Þjóðviljinn - 20.09.1978, Síða 11
Mi&vikudagur 20. septembe* 1978 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 11
Söngsveitin Filharmonia
Söngsveitin Fílharmonía:
Nýtt starfsár er hafið
I dag hefur Söngsveitin Fil-
harmonia 19. starfsár sitt. Tvö
meginverkefni eru á dagskrá
söngs veitarinnar i vetur: „Sköp-
unin” eftir Joseph Haydn, sem
flutt veröur 15. febrúar, og 9.
sinfónia Beethovens, sem flutt
verður 7. og 9. júni. Baeði verkin
verða flutt af söngsveitinni og
Sinfóníuhljómsveit islands.
Marteinn Hunger Friðriksson
mun stjórna flutningi „Sköpunar-
innar”, en franski hijómsveitar-
stjórinn J.P. Jaquillet mun
stjórna 9. sinfónfunni.
Þá mun sikigsveitin einnig æfa
nokkur islensk lög með útvarps-
upptöku fyrir augum.
Haydn samdi „Sköpunina” á
árunum 1795-98, eftir að hafa
kynnst kórverkum HSndels á
Lundúnaárum sinum. „Sköpun-
in” er í hefðbundnum óratóriustil,
samin fyrir fjögurra radda kór,
þrjá einsöngvara og hljómsveit.
Þar skiptast á yndislegar ariur,
„Til aö bæta úr
fyrri vanrækslu”
Blaðinu barst i gær svohljóð-
andi fréttatilkynning frá Vöru-
markaöinum h.f.:
I tilefni af jafnréttisgöngu
fatlaðra og til að bæta úr fyrri
vanrækslu hafa nú verið merkt 2
bQastæöi við aðalinngang versl-
unar okkar til afnota fyrir fatl-
aða. 1 anddyri verslunarinnar
er komið fyrir hjólastól til af-
nota fyrir þá sem þess þurfa og
eru starfsmenn reiðubúnir til
aðstoöar er þörf krefur.
Við byggingu Vörumarkaðar-
ins var þvi miður ekki tekiö
nægilegt tillit til fatlaðra. Þó að
lyfta sé milli aðalhæða hússins
verður fólk I hjólastólum enn að
fara út úr húsinu og niður með
þvi til að komast hindrunarlaust
i heimilistækjadeild i kjallara.
Við hönnun viðbyggingar hefur
verið úr þessu bætt og mun þar
koma ný lyfta sem auöveldar
fötluðum, sem öðrum, aðgang
að öllum hæðum hússins.
í tilefni dagsins hefur Vöru-
markaðurinn h.f. i dag gefið
Sjálfsbjörgu — félagi faltaðra —
kr. 100.000.- til styrktar baráttu
fatlaðra fyrir fullum mann-
réttindum.
resitativ og kórar, og lýsir Haydn
á skemmtQegan og leQirænan
hátt fjölbreytni og dýrö sköpun-
arverksins. Verkið verður sungið
á þýsku og tekur 105 minútur i
flutningi.
Beethoven samdi 9. sinfóniuna
á siðustu árum ævi sinnar. Þrátt
fyrir miskunnarlausa ævi var
hann lengi staðráðinn i að semja
gleðinni lofsöng. Boðskapur ljóðs-
ins, sem er eftir SchQler, er
áhrifamQcill og á ailtaf erindi við
okkur. Kröfur tQ flytjenda eru
miklar, en fallegar laglinur og
stórkostleg dramatik verksins
gera erfiðið að ógleymanlegri
ánægju, að þvi er segir i fréttatil-
kynningu frá söngsveitinni.
I vetur munu fjórir einsöngvar-
ar, þau Ólöf Harðardóttir, Rut
Magnússon, FriðbjörnG. Jónsson
og Halldór Vilhelmsson, starfa
með stjórnandanum og þjálfa
hverja rödd fyrir sig, við æfingu
fyrrgreindra verka. Einnig mun
kórinn hafa milligöngu við útveg-
un einsöngvara til kennslu i hóp-
og einkatlmum. Þá mun Pétur
Hafþór Jónsson tónmenntakenn-
ari hafa með höndum stjórn á
tónfræðikennslu innan kórsins.
Þess má geta að Söngsveitin
FQharmonia óskar nú einsog
ávaUt eftir áhugasömu fólki ti)
starfa meö sér. Stjórnandi söng-
sveitarinnar er Marteinn Hunger
Friðriksson og undirleikari Agnes
Löve. Æfingar fara fram i Mela-
skólanum við Hagamel á mánu
dags- og miðvikudagskvöldum kl
20.30.
Afmælisráðstefna
Samvinnuskólans
Samvinnuskólinn er 60
ára um þessar mundir, og
verður afmælisins minnst
með margvíslegum hætti.
Meðal annars efnir skól-
inn til ráðstef nu um f élags-
og fræðslumál samvinnu-
hreyfingarinnar, að Bif-
röst n.k. föstudag og
laugardag.
Ráðstefnan hefst kl.14.00 á
föstudag með setningarávarpi
Kjartans P. Kjartanssonar, for-
manns skólanefndar Samvinnu-
skólans. Erlendur Einarsson for-
stjóri Sambandsins flytur ávarp
og erindi flytja þeir Hafsteinn
Þorvaldsson, formaður UMFl,
um fræðslustarf UMFt>Sigurður
Þórhallsson formaður Lands-
sambands isl. samvinnustarfs-
manna um félagsmál samvinnu-
starfsmanna, Gunnlaugur P.
Kristinsson félagsmálafulltrúi
KEA, um hlutverk og starf
félagsmálafulltrúa kaupfélaga,
Haukur Ingibergsson skólastjóri i
Bifröst, um Samvinnuskólann og
framtíðarskipan fræöslumála
samvinnuhreyfingarinnar, Þórir
Páll Guðjónsson kennari i Bifröst,
um námskeiðahald á vegum
Samvinnuskólans, og Kjartan P.
Kjartansson framkvæmdastjóri,
um útgáfu- og upplýsingastarf á
vegum samvinnuhreyfingar-
innar.
Starfshópar starfa á ráöstefn-
unni og verður fjallað um álit
þeirra á laugardag.
Ráðstefnunni verður slitið kl.
14.00 á Iaugardag. Til ráðstefn-
unnar er boðið kaupfélags-
stjórum og formönnum kaup-
félaganna, formönnum sam-
vinnustarfsmannafélaga, stjórn
Sambandsins, skólanefnd og
kennurum Samvinnuskólans,
starfsmönnum og fræðsludeildar
'Sambandsins og fleiri gestum.
Að kvöldi föstudags verður 60
ára afmælishóf Samvinnuskólans
haldið að Bifröst.
Laus staða
Dósentsstaða I lifefnafræði við verkfræði- og raunvisinda-
deild Háskóla tslands er laus til umsóknar.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna rikisins.
Umsóknir ásamt ýtarlegum upplýsingum um ritsmiðar og
rannsóknir svo og námsferil og störf skulu sendar
menntamálaráðuneytinu Hverfisgötu 6, Reykjavik, fyrir
16. október næstkomandi.
Menntamálaráðuneytiö
14. september 1978.
.... ' ' ' <
MÍMIR
Simar 11109-10004
(kl. 1-7 e.h.)
Fjölbreytt og skemmtilegt tungumálanám,
enska, þýska, franska, spánska, italska,
noröurlandamálin, islenska fyrir útlendinga.
Áhersla er lögð á létt og skemmtileg samtöl í
kennslustundum. Samtölin fara fram á því
máli sem nemandinn er að læra, svo að hann
æfist í talmáli. Síðdegistímar — Kvöldtímar.
Máíaskólinn Mímir,
Brautarholti 4.
TÓNLISMRSKÓLI
KÓPPNOGS
Innritun i forskóladeild hefst i dag.
Skrifstofa skólans er opin kl. 10 til 11 og 17
til 18.
Upplýsingar i sima 41066.
Skólastjóri
Iðntæknistofnun
/
Islands
mun gangast fyrir námskeiði fyrir neta-
gerðarmenn dagana 5.-6. október n.k.
•
Kynnt verða meðal annars efni til neta-
gerðar, uppsetning veiðarfæra og prófanir
á netum. Þá verða og kynntir nýir isiensk-
ir staðlar um fiskinet og veiðarfæri. Þeir
sem áhuga hafa tilkynni þátttöku til Iðn-
tæknistofnunar íslands Skipholti 37, simi
81533.
Hjúkrunarfræðmgur
óskast að heilsugæslustöðinni Kópaskeri,
fritt húsnæði, ljós og hiti. Stór og góð ibúð
búin húsgögnum. Nánari upplýsingar
veitir Kristján Ármannsson i sima 96-
52128.
Heilsugæslustöðin Kópaskeri.
Vantar fagfólk
og aðstoðarfólk við kjötvinnslustörf og
kjötmóttöku, sem fyrst. Hafið samband
við framleiðslustjóra i sima 19750.
Búrfell h/f