Þjóðviljinn - 23.06.1978, Blaðsíða 4
, 4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 23. júní 1978
DIOBVIUINN
Málgagn sósíalisma, verkalýðs-
hreyfingar og þjóðfrelsis
Otgefandi: Útgáfufélag Þjóöviljans. Framkvæmdastjóri: Eiöur Berg-
mann Ritstjórar: Kjartan Ölafsson Svavar Gestsson Fréttastjóri: Ein-
ar Karl Haraldsson. Umsjón meö sunnudagsblaöi: Árni Bergmann.
Auglýsingastjóri: Gunnar Steinn Pálsson Ritstjórn, afgreiösla auglýs-
ingar: Siöumúla 6, Simi 81333 Prentun: Blaöaprent hf.
Eina tryggingin
gegn kaupráni
Lúðvík Jósepsson formaður Alþýðubandalagsins lýsti
því yfir í sjónvarpsumræðunum í fyrrakvöld, að flokk-
urinn mundi beita sér fyrir afnámi kaupránslaganna.
Því sterkara sem Alþýðubandalagið verður, því einfald-
ara og sjálfsagðara verður það að stia ræningjum kaup-
máttarins frá áhrifum á stjórn landsins.
En hættur blasa við. Magt í ummælum Benedikts
Gröndals benda til þess að hinn gamli flokkur hans, Al-
þýðuf lokkurinn, byggi hús sitt enn á grunni hentistefnu
og íhaldssamvinnu. Til þessa vísaði Lúðvík þegar hann
sagði: ,,Hvað verður um flokk sem ef list nú á óánægðu í-
haldsfylgi?"
I viðtali við Þjóðviljann í gær bendir Eðvarð Sigurðs-
son í Dagsbrún á sporin sem hræða: „Alþýðuf lokkurinn
var í viðreisnarstjórn með íhaldinu í 12 ár, og aldrei hef-
ur verkalýðshreyfingin oftar verið beitt þvingunarlög-
um og gerðardómslögum... þessum ósköpum linnti ekki,
fyrr en kjósendur skáru þinglið Alþýðuflokksins niður
um helming."
—h.
Hvorki loftkastala-
smíðar né
sandkassaleikir
Þeir Kristján Bersi Ölafsson skólameistari og Vé-
steinn Ólason fyrrverandi formaður miðnefndar her-
stöðvaandstæðinga eru hnútum kunnugir í Samtökum
frjálslyndra og vinstri manna, en einmitt af því að þeir
eru einlægir og raunsæir vinstri menn en ekki loftkastala-
smiðir, hafa þeir nú komið til liðs við Alþýðubandalagið.
Kristján Bersi, kominn úr innsta hring Alþýðuf lokksins,
hrökklaðist þaðan út vegna þess að f lokkurinn hafði los-
að sig við alla vinstri hyggju. Vésteinn var einn af þeim
Samtakamönnum sem ekki vildi gera neinn málefnaá-
greining við Alþýðubandalagið, en taldi ómaksins vert
að reyna pólitískt hlutverk Samtakanna til þrautar. Sú
tilraun er ekki lengur dagskrármál hjá þjóðinni.
Á svipaðan hátt og enn eru til vinstri sinnar innan
Samtakanna sem skemmta skrattanum með loftkastala-
byggingum, eru aðrir í innhverfri íhugun í sandkössum
lítilla hópa sem telja sig f jalla um pólitík á ysta vinstri
væng. í smáhópunum ganga menn fram í þeirri dul að
unnt sé að komast hjá öllum málamiðlunum,en samt að
hafa áhrif. Eina leiðin fyrir þetta fræðilega sinnaða fólk
er að ganga til liðs við Alþýðubandalagið og reyna kenn-
ingar sínar í átökum við veruleikann þar. Áheyrn fá
málsvarar fræðanna hvergi annars staðar en einmitt
meðal Alþýðubandalagsmanna, og þar er þeim opinn
vettvangur til umræðu.
—h.
52 atkvœði
Hvert eitt atkvæði er lóð á vogarskálum stjórnmál-
anna, vinstri — hægri. Þessi staðreynd kom skýrt fram
við borgarstjórnarkosningarnar í Reykjavík í vor, þeg-
ar atkvæði 52 kjósenda skáru úr um það, hvort meirihluti
íhaldsins stæði eða félli. Hefði G-listinn fengið 52 at-
kvæðum færra — en allir aðrir listar óbreytta tölu — væri
íhaldið enn við völd í Reykjavik.
Látum nú ekki síðasta atkvæðið vanta í þingkosning-
unum. Munum það í starf inu fram að helgi — og á kjör-
dag.
A móti hernum
Kratasveifla og sveigja
Hvaö veröur um Alþýöuflokk
sem eykur fylgi sitt meö
óánægöu ihaldsfylgi? spuröi
Lúövik Jósepsson i hringborös-
umræöu flokksforingja i sjón-
varpinu i fyrrakvöld. Ekki er aö
ósekju spurt. I Visiskönnuninni
umtöluöu kom m.a. fram aö
39.6% væntanlegra kjósenda
Alþýöuflokksins vilja aö hann
taki þátt i stjórn meö Sjálf-
stæöisflokknum, nýrri
viöreisnarst jórn, eöa bætist sem
þriöja hjól undir vagninn i
núverandi samstjórn Sjálf-
stæöisflokks og Framsóknar-
flokks. Þetta kemur mjög heim
og saman viö þá tölu aö 40% af
þeim kjósendum sem ætla aö
kjósa Alþýöuflokkinn hafi kosiö
aöraflokka áöur, líklega flestir
Sjálfstæöisflokkinn.
Þr játiu og sjö prósent Alþýöu-
flokksmanna vilja hins vegar
einhverskonar vinstri stjórn
meö þátttöku verkalýösflokk-
anna beggja.
Hvaö veröur nú ofaná hjá hin-
um gamla grunni Alþýöuflokks-
ins, ráðamönnum viðreisnarár-
anna, og nýju andlitunum, þeg-
ar afstöðu þarf aö taka eítir
kosningar? Verður þá tekið tillit
til verkalýðssinnanna i flokkn-
um eöa hins nýja óvænta
óánægjufylgis, sem sveigja vill
Alþýöuflokkinn til nýs sam-
starfs við Sjálfstæðisflokkinn?
Kratar i kross
ihermálinu
Þetta kunna Alþýöuflokks-
mönnum aö þykja ófyrirleitnar
spurningar. Þær eru þó hreint
ekkert óeölilegar miöaö viö þaö
aö frambjóöendur flokksins tala
ýmist út eöa suöur I flestum
málum.
Þaö er ekki furöa þótt Sjálf-
Hækkum vexti Lækkumvexti
Meö hernum
stæöisflokkurinn sé undrandi á
Alþýöuflokknum f hermálinu.
Fulltrúar hans i 1. mai nefnd
skrifa undir áskorun um aö her-
inn fari burt og Island gangi úr
NATÓ. Samband ungra jafn-
aöarmanna er gegn her i landi
og NATÓ. Gunnlaugur Stefáns-
son, frambjóöandi flokksins i
Reykjaneskjördæmi, er á móti
her, en bróöir hans, Finnur
Torfi Stefánsson, frambjóðandi
Alþýöuflokksins i Noröurlands-
kjördæmi vestra,lýsir stuöningi
sinum viö hersetuna og veruna i
NATÓ. Undir ávarp til Islend-
inga gegn her i landiog öörum
ógnum sem steöja aö sjálfstæöi
landsins, skrifa nokkrir valin-
kunnir Alþýöuflokksmenn. í
sjónvarpi lýsir svo Benedikt
Gröndal yfir þvi, aö Alþýöu-
flokkurinn telji nauösyn á aö
Bandar ik jaher veröi hér enn um
langa hriö og aö NATÓ-aöild sé
nauösyn.
Hvar er eiginlega botninn i
Alþýöuflokknum i hermálinu?
Vextir hækkaðir og
lækkaðir samtimis?
Fleiri dæmi mætti taka um
ósamhljóma málflutning krata.
Talar ÁkiVilmundur Gylfason I
sifellu um aö vextir þurfi aö
vera haérri en veröbólgustigið
svo aö helvitis braskaralýöur-
inn hætti að vaöa bankaforina
upp I hné til aö krækja sér I fé til
veröbólgufjárfestingar?
A sama tima skrifar Arni
Gunnarsson, ritstjóri Alþýðu-
blaösins, um nauðsyn þess að
letta vaxtaokrinu af fyrirtækj-
um landsins. Hann vill láta
lækka vextina.
Hvar er botninn i Alþýðu-
flokknum i vaxtamálum?
Sigurdansinn á gamla
grunninum?
Þannig mætti lengi telja
dæmin um ósamræmiö i
máflutningi kratanna. Þaö er
ljóst aö siödegisblööin Dagblaö-
iö og Visir hafa um langt skeiö
haft nokkra krataslagsiöu og ýtt
undir vinsældasókn nýju and-
litanna. Slikt má reyndar sama
segja um Morgunblaöiö, enda
þótt úrslit skoöanakannananna
séu slik aö þeim i Aöalstrætinu
þyki nóg um fylgisfærsluna til
AJþýöuflokksins.
íhaldiö sér sér hag af þvi aö
versla á fylgi viö Alþýöuflokk-
inn, þvi hann hefur reynst þvi
notadrjúgur á árum áöur. Hver
veit hvar Alþýöuflokkurinn
dansar eftir kosningar? 1 Sjálf-
stæðisflokknum gera menn sér
aö minnsta kosti talsveröar
vonir um aö sigurdans kratanna
veröi stiginn á gamla
viöreisnargrunninum.
Stöðvið vitfirringuna!
„Þessa vitfirringu veröur aö
stööva”, segir Guömundur G.
Þórarinsson, 2. maöur
B-listans i Reykjavik, i tilefni
af dylgjum Vilmundar Gylfa-
sonar I Visi sl. þriöjudag, þar
sem hann bendlar Guðmund við
Guöbjartsmáliö svokallaöa.
,.Þessa vitfirringu veröur að
stööva. NU veröur Vilmundur aö
standa fyrir máli sinu. Hann
: 1
I
■
I
I
■
I
■
I
■
I
■
I
■
I
■
I
■
I
■
I
■
I
■
I
■
I
■
I
■
I
■
I
■
I
■
I
■
I
■
I
■
B
■
I
■
S
■
I
■
I
■
I
■
I
■
I
■
I
Meö sömu stefnu og Sjálfstæðis-
flokkurinn.
sleppur ekki meö þaö aö gera
mig aö sakborningi i þessu
Guðbjartsmáli. Einfaldlega
hingaðog svo nákvæmlega ekki
lengra. Þetta mál skulum viö
taka I botn Vilmundur Gy Ifason,
þótt viö veröum aö fara I gegn-
um allt dómstólakerfiö.
Nú er nóg komið og hér á Vil-
mundur viö fullkomiö ofurefli
aö etja. Ég hef bæöi réttinn og
sannleikann min megin, en
Viimundur stendur einn meö
sitt spillta og sýkta hugarfar
hins vegar.”
Hvað varð um
baunamálsóknina?
Þetta geta menn kallaö
huggulegheit I mannlegum
samskiptum. En af þessu tilefni
rifjast upp fyrir okkur saga úr
siöustu kosningum. Höfuöpáfi
VL-inga, Þorsteinn Sæmunds-
son, stjarnfræöingur, sat þá i
Rannsóknarráöi ásamt
formanni þess Steingrimi
Hermannssyni. Af alkunnri
skarpskyggni sinni og sam-
viskusemi þóttist stjarn-
fræöingurinn sjá á reikningum
ráösins aö Steingrimur heföi
skráö grænar baunir til
heimiiishalds sins og bensin á
einkabil sinn á reikning
Rannsóknarráös. Engum fannst
þetta mikiö meö grænu baunirn-
ar þvi menn vissu aö Steingrim-
ur stóö i dýrri húgbyggingu i
Arnarnesinu. Ritari
Framsóknarflokksins vildi þó
ekki una þessum áburði og hót-
aöi stjarnfræöingnum meö
málsókn aö loknum kosningum
Gleymist allt
eftirkosningar? 1'
Siöan eru liöin fjögur ár og
ekki hefur Steingrimur sótt
Þorstein til saka fyrir meiöyröi.
Þorsteinn hefur heldur ekkert
rætt frekar um grænar baunir
né bensin á bil Steingrims, enda
mjög upptekinn viö aö fá
dómstólana til aö dæma
blaöamenn Þjóöviljans og ýmsa
góöa rithöfunda Itugthús.
Svona getur nú siðferöisvit-
und manna þroskast og batnaö
þegar frá liöur.
Og þvi er spurningin hvort
þaö hendi ekki Guðmund
Hvenær ætlar Hætturaötala
Steingrlmur um grænar
aö stefna út af baunir
grænu ogbensin.
baununum?
Þórarinsson aö gleyma aö
stefna Vimma eftir kosningar
og Vimma aö gleyma „glæp-
um” Framsóknarmanna þegar
hann sest viö hlið þeirra á
þingi?
—ekh.
■
I
91
I
■
I
I