Þjóðviljinn - 23.10.1977, Side 14
14 StÐA — ÞJÓÐVILJXNN Sunnudagur 23. október 1977
Laugard. kl. 10-12. , ,
sunnud. ki. 18 22 SMAAUGIYSINGAHAPPDRÆTTI
17. okt. - 20. nóv.
Ein greidd smáauglýsing
og þú átt vinningsvon!
®SANYO
20" LITSJÓNVARPSTÆKI
að verðmœti kr. 249.500.—
frá GUNNARI ÁSGEIRSSYNI HF.
er vinningurinn að þessu sinni
SMÁAUGLÝSINGAHAPPDRÆTTI VÍSIS
Sfmi 86611
Ártúnshöfðasamtökin
halda mjög áríðandi félagsfund í matstofu
Miðfeils h.f. Funhöfða 7, Reykjavík, mánudaginn
24. október kl. 15.30
Fundarefni: 1. Frammistaða borgaryfirvalda
^ 2. Innbrotafaraldur í hverfinu
3. Hreinsun,fegrun og snyrting
4. önnur mál
v
Mjög áríðandi að hvert fyrirtæki sendi fulltrúa
á fundinn
Stjórnin
Víkingabók
Magnúsar
Bókaútgáfan örn og örlygur
hefur gefið út á islensku bókina
HAMAR ÞÓRS eftir Magnús
Magnússon en forlagið gaf hana
út i fyrra á ensku og nefndist hún
á frummálinu HAMMER OF
THE NORTH. Bókin er prýdd 120
litmyndum sem teknar voru af
hinum kunna Ijósmyndara,
Werner Forman. Dagur Þorleifs-
son þýddi bókina á islensku.
Þetta var óvenjulegt og ævin-
týralegt framtak. 1 einu vetfangi,
að þvi virtist, urðu norðurhöfin
morandi af rennilegum, borðlág-
um sjóræningjafleytum með gap-
andi höfðum og gínandi trjónum,
og mannaðar voru þær liði svo
hugrökku og grimmu, að það lét
ekkert aftra sér og virtist með
öllu ósigrandi.”
Með þessum orðum lýsir
Magnús Magnússon þeim gifur-
lega þrótti, er einkenndi útþenslu
norðurlandabúa á vikingaöld. A
þeim tima námu þeir Grænland,
Normandi og hálft England,
stofnuðu mikilvægar verslunar-
miðstöðvar i Rússlandi og i vestri
létu þeir ekki staðar numið fyrr
en á ströndum Norður-Ameriku.
Höfundurinn hefur kynnt sér efn-
ið vandlega og fjallar um það af
djúpri samúð, enda sýnir bókin
norræna menn i nýrri og hrifandi
mynd. Lengi hefur það verið
venja, að menn hafi sett sér vik-
ingana fyrir sjónir sem villtan
heiðingjamúg. í bók Magnúsar
Magnússonar er flett ofan af þeim
skröksögum. Aðaltexti bókarinn-
ar er aukinn og endurbættur með
yfir hundrað og tuttugu ljós-
myndum, sem hinn kunni ljós-
myndari Werner Forman hefur
tekið. Þær eru mikið framlag til
skýringar á átrúnaði og löngun-
um þess furðulega fólks, sem
norðurlandamenn Vikingaaldar
voru, sem og öðrum þeim ástæð-
um er knúðu þá til athafna.
Magnús Magnússon.
Myndirnar sýna lesendum tiguleg
langskip,dularfulla rúnasteina og
skartgripi gerða af furðulega
Hókinni og margbrotinni list. 1
bókinni fer saman lifandi athugun
og gagnger skilgreining á sögu
vikinga, goðfræði þeirra og ljóða-
list, enda er bókin skýr frásögn af
trúarbrögðum og lifssýn vikinga-
þjóðanna.
Magnús Magnússon er islensk-
ur að ætt. í Bretlandi er hann
þekktastur fyrir fræðsluþætti i
sjónvarpi, svo sem þætti um sögu
og fornleifafræði i flokknum BBC
Chronicle. Þar að auki hefur hann
þýtt nokkrar íslendingasagna,
sem komið hafa út i bókaflokkn-
um Penguin Classics, og nokkrar
skáldsögur eftir Halldór Laxness.
Magnús er ritsjóri Bodley Head
Archaeolo'gy, sjálfur höfundur
tveggja bóka, Introducing Archa-
eology, sem fékk Times Educat-
ional Supplement Information
bókaverðlaunin 1972, og Viking
Expansion Westwards.
Bókin er filmusett og umbrotin
i prentsmiðjunni Odda hf., en
prentuð á ttaliu.
Frá Máli og menningu:
Elsku Míó minn
Eftir Astrid Lindgren
(Jt er komin barnabókin Elsku
Mió minn eftir Astrid Lindgren,
þann núlifandi barnabókahöfund
sem nú nýtur einna mestrar
frægðar: hún er höfundur Línu
langsokks, Emils i Kattholti og
fleiri merkra persóna. Þýðandi er
Heimir Pálsson.
Elsku Mio minn er ævintýra-
saga og svipar á ýmsan hátt til
sögunnar Bróðir minn Ljóns-
hjarta sem út kom i fyrra: hér er
skapaður ævintýraheimur sem er
skyldari stórtiðindum okkar ald-
ar en það sögusvið sem menn
þekkja af skyldum bókum.
Þessi saga var lesin i morgun-
stund barnanna i útvarpi fyrir
nokkrum árum. Bókin er prýdd
mörgum myndum eftir sænsku
listakonuna Ilon Wikland.
Útgefandi er Mál og menning
Sögusafnið Jól dýranna
Bókaútgáfan Örn og örlygur
hefur gefið út sögubók fyrir litlu
börnin sem nefnist Jól dýranna.
Sögurnar eru eftir Kathryn Jack-
son en Richard Scarry mynd-
skreytir. Andrés Kristjánsson
þýddi. 1 bókinni eru alls tlu sögur
og heita þær: Syngjandi jólatré,
Kanínur á snjóþrúgum, Bangsi
hræðilegi, Jólakaka ljónanna,
Kökudýrin, Geitin, sem lék jóla-
svein, Gullni sleðinn, Leyniferðin,
Jólahvolpurinn og Stóru fílajól.
Bókin er sett i Pentsmiöjunni
Eddu hf., meginmál er filmað i
Korpus hf, Katrin Þorsteinsdóttir
teiknaði fyrirsagnir en prentun og
band var unnið i Skotlandi.
Aðalsími
Þjóðviljans
er
81333