Þjóðviljinn - 12.11.1977, Síða 1
MÚWIUINN
Laugardagur 12. nóvember 1977 —42. árg. 253. tbl.
VÍÐTÆK LEIT
AÐ BÁT ÚR
GRUNDARFIRÐI
1 alla fyrrinótt og i gær stóð
yfir leit að 29 tonna rækjubát frá
Grundarfirði, Haraldi SH 123. A
bátnum eru tveir menn. Kl.
20.45 á fimmtudagskvöldið hafði
Grundfirðingur samband við
Harald og var þá allt i lagi og
báturinn staddur um 7 milur
norður af öndverðarnesi á
heimleiö. Kl. 22.20 ætlaði
Grundfirðingur að ná sambandi
á ný en fékk ekki svar. Er bát-
urinn kom ekki fram á þeim
tima, sem búist var við, var
strax hafin viðtæk og skipuleg
leit, sem i taka þátt 25-30 skip og
bátar auk flugvélar landhelgis-
gæslunnar. Þá hafa og fjörur
verið vandlega gengnar af
björgunarsveitum og öðrum.
f morgun fannst brak á reki,
en ekki hefur verið staðfest að
það sé úr Haraldi.
1 fyrrakvöld var á þessum
slóðum 7-8 vindstig af norð
norðaustri en tók að lægja upp
úr miðnætti. Veður herti svo
heldur aftur er á daginn leið.
—mhg
Prófkjör
Alþýðuflokksins
10.000
kjör-
seðlar
Prófkjör Alþýðuflokksins um
skipan framboðslista til Alþingis-
kosninga fer fram um helgina.
Allir frambjóðendurnir fimm i
þrjú efstu sætin hafa opnar kosn-
ingaskrifstofur um helgina.
Kjörstjórn hefur látið prenta 10
þúsund kjörseðla og er þvi greini-
legt að gert er ráð fyrir að helm-
ingi fleiri taki þátt i prófkjörinu
en kusu Alþýðuflokkinn i Reykja-
vik við siðustu kosningar. Kjör-
stjórnin gerir semsagt ráð fyrir
þvi i samræmi við reynslu fyrri
prófkjöra i haust á vegum flokks-
ins að utanflokksmenn eða ann-
arra flokka menn ráði úrslitum
prófkjörsins i Reykjavik.
Kosningu lýkur kl. 19 annað-
kvöld og verða kosningatölur og
úrslit birt á Hótel Loftleiðum um
kvöldið.
Konur yfir
fertugt
sjá 8 og 9 ~
Böll um
ofsóknir í
Vestur-
Þýskalandi
SJÁ SÍÐU 5
Engin
bilbugur á
Hand-
prjóna-
sambandinu
SJÁ SÍÐU 10
Höfðabakki 9 — eign islenskra aöalverktaka — er 74.547 rúmmetrar. Lóðin er 43.109 fermetrar.
Hvert fer gróði ís-
lenskra aðalverktaka?
Eiga ma. eitt af stærstu húsum landsins
Eins og fram kom í Þjóðviijanum i gær græðir
hermangsfyrirtækið íslenskir aðalverktakar á tá og
fihgri. En hvert fer þá gróðinn? Vafalaust eru laun
stjórnenda eitthvað örlitið hærri en Dagsbrúnar-
eða BSRB-kaup en svarið liggur lika i geysilegri
fjárfestingu sem fyrirtækið hefur engin bein not af
sjálft. Meðal annars byggði það fyrir örfáum árum
eitt stærsta hús á landinu sem það léigir allt út.
Þetta er Höfðabakki 9, i Ártúnshöfða sem er hvorki
meira né minna en 74.547 rúmmetrar. Brunabóta-
mat hússins er 1.337.772.000.
Til samanburðar má geta þess
að Hótel Saga er 31.439 rúmmetr-
ar eða meira en helmingi minni,
Þjóðleikhúsið er 32.623 rúmmetr-
Orðsending til
styrktarmanna
Styrktarmenn Alþýðubanda-
lagsins, sem ekki hafa greitt
framlag sitt fyrir árið 1977
eru minntir á að greiða gfró-
seðilinn hið fyrsta.
ar og Laugardalshöllin er 48.420
rúmmetrar. Hús sem bæði gæti
rúmað Hótel Sögu og Laugardals-
höllina — eða því sem næst — er
þvi engin smáræöiseign. Lóðin
sem Höfðabakki 9 stendur á er
48.420 fermetrar og er fasteigna-
matið á henni um 95 miljónir.
Þjóðviljinn hafði samband við
Thor Thors framkvæmdastjóra
Islenskra aðalverktaka suður á
Keflavikurflugvelli i gær og
spurði hann um hversu mikla
leigu fyrirtækið fengi inn fyrir
húsið og ætlaði hann að taka það
saman en ekki náðist i hann aftur
i gær svo að sú frétt verður að
Laugardalshöllin er 48.420 rúm-
metrar
biða þar til eftir helgi. Ennfremur
væri fróðlegt að fá að vita um
aðrar fasteignir verktakanna.
— GFr
180 þús. á iönkynningu
Hinn 2. okt. sl. lauk
formlega iðnkynningar-
árinu, sem staðið hefur
yfir frá 3. sept. 1976. Á
hugi almennings á iðn-
kynningunni reyndist
mjög mikill. Alls sótti
hana 180 þús. manns.Efnt
var til þriggja stórra sér-
sýninga, sem sóttar voru
af 103 þús. gestum. Um
91% hafa i könnun lýst
yfir jákvæðri afstöðu.
Á iðnkynningarárinu
hefur farið fram almenn
kynning á íslenskum iðn-
varningi, með mjög já-
kvæðum árangri. Þátt-
taka í sýningunni og
undirtektir almennings
hafa Ijóslega sýnt vax-
andi skilning almennings
á gildi og þýðingu
íslensks iðnaðar. —
— Með iðnkynningunni
hafa dyrnar verið opnað-
ar og nú þurfa samtök
iðnaðarins að fylgja mál-
inu eftir, sagði Pétur
Sveinbjörnssonn á fundi
með f réttamönnum í gær.
Eftir helgina mun blað-
ið skýra nánar fra fund-
inum og því, sem þar kom
fram.
—mhg