Þjóðviljinn - 09.12.1977, Page 6
6 StÐA — ÞJ6ÐV1LJINN Föstudagur 9. desember 1977
Alþýðuleikhúsiö sýnir
Skollaleik
á Húsavik sunnudaginn
11. desember kl. 17:00.
Miðasala frá kl. 15
sýningardag.
Nemendaleikhús
Leiklistarskóla
✓
Islands
Sýnir leikritið:
,/Við eins manns borð"
eftir Terence Rattigan í
Lindarbæ
3ja sýning sunnudaginn
11. desember kl. 20:30.
4ða sýning mánudaginn
12. desember kl. 20:30.
Leikstjóri: Jill Brooke
Árnason.
Miðasala í Lindarbæ frá
kl. 17 daglega.
86611
- ^
SKIPAUTGCRÐ RÍKISINS
Ms. Esja
fer frá Reykjavík 14. þ.m.
vestur um land í hringferö.
Vörumóttaka
til Vestfjaröahafna,
Noröurfjaröar, Siglufjaröar,
Ólafsfjaröar, Akureyrar,
Húsavikur, Raufarhafnar,
Þórshafnar, Bakkaf jaröar,
Vopnafjaröar og Borgar-
fjaröar eystra.
Bréf til ÞjóöviSjans frá Ölafi Jóhannessyni
Engín „afláts-
bréf’’ frá mér
Aöeins tekið við löglegum gjald-
eyri á íslensku gjaldeyrisreikningana
Vegna fuilyröinga I forystu-
grein yöar I dag um þaö, aö breyt-
ing sú, sem nýlega var gerö á
reglugerö um skipan gjaldeyris-
og innflutningsmála o.fl., standi I
sambandi viö upplýsingar um
eign Islendinga á bankareikning-
um i Danmörku vil ég taka fram:
1. Þann 5. aprfl sl. var Seöla-
bankanum sent svohljóöandi
bréf: „Meö skirskotun til viö-
ræöna ráöherra viö bankastjóra
Seölabanka islands er það ósk
ráðuneytisins, aö Seðlabankinn
athugi möguleika á þvl, að mönn-
um verði gert kleift aö opna
reikninga i erlendri mynt i gjald-
eyrisbönkunum til varöveislu
þess erlends gjaldeyris, sem þeir
hafa aflað á löglegan hátt.”
í fréttatilkynningu, sem gefin
var út i tilefni af fyrrgreindri
reglugeröarbreytingu, segir orö-
rétt: „Heimilt veröur aö leggja
inn á almenna sparifjárreikninga
i erlendum gjaldeyri allan þann
gjaldeyri, sem ekki er skylt aö
selja gjaldeyrisbönkunum. Er
hér fyrst og fremst um að ræöa
erlend vinnulaun og þóknanir, af-
gang af áhafna- og ferðagjald-
eyri, arf erlendis frá, fé sem
menn taka með sér viö flutning til
landsins, svo og umboðslaun sem
innflytjendur geta ráöstafaö til
vöruinnflutnings. ’ ’
Aö sjálfsögöu er þá aðeins átt
viö gjaldeyri, sem aflaö hefur
verið meö lögmætum hætti.
2. Gildandi tvisköttunarsamn-
ingur milli Norðurlandanna er aö
stofni til frá árinu 1972. 1 12. gr.
hans segir m.a.: „Bært stjórn-
vald i aðildarriki skal, að svo
miklu leyti sem unnt er á grund-
velli samanburöargagna eöa
samsvarandi upplýsinga, svo
fljótt sem veröa má eftir hver
áramót og án sérstakrar beiðni,
afhenda bæru stjórnvaldi i hverju
hinna aðildarrikjanna upplýsing-
ar um þá menn, sem búsettir eru i
þessu riki, eða lögpersónur, sem
þar eiga heimili, varöandi...c)
innstæður i bönkum, sparisjóöum
og hliðstæöum stofnunum, svo og
vexti af slikum innstæðum......”
Það er á grundvelli þessa
ákvæðis, sem ekki hefur breyst
siöan, aö upplýsingar um eign ls-
lendinga á bankareikningum I
Danmörku eru sendar fslenskum
skattyfirvöldum.
3. Það er skoðun min, aö gjald-
eyrisyfirvöld eigi að gera kröfu til
þess að fá i hendur fyrrgreindar
upplýsingar um eign Islendinga á
dönskum bankareikningum.
Komi i ljós, að eigendur reikning-
anna hafi gerst brotlegir við lög,
eiga þeir að sjálfsögöu aö taka af-
leiðingum þess, en eiga ekki von á
neinu „aflátsbréfi” frá mér.
Reykjavik, 8. desember 1977.
Ólafur Jóhannesson
Rekstrarhorfur járnblendiverksmiðjunnar verði kannaðar:
Um 1000 miljón
króna tap á ári
Heildarkostnaður á við 2-3 Kröfluvirkjanir
Jónas Arnason mælti i gær fyrir
þingsályktunartillögu sem hann
flytur ásamt Stefáni Jónssyni og
Lúövík Jósepssyni um könnun á
rekstrarhorfum járnblendiverk -
smiöjunnar i Hvalfiröi. Tillagan
er svohljóöandi:
„Alþingi ályktar að kjósa sjö
manna nefnd til að kanna
rekstrarhorfur járnblendiverk-
smiðjunnar i Hvalfirði. Verði
störfum nefndarinnar hraðað
sem mestmá verða. Leiði könnun
i ljós að fyrirsjáanlegt tap verði
af fyrirtæki þessu, skulu fram-
kvæmdir á Grundartanga
stöðvaðar tafarlaust og leitað
skynsamlegra ráða til að hagnýta
aðstöðuna þar.”
Óskum heimamanna hafn-
að
Jónas minnti á, að i fyrri um-
ræðum um járnblendiverksmiðj-
una hefði einkum verið lögð
áhersla á þá mengunarhættu er
stafaði af verksmiðjunni og þá
mannlifsröskun er hún gæti leitt
af sér. Snemma hefði verið ljóst
að heimamenn væru andvigir
þessari verksmiðju, en viðvörun-
um almennings hefði ekki verið
sinnt. Þannig höfðu þingmenn
stjórnarflokkanna ásamt þing-
mönnum Alþýðuflokksins látið
sem vind um eyrun þjóta tilmæli
heimamanna um leynilega at-
kvæðagreiðslu um þetta mál.
Skýrslan sýndi fram á tap-
rekstur
Sú tillaga er nú lægi fyrir fjall-
aði hins vegar um efnahagshlið
málsins, en þær staðreyndir er nú
lægju fyrir sýndu að mikið tap
yrði á járnblendiverksmiðjunni.
Aður en lögin um járnblendiverk-
smiðjuna hefðu verið samþykkt
s.l. vor, þá höfðu sérfræðingar,
þeir Asmundur Asmundsson
verkfræðingur og Elias Daviðs-
son kerfisfræðingur, lagt fram
skýrslu um framtiðarhorfur
verksmiðjunnar sem sýndi, að á
þessari verksmiðju yrði verulegt
tap. Hefði verksmiðjan t.d. verið
komin i gagnið 1976 þá hefði tapið
á rekstri hennar numið 850 mil-
jónir.
Upplýsingar Metal
Bulletin
Jónas minnti á að i umræðum 7.
febrúar 1976 hefði iðnaðarráð-
herra vitnað i timaritið Metal
Bulletin, sem hann taldi áreiðan-
þingsjé
lega heimild um markaðshorfur á
járnblendi. Sagði ráðherra að þar
kæmi fram að rannsóknir gæfu
jákvæða mynd af markaðs-
horfum. Nú lægju hins vegar fyrir
upplýsingar frá þessu sama tima-
riti 6. september s.l. er sýndu allt
aðra mynd. Þar kemur fram að
hinn alþjóðlegi kisiljárniðnaður
sé i þvilikri óreiðu að mikið þurfi
til að gera þennan iðnað lifvæn-
legan á næstu árum.'og myndi
ekki einu sinni hið lága orkuverð
er járnblendiverksmiðjan I Hval-
firði nyti verða til að bjarga
rekstri hennar.
Birgðir hrannast upp
Stefán Þorsteinsson frá Ólafs-
vik hefði svo þann 5. des. s.l. gefið
ágæta mynd af þvi alvarlega
ástandi er rikti á markaðinum, en
þá reit hann grein i Visi þar sem
hann skýröi frá umfjöllun um
þessi mál i norskum blöðum. I
þessum blöðum komi fram að
ástandið i járnblendi- og stáliðn-
aðinum sé nú slikt að birgðir
hrannist upp og eftirspurn sé á
þrotum og um ófyrirsjáanlega
Iramtið sé vart r'aunhæft að
vænta aukinnar eftirspurnar á
þessari framleiðslu. Stál- og járn-
blendiverksmiðjur sem um ára-
tugi hafi skilað prýðilegum hagn-
aði segi nú stöðugt upp starfsfólk-
inu og séu senn óstarfhæfar.
Fram kemur og, að ástandið er að
verða þessu likt lika i Sviþjóð.
útreikningar Þjóðhags-
stofnunar sýna tap
Þegar lögin um járnblendi-
verksmiðjuna voru samþykkt á
s.l. vori lagði rikisstjórnin fyrir
Aíþingi rekstraráætlun fyrir
verksmiðjuna og var þar gert ráð
fyrir að söluverð á kisiljárninu
yrði 3.405 norskar krónur á tonn á
næsta ári. Og miðað við það verð
taldi rikisstjórnin að hægt væri að
hafa nokkurn hagnað af rekstri
verksmiðjunnar. útreikningar
sem Þjóðhagsstofnun gerði að
kröfu Alþýðubandalagsins og
voru lagðir fyrir Alþingi áður en
lögin voru samþykkt, sýndu hins
vegar að verðið hafði ekki verið
3.405 norskar krónur á árinu 1976,
heldur 2.388 norskar krónur.
Þessirútreikningarsýndu lika að
miðað við raunverulegt verð árs-
ins 1976 á kisiljárni, þá væri ekki
að búast við hagnaði af rekstri
verksmiðjunnar eins og rikis-
stjórnin hafði haldið fram, heldur
var niðurstaðan bullandi tap,
þrátt fyrir óeðlilega lágt orku-
verð. Talsmenn rikisstjórnarinn-
ar hefðu hins vegar lýst þvl yfir,
að þeir tryðu ekki öðru en verðið
yrði komið upp I 3.405 norskar
krónur á árinu 1978!
Árlegt tap 1000 miljónir
Þá vakti Jónas athygli á þvf að
samkvæmt norskum blöðum þá
væri heimsmarkaðsverð á kisil-
járni nú um 2300 norskar krónur
hvert tonn. Slikt þýddi að árlegur
halli á járnblendiverksmiðjunni á
Grundartanga myndi nálgast
1.000 miljónir islenskar.
Ljóst væri að járnblendiverk-
smiðjan væri fjárfrekasta fram-
kvæmd sem nú væri unnið að hér-
lendis og yrði heildarkostnaður á
við 2-3 Kröfluvirkjanir. Þjóðhags-
stofnun gerði nú ráð fyrir að öll
fjárfesting I nýju ibúðarhúsnæði
1977 verði yfir landið i heild um
Jónas Arnason
22.400 miljónir króna, en það væri
álika upphæð og nú væri verið að
drekkja i feninu á Grundartanga.
Allir þingmenn Alþýðuflokksins
hefðu stutt frumvarpið um járn-
blendiverksmiðjuna og sýndi það
að siðabót sú er þeir boðuðu næði
ekki til þess máls.
Er Jónas hafði lokið máli sinu
var umræðu um málið frestað.
Happdrætti
Þjódviljans 1977
Orð-
sending
til
umboðs-
manna
Umboösmenn Happdrættis
Þjóöviljans 1977 eru vinsamleg-
ast beðnir um að gera skil hiö
fyrsta. Eins og greint hefur verið
frá verður dregið I Happdrættinu
11. desember. Stefnt er að þvi aö
birta vinningsnúmer fyrir jól, en
eigi þaö að takast verða skil að
hafa borist I tæka tið.