Þjóðviljinn - 13.06.1978, Síða 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 13. júni 1978
DJOÐVIUINN
Málgagn sósíalisma, verkalýðs-
hreyfingar og þjóðfrelsis
Útgefandi: tJtgáfufélag Þjóöviljans. Framkvæmdastjóri: Eiöur Berg-
mann Ritstjórar: Kjartan Ólafsson Svavar Gestsson Fréttastjóri: Ein-
ar Karl Haraldsson. Umsjón meö sunnudagsblaöi: Arni Bergmann.
Auglýsingastjóri: Gunnar Steinn Pálsson Ritstjórn, afgreiösla auglýs-
ingar: Siöumúla 6, Sími 81333 Prentun: Blaöaprent hf.
Skarð í kaup-
lœkkunarmúrinn
Nú liggur fyrir að nokkur bæjarfélög munu beita sér
f yrir því að staðið verði við samningana sem gerðir voru
í fyrra, en ríkisstjórnin eyðilagði með kaupránslögunum
og bráðabirgðalögunum i vor. Launamenn sjá því nú
þegar svart á hvítu að kjörseðillinn er vopn i kjara-
baráttunni eins og Guðmundur J. Guðmundsson kemst
aðorði í viðtali við Þjóðviljann í dag. Mest munar þarna
um Reykjavík, en borgin er stærsti viðsemjandi Verka-
mannafélagsins Dagsbrúnar og Verkakvennafélagsins
Framsóknar. Þannig munu starfsmenn bæjarfélaganna
sjá á launaseðli sínum áður en langur tími líður hvaða
gildi það hefur að beita kjörseðlinum rétt í kosninga-
baráttunni.
I kosningunum25. júní erenn kosið um það hversu mál
skipast varðandi lífskjör fólksins í landinu. Með samn-
ingum bæjarfélaganna er að brotna skarð í kauplækkun-
armúr stjórnarflokkanna. Með úrslitum alþingiskosn-
inganna þarf sá múr að hrynja til grunna. Það gerist
hins vegar ekki öðru vísu en Alþýðubandalagið vinni
mjög stórfelldan kosningasigur; að úrslitum byggða-
kosninganna verði fylgt eftir með áframhaldandi sókn í
alþingiskosningunum.
I byggðakosningunum, ekki síst í borgarstjórnarkosn-
ingunum í Reykjavík, varð Ijóst að þúsundir launa-
manna sneru baki við stjórnarflokkunum og kusu
Alþýðubandalagið. Þessi þróun þarf að halda áf ram því
það er greinilegt á túlkunum ölafs Jóhannessonar og
Geirs Hallgrímssonar á kosningaúrslitunum að þeir tel ja
flokka sína ekki hafa fengið endanlegan „skell". Þeir
ætla að vinna saman eftir kosningar eins og berlega hef-
ur komið fram í yfirlýsingum forsætisráðherra. Þeir
ætla að halda áf ram að skerða kjörin. Samstjórn Fram-
sóknar og íhaldsins lif ir því enn. Það þarf meira til þess
að fella stjórnarstefnuna. Það gerist aðeins með því að
launamenn fylki sér um Alþýðubandalagið þúsundum og
aftur þúsundum saman í kosningunum 25ta júní. —s.
Seinheppinn
Sjálfstœðisflokkur
Sjálfstæðisf lokkurinn hefur af veikum mætti reynt að
draga kjaramál vinstristjórnarinnar inn í umræður
kosningabaráttunnar. Það er makalaust hvað málgögn
Sjálfstæðisf lokksins eru annars seinheppin með að velja
sér málefnavettvang í kosningabaráttu, en þó tekur
steininn úr þegar flokkurinn reynir að gera sér mat úr
kjaramálunum, sjálfur aðalkaupránsflokkur iandsins
um áratugi. Staðreyndirnar tala sínu máli — þær stað-
reyndir eru Sjálfstæðisf lokknum ekki beint hagstæðar:
Kaupmáttur kauptaxta allra launamanna í landinu var á
vinstristjórnarárunum, 1971-74, rúmlega 11% hærri en
hann hefur verið itíð ríkisstjórnar Geirs Hallgrímssonar
og ólafs Jóhannessonar 1974-78. Sé þetta reiknað á nú-
tímaverðlagi og nútímakaupi þýðir þetta að kaupmáttur
launa er 27-28 miljörðum króna lakari að jafnaði hvert
valdaár hægristjórnarinnar en vinstristjórnarinnar.
Þessum miljörðum hafa stjórnarherrarnir veitt til fyrir-
tækjanna, fjármagnseigenda, sem hafa grætt meira en
nokkru sinni fyrr, og eru auk þess skattfrjálsir. Þessi
fyrirtæki birta nú hvert af öðru ársskýrslur sínar þar
sem einstök fyrirtæki sýna — eftir afskriftir, fyrningar
og aðra frádrætti — tugi miljóna króna í hreinan gróða.
Ríkisstjórn Geirs og ólafs hefur haldið verndarhendi
sinni yfir forstjórunum, verðbólgubraskinu og millilið-
unum,— launamenn hafa borgað brúsann. Ef Sjálfstæð-
isf lokkurinn ætlar ekki að tapa öllu fylgi sínu i kosning-
unum 25. júní — öðru en atkvæðum forstjóranna — ætti
hann að láta það eiga sig að f jalla um kjaramál. Honum
fer það illa. Hins vegar er því ekki að neita að Þjóðviljinn
fagnar þessari umræðu af hálfu Morgunblaðsins, kaup-
ránsmálgagns Geirs Hallgrímssonar. —s.
Hið nýja andlit
borgarinnar
Borgin okkar hefur fengið
nýtt andlit. f stað Birgis Isleifs
er nú komið þrieitt embættis-
mannafés eins og sést á meö-
fylgjandi Dagblaösmynd. „Það
er gömul hefð að ráðamenn
borgarinnar opni Elliðaárnar til
veiða 10. júní ár hvert”, segir i
frétt Dagblaösins. Það er
huggulegtaf blaðinu aö upplýsa
með þessum hætti kjósendur
G-bstans um þaö hverjir ráði
borginni i dag. Samkvæmt
þessu eru þaö Gunnlaugur Pét-
ursson, Jón Tómasson og Aöal-
steinn Guöjohnsen, rafmagns-
veitustjóri, sem ráöa borginni i
dag. Segi menn svo aö Sjálf-
stæöisflokkurinn hafi verið
felldur frá völdum i Reykjavik.
Skemmtilegri
sniðganga nœst?
Andrl
siteut bætt við sig fylgi en
spurningin nú er hvort Samtök-
unum takist aö fá eitthvaö af
þeirri fylgisaukningu til sín.”
Hvar var
Magnús Torfi?
Þaö var eftirtektarvert i
Keflavlkurgöngunni að þar sá-
ust hvorki frammámenn úr
Framsóknarflokknum né Sam-
tökum frjálslyndra og vinstri
manna. Enginn átti von á
Framsóknarmanni i sjálfu sér,
Ákvörðun meiri-
hlutaflokkanna
Meirihlutaflokkarnir i
borgarstjórn hafa komiö sér
saman um aö forseti borgar-
stjórnar skuli koma fram fyrir
hönd borgarinnar útáviö. Em-
bættismönnum borgarinnar,
lika skrifstofustjóra og borgar-'
ritara, hefur verið tilkynnt um
þessa ákvöröun. Þetta kom
meöal annars i ljós þegar Daviö
Oddsson ætlaöi sjálfum sér að
setja Listahátið að Birgi Isleifi
föllnum. Honum var þá kurteis-
lega tilkynnt aö þaö myndi Sig-
urjón Pétursson taka að sér og
hefur ekki veriö kvartað yfir þvi
að forseta borgarstjórnar hafi
farið verkið tiltakanlega illa úr
hendi.
menn vita að Sigurjón Péturs-
son stóð sig vel i Keflavikur-
göngu á laugardaginn, og hefur
sjálfsagt talið tima sinum betur
variö þar heldur en i laxaleik
við Elliðaár.
Ef menn vilja á hinn bóginn
leggja eitthvaö upp úr formleg-
heitum mætti segja að hér væri
um freklega móðgun að ræða
bæöi af hálfu embættismann-
anna þriggja og stjórnar Stang-
veiöifélags Reykjavikur i garö
meirihlutaflokkanna þriggja.
Enginn ástæöa er til þess aö
taka þessa framkomu óstinnt
upp en viö viljum koma þvi á
framfæri viö stjórn Stangveiöi-
félags Reykjavikur aö næsta ár
taki þeir upp kinverska háttu og
bjóöi almúgamanni úr borginni
i lax 10. júni. Starfsmenn
hreinsunardeildar borgarinnar
munu t.d. leggja á sig talsvert
starf við aö hreinsa burtu ósóm-
ann eftir sportveiöimenn og
gangandi fólk af Elliðaársvæð-
inu.
Mætti ekki næsta ár bjóða
fulltrúa þeirrar ágætu deildar i
borgarkerfinu að renna fyrir
fyrsta laxinn?
Samtaka nú
Samtaka nú vinstri menn,
segja Samtakamenn þessa dag-
ana. Samtaka nú um aö koma i
veg fyrir aö valdahlutföllin
breytist i þjóðfélaginu. Tryggj-
um það aö thald og Framsóloi
haldi sinum þingmönnum.
Dæmigert um þessa Samtaka-
baráttu er framboö Andra
Isakssonar á Austurlandi. Lát-
um Visi hafa orðiö:
„Við bjóðum okkur fram sem
vinstri flokkur og stefnum aö
þvi að mynda nýja vinstristjórn
á traustari grundvelli en tókst
að gera árið 1974”, sagði Andri
ísaksson efsti maður á fram-
boðslista Samtaka frjálslyndra
og vinstri manna.
Tryggjum
Halldór inn
I umfjöllun blaöamanns um
stöðuna á Austurlandi segir
svo:
„Samtökin fengu 491 atkvæði
siöast. Þá var Ölafur Ragnar
Grimsson efsti maður á listan-
um sem og fleiri fyrrverandi
Framsóknarmenn. Þaö er ekki
liklegtaöþetta fylgiskilisér allt
aftur. Sumt af þvi fer til Fram-
sóknarflokksins og eitthvaö til
Alþýðuflokksins. Þannig aö
gera má ráð fyrir að samtökin
fái rétt rúmlega 250 atkvæöi,
nema fylgi annarsstaðar frá
komi til.
Þaö er óhætt aö fullyröa aö
baráttan stendur á milli 3ja
manns Framsóknarog 2. manns
Alþýöubandalagsins. Við sið-
ustu kosningar haföi Halldór
Ásgrimsson 896 atkvæöi á bak
viö sig en Helgi Seljan 797. Und-
anfariö hefur Alþýðubandalagiö
Magnús Torfi
en þó nokkrir söknuöu Sam-
takamanna. Magnús Torfi kom
hvergi nærrienda þungur á hon- !
um hægri fóturinn þessa dag- I
ana.
Það eina sem gladdi augað úr I
Samtakaáttinni*var Ifö á fund- •
inn i Kópavogi mætti Andrés I
Kristjánsson vana sínum trúr. I
Hann haggast ekki i herstööva- |
málinu þótt foringi Samtakanna 1
snúi hægri hliðinni i kjósendur. !
Erfitt að telja \
Það hefur löngum þótt erfiö- !
ara aö telja á útifundum og i |
göngum heldur en að telja ■
hreindýr úr lofti. Menn vita upp I
á hár hve mjörg hreindýr eru á ■
landinu, en aldrei getur mönn- ■
um borið saman um fjölda á J
fundum. . ■
1 gær segir t.d. Dagblaöiö að á I
sjöunda þúsund manns hafi ver- ■
ið á Lækjartorgi á útifundi her- |
stöövaandstæöinga. Visir segir ■
að á fundinum hafi verið 1500 til |
2000. Klipptog skorið heldur þvi ■
hinsvegar fram að á útifundin- ■
um hafi verið geysimargt fjöl- u
menni. ■
—ekh ■
Hvað vœrum við
án þeirra?
Stangaveiðifélag Reykjavikur
ræður þvi aö sjálfsögðu sjálft
hverjum það býður að opna
veiði i Elliðaánum 10. júni.
Stjórn þess sá ekki ástæöu til
þess að bjóða Sigurjóni Péturs-
syni, forseta borgarstjórnar,
eða nokkrum öðrum fulltrúa
meirihlutaflokkanna aö koma
fram fyrir hönd borgarinnar við
þetta heföbundna tækifæri að
þessu sinni. Þess i stað lét
stjórnin boðiö ganga til embætt-
ismannanna áöurnefndu sem
létu ekki á sér standa aö koma
fram fyrir höndborgarinnar viö
hátiðlegt tækifæri, enda þótt
þeim ætti að hafa verið ljóst aö
með þvi voru þeir að brjóta
fyrirmæli meirihlutaflokkanna
þó að I litlu væri.
„Enginn mætti frá nýja
meirihlutanum, en þeir Gunn-
laugur og Jdn stóðu vel i sinni
stoðu og fyrir þeirra lagni og
fiskveiðihæfileika opnuðust
Elliðaárnar jafnvel betur en
nokkru sinni fyrr,” segir Dag-
blaðið. Ekki er aö efa að em-
bættismenn borgarinnar eru
færari um aö opna ár heldur en
kjörnir fulltrúar. En hitt skulu