Þjóðviljinn - 12.11.1977, Page 18

Þjóðviljinn - 12.11.1977, Page 18
18 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 12. nóvember 1977 Leiklist Framhald af 7 siöu. e.t.v. sumum litið eitt barnaleg, en það sakar þó ekki. Hrifnastur var ég af ræðunum viö afhjúpun minnisvarðans um foreldra útgerðarbraskarans (móðir hans er ein aðalpersónan — „amma”). Ræða útgerðarbraskarans var eitt allsherjar „ég”, þó hún ætti að vera helguð foreldrum hans. Hún endurspeglaði sjálfselsku og eiginhagsmunaástriöu og sýndi vel, hve firna djúpt er orðið á mannlegum tilfinningum hjá þeim, sem unir við auðhyggju og svall. 1 viðtali við blaðið Austurland hefur Kjartan Heiðberg undir- strikað ómetanlega aðstoð leik- stjórans, Magnúsar Guðmunds- sonar. Hlutur Magnúsar er þarna mik- ill og góður, svo sem vænta mátti. Sviðsetning er hin ágætasta og framkoma leikara jafnt sem framsögn til fyrirmyndar. Magnús nýtir kýmni og biturt háð leikritisins til hins ýtrasta og tekst þar vel til. Hann hefur hér bætt einu ágætu verki i leikstjórnarsafn sitt og er það ekki furöuefni þeim, sem þekkja til hæfileika Magnúsar, hvort sem er á sviöi túlkunar eða stjórnar. 011 eru hlutverkin I góðum höndum, misgóðum að vonum hjá áhugaleikurum, en hvergi er áberandi veikur hlekkur. „Amma” er sannfærandi, og skemmtileg i skýrri túlkun önnu M. Jónsdóttur. Ungmennin fjögur eru eitt með hverjum hætti og skila' hlut sinum vel: Grimur Magnússon er alvörumaðurinn, Bjössi, Friðrik Gigja er „töffar- inn” Steini, Ásdis M. Ölafsdóttir er i hlutverki hins hrekklausa bibliulesara og Vilborg Stefáns- dóttir er uppreisnargjörn og skapheit stúlka. Mér þótti hún fara sérlega vel meö vandasamt hlutverk. En öll voru þau örugg og hressi- leg i túlkun sinni og Friðrik fór velog hófsamlega með lokaatrið- ið. Daniel eftirlitsmaður er mátu- lega vandræðalegur i meöförum Péturs-Kjartanssonar. Höfundur leikur auðmjúkan þjón útgerðar- mannsins, og er ógeöfelld Der- sóna s.s. vera ber. Að lokum er svo Vilhjálmur útgerðarmaður i ljómandi túlkun Smára Geirsson- ar, heimskan, hrokinn og ágirnd- in i einni persónu. Leikdómur átti þetta ekki aö vera. Aðeins vildi ég vekja athygli á þessu ágæta framtaki höfundar og Leikfélags Neskaupstaðar. Hafi þau öll heila þökk fyrir. Helgi Seljan. Konur Framhald af bls. 9. þvi að maðurinn minn kæmi og sækti mig, að hann fengi sér fri i vinnunni. Hann keyrði vörubil þegar þetta var. En hann kom bara og sótti mig og skildi mig eftir fyrir utan hús og ég mátti labba ein upp á þriðju hæð með mitt barn. Þaö var undarlega eyðilegt og tómt eftir 8 mánaða fjarveru. Og ég á enga að ... aðrir eiga kannski móður eða systur til að taka á móti sér. Mér fannst ég vera svolitiö yfir- gefin. — Þaö er nú ekki undarlegt. Það er skritið að þér skyldi ekki finnast þú aígerlega yfirgefin. (...) En hvað þoldirðu lengi að fara á fætur klukkan fjögur og sjá um þetta allt sjáif? — Ég hélt það nokkurn veg- inn út i hálft ár. Þá fór ég aö léttast allverulega. Ég fór i fyrsta skipti niöur i 38 kiló. Mér fannst allt svo hræðilega erfitt, og ég fór að gráta út af engu, mér fannst — þó ekki væri nema uppþvottur og svoleiðis alveg hryllilega erfitt. Og ég fór til læknis út af þvi hvað ég var allt- af þreytt og siskælandi. Og hann sá að þetta var ekki eð!i- legt. Að ég var veik. — Hvað varstu gömul þegar þetta var? — 33 ára.” Hótaði að taka af henni börnin Alis lét leggja sig inn á geö- sjúkrahús og átti þar oft erfiða ævi. Framan af fékk hún engar fréttir af börnum sinum og gerði setuverkfall til að fá að hringja heim. Eftir 3 mánaða dvöl á sjúkrahúsinu fór hún heim og byrjaði aftur að vinna úti mjög fljótlega — að áeggjan manns sins eins og i fyrra skipt- iö. Hún vildi skilja viö hann en hann hótaði henni þvi að hún fengi ekki rétt yfir börnunum vegna þess að hún hefði veriö á geðsjúkrahúsi. Lengi trúði hún þessum hótunum en mannaði sig þó að lokum upp i að spyrja lækni ráða og komst þá að þvi að maöurinn hafði á röngu aö standa. Hún skildi þá viö hann og býr nú með börnum sinum. Rannsóknir Framhald af 6. siðu. pólitiskt hlutverk sjóðs- ins fyrir alþýðu Evrópu- rikja. 8. Itök sin i seðlabönkum og fjármálaráðuneytum einstakra landa treystir IMF með þvi að planta trúnaðarmönnum sinum I lykilstööur i hverju landi. Þessir menn eru þegnar viðkomandi rikja sem fá skólun i aðalstöðvum IMF i Washington. Þar eru þeir látnir fá mjög há laun og ýmis konar friö- indi til þess að venja þá að lifnaðarháttum og hugarfari auðstétta i heimarfkjum sinum. 9. IMF er ekki aðeins erki- óvinur alþýðunnar, held- ur einnig óvinur lýðræð- isins. Samskipti sjóðsins við þjóðriki eru visvit- andi hulin ábreiðu sér- fræðiþekkingar en um- ræður um þessi samskipti fara ekki fram á þjóð- þingum, þótt þau skipti sköpum fyrir afkomu og stjórnarfar i hverju landi. 10. A íslandi er aðalfulltrúi IMF dr. Jóhannes Nordal, Seðlabankastjóri og postuli erlendra auö- hringa með meiru. Sam- skipti hans við IMF eru einkamál hans. Það er á hans valdi aö skammta upplýsingar til islenskra stjórnvalda um sam- skipti hans við IMF. Af þessum sökum, fer Baráttuhreyfing gegn heimsvaldastefnu þess á leit viö islensk stjórnvöld, að þau geri héðan i frá opinberlega grein fyrir öllum samskipt- um embættismanna rikisins viö IMF og við systurstofnun þess, hinn svokallaða Alþjóðabanka. Auk þess skorar Baráttu- hreyfingin á öll framsækin og sjálfstæö öfl i landinu að þau afhjúpi fyrir næstu kosn- ingar hlutverk IMF og ráða- gerðir bandamanna þess á Islandi gegn hagsmunum þorra landsmanna og gegn sjálfstæði landsins. Baráttuhreyfing Framhald á bls. 13. þriðji og siðasti liðurinn hefði farið sivaxandi, þó nú hefði dregið úr honum um tíma. Arið 1975 námu þær rannsóknir tvö- földu umfangi fjárveitingar- innar en það ár var ráöist I rannsóknir I Hvalfirði vegna væntanlegrar járnblendiverk- smiöju. Þá hefur liffræði- stofnun einnig unnið að rann- sóknum i Þjórsárverum með til- liti til viögangs heiðagæsa- stofnsins, vegna fyrirhugaðra virk junarf ramkvæmda. Einnig hefur verið gerð rann- sókn vegna fugla viö Kefla- vikurflugvöll, á mengun af völdum Salmonellasýkla i sjó umhverfis Reykjavik og frá- rennsli hótela og unnið hefur verið að rannsóknum fyrir Vegagerðina vegna • veg- langinga og uppfyllinga á ýmsum stöðum á landinu. Þessi rannsóknarverkefni sem Liffræðistofnun hefur , annast fyrir ýmsa aðila eru flest tengd umhverfisvernd á einn eða annan hátt, sagði Agnar, en eigin rannsóknir stofnunarinnar spanna mun viðara sviö, allt frá rannsóknum á erfðum gerla, könnun á stofnstærö og viögangi toppskarfs, ásamt ýmsum rannsóknum á þanglúsum. Liffræðistofnun og raunar mesti hluti kennslu I liffræði er til húsa I leiguhúsnæði að Grensásvegi 12. —AI Lausar stöður Arnarholt Hjúkrunarfræðingar óskast til starfa að Geðdeild Borgarspitalans Arnarholti. íbúð á staðnum. Hvítaband Hjúkrunarfræðingar óskast til starfa á Geðdeild Borgarspitalans Hvitabandi. Heilsuverndarstöð Hjúkrunarfræðingar og sjúkraliðar óskast til starfa á Endurhæfingar-og hjúkrunar- deild Borgarspitalans við Barónsstig. Upplýsingar gefnar á skrifstofu forstöðu- konu simi 81200. Reykjavik, 11. nóvember 1977. Borgarspitalinn. BLAÐBERAR óskast í eftirtalin hverfi: Hverfisgata- Lindargata Laufásvegur DJOÐVIUINN Kaplaskjól- Meistaravellir Ytra-Seltjarnarnes Höfðahverfi Vinsamlegast hafið samband viö afgreiösluna Síöumúla 6 — sími 81333 ALÞÝÐU- LEIKHÚSIÐ Skollaléikur Sýningar i Lindarbæ sunnudag kl. 20:30. Mánudag kl. 20:30. Miðasala i Lindarbæ kl. 17. - 19 og sýningardaga kl. 17- 20:30. Pípulagnir Nýlagnir, breyting- ar, hitaveitutenging- ar. Simi 36929 (milli kl. 12 og 1 og eftir kl. 7 á kvöldin) I.HIKFRl AC 2l® RKYKIAVlKUR SKJALDHAMRAR I kvöld kl. 20,30. Þriðjudag, uppselt. Miðvikudag kl. 20,30. SAUMASTOFAN Sunnudag kl. 20,30. Fimmtudag kl. 20,30. GARY KyARTMILLJÓN Föstudag kl. 20,30. Fáar sýningar eftir. Miðasala i Iðnó kl.. 14-20,30. BLESSAÐ BARNALAN MIÐNÆTURSÝNING 1 AUSTURBÆJARBIÓI í KVÖLD KL. 24. Miöasala i Austurbæjarbíói kl. 16-24. Simi 1-13-84. JiÞJÖÐLEIKHÚSIti TÝNDA TESKEIÐIN 1 kvöld kl. 20, uppselt. Laugardag kl. 20, uppselt. DÝRIN 1 HALSASKÓGI Sunnudag kl. 15. Fáar sýningar GULLNA HLIÐIÐ Sunnudag kl. 20. 2 sýningar eftir. Litla sviðið: FRÖKEN MARGRÉT Sunnudag kl. 21. Miðasala 13.15-20. Simi 1-1200. Leikfélag Kópavogs SNÆDROTTNINGIN Jewgeni Schwarz, byggt á hugmynd H.C. Andersen. Frumsýning, sunnudag 13. nóvember kl. 3. Leikstjóri: Þórunn Siguröard. Þýðing: Þórunn S. Þorgrims- Leikmynd: Þórunn S. Þoi- dóttir og Jórunn Sigurðard grimsdóttir. Miðasala laugardaga og Leikhljóð: GunnarR Sveinsson. sunnudag kl. 13-15. Simi 4-19-85. Herstöövaa ndstæöi nga r Herstöðvaandstæðingar Kópavogi. Fundur verður haldinn i Þinghól við Hamraborg þriðjudaginn 15. nóvember kl. 20.30. Rætt verður um starfið I vetur, kosnir tenglar og fulltrúi i svæðis- ráð. Félagsfundur Alþýðubandalagsins á Akranesi og nágrenni. Alþýðubandalagið á Akranesi og nágrenni heldur almennan félagsfund mánudaginn 14. nóvember kl. 20.30 i Rein. Dagskrá: 1. Jóhann Ársælsson hefur framsögu um hitaveitumálið. 2. önnur mál. Kaffi. Mætum stundvislega. — Stjórnin. Alþýðubandalagsfélagar Reykjaneskjördæmi. Kjördæmisráð boðar til ahnenns fundar alþýðubandalagsmanna um efnahags- og atvinnustefnu flokksins, sunnudaginn 13. nóv. kl. 14 i Góðtemplarahúsinu i Hafnarfirði. Fjallað verður um efnisramma ályktana landsfund- ar um efnahags og atvinnumál. Frummælendur: ólafur Ragnar Grimsson og Þröstur ólafsson. Landsfundarfulltrúar eru sér- staklega hvattir til að mæta. — Stjórn kjördæmisráðs. Alþýðubandalagið Árnessýslu: Málefni lands- fundar Alþýðubandalagið i Arnessýslu heldur félagsfund i Tryggvaskála, Selfossi mánudaginn 14. nóvember kl. 20.30. Dagskrá: 1. Rættum þaudrögaðályktun um efnahags-og atvinnumál, sem mið- stjórn hefur sent út fyrir landsfundinn. — Frummælandi ölafur Ragnar Grimsson. 2. önnur mál. Stjórnin. Alþýðubandalagið Fljótsdalshéraði: Árshátið Alþýðubandalagsins á Fljótsdalshéraði verður haldin Iaugardaginn 12. nóv.kl. 20.30 á Iðavöllum. D*agskrá ersemhér segir: 1. Avörp: Hjörleifur Guttormsson og Helgi Seljan. 2. Leikflokkur frá Egiisstöðum sýnir leikþáttinn Sá sautjándi, eftir Bjarna Benediktsson frá Hofteigi. 3. Jónas Árnason flytur frumsamið efni. 4. Reyðfirðingarnir: Helgi Seljan, Þórir Gislason og Ingólfur Bene- diktsson fara með gamanmál. 5. Dansleikur. Fólk er beðiö aö tilkynna þátttöku I sima 1292, 1379 eöa 1286 á Egils- stöðum, helst fyrir sunnudagskvöld þann 6. nóv. Stjórnin

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.