Þjóðviljinn - 25.09.1977, Síða 8
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 25. september 1977
SUNNUDAGSPISTILL
Eftir Árna Bergmann
Hugleiðing um
menningarróttœkni
Meinlaust grín
Fyrir nokkrum vikum (7.
ágúst) skrifaBi Svanur Kristjáns-
son hugvekjandi grein hér i
sunnudagsblaðiðsem hann nefndi
„Menningarróttæklingar —
lausaleiksbörn kapitalismans.”
Þar skilgreindi hann menningar-
róttækni á þá leið að hana
aðhylltust þeir sem i orði
kveðnu hafna auðvaldsskipu-
laginu og leggja ánerslu á nýja
lifnaðarhætti. I raun er þó
menningarróttækni náskyld
borgaralegri hugmyndafræði.
Húnerróttæk aðeinsá yfirborð-
inu og hana skortir skilning á
eðli þjóðfélagsins”.
Nokkru siðar lýsir Svanur
framferöi menningarróttæklinga
sem svo:
„1 sjálfu sér er ekkert athuga-
vert við það, aö menn halli sér að
öörum neysluvenjum en þeim,
sem almennastar eru. Mörgurri
finnst eflaust skemmtilegra að
eyða fé sinu i aö endurbyggja
gömul hús heldur en að búa i
blokk, hlusta á Olgu Guðrúnu en
ekki Rió-trióiö, lesa bækur Guð-
andstæðum launavinnu og auð-
magns.”
Ef við héidum áfram með eina
af samlikingum Péturs Gunnars-
sonar þá yrði útkoman máski sú,
að trúarbrögðin væru eins og
hvert annað ópal i samanburði
við það ópium sem menningar-
róttæknin getur orðið fólki.
Vitaskuld er það hægur vandi
að gera sér neysluvenjur menn-
ingarróttæklinga að einskonar
fjarvistarafsökun frá brýnustu
verkefnum i samfélagi og stjórn-
málum hér og nú. Þannig er hægt
að fara með alla hluti. Stofu-
kommúnisminn á sér mörg and-
lit. Menn geta verið svo yfirmáta
byltingarsinnaðir og svo hat-
rammir i sinum fræðilegu útskýr-
ingum á stéttabaráttu, að i raun
eru þeir að segja sig úr tengslum
við veruleikann. Þurfa aldrei að
glima við hann i alvöru, vegna
þess að hjá þeim er dómsdagur
byltingar hið eina sem máli skipt-
ir, allt annað visnar gjörsamlega
frammi fyrir þeirri dýrlegu
stundu. Eia værum vér þar!
En er það þá rétt sem Svanur
lætur að liggja að sérviska menn-
sjálfan mig að þvi stundum, hvað
sósialiskur flokkur hefði að bjóða
þessu fólki — einmitt i þessum
kjaramálum, Ég er hræddur um
að það hefði verið andskoti litið.
Það er ekki erfitt að svara til um
þá hluti þegar spurt er um kiör
Sóknarfólks, barnakennara,
Iðjufólks og fleiri á þeim báti. En
það var mjög hæpið að eitthvað
væri hægt að gera fyrir Svein og
Onnu (og þau eru reyndar i tekj-
um og viðhorfum enginn smáhóp
ur i þjóðfélaginu). Tiu prósent
hækkun eða tuttugu skipta ekki
máli fyrir þau. Ekki fyrir verk-
lýðsflokk heldur.
A5 geta hafnað
Andspænis dæmum sem þess-
um vaknar hinsvegar sú spurn-
ing, hvort þau Sveinn og Anna
hefðu ekki haft gott af að kynnast
dulitilli „menningarróttækni”
meðan þau voru enn á þeim
aldri að móttökuskilyrði voru
fyrir hendi. Hefði það ekki verið
betra fyrir magann á Sveini,
taugakerfið i önnu, börnin og
ömmu gömlu sem lagöi timbur-
Sveinn, Anna og Svanur
bergs Bergssonar en ekki Snjó-
laugar Bragadóttur, kaupa leður-
vörur og gallabuxur en ekki
snyrtivörur, samkvæmiskjóla
eða jakkaföt, fara til Kaup-
mannahafnar, Kúbu eöa Kina en
ekki tii sólarlanda, hjóla eða
ganga i stað þess að eiga bil,
drekka i Þjóðleikhúskjallaranum
(sem þvi miður lokar á sumrin)
en ekki á Hótel Sögu. Allt er þetta
harla meinlaust, veitir fólki
ánægju og lifgar upp á tilver-
una.”
Ópíum fyrir fólkið
Með öðrum orðum: menningar-
róttæknin er i besta falli meinlaus
— en getur að dómi Svans breyst i
einn af þeim farkostum sem
menn nota til lifsflótta:
„Hins vegar er það algjör fá-
sinna að gera ólikar neysluvenjur
aö höfuöatriði i baráttunni fyrir
afnámi auðvaldsskipulagsins og
uppbyggingu sósialisma. Ágrein-
ingur um neyslu dregur oft at-
hyglina frá stéttabaráttunni og
ingarróttæklinga i lifnaðarhátt-
um sé meinlaus þegar best lætur
— allavega vita gagnslaus?
Vel stæð fjölskylda
Nú er að segja lifsreynslusögu.
Tilviljanir vildu svo vera láta
að um nokkurra ára skeið þekkti
ég hjón ágæt, sem við skulum
kalla Svein og Onnu i nafni skyld-
leika þeirra við persónur Guð-
bergs Bergssonar. Þau áttu börn
tvö og voru frá hagskýrslusjónar-
miði nokkuð vel stæð visitölufjöl-
skylda. Hann var iðnaöarmaður,
sem átti oftar en ekki kost á rif-
andi tekjum, uppgripum ýmis-
konar, og gat unnið eins lengi á
viku hverri og hann treysti sér til.
Þau eignuðust á stuttum tima
stóra fimm herbergja ibúð. Hún
fylltist, einnig á mjög skömmum
tima, af framsæknum eldhús-
græjum, voldugu sófasetti, þykk-
um teppum, amriskri alfræðibók,
heimsins bestu bókum (tveir
metrar i grænu skrautbandi),
einnig smámunum túristastað-
anna. Billinn var alltaf nýlegur,
og fór stækkandi. Heimilinu
fylgdu mjögfinar Ijósmyndavél-
ar, kvikmyndavél til að fylgjast
með vexti barnanna, veiðistengur
útilegubúnaður og ýmisleg leik-
föng önnur. Þvi miður var fæst af
þessu notað (frekar en bækurnar
góðu væru opnaðar) vegna tima-
skorts. Sveinn vann mikiö. Anna
vann þegar hún gat.
Allir gera það gott
Þessari ágætu fjölskyldu fylgdi
mikil mæöa. sem kalla mætti
ólæknandi efnahagslega ófull-
nægjunú á þessum timum félags-
fræðilegs tungutaks. Sveini og
önnu tókst aldrei nema ör-
skamma stund (og kannski alls
ekki) að hafa minnstu ánægju af
hverri viðbót við sitt stóra leik-
fangasafn. Þau drógu aldrei dul á
það i taii, að hlutur þeirra i ver-
öldinni væri slæmur. Annað fólk
hafði það miklu betra. Byggði
stærra og leyfði sér fleira. Alis-
konar fólk kom til greina — sjó-
menn á sildarbátum, kaupmenn
og skransalar, hinir skelfilegu
læknar, iðnaðarmenn úr öðrum
greinum en þeirri sem Sveinn
vann i. Eöa þá þeir sem búa i
Kanada, Ástraliu og Sviþjóð þar
sem kaupið er svo miklu hærra.
Stjórnmálamenn voru einnig i
þessum hóp. Reyndar kaus
Sveinn Alþýðubandalagið eins og
gert hafði faðir hans og svo ýmsir
skólabræður. En hann taldi vist,
að enginn væri að vasast i pólitik
nema til að taka á þvi auðveldan
gróða i bitlingum og mútum og
var á móti stjórnmálum. Þau
hjón gáfu ekki mikiö fyrir
ónytjungsháttinn i listamönnum
og þeim fannst kennarar fá of
langt fri. Ég held þeim hafi fund-
ist ég vera smáskrýtinn að vinna
við þetta eymdarblað Þjóðviljann
fyrir skitakaup sem þau kölluðu
svo — og keyptu aldrei blaðið.
Óþreyjan mikla
Ofullnægjan sem áður var
nefnd, var mjög sterk og lifandi.
Anna þurfti alltaf að breyta og
bæta og skinta nm Fvrr en varði
var búið að henda skikkanlegustu
húsgögnum og kaupa ný sem
pössuðu betur við litina og
gluggatjöldin — eða öfugt. Ein-
hver nýr fengur blasti viö i hverri
heimsókn — og var þegar orðinn
gamall og gleymdur. Það besta
var aldrei nógu gott. Það leið
heldur ekki nema stutt stund
þangað tii ibúðin nýja var of litil
og ómerkileg (fjórar manneskj-
ur, 150 fermetrar). Hún var seld
og i staðinn keypt hálfkarað ein-
býlishús, alls 300 fermetrar. Mig
minnir að hobbiherbergið i
kjallaranum hafi verið fimmtiu
fermetrar, en kannski eru það
ýkjur. Þegar uppbygging og inn-
rétting þess húss var nokkuð á
veg komin komust þau Sveinn og
Anna loks að þeirri niðurstöðu,
sem þau höfðu lengi dregið sér i
grun, að i raun og veru væri ekki
lift á íslandi. Þau fluttu úr landi
og koma ekki framar.
Hvað mátti bjóða?
Eins og ég sagði áðan, þá voru
þau Sveinn og Anna „okkar at-
kvæði” — vegna ýmiskonar fjöl-
skyldutengsla, og kannski öðrum
þræði vegna þess, að Sveinn hefur
hugsað sem svo að „það er best
að láta kommana juða i þessum
kjaramálum”. Ég spurði lika
húsið sitt i púkkið, ef að þau hefðu
haft þó ekki væri nema snefil af
„menningarróttæklingaafstöðu”
til þess, hvaö hægt er að gera við
timann og hlutina. Ef þau hefðu
til dæmis kikt i Guðberg sem fyrr
var nefndur og hefur manna mest
rannsakað Svein og önnu og það
fólk. Ef viö tökum upp þráðinn
frá grein Svans Kristjánssonar:
með þessu móti hefði verið ein-
hver von til að þessiágætu hjón
hefðu tekiö sér gagnrýna stöðu
andspænis þvi kapphlaupi
ófullnægjunnar sem engan endi
tekur, þvi miður.
Menningar-róttækni getur verið
flótti. Hún getur verið meinlaust
krydd. En mestu skiptir, að ein
veigamikil forsenda fyrir þvi að
menn séu til umræðu um að þjóð-
félagi sé hægt að breyta, að það sé
ómaksins vert er einmitt þetta:
Að menn hafi bein i nefi til að
kjósa sér annan hlut i lifsháttum,
i „menningarneyslu”, en þann
sem samanlagður auglýsinga-
máttur kapitalismans otar að
hverjum og einum við hvert fót-
Arni Bergmann.
Frá bygginga-
happdrætti NLFÍ
— Óðum styttisttil dráttardags, 7. október
1977. Við viljum þvi vekja athygli þeirra,
sem fengið hafa heimsenda happdrættis-
miða að gera skil sem allra fyrst.
Ósóttir vinningar frá 1976
nr. 41475 litasjónvarp
nr. 41501 dvöl á Heilsuhælinu
nr. 41841 dvöl á Heilsuhælinu.
Þessir miðar voru seldir i lalusasölu á
Akureyri, þeirra sé vitjað fyrir 1. desem-
ber 1977.
Styðjið okkur i byggingu heilsuhæla á
Norðurlandi og i Hveragerði.