Þjóðviljinn - 17.02.1979, Qupperneq 17
Laugardagur 17. febrúar 1979 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 17
Komíð vída við
Ásta Ragnheiður
Jóhannesdóttir hefur
umsjón með þættinum
Komið víða við/ skemmti-
þætti með blönduðu efni,
sem verður á skjánum kl.
20.55 í kvöld og stendur í
hálftíma.
— Einsog nafnið bendir til verð-
um við með efni af ýmsu tagi —
sagði Asta. — Hljómsveitin
Þokkabót mun flytja þrjú lög af
nýrri plötu sem kemur út á næst-
unni og heitir í veruleik. Lögin
heita Fullorðinsleikir, Hver á
rigninguna? og Bib-blb!
sjónvarp
Viö förum lika suður i Hafnir og
tölum við önnu Vilhjálmsdóttur,
sem syngur einnig fyrir okkur
með hljómsveitinni Thaliu. 1
framhaldi af viðtalinu við önnu
fáum viö aö kynnast viðhorfum
nokkurra islenskra karlmanna til
kvenna sem hafa verið i tygjum
við hermenn á Keflavikurflug-
velli.
Þá verður rætt viö Gunnar Guð-
mundsson, sem er blindur og ein-
hentur. Gunnar er mjög músik-
alskur og mun hann leika fyrir
okkur á harmónikku lag eftir
sjálfan sig. Næst tökum við tali
útlendinga sem gerst hafa Is-
lenskir rikisborgarar og þurft að
skipta um nafn — við spyrjum þá
hvernig þeim falli þessi nafna-
breyting.
Og loks tökum við svolitiö fyrir
afstöðu Islendinga til Færeyinga.
Er þá spurt hvort fólki finnist að
við ættum að hafa meiri sam-
skipti við þessa frændþjóð okkar.
Talað er við tvær færeyskar
stúlkur sem eru hér á landi við
nám og vinnu, og að lokum fáum
við að sjá færeyskan dans.
ih
Asta R. Jóhannesdóttir kemur
vfða við i kvöld.
7.00 Veðurfregnir. Fréttir.
Tónleikar.
7.10 Leikfimi
7.20 Bæn
7.25 l.jósaskipti: Tónlistar-
þáttur.i umsjá Guðmundar
Jónssonar pianóleikara.
(endurtekinn frá sunnu-
dagsmorgni).
8.00 Fréttir. Tónleikar. 8.15
Veðurfr. Forustugr. dagbl.
(útdr.) Dagskrá.
8.35 Morgunþulur kynnir
Ýmis lög að eigin vali
9.00 Fréttir. Tilkynningar.
Tónleikar.
9.20 Leikfimi
9.30 Oskalög sjúklinga:
Kristin Sveinbjörnsdóttir
kynnir. (10.00 Fréttir. 10.10
Veðurfregnir).
11.20 Að leika og lesa: Val-
gerður Jónsdóttir aðstoðar
hóp barna úr Snælandsskóla
i Kópavogi við að gera dag-
skrá.
12.00 Veðurfregnir. Fréttir.
Tilkynningar Tónleikar.
13.30 i vikulokinBlandað efni i
samantekt Ólafs Geirs-
sonar, Jóns Björgvinssonar,
Eddu Andrésdóttur og Arna
Johnsens.
15.30 Tónleikar
15.40 islenskt mál Guörún
Kvaran cand. mag. flytur
þáttinn.
15.00 Fréttir
16.30 íþróttir. Umsjónar-
maður Bjarni Felixson.
18.30 Flóttamaður hverfur.
Sænskur myndaflokkur I
fjórum þáttum eftir Ulf
Nilsson. Annar þáttur.
Grunsamlegur náungi. Þýð-
andi Hallveig Thorlacius.
(Nordvision — Sænska sjón-
varpið)
18.55 Esnka knattspyrnan
Hlé
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.30 Stúlka á réttri leið.
Bandariskur gamanmynda-
flokkur. Mary tekur barn I
fóstur. Þýðandi Ellert
Sigurbjörnsson.
20.55 Komiö vlöa við. Þáttur
með blönduðu efni. Kynnir
Asta R. Jóhannesdóttir.
16.15 Veðurfregnir
16.20 Vinsælustu popplögin
Vignir Sveinsson kynnir.
17.00 Söngleikir i Lundúnum,
III. þáttur Arni Blandon
kynnir söngleikina ,,Ipi
Ponpi'' og ,,A Chorus Line".
17.55 Söngvar i léttum dúr.
Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins
19.00 Iréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 „Góði dátinn Svejk"
Saga eftir Jaroslav Hasek i
þýðingu Karls Isfelds. Gisli
Halldórsson leikari byrjar
lesturinn.
20.00 liljómplöturabb Þor-
steinn Hannesson kynnir
sönglög og söngvara.
20.45 Ferðaþættir frá Verma-
landi, fyrri hluti Sigurður
Gunnarsson segir frá.
21.20 Gleðistund Umsjónar-
menn: Guðni Einarsson og
Sam Daniel Glad.
22.05 Kvöldsagan: ..Klukkan
var eitt”, samtöl við Ólaf
Friðriksson Haraldur
Jóhannesson skráði og les
ásamt Þorsteini ö. Step-
hensen (2).
22.30 Veðurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins.
I.estur Passiusálma (6).
22.50 Danslög. (23.50 Fréttir).
01.00 Dagskrárlok.
Stjórn upptöku Tage
Ammendrup.
21.25 Skonrok(k). Þorgeir Ast-
valdsson kynnir erlenda
dægurtónlist.
21.55 Háskagripur i hiallni.
(Heller in Tight Pants)
Gamansamur, bandariskur
„vestri” frá árinu 1960.
Leikstjóri George Cukor.
Aðalhlutverk Sophia Loren
og Anthony Quinn. Farand-
leikflokkur heldur sýningar
> f villta vestrinu og kemur til
borgarinnar Cheyenne.
Aðalleikkonan, Angela, er
mesta eyðslukló. Hún tekur
þátt í fjárhættuspili og
missir allt sem hún á og
rúmlega það. Þýöandi Dóra
Hafsteinsdóttir.
23.30 Dagskrárlok.
Góði dátinn Svejk
t kvöld kl. 19.35 byrjar Gisli
Halidórsson leikari lestur sög-
unnar Góði dátinn Svejk eftir
Jaroslab Hasek, í þiöingu Karls
lsfelds.
Sagan um Svejk, góða dátann '
sem þóttist vera einfeldningur til
aö bjarga sér úr hinum aðskiljan-
legustu klipum, er frægasta verk
Haseks og löngu komið i tölu
sigildra bókmennta. Bókin kom
út árið 1921, aöeins tveimur árum
áður en Hasek lést, en hann var
fæddur 1883.
Góði dátinn Svejk er heiftarleg
ádeila á strið og hermennsku, en
ádeilan er fram borin I mjög
skemmtilegu formi. Sagan
hefur verið þýdd á ótal tungumál
og gerðar kvikmyndir eftir henni.
ih
Gisli Halldórsson les um góða
dátann Svejk I útvarpið i dag.
Rannsóknar-
blaðamennskan
heldur áfram
Á morgun, sunnudag,
kl. 19.25 verður fluttur i
útvarpið 2. þáttur
framhaldsleikritsins
,,Svartur markaður”
eftir Gunnar Gunnars-
son og Þráin Bertels-
son. Nefnist hann ,,Það
höfðingjarnir hafast
að....” Með helstu hlut-
verkin fara Kristin Á.
Ólafsdóttir, Erlingur
Gíslason, Gisli
Halldórsson, Sigurður
Skúlason og Klemenz
Jónsson. Leikstjóri er
Þráinn Bertelsson.
I fyrsta þætti gerist það helst
að beinagrind finnst 1 Fossvogi.
Lausleg rannsókn leiðir I ljós,
að beinin hafa legið I jörð i 3(M0
ár og að þau eru af karlmanni.
Averkar gætu bent til þess að
hann hefði verið myrtur. Hjá
beinagrindinni finnst lykla-
hringur með þremur lyklum á
og sigarettuveski meö útfllúri,
en ekki aörir munir. Olga
Guðmundsdóttir og Gestur
Oddleifsson, blaðamenn á
„Kvöldblaðinu” fá áhuga á
málinu, en ekki virðast allir
vera hrifnir af þeirri hnýsni, þvi
að eitt kvöldið fær Olga
upphringingu. Maðurinn i sim-
anum segir djúpri og drauga-
legri röddu: „Látnir eiga að fá
að hvila i friöi”.
1 2. þættinum heldur rannsókn
málsins áfram. Olga og
Gestur fara aö athuga, hvaða
menn hafi horfið sporlaust á
þeim tima, sem um ræöir, þ.e. á
striðsá runum. Vilhjálmur
Freyr, sambýlismaður Olgu
tekur aö fá áhuga fyrir rann-
sókninni, sem nú beinist að þvl
að ræða við ýmsa menn, er eitt-
hvað kynnu að vita og gætu
varpaö nýju ljósi á málið.
PÉTUR OG VÉLMENNIÐ
Eftir Kjartan Arnórsson
HtUN HflFPl flLLTfíF tf> Si'UÐ f
5&&N on py/cW.A/ F5 'JökVFSINS
IíiRUéO 3öK ULS/A'S - öv/NiftvilR ooR^
Si&RflPlfc-HeP Npa ENbhVM vfl-xuR-
ÞEOpfí AOPipviq. urppisr un-
• o& HéR. v/)R jCALf-þglR HÖFí>í
flpRei kvpihst KVLPft r Htwn hl</h
-M VMfJ ftlMFALPLFG-fl PEST flfl HEIfih.
Umsjón: Helgi Olafsson
Larsen
í formi
Bent Larsen gerði góða ferö til
Kaupmannahafnar um daginn
þegar hann tók þátt I Skákþingi
Kaupmannahafnar ásamt 11
öðrum keppendum.Larsen hlaut
8 vinninga, en i 2-3 sæti komu
Westerinen (Finnlandi) og Hoi
frá Danmörku, báðir með 7 1/2
v. Westerinen var einn efstur
fyrir siöustu umferð, en þofdi
ekki spennuna og tapaði fyrir
Mihalichin frá Sovétrikjunum. I
4. sæti kom svo Daninn Iskov
með 7 vinninga. Larsen sem
hefur búsetu á Kanarieyjum til
að flýja skattana tók með sér
heim 10.000 danskar krónur I 1.
verölaun. Þó er aldrei að vita
nema hann hafi haft viðdvöl i
Kaupmannahöfn, þvi þar býr
eiginkonan ennþá, enda hefur
hún engra hagsmuna að gáeta á
Kanarieyjum. Þess fná einnig
geta að Larsen hefur fyrír:
nokkrugert hagstætt samkomu-
lag við danska ferðaskrifstofu,
sem lét honum i té farmiöa i
massavis. ^
Nú eru svæðamótlfi” úndir
næstu umferð heimsmeistara.-'
keppninnar mikið i sviðsljósinu..
I Hollandi tryggðu þeir fi§iifcs?ög
Timman sér þátttökurétt rmilli-
svæðamóti og nú nýveriö'lauk
svæðamótinu i Vars.já en þar
var keppt um hyorki fleiri né
færri en 5 sæti I millisvæðamóti.
Þeir sem komust áfram voru
Ribli, Sax og Adorjan, allir frá
Ungverjalandi, svo og Gheorgr,
hiu og Smejkal frá Rúriíeniu.jog
Tékkóslóvakiu. -
Sænski stórmeistarihjvjiif
Anderson hefur gengið Der-
serksgang á sMkmótum
vetrarins. Má-þar nefna sigra á
sterkum mótum i Buenos Aires;
Hastings, frábæra frammistöðu
á Olympiumótinu og 2. Sætið á
Wijk Aan Zee mótinu I Hollandi
sem nú er nýlokiö. Er örugglega
ekki langt 1 aö Sviar fari að
kalla hann Ingemar Stenmark
skákarinnar. Það fer vel á þvi
að enda þáttinn með ,,ekta”
Anderson-skák,en hún var tefld
á nýársmótinu i Hastings. And-
stæðingur hans er fyrrum
Evrópumeistari unglinga:
Hvitt: Taulbaut (England)
Svart: Anderson (Sviþjóð)
Sikileyjarvörn
l.e4 c5 2. Rf3 d6 3. Bb5+ Bd7
4. Bxd7+ Dxd7 5. 0-0 e6
6. c3 Rf6 7. e5 dxe5 8. Rxe5 Dd5
9.Da4 + Rbd7 10.(14 ati 11. Bf4 b5
12. Ddi exd4 13. cxd4 Bb4 14. a3
Ba5 15. Rf3 Hc8 16. a4 Bb4 17.
axb5 axb5 18. Ra3 Bxa3 19. Hxa3
Hfal Hxa5 23. Hxa5 Rd5 24. Ha3
Dc4 25. h3 b4 26. Ha7 R7f6 27.
Be5 Re4 28. Del Dc2 29. Hal Hc8
30. Hdl b3 31. Rd2 Rxd2 32. Hxd2
Dcl 33. Kfl Dc4+ 34. Kgl h6 35.
h4 Dci 36. Kfl Dc4+ 37. Kgl Da6
38. Ddl f6 39. Bg3 Dc4 40. Hd3
Dc2 41. Df3 Dbl+ 42. Kh2 Hcl 43.
Bb8 Hhi+ 44. Kg3 Re7
- Hvitur gafst upp. _