Þjóðviljinn - 22.08.1978, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 22.08.1978, Blaðsíða 9
Þriöjudagur 22. ágúst 1978 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 9 BATNANDI AFKOMA HJÁ SLIPPSTÖÐINNI Á AKUREYRI Njótum sömu fyrirgreidslu og aðrar skipasmíðastöðvar Þjóðviljanum var t.d. tjáð að á vinstri stjórnarárunum, en þá keypti rikið stöðina, þá hafi henni verið tryggð fyrirgreiðsla til að hefja seriubyggingu skipa, þ.e. hefja byggingu skipa áður en kaupandi var fenginn að skipinu. Blaðið hafði samband við Gunnar Ragnars, forstjóra Slipp- stöðvarinnar á Akureyri og spurðist fyrir um hvort þessar sögusagnir væru réttar. Gunnar sagði að Slippstöðinni hefði aldrei verið tryggð öðru visi fyrirgreiðsla en öðrum skipa- smiðastöðvum I landinu. Á árunum 1967 og 1968 var stöðv- unum gefinn kostur á þvi að hefja smiði án þess að til væri kaupandi en einhvern veginn datt þetta upp fyrir sig eftir 2 til 3 ár. Gunnar var þá spurður að þvi hvort hann hefði einhverja skýr- ingu á þvi að á meðan allar aðrar stöðvar væru verkefnalausar þá hefði Slippstöðin næg verkefni og ga&ti haldið ótrauð áfram byggingu skipa og rekstri stöðvarinnar. — Ég veit ekki hvort ég hafi einhverja sérstaka skýringu á þvi, sagði Gunnar. Okkar starf- semi byggist upp á þvi að við erum með mjög mikið af viðgerðum og höfum fasta viðskiptavini. Þá höfum við haft — segir Gunnar Ragnars, forstjóri Mikil skrif hafa orðið í dagblöðum um vandamál skipasmíðaiðnaðarins. Stærstu skipasmíðastöðvar landsmanna standa verk- efnalausar á sama tíma og samið er um smíði á skut- togurum í Portúgal og Pól- landi, nema ein, þ.e. Slipp- stöðin á Akureyri. Þrátt fyrir vandamálin þá heldur þessi skipasmíða- stöð sinu striki og hefur það orðið til þess að ýmsar fyrirspurnir hafa borist m.a. þess efnis hvort stöðin njóti einhverrar sér- stakrar fyrirgreiðslu, þar sem hún er ríkisfyrirtæki að hluta. möguleika til að taka að okkur stærri verkefni og ég tel að við séum liklega tæknilega betur búnir en aðrir. Gunnar var þá spurður hvort Slippstöðin hefði eitthvað meira eigin fé en aðrar stöðvar til að lána viðskiptavinum sinum. Gunnar sagði að Slippstöðin lánaði ekkert. Fjármagnið til nýsmiði skipa kæmi frá Fisk- veiðasjóði og þessi lán afhendast ekki fyrr en hverjum verkáfanga er lokið og i mörgum tilfellum höfum við þurft að biða eftir þvi. Gunnar sagði þá, að þvi væri ekki að leyna að reksturinn hjá fyrirtækinu hefði gengið viðunandi siðustu árin og hefðu þeir farið mjög gætilega i allar fjárfestingar þannig ao fjárhags- staðan hefur verið að styrkjast og það hefur sin áhrif á möguleika fyrirtækisins til að „lifa af”. Þegar fyrirtæki hagnast og styrkjast þá eru þau miklu betur i stakk búin til að standa frammi fyriráföllum og kreppum, eins og nú hafa riðið yfir skipasmiðaiðn- aðinn, sagöi Gunnar að lokum. —Þig Gunnar Ragnars: Batnandi afkoma og aukinn styrkleiki fyrirtækisins gerir það betur I stakk búið að taka við áföllum i iðnaðinum. DREGIÐ 25. ÁGÚST „ GERIST ÞÚ ASKRIFANDI... GERIST ÞÚ ÁSKRIFANDI Gerist þú áskrifandi að Vísi færð þú þó aðalávinninginn heim á degi hverjum. Því fáirþú Vísi heim daglega getur þú fylgst með þróun atburða innanlands jafnt sem utan. Tekið þátt i umræðum um dægurmál, listir og stjórnmál svo eitthvað sé nefnt og átt þannig þinn þátt i hraðri atburðarrás nú-dagsins. SÍMINN ER 8 66 11. GRIKKLANDSFERÐ GEFST....... FYRIR TVO Sértu áskrifandi að Vísi gefst þér kostur á Grikklandsferð í haust, eða ef þú vilt heldur, næsta sumar. Þeim sem þér líkar best, býður þú með þér, þvi Vísir borgar fyrir tvo. GJALDEYRIRINN GEFST EINNIG.....FYRIR TVO Auk þess að borga báða farseðlana, borgar Vísir gjaldeyrinn líka fyrir tvo. vísm Manns saknað frá Barða- strönd Mikil leit hefur staðið yfir frá þvi á sunnudagsmorgun að 71 árs gömlum einbúa, Jóni Guðmundi Jónssynifrá Deildará á Múlanesi á Barðaströnd við Breiðafjörö. Talið er að Jón Guömundur hafi lagt af stað á föstudagsmorgun á báti sinum, sem er eins tonns trilla með utanborðsvél, til fugla- veiða. A sunnudagsmorgun var Jóns saknað og þá hafin leit að honum. Nokkru siðar fann Fokker-vél Landhelgisgæslunnar bát Jóns i fjöru Heiðareyjar, sem er nokkru innar við Breiðafjörð en Múlanes. Leitarflokkar leituðu eyjuna og froskmenn köfuöu við fjöruna þar sem báturinn fannst, og viðar. Einnig sveimaði þyrla Land- helgisgæslunnar yfir eyjunni. Slysavarnarmenn á Baröaströnd svo og frá Patreksfirði ásamt mönnum úr Flatey á Breiöafirði hafa gengið fjörur á stóru svæði, en leitin hefur verið árangurslaus til þessa. 30-40 menn taka þátt i leitinni i dag. GÆÐINSÉR ÚTSÝN UM Útsýn sér síðan um að þið njótið alls þess sem kostur er. Skoðið forna menningararfleifð Grikkja undir leiðsögn reyndra fararstjóra, sleikið sólskinið (hjálparlaust) og á kvöldin njótið þið skemmtan við hæfi.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.