Þjóðviljinn - 23.06.1978, Qupperneq 7

Þjóðviljinn - 23.06.1978, Qupperneq 7
Föstudagur 23. júní 1978 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 7 Viö „barnalegu hugsjónamennirnir” vonuðum aö nefndir borgarinnar yröu stokkaðar upp, sumar lagðar af, nýjar settar á laggir, - breytt um starfshætti i kerfinu. Var þetta allt byltingaróþreyja? Oskar Guómundsson Borgartálsýn og verklýðsveruleiki Sósialistar svifu frekar en gengu um götur rauðrar Reykj- avikur að afloknum kosningum Draumurinn var oröinn að veruleika, ihaldið fallið. Hvarvetna þar sem sósialist- ar komu saman i hóp var um- ræðuefniö: hvað ber að gera nú? Hvar skal byrja og hvar skal enda i umsköpun borgarinnar. Þessar umræður komust furðu fljótt niður á hrimkalda jörðina. Viö ráðum ekki borg- inni einir, sögðu menn, okkar timi kemur siðar. Og einsog af gömlum vana segja þeir nú: „Barnaleg óþreyja hugsjóna- mannsins má ekki hefta leið sósialismans i Reykjavik.” Svona alvörugefið tal þykir nú um stundir eitt ábyrgt gagnvart hugsjóninni i minum flokki. Margur barnalegur hugsjóna- maðurinn hafði látið sér detta i hug að ýmislegt væri ofar á blaði I samningum við Fram- sóknarflokkinn og Alþýðuflokk- inn um stjórn borgarinnar held- ur en fulltrúaniðurröðun i nefndir. M.a.s. vonaði maður aö þessar nefndir yrðu stokkaðar upp Sumar lagðar niður. nýjar settar á laggirnar, nýir starfs- hættir teknir i gagniö. Þá var og hald ýmissa, að stjórnkerfinu sjálfu yrði breytt strax að ein- hverju leytit að valdamestu mönnum yrði’sagtupp o.s.frv.A þessu öllu er tæpt i stefnuskrá Alþýðubandalagsins um borg- armál. En við skulum ekki láta barnalega byltingaróþreyju villa okkur sýn — þetta breytist allt á næsta fjárhagsári borgar- innar? Alþýöubandalagið i Reykja- vik er i mörgu næsta vel undir- búiö til að taka borgarmálefni réttum tökum. Félagiö hefur undir forystu borgarfulltrúanna unnið af atorku i borgarmálum. Og þaö sem betra er, það er til- tölulega fjölmennur hópur sem hefur unnið i þessum málum. Borgarmálaráð félagsins þarf nú umfram allt að starfa opið, — þannig að sem flestir félagar geti orðið virkir i starfinu og unnið að stefnumótun i borgar- málum. En sæmilega smurðir innviðir flokks eru litils virði komi ekki meira til. Ef umtalsverður ár- angur á að nást i borgarmálum á vegum Alþýðubandalagsins verður virk verkalýðshreyfing að slá á sömu pólitisku strengi. Þau félagslegu framtiðarverk- efni sem liggja fyrir: stjórnun verkafólks á fyrirtækjum borg- arinnar, rekstur leiguibúða i stórum stil og myndun hverfa- stjórna, krefjast pólitisks þroska og þátttöku verkalýðs- hreyfingarinnar. Að þessu hlýt- ur vinstri borgarstjórn og verkalýðshreyfing að keppa. Þessi verkefni verða ekki af hendi leyst nema virk verka- lýðshreyfing láti til sin taka. Þetta á við um allt lif og starf okkar breiðfylkingar — Al- þýðubandalagsins. Og þegar ég og aðrir „barnalegir hug- sjónamenn” tala um virka verkalýðshreyfingu, þá eigum við ekki við verkalýðsforystu. A milli faglegrar baráttu og póli- tiskrar verkalýðshreyfingar og Alþýðubandalags þurfa að vera stöðugar vixlverkanir og sam- runi. Pólitiskt lif Alþýðubanda- lagsins á að vera endurhljómun faglegrar baráttu verkalýðsins. Og öfugt. Fyrir verkalýðshreyfingunni liggja nú mikil verkefni og stór. Þátttaka i stefnumótun og stjórn borgarinnar: hörð yfir- standandi kjarabarátta og ör- lagarikar ákvarðanir að aflokn- um kosningum. Frumforsenda þess að Alþýöubandalaginu farnist vel i náinni framtið i borgarmálum og landsmálum, er aö virk verkalýðshreyfing heyi baráttu i takt viö það. Margt þarf að breytast innan verkalýðshreyfingarinnar til að svo geti orðið. Lágmarksatriði er þó að haldnir séu sem oftast fundir i verkalýðsfélögum þannig að félögunum gefist kostur á að heyra öðru hvoru hljóðið i foringjum sinum og viðra sin viðhorf við þá. Þegar hörð kjarabarátta með fjöl- breyttum aðgerðum stendur yfir, eru almennir félagsfundir auðvitað sjálfsagðir. Verka- lýðsfélag sem heldur ekki fundi er óvirkt verkalýðsfélag. Hætt er við að verkalýðs- hreyfingin hafi i þessu efni brugðist sjálfri sér. Hún og flokkur hennar mega ekki veröa skrífræðinu að bráð. Til að forða þvi, þarf hún og hennar flokkur að iðka sjálfsgagnrýni gera tilraunir um nýja starfs- hætti, og fnamar öðru opna starf semi sina. í þeim tilgangi að leyfa nýjum hugmyndum að njóta sin, virkja þannig hinn „almenna mann” til starfs og stefnumótunar. Óskar Guömundsson. Úr þingmálasyrpu Alþýðubandalagsins Félagsleg sjónarmið í húsnæðismálum Stefán Jónsson. Jónas Arnason. Vilborg Harðardóttir. Geir Gunnarsson. Aðalmarkmið Alþýðubanda- lagsins i húsnæöismálum eru þau, að ibúðabyggingar séu sem hag- kvæmastar, aðstoð samfélagsins og samhjálpar sem mest. Með þetta að leiöarljósi lögðu þau Helgi Seljan og Vilborg Harðar- dóttir fram tillögu um húsnæðis- mál, þar sem lögð var áhersla á að eftirfarandi atriði komist i framkvæmd við endurskipulagn- ingu á lögum um Húsnæðismála- stofnun rikisins: Byggi-ngar verkamannabú- staða verði stórlega auknar, svo og byggingar leiguibúða. Lán frá rlkinu nemi allt af 60% byggingarkostnaöar ibúöar handa þeim sem ekki hafa átt ibúð áður, og megi nýta það til kaupa á eldri ibúöum. Arlegar greiðslur fyrir hús- næöismálastjórnarlán verði aldrei hærri upphæð en sem nemur 20% af launum verka- manns fyrir 8 stunda vinnu. Samstiga kröfum verkalýðs- hreyfingarinnar Einn rikasti þátturinn i kjara- baráttu verkalýðshreyfingarinn- ar hefur jafnan verið krafan um félagslegar úrbætur i húsnæðis- málum láglaunastéttanna. Veru- legur árangur náðist i þeirri bar- áttu meö setningu laganna um verkamannabústaði. Með þeim lögum voru þær kvaðir lagðar á rikisvaldið og sveitarfélögin að leggja fram verulegt fjármagn til húsnæðismála og lána það til byggingarfélaganna með miklum mun hagstæðari kjörum en við- gengst i lánastofnunum. Með þessum hætti var raunverulega verið að greiða niður fjármagns- kostnað viö ibúðabyggingar hjá eignalitlu lágtekjufólki. Við gerö kjapasamninga verka- lýðshreyfingarinnar 1974 var gert sérstakt samkomulag við þáver- andi rikisstjórn um endurskoöun laganna frá 1970 og um að stór- auka fjárveitingar til ibúðabygg- inga á félagslegum grundvelli. Jafnframt var á það fallist af verkalýðshreyfingunni, að lagður væri á launaskattur sem rynni til Byggingarsjóðs rikisins. Við þetta loforð hefur núver- andi rikisstjórn ekki staðið og fjármagn til byggingar á ibúðum fyrir láglaunafólk hefur sjaldan verið óverulegra en á siðastliðnu ári. Erindrekar vímugjafanna Aö gefnu tilefni hefur Magnús Kjartansson lagt til, aö engum áfengis- og tóbaksheildsölum verði heimilaö að hafa erindreka í þjónustu sinni hér innanlands. Hafni Afengis- og tóbaksverslun rikisins viðskiptum við þá aðila Garðar Hclgi Sigurðsson. Seljan sem heimti að hafa slika erindreka við störf. Iðnaður í sveit Helgi Seljan, Ragnar Arnalds, Stefán Jónsson, Jónas Arnason og Garðar Sigurðsson vilja að stjórnvöld beiti sér fyrir sérstök- um stuðningi við stofnun þjón- ustu- og úrvinnsluiðnaðar i sveit- um. Framkvæmdastofnun rann- saki möguleika smáiðnaðar i Ragnar Magnús . Arnalds. Kjartansson sveitahreppum, kanni viðhorf heimamanna og geri áætlun um framkvæmdir. Einnig veröi greitt fyrir útvegun lánsfjár, og veittir styrkir. Fríðindi afnumin Allar greiðslur til háttsettra embættismanna komi fram I launum þeirra, er tillaga þeirra Stefáns Jónssonar og Jónasar Framhald & bls. 21 Staðreyndir um kaupgjaldsmál t tíð vinstri stjórnarinnar hækkaði raungildi kaups: Kaup verkamanna um 30% Fiskverð til sjómanna hækkaði meira en dæmi eru til Viðmiðunarkaup bænda náði þá hámarki eða rúmum 80% t tið vinstri stjórnarinnar náði viðmiðunarkaup bænda 80% en nú- verandi rikisstjórn hefur komið þvi niður I 65%. Núverandi ríkisstjórn hefir hins vegar lækkað raungildi kaups: Hún hefur lækkað kaup allra launamanna. Hún hefur komið viðmiðunarkaupi bænda í 65% Vinstri stjórn Hægri stjórri

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.