Þjóðviljinn - 22.08.1978, Qupperneq 6

Þjóðviljinn - 22.08.1978, Qupperneq 6
8 SÍÐA — ÞJOÐVILJINN ÞriOjudagur 22. ágúst 1978 Mannfjöldinn fylgdist meö af áhuga. Landinu ýtt á flot aö viöstöddu fjölmenni. Gylfi Gfslason, myndlistarmaöur býr til landiö. Spilverkid á íslandi! Reykjanesið þökulagt. „Nú er veriö aö jaröa herinn”, heyröist einhver Uppátæki Spilverksins og Steinars hf. vakti aö vonum athygli vegfarenda I miöbænum. Ljósm. — jsj. segja. Þrjú börn láta lifið ST. SAUVEUR, Kvlbek, 17/8 (Reuter) —A.m.k. þrjú börn létu lifiö og mörg slösuöust i dag þeg- ar ökumaöur áætlunarbfls, sem 41 barn var f, missti stjörn á annatimanum i mikilli rigningu. Lögregluþjónar og slökkviliös- menn unnu f klukkutima viö aö losa börnin úr farartækinu. Þau voru á leið aftur til Montreal úr útilegu. Þetta er annaö meiri háttar slysiö sem veröur á áætlunarbil I Kvibek á hálfum mánuöi, en 4. ágúst fórust 40 menn þegar áætlunarbill steypt- ist niöur i vatn. Á sunnudaginn gátu at- hugulir vegfarendur í mið- bænum barið augum merkilega sjón: Spilverk þjóðanna brá sér út á tjörn á fleka, sem var í laginu eins og (sland. Þetta var gert vegna Ijósmyndatöku fyrir hljómplötuumslag, en fimmta hljómplata Spilverksins er væntanleg í lok september, og ber ein- mitt heitið Island. ☆ Blaöamann og ljósmyndara Þjóöviljans bar á staðinn um tvö- leytiö á sunnudaginn, en þá voru þeir Gylfi Gislason, myndlistar- maöur og Jónatan Garðarsson, frá hljómplötuútgáfunni Steinar hf., sem gefur plötuna út, að leggja siðustu hönd á frágang ís- lands. Var þetta býsna myndar- legtland úr einangrunarplasti, og var blaðamanni tjáð, aö tenings- meterinn af sliku efni gæti borið eitt tonn. Eftir að búið var að skeyta landið saman, var þvi rennt á flot, bundið við polla á tjarnarbakkanum og þökulagt. Liklega hafa landgræðslustörf sjaldan gengið jafnfljótt fyrir sig, en búið var að græða landið á um það bil tæpri klukkustund. Spilverkið, það er þau Valgeir Guðjónsson, Sigrún Diddú Hjálm- týsdóttir og Sigurður Bjóla Garðarsson fóru siðan á land og ýttu á flot. Samtimis fór i loftið ljósmyndari, sem átti að taka myndir utan á væntanlegt plötu- umslag, og iékk Ijósmyndari Þjóðviljans góðfúsiega leyfi til að fara með upp i loftið. Mikið fjölmenni hafði safnast saman á tjarnarbakkann til að fylgjast með atburði þessum, og var þá brugðið undir bert loft tveim stórum hátölurum og hin nýja hljómplata leikin fyrir við- stadda. Ekki varð betur heyrt en platan væri hin ágætasta i alla staði, og vakti atburður þessi all- ur hinar bestu undirtektir. Kannski væri það athugandi fyrir forráðafólk Reykjavikur- borgar að lifga upp á miðbæinn með svipuðum tiltektum hér eft- ir? —JSj. Ný bílaleiga í Keflavik Ekki alls fyrir löngu var komið á fót nýrri bilaleigu i Keflavik. Er nafn hennar Bilaleiga Keflavikur hf. Aðsetur bilaleigunnar er að Austurbraut 4. Bilaleigan hefur til umráða þrjár nýjar Wartburgstation bif- reiðir og eru þær mjög rúmgóðar. Þetta er fjölskyldufyrirtæki og eru eigendur þess öskar Pálsson og fjölskylda hans. Aígreiðslutimi Bilaleigunnar er frá kl. 8-22, simi 3254. (Heim.: Suðurnesjatiðindi). —mhg

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.