Þjóðviljinn - 12.11.1977, Side 17

Þjóðviljinn - 12.11.1977, Side 17
Laugardagur 12. nóvember 1977 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 17 Boxari með blóm Þekkiö þiö þessa menn? Nei, þetta eru ekki Gög og Gokke og ekki heldur Litli og Stóri. Til vinstri er Barry Fitzgerald og John Wayne er til hægri á myndinni. Aumingja Jóni Væna liöur greinilega illa i þessum finu fötum, enda eru þær ekki margar kvikmyndirnar sem hann lék i svona borgaralega klæddur. Harðhúluhattur og blómavöndur hafa ekki beinlínis þótt tákn þessa kvikmynda- leikara gegnum öll þau ár, sem hann hefur þraukað á hvita tjaldinu. Slagsmál, drykkja, sviti, kvennafar, skothvellir, blóð, hófatak, hnegg og hrossa- stóð, — þessi orð koma mörgum liklega fyrst i hug ef minnst er á Jón Væna. Hann hefur leikiö i ótöldum hrossaóperum um dag- ana, flestum undir stjórn Johns Hustons eða Johns Fords. Það er einmitt gamli harð- jaxlinn John Ford, sem dregið hefur kúrekann Væna á ókunnar slóðir og dubbað hann til séntil- manns i myndinni sem sjón- varpið ætlar að vera svo vænt að leyfa okkur að horfa á i kvöld, en harðkúluhattamyndin er ein- mitt úr þeirri mynd. The quiet Man nefnist hún á enskunni yl- hýru, en Hljóöláti maðurinn i nákvæmri snilldarþýðingu þeirra sjónvarpsmanna. Elstu menn muna vel aftur fyrir gerð þessarar kvikmyndar, þvi hún er ekki eldri en frá 1952. 1 aðal- hlutverkum eru Wayne og Maureen O’Hara. 1 knöppum og meitluðum „söguþræði” sem sjónvarpið lætur jafnan á þrykk ganga um kvikmyndir sinar, segir eitt- hvað á þá leið, að boxari nokkur drepi mann óvarti keppni. Hann hættir þvi að slást og snautar heim til sin. —eös 7.00 Morgunútvarp Veður- fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10. Morgunleikfimi kl. 7.15 og 8.50. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og forustugr. dagbl.) 9.00 og 10.00. Morgunbæn kl. 7.50. Morgunstund barnanna kl. 8.00: Þórunn Magnea Magnúsdóttir les söguna „Klói segir frá” eftir Annik Saxegaard (6). Tilkynning- ar kl. 9.00. Óskalög sjúkl- ingakl. 9.15: Kristin Svein- björnsdóttir kynnir. Barna- timikl. 11.10: Dýrin okkar. Jónina Hafsteinsdóttir cand. mag. sér um timann. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.25 Veöurfregnir og fréttir. Tilkynningar. Tónleikar. 13.30 Vikan framundan. Sig- mar B. Hauksson tekur saman dagskrárkynningar- þátt 15.00 Norsk visnalög Tone Ringen, Ase Thoresen, Yokon Gjelseth, Lars Kelv- strand og Bört-Erik Thore- sen syngja. Sigurd Jansen stjórnar Norsku skemmti- hljómsveitinni sem leikur með. 15.40 tslenskt mál Jón Aðal- steinn Jónsson cand. mag. talar. 16.00 Fréttir. 16.15 Veðurfregnir. Frá út- varpinu i Hamborg Sin- fóniuhljómsveit útvarpsins leikur tónverk eftir Josef og Johann Strauss. Stjórnandi: Willi Boskovsky. 17.00 Enskukennsla (On We Go) i tengslum við kennslu i sjónvarpi: — fjórði þáttur. Leiðbeinandi: Bjarni Gunnarsson menntaskóla- kennari. 17.30 „Sámur” eftir Jóhönnu Bugge-Olsen og Meretu Lie Hoel Sigurður Gunnarsson þýddi. Leikstjóri: Guðrún Þ. Stephensen Annar þátt- ur: Sauðadrápiö. Persónur og leikendur: Erling- ur/Sigurður Skúlason, Magni/Sigurður Sigurjóns- son, Niels bóndi/Jón Hjartarson, Lars/Guðjón Ingi Sigurösson, Anna/Helga Þ. Stephensen, þulur/Klemenz Jónsson 18.10 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til- kynningar. 19.35 Baðstofulif i Grimsey og leiklist á Borgarfirði eystra Jökull Jakobsson ræðir við Sigurjónu Jakobsdóttur: fyrri hluti. 20.05 Frá tónlistarhátiðinni i Helsinki á liðnu sumri a. Konsertþættir eftir Fran- cois Couperin og Sex spænsk þjóðlög eftir Manuel de Falla. Roman Jablonski leikur á selló og Krystyna Borucinska á pianó. b. „Frauenliebe und Leben” lagaflokkur op. 42 eftir Ro- bert Schumann. Irja Auroora syngur. Gustav Djupsjöbacka leikur á pianó. 20.55 Frá haustdögum Jónas Guðmundsson rithöfundur á ferð um vestanverða álf- una. 21.30 Pianótónlist eftir Bach, Scarlatti og Chopin Dina Lipatti leikur. 22.15 Veðurfregnir. Dansiög 23.55 Fréttir. Dagskrárlok. 16.30 lþróttir Umsjónarmað- ur Bjami Felixson. 18.15 One We Go Ensku- kennsla. 4. þáttur endur- sýndur. 18.30 Katy (L) Nýr, breskur myndaflokkur I sex þáttum, byggður á sögu eftir Susan Collidge. Leikstjóri Julia Smith. Aðalhlutverk Claire Walder, Ed Bishop og Julia Lewis. 1. þáttur. Katy er fimmtán ára gömul. Hún býr i smábæ i Bandarikjun- um ásamt þremur systkin- um sinum og fóöur Þýðandi Jóhanna Jóhannsdóttir. 18.55 Enska knattspyrnan Hlé 20.00 Fréttir og veður 20.25 Augiýsingar og dagskrá 20.30 Undir sama þaki Is- lenskur framhaldsmynda- flokkur i léttum dúr. 5. þátt- ur. Milli hæða Þátturinn verður endursýndur mið- vikudaginn 16. nóvember. 20.55 Gaupan i skógum Svi- þjóöar Sænsk fræöslumynd um gaupur. Kvikmynda- tökumaöurinn Jan Lindblad fylgdistmeð læðu og tveim- ur kettlingum hennar einn viðburðarikan ágústdag. Þýðandi og þulur Björn Baldursson. (Nordvision- Sænska sjónvarpiö) 21.45 Hijóðiáti maðurinn (The Quiet Man) Bandarisk bió- mynd frá árinu 1952. Leik- stjóri John Ford. Aðalhlut- verk John Wayne og Maur- een O’Hara. Hnefaleikarinn Sean Thornton verður manni að bana i keppni. Hann ákveður þvi að hætta hnefaleikum og snúa aftur . til heimabæjar sins. Þýð- andi Jón Thor Haraldsson. 23.50 Dagskrárlok LAUNADEILD RÍKISSPÍTALANNA Starfsmaður óskast nú þegar við launaútreikning. Stúdentspróf eða hliðstæð menntun áskilin, ásamt með leikni i talnameðferð. Umsókn- ir sendist starfsmannastjóra fyrir 22. nóvember. Upplýsingar veitir starfsmanna- stjóri simi 29000. VÍFILSSTAÐASPÍTALI Hjúkrunardeildarstjóri óskast til starfa á deild 5. Hjúkrunarfræðingur óskast i hálft starf á göngudeild. Hjúkrunarfræðingur óskast i fullt starf eða hlutastarf. Sjúkraliði i fullt starf eða hluta- starf. Barnagæsla er á staðnum og hús- næði er i boði fyrir hjúkrunarkonur i fullu starfi. Upplýsingar veitir hjúkrunarfram- kvæmdarstjóri simi 42800. Reykjavik, 11. nóvember 1977- C-'''í^!irCTin Tft víjYu iuy tl 'Uly íH EyrálKS&öry 29000 ||| Reykjavikurhöfn 1. Verkamenn til starfa við hafnargerð og til almennrar verkamannavinnu. 2. Járniðnaðarmenn til starfa i smiðju og við hafnargerð. Nánari upplýsingar gefa verkstjórar i sima 28211 og 12962. STYRKIR TIL NOREGSFARAR Stjórn sjóösins þjóðhátiöargjöf Norðmanna auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum vegna Noregsferða 1978. Samkvæmt skipulagsskrá er tilgangur sjóðsins „aö auð- velda lslendingum að ferðast til Noregs. í þessu skyni skal veita viðurkenndum félögum, samtökum, og skipu- lögðu hópum ferðastyrki til Noregs i þvi skyni að efla samskipti þjóðanna t.d. með þátttöku i mótum, ráöstefn- um, eða kynnisferðum, sem efnt er til á tvíhliða grund- velli. Ekki skal úthlutað ferðastyrkjum til einstaklinga, eða þeirra sem eru styrkhæfir af öðrum aðilum.” i skipulagsskránni segir einnig, að áhersla skuli lögð á að veita styrki, sem renna til beins ferðakostnaðar, en um- sækjendur. sjálfir beri dvalarkostnað I Noregi. Hér meðer augiýst eftir umsóknum frá þeim aðilum, sem uppfylla framangreind skilyrði. 1 umsókn skal getið um hvenær ferð verður farin, fjölda þátttakenda og tilgang fararinnar. Auk þess skal tilgreina þá upphæö, sem farið er fram á. Umsóknir óskast sendar til stjórnar sjóðsins, Forsætis- ráöuneytinu, Stjórnarráðshúsinu, Reykjavik, fyrir 15. janúar n.k. Stuðningsmenn Jóhönnu Sigurðardóttur i prófkjöri Alþýðuflokksins vegna næstkomandi Alþingis- kosninga, sem fer fram i dag og á morgun, hafa opna skrifstofu prófkjörsdagana að Kleppsveg 33, 4. hæð (skrif- stofa Kassagerðar Reykjavlkur), þar sem allar upplýs- ingar og aðstoð eru veittar varðandi prófkjörið. Siminn er: 38 3 83 Stuðningsmenn.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.