Þjóðviljinn - 23.06.1978, Qupperneq 5
Föstudagur 23. júni 1978 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5
Alþýðubandalagið á Austfjöröum:
Mikill kraftur í
kosningastarfinu
Kosningabarátta Alþýðu-
bandalagsins á Austfjörð-
um hefur gengið mjög vel/
að sögn Guðmundar Þór-
oddssonar kosningastjóra
Alþýðubandalagsins á
Neskaupstað/ er Þjóðvilj-
inn hafði samband við
hann í gær.
Á þriðjudagskvöldiö s.l. voru
haldnir tveir fundir á vegum
Alþýðubandalagsins, á Vopna-
firði og á Seyðisfirði. I gærkvöldi
var fundur á Höfn, og i kvöld
verða fundir á Fáskrúðsfirði,
Eskifirði og á Neskaupstað.
Fundirnir eru þannig að haldn-
Guðmundur Þóroddsson kosn-
ingastjóri Alþýðubandalagsins á
Austf jörðum.
ar eru 3—4 stuttar ræður, en siðan
eru fjölbreytt skemmtiatriði.
A fundinum á Vopnafirði voru á
Landsþing menntaskólakennara: I
Samninga í
gildi á ný
t áiyktun um kjaramál, sem
samþykkt var einróma á
landsþingi Félags mennta-
skóiakennara, sem nýlokið er i
Reykjavik, segir: „Þingið
átelur harðlega þau óheilindi
rikisstjórnarinnar að rifta
með lögum samningum sem
hún sjálf hafði gert aðeins
fjórum mánuðum fyrr og
verið höfðu grundvöllur kjara-
dóms í aðalkjarasamningi
BHM. Krafa okkar er að
samningarnir taki gildi á ný.”.
Þá segir i ályktuninni, að
það sé fáheyrð ósvifni að refsa
þeim sem mótmæltu samn-
ingsrofinu með þvl að draga af
þeim hærri upphæð en svaraði
til raunverulegrar fjarvistar
þeirra.
Einnig mótmæla mennta-
skólakennarar harðlega mis-
túlkun fjármálaráðuneytisins
á kjaradómi i sérkjarasamn-
ingi FM og seinagangi á fram-
kvæmd hans. Ýmsir mennta-
skólakennarar hafa enn ekki
fengið kauphækkun sem eng-
inn ágreiningur er um, af
þeirri ástæðu einni, að deilt er
um túlkun samningsins varð-
andi nokkra aðra kennara.
—eos
annað hundrað manns, sem þykir
mjög gott þar. Hjörleifur
Guttormsson borbjörg Arnórs-
dóttir,.Aðalbjörg Björnsdóttir, og
Eirikur Sigurðsson fluttu stutt
ávörp, en á eftir var söngur,
ljóðalestur, og Baldur Brjánsson
sýndi töfrabrögð.
A fundinum á Seyðisfirði voru
200 manns. Ræðumenn voru Helgi
Seljan, Guðrún Helgadóttir,
Þráinn Rósmundsson og Þóra
Guðmundsdóttir. Eftir ræðuhöld-
in, en að þeim var gerður góður
rómur, voru skemmtiatriði.
Hljómsveitin Vöðlar söng og lék
baráttulög, og trió sem Helgi
Seljan er m.a. I flutti allskyns
grin og glens. A fundinum var
mjög góður andi, og sagði
Guðmundur að fundirnir hefður
verið grimmdargóðir og þeir
blásið miklum baráttuanda i
brjóst fólksins.
Guðmundur taldi að þetta
fundaform hefði gefist mjög vel,
þvi aðsóknin sýndi að fólk kynni
að meta svona stuttar baráttu-
ræður ásamt skemmtiatriðum.
Alþýðubandalagsmenn á
Austfjörðum hafa ekki látið fund-
ina nægja i baráttu sinni, þvi þeir
hafa verið mjög iðnir við að gefa
út dreifirit og blöð. Þessa fundi
hafa þeir auglýst með dreifirit-
um, en málgagnið, Austurland,
hefur verið borið i hvert hús á
Austfjörðum. Auk þess hafa þeir
gefið út sérstök blöð fyrir norður-
hluta Austfjarða og suðurhluta
kjördæmisins. Þá var sérstakt
blað gefið út á Seyðisfirði. öllum
ungum kjósendum var sendur
bæklingursem bar nafnið „Mikið
vérk að vinna”. Með bæklingnum
var dreifirit frá Æskulýðsnefnd
Alþýðubandalagsins i kjördæm-
inu.
Guðmundur vildi að lokum
minna á fundina á Fáskrúðsfirði,
Eskifirði og Neskaupstað, sem
verða með svipuðu sniði og fyrri
fundir, en auk þess mun þeim
ljúka með dansleik.
—Þig.
Menntaskólakennarar yíta ráðherra harðlega
Brýtur eigin lög
A nýafstöðnu landsþingi sinu
samþykktu menntaskóiakennar-
ar ályktun, þar sem mennta-
málaráðherra er harðlega vittur
fyrir þá ákvörðun að setja i em-
bætti skólameistara á Egilsstöð-
um umsækjanda, sem uppfyllir
ekki kröfur nýsettra laga um em-
bættisgengi kennara og skóla-
stjóra.
í ályktuninni segir: „Meðal
umsækjenda voru kennarar, sem
óumdeilanlega höfðu fyllstu
menntun, réttindi og starfs-
reynslu....” Ennfremur segir, að
það gegni furðu, að ráðherra skuli
þannig brjóta þau lög, er hann
sjálfur lagði fram á þingi og stóð
fyrir að samþykkt yrðu, en þau
hafa það að meginmarkmiði, að
tryggja menntastofnunum bestu
starfskrafta, sem völ er á.
Þingið skoraði á stjórn Félags
menntaskólakennara að krefjast
afdráttarlausra skýringa á veit-
ingu þessari og fylgja málinu fast
eftir. —eös
Tómas Helgason, prófessor dr. med.
Fjáröflun Hvítabandsins
„Það er eftirtektarvert og lýsir
þroska íslenskra kvennaað fyrsta
mál, sem konur gengust fyrir?lit-
ur ekki að sérréttindum þeirra
heldur alþjóðarbeill....” í sam-
ræmi við þessi orð Ólafiu Jó-
hannsdóttur stofnanda Hvita-
bandsins á fundi kvenna um há-
skólamálið fyrir rúmum 80 árum
er eðlilegt, að Hvitabandið noti
kosningadag til alþingis til fjár-
öflunar. Þóaðmeðlimum Hvita-
bandsins sé ekki mikið um það
gefið að barðar séu bumbur og
haft hátt um þau góðverk sem
þær vinna, er tilhlýðilegt að geta
þess, sem gott er og þakka fórn-
fúst starf þeirra að ýmsum mál-
um það, sem af er öldinni. Þótt
Hvitabandið sé orðið rúmlega 80
ára gamalt, er félagsskapurinn
siungur og virkur og meðlimirnir
fullir áhuga um að láta 'gott af sér
leiða. t þvi skyni er safnað fé með
merkjasölu, kaffi- og kökusölu og
með þvi að halda basar með fatn-
að og hannyrðir, sem félagskonur
hafa unnið.
Arangursins af starfi Hvita-
bandsins sér viða stað. Má þar
sérstaklega tilnefna sjúkrahús
það er Hvitabandið reisti á sinum
tima, en það er nú hluti af geð-
deild Borgarspitalans. Ennfrem-
ur má minna á, að Hvitabandið i
félagi við aðra gaf Reykjavíkur-
borg meðferðarheimili fyrir
taugaveikluð börn. Auk þess hef-
ur Hvitabandið styrkt einstak -_
dinga, sem átt hafa I ýmsum
örðugleikum, m.a. til náms, og
gefið sjúklingum jólagjafir. A s.l.
ári gaf Hvitabandið Klepps-
spitala mjög veglega gjöf, mynd-
segulbandstæki, sem notuð eru
þar við kennslu starfsfólks og
þjálfun sjúklinga.
Hvitabandið hefur frá upphafi
byggt á kristilegum grunni og
hugsjónum um mannkærleika og
hófsemi. I samræmi við það hefur
félagsskapurinn lagt áherslu á að
hjálpa bágstöddum, m.a. þeim
sem ratað hafa i vanda vegna
drykkjusýki eða annarrarnautna-
sýki.
Kjörorð Hvitabandsins er og
hefur verið „að hjálpa þar sem
þörfin er mest”.Undir þetta kjör-
orð ættu allir að taka á kosninga-
daginn og sýna það i verki með þvi
að kaupa merki Hvitabandsins.
Tómas Helgason
prófessor dr. med.
Kalda borðið
-kjöriðíhádeginu
Kræsingar kalda borðsins í Blómasal eru löngu víðkunn-
ar. Óteljandi tegundir af kjöt og sjávarréttum auk íslenskra
þjóðarrétta. Tískusýningar í hádeginu á föstudögum.
Bjóðið viðskiptavinum og kunningium í kræsingar kalda
-borðsins.
Vcrið vclkomin, Hótel I.oftleiðir.
HÓTEL
LOFTLEIÐIR
LAUS STAÐA
Staða lektors við námsbraut i sjúkraþjálf-
un við Háskóla íslands er laus til um-
sóknar.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna
rikisins.
Umsóknarfrestur er til 20. júli nk.
Umsóknum skulu fylgja ýtarlegar upplýs-
ingar um ritsmiðar og rannsóknir, svo og
námsferil og störf, og skulu þær sendar
menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6,
Reykjavik.
Menntamálaráðuneytið, 16. júni 1978.
BLAÐBERAR
ÓSKAST
Austurborg: Vesturborg:
Sogamýri (1. júli) Melar (strax)
Árbær (1. júli)
Háteigshverfi (afl. júlí)
DJOÐVIUm
Afgreiðsla Siðumúla 6, sími 8 13 33
BLAÐBERABÍÓ
Hafnarbíó
Laugardaginn 24. júní kl. 13.00
Dögun við Socorro
Spennandi kúrekamynd.
Aðalhlutverk: Rory Calhoun, Edgar
Buchanan
Sími 8 13 33