Þjóðviljinn - 07.09.1978, Qupperneq 11

Þjóðviljinn - 07.09.1978, Qupperneq 11
Fimmtudagur 7. september 1978 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 11 Gmocht þjálfari Pólverjanna: Ég spyr aðeins að leikslokum, ef við vinnum er ég ánægður. Is- lendingar leika nútima knatt- spyrnu. Pétur, framherjinn ykk- ar, er fljótur og knár knatt- spyrnumaður. Við erum með eina fimm nýja menn i okkar liði núna, en með timanum smellur liðið saman. Janus Guðlaugsson: Við bárum of mikla virðingu fyrir þeim i fyrri hálfleik. Viö lág- um of aftarlega og vorum reynd- ar nokkuð kærulausir i vörninni, enda heppnir að fá ekki á okkur fleiri mörk. Siðari hálfleikur var allt annar handleggur. Þá sóttum við i okkur veðrið og áttum ekki teljandi færri tækifæri en þeir. Ellert B. Schram: Ég er ekki ánægður með fyrri hálfleik, leikmenn voru staðir og mikið um rangar sendingar. í seinni hátfleik var miklu meiri kraftur i strákunum og þá sýndu þeir skýrar, hvað i þeim býr. Það er greinilegt, að okkur vantar Asgeir Sigurvinsson, til að mata framherjana. —ASP Magni frá upp í 2. deUd Sigraði Njarðvíkinga 3:2, hlaut 250.000 kr. að gjöf Liðin, sem léku til úrslita i þessum riðli, voru Einherji frá Vopnafirði og Njarðvikingar, ásamt Magna. Með þvf að gera jafntefli við Einherja og sigra siðan Njarðvikinga hafði Magni rutt úr vegi siðustu hindrunum á leið sinni upp i 2. deild. Leikur þeirra við Njarðvlkinga reyndist hreinn úrslitaleikur. I leikhléi var staðan 2:1 fyrir Njarðvfkinga, en i siðari hálfleik snffrist dæmið viö og Magni skoraöi þá tvö mörk gegn engu sunnanmanna. Mörk Magna skoruðu Sigurður Ulugason, Jón Ingólfsson og Hringur Hreinsson. Blaðamaður hafði samband við Jón Þorsteinsson á Grenivik. Hann á 20 ár að baki i meistara- flokki knattspyrnuliðsins og hefur verið einn af röskustu mönnum þess. Jón sagði, að framan af i sumar hefði liðinu ekki vegnað vel, en þegar á leið heföi þaö færst i aukana og m.a. átt fimm sigur- leiki i röð. Hins vegar hefðu þeir ekki átt von á að hreppa sæti i 2. deild, en liðiö hefði æft vel, leik- gleöi verið mikil, enda fyrst og fremst ungir strákar f liðinu. Gras- völlur er á Grenivik, en á honum er ekki hægt að leika, fyrr en komið er fram I júni, sökum bleytu. Sagöi Jón, að þvi þyrftu þeir að aka til Akureyrar til æfinga á vorin og slfkt væri tals- vert álag eftir langan vinnudag. Samstarf hefði verið gott við Akureyringa, en engu að siður væri mikil þörf fyrir malarvöll á Grenivík, svo að ekki þyrfti að sækja æfingar úr héraði á þessum árstima. Jón kvað áhuga á knatt- spyrnu mikinn i þorpinu og nefndi, að þegar liðið var á leið heim frá keppninni á Sauðár- króki, heföi Knútur Karlsson, for- stjóri frystihússins Kaldbaks, óvænt mætt þvi á öxnadalsheiði með 250.000 króna gjöf til liðsins frá fyrirtækinu. Svo höfðingleg gjöf kæmi sér vel fyrir liðið, þvi að dýrt væri að taka þátt i tslandsmóti i knattspyrnu. Að siðustu sagðist Jón vera bjart- sýnn á þátttöku liösins i annarri deild. Agætur þjálfari þeirra Gren- vikinga i sumar var Þormóður Einarsson frá Akureyri, áður leikmaður með ÍBA. INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006 ÚTBOÐ Framkvæmdanefnd um byggingu leigu- og söluibúða Laugardalshrepp, Árnes- sýslu, óskar eftir tilboðum i byggingu tveggja ibúða i einu einnarhæðar húsi, samtals 174 m2, 628 m3. Húsið á að risa að Laugarvatni, Arnes- sýslu, og er boðið út sem ein heild. Skila á húsinu fullfrágengnu eigi siðar en 31. júli 1979. Utboðsgögn verða til afhendingar á hreppsskrifstofu Laugardalshrepps og hjá tæknideild Húsnæðismálastofnunar rikisins frá föstudeginum 8. sept. 1978 gegn 20.000 kr. skilatryggingu. Tilboðum á að skila til hreppsskrifstofu Laugardalshrepps eigi siðar en mánu- daginn 25. sept. 1978 kl. 14.00 og verða þau opnuð þar, að viðstöddum bjóðendum. F.h. framkvæmdanefndar um byggingu leigu- og söluibúða Laugardalshrepps, Þórir Þorgeirsson, oddviti. $ Skrifstofustarf Öskum að ráða starfskraft til starfa á skrifstofu Iðnaðardeildar. Vélritunar- og bókhaldskunnátta nauðsynleg svo og kunnátta i ensku og dönsu. Umsóknir sendist starfsmannastjóra, sem gefur nánari upplýsingar. SAMBAND ÍSL. SAMVINNUFÉLAGA Byggmgaverkamenn og járnamenn B.S.A.B. óskar eftir að ráða vana verkamenn og járnamenn. Upplýsingar i sima 74230. Aðalfundur T.B.K. (tafl-og bridge-klúbburinn) verður haldinn mánudaginn 11. september kl. 20 i Domus Medica. Fundarefni: Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin. Kristján Jósepsson bendir á tóma bása Islenska dýrasafnsins segir Valgeir Gestsson, formaður Sambands grunnskólakennara um íslenska dýrasafnið — Starf Kristjáns er hugsjón, ef svo má orða þaö, og hann er búinn að koma þessu upp af alveg fádæma fórnfýsi og dugnaði, sagði Valgeir Gestsson, formaður Sambands grunnskóla- kennara, er Þjóðviljinn leitaði álitshans á tslenska dýrasafninu. — Þetta er ákaflega sorglegur atburður i minum augum og mér þætti það ákaflega slæmt ef að þetta yrði til þess aö börn hér á Reykjavikursvæðinu hefðu ekki áfram aðgang að safni sem þessu, með einhverjum hætti . — Uppstoppuð dýr eru ákaflega hentug kennslutæki fyrir börn á grunnskólastigi. Fyrir börn hér á Reykjavikur- svæðinuværi auðvitað æskilegt að þau kynntust dýrunum lifandi, en það er skárri kostur en enginn, að þau hafi aðgang að þvi að sjá dýrin uppstoppuð. Við eigum þess vfirleitt ekki kost að sjá villtu dýrin ööruvisi en á söfnum, lifandi eða dauð. Það hefur ó- neitanlega gildi að hafa aðgang að svona safni og ég trúi ekki öðru en að kennarar séu sammála um það. — Auðvitað væri best að hafa söfn úti i skólunum, það fer ekki á milli mála, en liklegt er að það yrði nokkuð dýrt. En ef að til væri gott safn væri það mjög aðgengi- leg og hentug lausn. — Persónulega finnst mér það æskilegast að Islenska dýrasafnið sameinaðist Náttúru- gripasafninu. Við eigum að hafa þau fáu söfn sem við erum með, sem allra best búin. Mér finnst við ekki mega við þvi að missa safn Kristjáns. Ég trúi þvi ekki að þetta séu þeir fjármunir, miðað við kostnað við skólahald.að þeir geti staðið verulega i mönnum, á móti þvi að sjá safnið sundrast og hverfa almenningssjónum, sagði Valgeir Gestsson að lokum. Tónleikar á Akureyri Guðný Guðmundsdóttir fiðlu- leikari og Philip Jenkins pianóleikari halda tónleika i Borgarbiói á Akureyri laugar- daginn 9. september kl. 17. A efnisskránni er Vorsónata Beethovens og sónötur eftir Debussy, Brahms og Prokofieff. Guðný leikur á Guarnerius- fiðlu, sem er i eign Rikisútvarps- ins og er hún merkasta og dýr- mætasta hljóðfæri sem til er á þessu landi, smiðuð á 17. öld. Philip Jenkins kemur frá London, þar sem hann starfar sem prófessor I pianóleik viö Royal Academy of Music. Guðný Guðmundsdóttir er konsert- meistari Sinfóniuhljómsveitar tslands. Aðgöngumiöasala verður við innganginn. BERGÞÓRSH V OLL Tilboð óskast i innanhússfrágang i prests- bústað á Bergþórshvoli, Rang.. Verkinu sé lokið 1. mars 1979. Utboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, gegn 10.000 kr. skilatryggingu. Tilboð verða opnuð á sama stað þriðju- daginn 26. sept. kl. 11:00 f.h.. Guðný Guðmundsdóttir. Philip Jenkins. Megum ekki vid því ad missa safnið

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.