atómvopn. Sagan biður eftir þvi
einu að strið og tækni eiga sam-
leið”.
Einn af andstæðingum kjarn-
orkuvera á Nýja Englandi segir
hinsvegar: „Ég tel að stöðvun
kjarno'rkuveranna sé efst á dag-
skrá. En ef við getum stöðvað
þau, þá höfum við einnig stigiö
stórt skref i þá átt að stöðva
sprengjuframleiðsluna. Við get-
um átt samleið um margt, en i
ýmsum málum verður hver að
halda sina leið”.
áb byggði á Pacific News Service
Blikkiðjan
t
Ásgarði 7/ Garðabæ
önnumst þakrennusmíði og
uppsetningu — ennfremur
tiverskonar blikksmiði.
Gerum föst verðtilboð
SIMI 53468
Húsbyggjendur —
EINANGRUNARPLAST
Getum afgreilt einangrunarplast á Stór-
Reykjavikursvæðið nteð stuttum fyrir-
vara. Afhending á byggingarstað.
Borgarplast hf.
Borgarnesi
Slmi 93-7370
Helgar- og kvöldsimi 93-7355.
Svipmyndir
á svipstundu
Svipmyndir í hvert skírteini
Svipmyndir sf.
Hverfisgötu 18 • Gegnt Þjódleikhúsinu
Þú verður að lita á hina jákvæðu hliö málsins: Kjarnorka gerir þjóðina
óháða öðrum orkugjöfum.