Þjóðviljinn - 17.03.1978, Síða 6
6 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 17. mars 1978
Frumvarp um að ríkið stuðli að loðnuvinnslu á Þórshöfn næsta haust
Stjórnarþingmenn neituðu
að styðja frumvarpið
pingsjá
þrátt fyrir áskoranir Þórshafnarbúa
Stcfán Jónsson hefur lagt fram
á Alþingi frumvarp um kaup
rikisins á síldarverksmiðju Hraö-
frvstistöðvarinnar hf. á Þórshöfn
á Langanesi Segir i frumvarpinu
að ef kaupin takist þá skuli
Síldarverksmiðjum rikisins falin
umsjá með verksmiðjunni, og þar
með að hefjast þegar handa um
að fullgera verksmiðjuna og búa
hana - nauðsynlegum tækjum til
þess að hún geti hafið loðnu-
vinnslu þegar á næsta hausti.
1 greinargerð með frumvarpinu
kemur fram, að það er flutt að
beiðni forsvarsmanna Þórshafn-
arbúa, hreppsnefndar allrar, at-
vinnumálanefndar, verkalýðs-
félagsins og Hraðfrystistöðvar-
innar. Þessir aðilar fóru þess á
leit við alla þingmenn Norður-
landskjördæmis eystra að standa
saman að flutningi þessa frum-
varps, en stjórnarþingmennirnir
úr kjördæminu treystust ekki til
þess að standa að flutningi frum-
varpsins. Askorun til þingmanna
um að leggja fram frumvarp um
þetta mál kom fram i bréfi sem 14
forsvarsmenn fyrrgreindara
aðila á Þórshöfn sendu i lok
siðasta mánaðar. Bröfið er
svohljóðandi:
Bréf Þórshafnarbúa
„Viö undirritaðir aðilar á Þórs-
höfn skorum hér með á alla
þingmenn Norðurlandskjör-
dæmis eystra að standa saman að
flutningi frumvarps á Alþingi um
að Sildarverksmiðjur rikisins
kaupi sildarverksmiðju Hrað-
frystistöðvar Þórshafnar hf. á
Þórshöfn og komi henni i starf-
hæft ástand fyrir næstu loðnuver-
tið. Ljóst er að óhæfa er að verk-
smiðja þessi standi i niöurníðslu á
sama tima og leigja þarf skip frá
Noregi til loðnubræðslu. Það er
skýlaus krafa Þórshafnarbúa að
frumvarp þessa efnis verði lagt
fram á Alþingi nú á næstu dögum.
Ef ekki næst samstaða meðal
þingmanna Norðurlandskjör-
dæmis eystra um að flytja áður-
greint frumvarp, er það ósk okk-
ar að þeir þingmenn, sem hafa til
þess vilja, flytji frumvarpið.”
I greinargerðinni með
frumvarpinu segir Stefán m.a.:
Viðhorf ríkisstjórnarinnar
til hinna dreifðu byggða
„Kærara hefði flutningsmanni
verið að flytja frumvarp er að þvi
lyti að Þórshafnarbúum yrði séð
fyrir þvi fjármagni, sem til þyrfti
að koma sildarverksmiðju sinni i
lag og reka hana af eigin
rammleik, slikt gróðafyrirtæki
sem þorpinu væri þar búið með
tiltölulega litlum kostnaði. Nú er
hins vegar við völd rikisstjórn
sem hefur annars konar viðhorf
til efnahagsmála hinna dreifðu
byggða en sú, er greiddi á sinum
t'ima fyrir smiði hinnar nýtisku-
Stefán Jónsson.
legu Hraðfrystistöðvar þeirra á
Þórshöfn er verða skyldi máttar-
stoð byggðarlagsins, en eigi varð
fullsmiðuð áður en samstjórn
Sjálfstæðisflokks og Framsóknar
settist að völdum. — Þvi er nú á
það ráð brugðið hér, sem næst-
best má kalla, að reyna að knýja
það fram, að rikisvaldið taki að
sér að koma verksmiðjunni i gang
og reka hana svo,að Þórshafnar-
búar þurfi ekki að horfa upp á það
lengur að loðnuveiðiflotinn sigli
fullfermdur þvert fyrir hafnar-
kjaft þeirra, norðan með sumar-
loðnuna en sunnan með vetrar-
loðnuna, og heyra svo af þvi i út-
varpi og sjónvarpi að norskt
bræðsluskip taki á móti tugum
þúsunda lesta af þessum dýr-
mæta fiski til vinnslu, en skips-
leigan afsökuð með þvi að skortur
sé á loðnubræðslum i landinu.
„Hingað kemst enginn
hjálparlaust í hjólastól”
sagdi Arnór Pétursson starfsmadur
í Tryggingastofnun ríkisins
í Tryggingastofnun rikisins, líf-
eyrisdeild á annarri hæð starfar
Arnór Pétursson, formaður
iþróttafélags fatlaðra. Þjóðvilj-
inn heimsótti Arnór i vinnuna i
gær og fylgdi honum eftir um
ganga og hæðir hússins.
Hingað kemst enginn hjálpar-
laust i hjólastól, sagði Arnór.
Tröppur eru við báða aðalinn-
gangana, tvær öðru megin og
þrjár hinum megin. Aðkoman að
húsinu er lika mjög slæm. Hér er
bilum lagt mjög þétt framan við
húsið, og komist maður i hjólastól
milli þeirra mætir honum hár
kantsteinn og siðan tröppurnar.
Stigagangar hússins eru með há-
um tröppum, og þegar ég átti er-
indi hingað i fyrsta sinn, löngu áð-
ur en ég byrjaði að vinna hér,
varð ég aö láta bera mig upp á
4rðu hæð.
í húsinu er lyfta, en lyftudyrnar
eru svo þröngar að enginn hjóla-
stóll kemst inn um þær tilfær-
ingalaust.
Hvernig ferð þú að?
Eftir að ég fór að vinna hér, hef
ég auðvitað aðlagað mig húsinu,
og það mér að vissu leyti Ég kem
bakdyramegin inn i húsið, þar eru
háar tröppur, sem ég fæ hjálp við
að komast upp. Ég er i minnstu
gerðinni af hjólastól, en þrátt
fyrir það kemst hann ekki inn i
lyftuna. Ég þurfti að taka stýri-
hringina af hjólunum og brjóta
stykki úr dyrakarmi lyftunnar og
með þeim hætti get ég troðið mér
i stólnum inn i lyftuna.
Tryggingastofnunin er ekkert
einsdæmi meðal opinberra
bygginga aö þessu leyti, sagði
Arnór. Það slæma er aö hingaö
eiga þeir oftar erindi sem eiga
erfitt meö gang eða eru bundnir
við hjólastól.
Arnór Pétursson þurfti aö taka
stýrihringina af hjólunum og
brjóta stykki úr dyrakarmi lyft-
unnar til aö geta troðiö sér i stóln-
um inn i lyftuna.
Mjög slæm aðstaða fyrir fatlaða í húsnæði Tryggingastofnunar
Engar úrbætur fyrirhugaðar
Mjög bágborin aöstaöa er fyrir
fatlaða i húsakynnum Trygginga-
stofnunar rikisins og er húsnæöi
ekki við þaö miðað aö fatlaðir séu
þar á ferö. Ekki eru fyrirhugaöar
neinar lagfæringar á húsnæöi
stofnunarinnar er taki miö aö þvi
að fatlað fólk geti athafnað sig
þar. Hins vegar mun ætlunin aö
reisa síöar meir nýja byggíngu
fyrir Tryggingastofnunina, þar
sem m.a. verði tekið miö af þörf-
um fatlaðra. Langt er þó í það aö
sú bygging risi, enda Úggur ekki
fyrir teikning af húsnasöinH né lóö
undir þaö.
Þessar upplýsingar komu fram
á Alþingi á þriöjudag er Matthias
Bjarnason heilbrigöis- og trygg-
ingamálaráðherra svaraði fyrir-
spurn frá Magnúsi Kjartanssyni
um þetta mál, en fyrirspurn
Magnúsar var svohljóðandi:
„Hvenær verður gengið þann-
ig frá aðalbækistöð Trygginga-
stofnunar rikisins, að fatlað fóik,
m.a. i hjólastólum, eigi greiðan
aðgang að öllum húsakynnum og
geti rætt þar við starfsfólk, m.a.
sérfræðinga og lækna?”
Það var Vilborg Harðardóttir
sem mælti fyrir fyrirspurn
Magnúsar i fjarveru hans. 1 máli
hennarkom m.a. fram að öryrkj-
ar eru taldir vera um 10% þjóðar-
innar og væru t.d. um 200 manns
að jafnaði i hjólastólum. Um
erfiðleika fólks i hjólastólum að
athafna sig i Tryggingastofnunni
kemur m.a. fram i viötali við
Arnór Pétursson, einn starfs-
mann stofnunarinnar, annars
staðar hér á siðunni.
Er hitt þá enn ótalið fram i máli
þessu, með hvaða hætti rikis-
stjórnin stendur i óbættri sök við
Þórshafnarbúa fyrir óhæfilega
framkomu gagnvart sameignar-
fyrirtæki þeirra, Hraðfrysti-
stöðinni hf.
Er Þórshafnarbúar höfðu kom-
ið sér upp fyrrgreindu hraðfrysti-
húsi af fullkomnustu gerð á
valdatima vinstri stjórnarinnar,
var svo komið að fiskimiðin i
Þistilfirði höfðu verið uppurin af
ágangi erlendra togara undir lok
landhelgisstriðsins. Var ljóst að
hráefni yrði ekki tryggt til þessa
nýja húss, fremur en annarra
frystihúsa, með öðru móti en þvi,
að útvegaður yrði skuttogari til
að annast aðföngin. Nú var þvi
aftur á móti borið við af hálfu
rikisstjórnarinnar, að alls ekki
yrði leyfð smiði á fleiri skuttogur-
um, og Þórshafnarbúum fenginn i
hendur gamall togari og úr sér
genginn. Rekstur hans hefur
gengið með likindum, viðgerðar-
kostnaður orðið óhemjulegur og
tafir frá veiðum lengri en
úthaldstiminn, sem aftur hefur
leitt til þess, að hráefni hefur
skort til Hraðfrystistöðvarinnar.
atvinnuleysi rikt langtimum
saman i plássinu og framleiðslu-
fyrirtæki fólksins sligast efna-
hagslega.
Stjórn Síldarverksmiðiu
ríkisins andvíg kaupunum
I haust er leið, er togarinn
Fontur hafði beðið lengi viðgerð-
ar, en hvergi örlaði á marktækum
vilja yfirvalda til þess að tryggja
peninga til framkvæmdanna, fóru
Þórshafnarbúar þess á leit, að
rikisstjórnin keypti af þeim fyrr-
greinda sildarverksmiðju og
greiddi andvirði til togaravið-
gerðarinnar. Málinu vék rikis-
stjórnin einfaldlega til stjórnar
Sildarverksmiðja rikisins, sem
komst að þeirri niðurstöðu að
kaupin yrðu ekki arðbær fyrir
stofnunina. Má ef til vill til sanns
vegar færa af hálfu þeirra, sem til
eru settir að sjá þess háttar fyrir-
tæki farborða, að landa megi
loðnu að öðru jöfnu á Raufarhöfn
og Vopnafirði — og Þórshafnar-
verksmiðjan kynni stundum að
vinna afla, sem koma mætti fyrir
i loðnuþróm þessara grannhafna.
Af hálfu annarra, sem gæta eiga
hagsmuna fólksins á Þórshöfn,
verður það aftur á móti ekki þolað
að þeir verði fyrir borð bornir á
þennan hátt. Þórshöfn liggur
fyllilega jafn vel við loðnumiðun-
um og fyrrgreindir staðir. Þar
ætti að tryggja rekstur sex til átta
mánuði ársins, einmitt á þeim
tima sem rekstur verksmiðjunn-
ar hæfði best þörfum vinnuaflsins
á staðnum. Verksmiðjurekstur-
inn félli prýðilega að öðrum þátt-
um útgerðar frá Þórshöfn og er
liklegur til að verða arðbær þar
engu að siður en á öðrum höfnum
á landinu norðaustanveröu.
Þórshöfn er þannig i sveit sett,
með frjótt og viðlent hérað Þistil-
fjarðar að baklandi, að þar má
efla útgerð og annan atvinnu-
rekstur svo að hvort styðji annað
til þroska, þorp og sveit. Svo bar
til, að af öllum byggðarlögum á
Norðurlandi eystra varð þetta
pláss harðast úti við þau veðra-
brigði ■ sem urðu við siðustu
stjórnarskipti, og nú er nauðsyn
að gera þá ráðstöfun, er frum-
varp þetta hnigur að, i þvi skyni
að Þórshafnarbúar nái að þreyja
þorrann og góuna uns aftur gefur
pólitiskan bata fyrir landsbyggð-
ina.”
Alþýðubandalagið i Kópavogi
Skrifstofan að Hamraborg 11 er opin mánudag til föstudags frá kl.
17—19. Félagar — litið inn, þó ekki sé nema til að lesa blöðin og fá ykkur
kaffibolla. — Stjórnin.
Alþýðubandalagið i Hafnarfirði
Bæjarmálaráð
Fundur verður haldinn i bæjarmálaráði mánudaginn 20. mars kl. 20.30
á Skálanum.
41þýðubandalagið i Kópavogi
Hver eru hugsjónatengsl Alþýðubandalagsins? x
Þriöji og sfðasti umræðufundurinn um þróun sósialfskrar hreyfingar á
tslandi verður haldinn mánudaginn 20, mars kl. 20.30 I Þinghól,
Hamraborg 11. Efni fundarins cr „Hugsjónatengsl Alþýðubandalags-
ins”, og hefur Þröstur Óláfsson framsögu.
— Stjórnin.