Þjóðviljinn - 25.03.1979, Síða 5
Fasteignamat og brunabótamat:
Sunnudagur 25. mars 1979. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5
Hvað er eðlilegur munur?
Landsbankahúsið við Austur-
stræti er eitt þeirra húsa, sem
Reykjavikurborg hefur kært fast-
eignamat á, þar sem tæplega 1,5
miljarði munar á brunabútamati
hússins og fasteignamati. Aður
hefur verið skýrt frá þvi hér i
blaðinu að á Loftleiðahótelinu
munar riflega 4 miljörðum og á
llamragörðum Sambandsins 3
miljörðum króna.
Samanlagt fasteignamat
Landsbankanser 252 miljónir,917
þúsund krónur, en brunabóta-
matiðer 1727 miijónir 293 þúsund.
Mismunurinn er 1 miljarður 474
miljónir króna.
Kunnáttumenn i þessum efnum
Ari Guðmundsson:
Brunabóta-
matið er
raunhæft
Sést best þegar
tjónin eru gerð upp
,,B runa bót a m at ið hækkar
áriega i samræmi við hækkanir
byggingavisitölu og er einnig
endurskoðað að ósk eigenda eða
með allsherjarendurskoðun, sem
siðast fór fram 1974,” sagði Ari
Guðmundsson, yfirmaöur Húsa-
trygginga Reykjavikur, þegar
Þjóðviljinn leitaði I gær svara hjá
honum um hinn mikla mun á
brunabótamati og fasteignamati
sem er á atvinnuhúsnæði I borg-
inni.
Brunabótamatiö er framkvæmt
af dómkvöddum matsmönnum og
á aö miðast við endurbyggingar-
kostnað, þ.e. þaö á að vera hægt
að byggja húsiö upp fyrir
tryggingafjárhæöina.
— Er brunabótamatiö of hátt?
Viö höfum ekki oröiö varir viö
neinar kvartanir undan þvi þau 33
ár sem ég hef starfaö hér, sagöi
Ari. Þaö er frekar aö mönnum
finnist þaö of lágt og biöji um
endurmat þess vegna, og eins ef
byggt er viö eða bætt. Menn vilja
eölilega hafa húsið sitt vel tryggt
og ég tel aö þaö sé ósanngjarnt aö
halda þvi fram aö brunabóta-
matiö sé of hátt. Þaö sést best
þegar viö erum aö gera upp
tjónin, sem skipta hundruöum á
ári, hvaö þaö kostar fólk aö gera
viö eftir bruna. 1 þeim tilfellum
hefur þaö sýnt sig aö brunabóta-
matiöerraunhæftogég hef aldrei
fengiö kvörtun um aö þaö sé of
hátt.
— Hvers vegna fer ekki fram
nýtt fasteignamat um leiö og nýtt
mat fer fram vegna smiöaloka
eöa viöbyggingar?
Þessar stofnanir starfaeftir sitt
hvorum lögunum og eru óháöar
hvor annarri. Þaö mætti sjálfsagt
koma þvi viö meö laga-
breytingum ef menn vildu.
— Telur þú mun upp á 3 og 4
miljaröa eölilegan á þessum
mötum eins og er meö húseignir
Sambandsins f Holtagöröum og
Loftleiöahóteliö?
Þaö er erfitt aö segja til um
hvaöa hlutföll eiga aö vera þarna
á milli og viö höfúm ekkert sllkt
aö miöa viö. Fasteingamatiö á
Holtagöröunum er hins vegar
ekki eölilegt. Þaö viröist sem ekki
sé búiö aö taka alla eignina i mat,
heldur aöeins hluta hennar og
kann þar aö vera skýringin. Skv.
brunabðtamati frá 1977 er eignin
sem er ein sú stærsta i Reykjavik
186.000 rúmmetrar. Þetta er
ákaflega óeðlilegt.
— Hvaö þá meö Loftleiöa-
hóteliö, þar sem munar riflega 4
miljöröum?
Þar er stæröin sú sama, þannig
aö matsmenn Brunabótamats og
Fasteignamats hafa litiö sitt
hvorum augum á verömætin.
—AI
telja aö brunabótamat sé undir
eölilegum kringumstæöúm um
15% hærra en fasteignamat, ogsú
mun raunin á um ibúöarhúsnæöi i
borginni. Brunabótamatiö á aö
jafngilda endurbyggingarviröi
hússins en fasteignamatiö gang-
veröi og tekur þaö tillit til af-
skrifta og staösetningar.
Heildarbrunabótamat allra
húseigna f Reykjavik var 1.
janúar s.l. 765 miljaröar króna.
Fasteignamat rlkisins metur hús-
eignir endurstofnverös, sem
lætur nærri aö jafngilda bruna-
bótamatinu og er 715 miljaröar
króná. Frá þeirri tölu afskrifar
svo Fasteignamatiö húseignirnar
niöur I 460 miljaröa króna i fast-
eignamati, sem er gjaldstofn
fasteignaskattanna.
Þaö eru þessar miklu afskriftir
(30-40%) og úrelt mat á atvinnu-
húsnæöi og lóöum i borginni, sem
Reykjavikurborg er óánægö meö
og hefur þess vegna kært fast-
eignamat nær 300 húseigna til
hækkunar og krafist endurmats á
lóöamati.
Ibúöareigendur i Reykjavik
hafa undanfarin ár mátt sætta sig
viö 40% hækkun á fasteignamati
milli áraog greiða sina fasteigna-
skatta eftir þvi. Ibúöir eru
metnar skv. ákveönu tölvukerfi
oe bvi hægara um vik, en at-
vinnuhúsnæöiö er handmetiö og
hefur þaö veriö látiö sitja á hak-
anum sökum mannfæðar skv.
upplýsingum Þjóöviljans, enda
hefur enginn rekiö á eftir þvi
hingaö til. Fasteignamatiö er þvi
i mörgum tilfellum úrelt ogf jarri
eölilegu gangveröi eignanna.
Meöan ibúöareigendur greiöa sin
gjöld upp i topp, sleppa fyrirtæki
eins og Flugleiöir, Sambandiö,
Landsbankinn og fjöldamörg
önnur viö aö greiöa fasteigna-
skatta slna.
—AI
iðeigahlut
lí framtíð
Hlutafjárboð
Nýtækni á Islandi
Stofnun Skipafélagsins Bifrastar hf. fyrir
tveim árum markaði tímamót í sögu íslenskra
farmflutninga.
Tilgangur og markmið félagsins frá
upphafi var að efla samkeppni á sviði
samgangna, sem er í raun líftrygging frjálsrar
verslunar í landinu.
I því skyni var m.a. innleidd ný tækni í
farmflutningum sem íslendingum kafði ekki
staðið til boða áður, svonefnt RO/RO
(Roll on/Roll off.)
Augljós árangur
Þessi nýja flutningatœkni leiddi til
stóraukinnar hagkvœmni og bættrar vörumeð-
ferðar sem sýndi sig best í pví að þar sem
Bifröst hf. hefur fengið að spreyta sig hafa
farmgjöld lœkkað um 25%, en hœkkað á öðrum
siglingaleiðum um allt að 25%.
Lœkkun á farmgjö Idum kemur síðar fram í
lœkkuðu vöruverði, neytendum til góða.
Aukin umsvif og viðgangur Bifrastar hf.
er því hagsmunamál neytenda jafnt sem
farmflytjenda.
Góð aðstaða í landi
Sú hafnaraðstaða sem Bifröst hf. er búin í
Hafnarfirði er glœsileg og býður uppá nœr
ótæmandi vaxtar- og athafnamöguleika.
Þar rekur fyrirtækið sína eigin vöru-
- afgreiðslu sem staðsett er nánast við skipshlið.
Það auðveldar að sjálfsögðu alla afgreiðslu
og bœtir þjónustuna til muna.
Gagnvart landsbyggðinni stendur Bifröst
hf. einnig vel að vígi. Bifröst hf. skilar vörunni
á allar þær hafnir sem Skipaútgerð Ríkisins
og Hafskip sigla á umhverfis landið, án
aukakostnaðar.
Framundan er Eviópa
Framundan bíða mörg verkefniJ ráði erað
kaupanýtt skip og stefnaþví á Evrópuhafnir.
Á þeirri leið opnast því auknir möguleikar
á hagkvœmari vöruflutningum en til þessa.
Stöðugt verður og leitast við að fylgjast
með og kynna nýjungar á þessu sviði sem
gœtu komið viðskiptavinum jafnt sem hinum
almenna neytenda til góða á einn eða annan
hátt. Margt er sannarlega ógert ennþá.
Bréf í f ramtíð
Með hliðsjón af glœstum framtíðarhorfum
félagsins og áætluðum skipakaupum hefur
verið ákveðið að auka hlutafé félagsins.
Með kaupum á hlutabréfi íBifröst hf. gerist
þú ekki aðeins þátttakandi í uppbyggingu
félags með framtíð, heldur leggur þú þinn skerf
til frjálsrar og heilbrigðrar samkeppni á
því sviði sem reynslan hefur kennt okkur
aðhennar er mjög þörf.
Allar nánari upplýsingar
veittar á skrifstofu
Bifrastar hf.
..á hjólum yffir hafið.!
SKIPAFELAGIÐ BIFROST HF
Klapparstíg 29. Símar 29066 og 29073.