Þjóðviljinn - 22.08.1978, Side 10
10 SÍÐA — ÞJ6ÐVILJINN Þriðjudagur 22. ágúst 1978
Þriöjudagur 22. ágúst 1978 ÞJÖÐVILJINN — SÍÐA 11
Kaspar sendifulltrúiTékka (fyrir miöri mynd) afhent ályktun fundarins I Smáragötu. Til hægri er túlk-
urinn liallfreöur örn Eiriksson.
,,Hinir hörmulegustu at-
burðir hafa gerzt. Herir
frá fimm aðildarríkjum
Varsjárbandalagsins hafa
gert innrás i Tékkó-
slóvakíu. AAeð ofbeldi er
löglegum stjórnarvöldum
smárrar þjóðar vikið til
hliðar. I þeirra stað skal
erlendur her skipa fyrir
verkum. Sósíalistaf lokkur-
inn fordæmir þessa ofbeld-
isárás og lýsir fyllsta
stuðningi við þær grund-
vallarreglur, að sérhver
þjóð eigi rétt til að skipa
eigin málum sjálf án ihlut-
unar erlendra aðila.
Sérstakiega áréttar
Sósialistaf lokkurinn þá
stefnu sína... að það sé
réttur og þjóðleg skylda
hvers sósíalistísks flokks
að móta og berjast fyrir
sósíalisma í eigin landi í
samræmi við sögulegar að-
stæður og hagsmuni eigin
þjóðar.
Flokkurinn telur að inn-
rásin í Tékkóslóvakiu sé
hið alvarlegasta brot á
þessum grundvallarregl-
um og lýsir eindregnum
stuðningi sínum við þjóðir
Tékkóslóvakíu og forystu-
menn þeirra."
Þannig hljóðar kjarninn
úr ályktun sem fram-
kvæmdanefnd Sósíalista-
flokksins samþykkti á
fundi sínum þann 21. ágúst
1968. Mun óhættað segja að
ef nislega endurspegli þessi
orð viðhorf íslenskrar
vinstri hreyfingar til inn-
rásarinnar í Tékkó-
slóvakíu. Viðbrögðin við
innrásinni voru mjög ein-
dregin hér á landi og var
hún hvarvetna fordæmd.
Strax og fréttir bárust af
henni til íslands að morgni
21. ágúst var hafist handa
um að skipuleggja mót-
mælaaðgerðir í Reykjavik,
sem þó hlutu að mestu leyti
að verða sjálfsprottnar þar
sem litill tími gefst til und-
irbúnings.
I þessari grein verða
rifjaðar upp helstu mót-
mælaaðgerðir dagsins hér
heima, og reynt að draga
upp mynd af þeim viðhorf-
um sem réðu ferðinni.
Fyrstu viöbrögö
Fyrstir til að hafa uppi mót-
rriæli voru félagar úr Æskulýðs-
fylkingunni, sambandi ungra
sósialista. Þannig vildi til að
nokkrum hópi manna hafði verið
stefnt kl. 9 að morgni 21. ágúst
niður i Tjarnargötu 20, en þar
voru bækistöðvar Æskulýðsfylk-
ingarinnar, til að undirbúa mót-
mælaaðgerðir i tilefni af heim-
sókn yfirmanns flota Atlantshafs-
bandalagsins á N-Atlantshafi til
Islands. Þegar fréttist af innrás-
inni var ákveðið að sleppa þeim
aðgerðum en snúa sér hins vegar
að þvi að skipuleggja mótmæli
gegn innrásinni. Var fyrsta skref-
ið i þeim mótmælum stigið þegar
félagar úr Æskulýðsfylkingunni
gengu fylktu liði undir rauðum
fánum og mótmælaspjöldum írá
Tjarnargötunni að sovéska sendi-
ráðinu við Túngötu. Ætlun þeirra
var að afhenda þar mótmæla-
ályktun framkvæmdanefndar
Æskulýðsfylkingarinnar, en þar
sem enginn fékkst til að veita
henni viðtöku var henni stungið
inn um bréflúgu sendiráðsins.
Þegar liða tók á daginn og flest-
ir höfðu áttað sig á atburðunum.
hófst mótmælastaða við sovéska
sendiráðið i Garöastræti og stóð
hún yfir frá kl. 3 eftir hádegi til kl.
6. Tildrög þessarar stöðu voru
þau, að morguninn 21. ágúst var
íesin upp auglýsing i útvarpinu
þar sem fólk var beðið að hafa
samband við ritstjórn Frjálsrar
þjóðar, sem þá var málgagn
Þjóðvarnarflokksins, en þar var
mótmælastaðan skipulögð. Var
það allstór hópur manna sem stóð
i Garðastrætinu undir mótmæla-
spjöldum sem á var letrað m.a.
,,Gegn hernaðarbandalögum i
austri og vestri” og „Innrásin i
Tékkóslóvakiu er aðstoð við USA i
Vietnam”. Þegar mótmælastöð-
unni lauk safnaðist saman hópur
Heimdellinga viö sendiráðið og
lét öllum illum látum eins og
þeirra var von og visa á þessum
árum.
Sjálfstæöismenn
mótmæla
Kl. 6 hófst fundur ungra sjálf-
stæðismanna við Miðbæjarskól-
ann, og töluðu þar ýmsar nafn-
kunnar sjálfstæðishetjur. Þegar
fundinum var Iokið var gengið að
sovéska sendiráðinu og stóð til að
afhenda þar ályktun fundarins,
þar sem hernámið var fordæmt
og lýst yfir samúð með tékknesku
þjóöinni. En eins og allir aðrir
gengu sjálfstæðismenn bónleiðir
til búðar að þessu sinni. Þeir nutu
þó þeirrar náðar fram yfir aðra
mótmælendur, að vera boðaðir i
sendiráöið kl. 10 næsta morgun til
að afhenda ályktunina.
Hin sósíalísku
yiðhorf
Að kvöldi 21. ágúst voru haldnir
tveir mótmælafundir i Reykjavik.
Sá fyrri hófst kl. 8.30 við sendiráð
Tékkóslóvakiu i Smáragötu og
voru það Æskulýðsfylkingin og
Alþýðubandalagið sem efndu til
hans. Var fundurinn haldinn til
Rifjaðar upp mótmælaaðgerðir í Reykjavík
þann 21. ágúst 1968
u.
írw ii. i
Mótmælastaða við sovéska sendiráöið i Garðastræti.
Ragnar Stefánsson, forseti Æskulýðsfylkingarinnar, knýr dyra f sovésku sendiráðinu að morgni 21
ágúst 1968.
stuðnings viö kommúnistaflokk
Tékkóslóvakiu og til að mótmæla
innrásinni. Ragnar Stefánsson,
forseti Æskulýðsfylkingarinnar,
setti fundinn en ræðumaður af
hálfu hennar var Vernharður
Linnet. Aðrir ræðumenn voru Jó-
hann Páll Arnason, Jónas Arna-
son og Ölafur Jensson.
t ræðu Vernharðar Linnet kom
fram að reginmunur væri á til-
gangi þeirra mótmælaaðgeröa
sem haldnar voru um daginn, þar
sem tilgangur ungra sjálfstæöis-
manna væri ekki fyrst og fremst
að mótmæla innrásinni, heldur að
nota tækifærið til að niða niður
hina alþjóðlegu sósialisku hreyf-
ingu. A þessum fundi við tékk-
neska sendiráðið voru það sósial-
isk viðhorf sem voru ráðandi og
sagði Jóhann Páll Arnason m.a.:
„Með árásinni á Tékkóslóvakiu
hafa valdhafarnir i Sovétrikjun-
um þannig endanlega afhjúpað
sig sem afturhaldssamt og and-
sósialistiskt afl sem einskis svifst
til að koma i veg fyrir raunhæfar
breytingar i sósialiska átt... Hér
hafa leiðir fullkomlega skilið og
geta ekki legið saman aftur fyrr
en sósialisk öfl i Sovétrikjunum
sigrast á þeim sótsvörtu aftur-
haldsöflum sem i áratugi hafa
skýlt sér bak við sósialiska
grimu.”
1 lok fundarins var eftirfarandi
ályktun samþykkt einróma og
hún afhent Kaspar sendifulltrúa
Tékkóslóvakiu: „Almennur úti-
fundur haldinn i Reykjavik 21.
ágúst á vegum Alþýðubanda-
lagsins i Reykjavik og Æskulýðs-
fylkingarinnar, sambands ungra
sósialista, samþykkir eftirfar-
andi:
Innrás Sovéthersins ásamt
herjum annarra Varsjárbanda-
lagsrikja, i Tékkóslóvakiu, er ó-
samrýmanleg grundvallarregl-
um um sjálfsákvörðunarrétt
þjóða og gengur i berhögg við lýð-
ræöis- og manngildishugsjónir
sósialismans. Engin gild rök hafa
komið fram til réttlætingar þess-
ari hernaðarihlutun, heldur er
hér verið að snúa sósialisma i
Tékkóslóvakiu með vopnavaldi af
þróunarbraut sinni.
Atburður þessi er öllum sósial-
istum harmsefni, en hlýtur um
leiö að verða þeim hvatning til að
standa dyggilega á verði um
sósialismann sem hugsjón og
baráttumið.
Fundurinn lýsir yfir samstöðu
með þjóðum Tékkóslóvakiu i bar-
áttu þeirra fyrir þjóðfrelsi og
sósialisku lýðræði.”
Eftir fundinn gengu fundar-
menn undir spjöldum og fánum
að sovéska sendiráðinu við
Garðastræti, og stungu afriti af
ályktuninni inn um bréfalúgu
sendiráðsins. Ekki gátu þó allir
fundarmenn tekið þátt i þeirri
göngu þar sem nauðsynlegt var
taliö að senda nokkurn hóp niður i
Tjarnargötu 20, sem var aðsetur
Sósialistaflokksins og Æskulýðs-
fylkingarinnar, til að verja húsið
fyrir hugsanlegum árásum ungra
og uppvöðslusamra
Heimdellinga.
Almennur
borgarafundur
Hinn fundurinn þetta kvöldið
var almennur borgarafundur i
Gamla biói en til hans var boðað
af 5 félagssamtökum. Ræðumenn
á þessum fundi voru Ragnar Arn-
alds, ölafur Ragnar Grimsson,
Karl Steinar Guðnason, Guð-
mundur Hagalin og Sigurður A.
Magnússon. Fundarstjóri var
Sigurður Lindal. 1 Gamla biói var
einnig samþykkt ályktun til for-
dæmingar á innrás Varsjár-
bandalagsrikjanna i Tékkó-
slóvakiu, og gengið meö 'hana að
tékkneska og sovéska sendiráð-
inu. Þegar fundarmenn úr Gamla
bió komu aö Garðastræti komust
þeir ekki leiðar sinnar að sendi-
ráðinu, þar sem lögreglan hafði
lokaö götunni vegna athafnasemi
Heimdellinga Við rúðubrot og
tómatakast. Var þvi sendinefnd
gerð út af örkinni til að stinga
ályktuninni inn um hina vinsælu
bréfalúgu.
Mótmælin eru
sprottin úr
jarðvegi okkar
eigin reynslu
Eins og aörir dagar leið 21.
ágúst að kvöldi og mestu mót-
mælaöldurnar sem risið höfðu
þennan dag lægði fljótlega. Út
ágústmánuð og fram i september,
voru þó viða haldnir fundir um
ástand mála i Tékkóslóvakiu og
fjöldi mótmælaályktana sam-
þykktar. Og þó menn um allan
heim væru einlægir i þeim vilja
sinum ab styðja þjóðir Tékkó-
slóvakiu i baráttu þeirra gegn
hernámsliðinu þá dugði það ekki
til. Tékkóslóvakia er enn i heljar-
greipum herja Varsjárbanda-
lagsinsog öll framfarasinnuð öfl i
heiminum eru reynslunni rikari.
En einmitt af þeim sökum
standa þau orð sem ólafur Jens-
son mælti á fundi i Smáragötunni
fyrir 10 árum enn óhögguð, en
hann sagði: „Við skulum gera
okkur grein fyrir þvi að mótmæli
okkar eru ekki stundarfyrir-
brigði. Mótmæli okkar eru sprott-
in upp úr jarðvegi okkar eigin
reynslu.
Andstyggð og andúð Tékka á
erlenöum herstöðvum hernámi
og nú innrás og ofbeldi, er af
sama toga og andúð okkar og
andstyggð á sömu fyrirbærum.
Við höfum haft i vitum okkar þef-
inn af þessum fyrirbærum i 25 ár.
Þeir Islendingar sem barizt
hafa gegn hernámsstefnunni geta
af fullum krafti mótmælt innrás
Varsjárbandalagsrikja i Tékkó-
slóvakiu.
Þeir Islendingar hinsvegar sem
hafa viljað hernám Atlantshafs-
bandalagsins og Bandarikjanna
og stuðlað að þvi að tsland væri
vighreiður og hernaðarbæli, mót-
mæla lika, en þaðertæplega sami
styrkur eða sannfæring sem fylg-
ir þeirra mótmælum.”
ISG