Þjóðviljinn - 17.02.1979, Side 5
Laugardagur 17. febrúar 1979 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5
Fréttir úr horgarstjórn
Fyrsta fjárhagsáætlun nýja meirihlutans samþykkt
Spamaður og bætt
fjármálastjórn
Fyrsta f j árh agsá ætiun nýs
meirihluta f Reykjavlk hefur nú
verið samþykkt og sýnist sitt
hverjum um hana. Birgir tsl.
Gunnarsson kallaði áætlunina t.d.
dæmigerða vinstri stefnu, en
Guðrún Helgadóttir skref út á
vinstri vegarbrún.
Heildarupphæð áætlunarinnar
nemur tæpum 24 miljörðum
króna og á milli umræðna hafa
verið skomar niður 850 miljónir
af rekstrargjöldum og 340 miljón-
ir af framkvæmdaliðum. Þannig
hefúr útgjaldabálkurinn í heild
verið lækkaður um tæpar 1200
miljónir króna og hafa þær ráð-
stafanir gert kieift að setja inn i
áætlunina sérstakan lið að upp-
hæð 1045 miljónir króna til að
mæta kostnaðar- og launa-
hækkunum á árinu.
011 ber áætlunin merki þess
mikla fjárhagsvanda sem núver-
andi meirihluti tók i arf frá Sjálf-
stæðisflokknum.
A árinu verða greiddar 1120
miljónir króna i vexti og af-
borgarnir af skuldum sem fyrr-
verandi meirihluti ber ábyrgð á
og inni i þessum skuldahala er
m.a. kosningavixlilinn frægi frá
1974, þegar glannaskapurinn og
kosningaskjálf tinn var hvað
mestur, auk 500 miljón króna láns
sem hinn nýi meirihluti varð að
taka s.l. sumar þegar hann kom
að tómum kassanum.
Meirihlutinn hefur verið harð-
lega gagnrýndur fyrir að afla
borginni nýrra tekna, en aukin
tekjuöflun með hækkun aðstöðu-
gjalda og fasteigagjalda gefur
borginni i' ár 1600 miljón krónur
eða jafnmikið og variö verður til
gatnagerðar á árinu.
Fyrir utan f jármálalegt aöhald,
sparnað i rekstri og raunhæfar
áætlanir vegna launahækkana og
aukinna tekjufærðra eftirstöðva
eru megineinkenni fjárhags-
áætlunarinnar tvö: Fjármagn til
félagsmála eykst mun meira en
áætlunin i heild eða um 64%, og
500 miljónum króna er varið til
atvinnumála.
t þessari áætlun kveður við
annan tón i félagslegum efnum en
áöur. Ifyrravar ætlað 234miljón-
um króna til þess að veita
einstaklingum fjárhagsaðstoð, og
á siöari hluta ársins lá nýi meiri-
hlutinn undir þungu ámæli þar
sem að þessi áætlun Sjálfstæðis-
flokksins dugðienganveginn til og
kassinn var galtómur. t ár verður
varið 405 miljónum króna til þess
að veita einstáklingum fjárhags-
aðstoð, og sagði Sigurjón Péturs-
son að ekki ætti að koma til sama
ófremdarástands i þessum efnum
og i vetur. Til byggingar dag-
vistarstofnana verður varið 353
miljónum króna og er það 100%
hækkun frá i fyrra.
450 miljónum er veitt til Bæjar-
útgerðarinnar vegna endurskipu-
lagningar og uppbyggingar at-
vinnustarfseminnar þar, og 50
miljónum króna er varið til ann-
arrar atvinnustarfsemi, ætlað til
eflingar nýiðnaðartækifærum i
borginni. Stofnuð hefur verið at-
vinnumálanefnd og sérstakur
starfsmaður verður ráðinn tíl að
sinna atvinnumálum á hagfræði-
deild borgarinnar. I fyrra sam-
þykkti Sjálfstæðisflokkkurinn 20
miljónir króna til atvinnumála en
ekkert af þvi fé var notað eins og
til'stóð.
í máli meirihlutaflokkafulltrú-
anna við afgreiðslu fjárhags-
áætlunar kom fram að þessi
fyrsta áætlun er þeim engin óska-
áætlun, — en þeir telja aö með
henni sé stórt skref stigið til þess
að koma fjármálum borgarinnar
og rekstri á betri kjöl. —AI
Hvað verður um útideildina?
Hörð mótmæli starfsmanna
fagráða borgarinnar og borgar-
búa gegn fyrirhugaðri niður-
lagningu útideildarinnar, hafa
greinilega borið árangur þvi I
stað þess að leggja deildina
niður þegjandi og hljóðalaust
eins og sparnaðarnefnd hafði
gert tillögu um, hefur nú verið
ákveðið að kanna hvernig halda
megi starfi þessu og þjónustu
áfram eftir 1. april og er ætlað
til þess fé á gjaldaliðum „Starf-
semi fyrir unglinga" á fjár-
hagsáætlun borgarinnar.
Útideildin sem slik hefur hins
vegar aðeins fjárveitingu til
starfe til 1. april og kom fram i
máli Björgvins Guðmundssonar
og Kristjáns Benédiktssonar i
borgarstjórn,að þeir telja kostn-
að við þessa starfsemi hafa váx-
ið óeðlilega mikið að undan-
förnu, og nauðsynlegt að leita
leiða til sparnaðar i þeim efnum
og breyttrar skipuiagningar á
deildinni, sem nú heyrir undir
tvö af fagráðum borgarinn-
ar. A borgarstjórnarfundinum
voru lagðar fram mót-
mælaundirskriftir 1646 Reyk-
vikinga gegn niðurlagningu
deildarinnar. Þá átöldu borgar-
fulltrúar Sjálfstæðisflokksins
harðlega hvernig að ákvöröun
um lokun útideildar heföi verið
staðiö, — meðþvihvorkiaðhafa
samráð við starfsmenn né fag-
ráöin.
Guðrún Helgadóttir sagði aö
sams konar ræður hefðu verið
fluttar i öllum meirihlutaflokk-
unum og i öllum fagráðum
borgarinnar af þessu tilefni og
vitnaði til mótmæla félagsmála-
ráös og æskulýösráðs. Hún
sagði að starfsemi útideildar
heföi liklega verið mesta
ágreiningsefni meirihlutans I
sambandi við gerð fjárhags-
áætlunar en nú hefði náöst sam-
komulag um að leita leiða til að
halda starfinu áfram, hugsan-
lega I breyttu formi og með
meiri sparnaöi i rekstri.
Akvörðun yröi tekin fyrir 1.
april n.k. Hið sama kom fram i
máli borgarstjóra, þegar hann
mælti fyrir fjárhagsáætluninni
er hann sagði: „Verði ofaná að
halda beri starfi þessu áfram er
ætlunin aðbreyta rekstrarfyrir-
komulagi athvarfsins að Haga-
mel 19 og nota þaö i þessu
skyni”.
—AI
Og það var fellt
Eins og fram kemur hér
á síöunni urðu taisveröar
breytingar á styrkjaskrá
borgarinnar við afgreiðsiu
f járhagsáætlunar.
Albert Guðmundsson
gerði þessar breytingar að
umtalsefni í borgarstjórn
og átaldi harðlega hvernig
styrkjafénu væri varið.
Albert sagðist á borgarráös-
fundi hafa gert tillögu um að
styrkur til KFUM hækkaði úr 5 i 8
miljónir króna og nægði þannig til
greiðslu samtakanna á fasteigna-
sköttum, en húseignir KFUM eru
á mjög verömiklum lóðum i miö-
bænum og fasteignaskattar þar
háir.
„Þetta var fellt,” — sagði Al-
bert, „en þá kom forseti borgar-
stjórnar með tillögu um að veita
Aiþýðuleikhúsinu 4 miljönir
króna og það var samþykkt.”
— „Næst bar ég upp tillögu um
að hækka styrkupphæö til safnað-
sagðl Albert
Albert Guðmundsson
anna i Reykjavik, en þar fékkst
aðeins 350 þúsund. Þá kom forseti
borgarstjórnar með tillögu um
styrk til Torfusamtakanna, en
sem betur fer voru aðrir fulltrúar
meirihlutans i borgarráöi vitrari
og veittu þeirri tillögu ekki stuðn-
ing.”
— „Næst kom ég með tillögu
um 700 þúsund til Kristilegs stúd-
entafélags en það var fellt. For-
seti borgarstjórnar kom þá með
tillögu um 100 þúsund til íbúa-
samtaka vesturbæjar, en það var
fellt lika.”
— „Þá kom ég með tillögu um
aö veita Templurum 1,5 miljón
króna vegna Templarahallarinn-
ar þó Ungtemplarar hafi leigu-
tekjur af húsinu, en starfsemi
þeirra sparar borginni mikil út-
lát i félagsstarfsemi fyrir ungl-
inga. Það var fellt og þá kom för-
seti borgarstjórnar með tillögu
um 700 þúsund til Leigjendasam-
takanna og það samþykkti meiri-
hlutinn,” sagði Albert aö lokum.
— A1
Ólafur B. Thors, Birgir Isleifur Gunnarsson og Markús örn Antonsson
Sjálfstæðismenn áttu engin úrræði.
Sjálfstæðisflokkurinn í borgarstjórn:
Úrræðaleysið
er algjört
A móti auknum tekjum, á móti sparnaði,
á móti niðurskuröi, en engar tillögur
Borgarfulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins sátu hjá við afgreiðslu
fjárhagsáætlunar Reykjavikur
s.l. fimmtudagskvöld og 1 bókun
þeirra segir að þeir telji eðlilegt
að vinstri fiokkarnir einir beri
ábyrgð á áætluninni.
Þeir sinntu i málflutningi sin-
um engum skyldum góðrar
stjórnarandstöðu, — komu ekki
með neina breytingartillögu, —
bentu ekki á neitt sem betur
mætti fara, og svöruðu engu
itrekuðum spurningum um
hvernig þeir hefðu mætt fjár-
hagsvandanum og skorið niður
1100 miljónir króna til þess að
geta mætt launahækkunum á ár-
inu.
Þrátt fyrir úrræðaleysið gagn-
rýndu borgarfulltrúarnir harö-
lega allan niðurskurð á verkleg-
um framkvæmdum, sérstaklega
á gatnagerðarframkvæmdum,
sem koma mun illa niður á bygg-
ingariðnaðinum á næsta ári. Þeir
gagnrýndu einnig 850 miljón
króna sparnað i rekstri borgar-
innar og sögðu sparnaðartillög-
urnar handahófskenndar og
óraunsæjar margar hverjar.'
Þá voru þeir harðir i andstöðu
sinni gegn aukinni tekjuöflun
borgarsjóðs, en með hækkun að-
stöðugjalda og fullnýtingu
fasteignaskatta hafa tekjur
borgarinnar aukist um 1600
miljónir króna.
Dæmigerð vinstri stefna
Birgir tsl. Gunnarsson kallaði
fjárhagsáætlunina marklaust
plagg og dæmigeröa vinstri
stefnu. Hann sagði aðaleinkennin
veraskattpiningu ogútþenslu þar
sem hækkun á milli ára væri
meiri en sem nemurverðlagsþró-
uninni.
Þá sagði borgarfuiltrúinn að
fjárhagsvandinn væri óleystur í
þessari áætlun, fjarmagn vantaði
til aö standa undir væntanlegum
launahækkunum (iáætluninni eru
ætlaðar 1100 miljónir til þeirra
hluta, en voru i fyrra 341) ogtaldi
auðsætt að hinir sundurleitu
vinstriflokkar hefðu ekki náð
neinum tökum á fjármálum
borgarinnar.
Þá fjallaði Birgir um það
ákvæði i samstarfssamningi
meirihlutans, að borgaryfirvöld
skuli hafa samráö og samvinnu
við bor^srbús bísrfsfóik
borgarinnar og benti á að undan-
fariðhafa dunið yfir borgarráö og
borgarstjórn mótmæli frá vinstri
mönnum i ráðum og nefndum,
svo og ýms.u starfsfólki borgar-
innar, sem ekkert samráð hefði
veriö haft við.
Úrræðaleysi Sjálfstæðisflokks-
ins og órökstudd gagnrýni kom
mjög á óvart og i bókun
meirihlutans vegna þessarar af-
stöðu segir:
„Sjálfstæðismenn i borgar-
stjórn lögðust eindregið gegn
þeim hækkunum á tekjustofnun
borgarinnar.sem ákveönar voru i
desembermánuði og nema um
1600 miljónum króna.
Þeirra úrræði viröist þvi vera
auknar lántökur eða svo
stórfelldur niðurskurður
framkvæmda að leiða mundi til
verulegs atvinnuleysis eða
stórfellds niðurskurðar á
þjónustu.
Báðum þessum leiðum hljótum
við aðhafna. Við teljum ekki fært
að auka viö þær skuldir, sem við
tókum i arf og nema um 1000
miljónum viö erlendar lánastofn-
anir og svipaðri upphæð við
Landsbanka íslands. Þá teljum
við ekki fært að draga svo úr
framkvæmdum á vegum borgar-
innar, að stórfelldri röskun valdi
á vinnumarkaðinum og augljósu
atvinnuleysi i sumum. greinum.
Er það von okkar, að meginþorri
borgarbúa geti verið okkur sam-
mála i þessum efnum."
—AI.
Styrkja-
skráin
Nokkrar breytingar voru gerð-
ar á styrkjaskrá Reykjavikur-
borgar viö afgreiðslu fjárhags-
áætlunar i fyrrakvöld.
Meðal nýrra félagasamtaka
sem styrki hljóta að þessu sinni
eru: Myndhöggvarafélagið 1.
miljón, vegna endurbóta á
Korpúlfsstöðum, Alþýöuleikhúsið
4 miljónir, Iþróttafélag fatlaðra
500 þúsund, Tennis- og bad-
mintonfélag Reykjavikur 5.556
þúsund krónur til greiðslu gatna-
gerðargjalda, Starfsmiðstöð
safnaða i Reykjavikurprófast-
dæmi 350 þúsund, Sjálfsbjörg, fé-
iag látlabra 500 púsund, SAÁ 700
þúsund, Leigjendasamtökin 700
þúsund.
Framhald á 18. siðu