Þjóðviljinn - 04.05.1979, Qupperneq 2
2 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 3 mal 1979.
AUGLÝSING
um styrk úr Rannsóknarsjóði IBM
v/Reiknistofnunar Háskólans
Fyrirhugað er að úthlutun úr sjóðnum fari
fram i lok maimánaðar.
Tilgangur sjóðsins er að veita fjárhagsleg-
an stuðning til visindalegra rannsókna og
menntunar á sviði gagnavinnslu með raf-
reiknum.
Styrkinn má meðal annars veita:
a. til greiðslu fyrir gagnavinnslu við
Reiknistofnun Háskólans
b. til framhaldsmenntunar i gagnavinnslu
að loknu háskólaprófi
c. til vísindamanna, sem um skemmri
tima þurfa á starfsaðstoð að halda til að
geta lokið ákveðnu rannsóknarverkefni
d. til útgáfu visindalegra verka og þýðinga
þeirra á erlend mál.
Frekari upplýsingar veitir ritari sjóðsins,
Páll Jensson, i sima: 2-50-88.
Umsóknir, merktar Rannsóknarsjóður
IBM vegna Reiknistofnunar Háskólans,
skulu hafa borist fyrir 25. mai 1979, i póst-
hófl 5176, Reykjavik.
Stjórn sjóðsins.
AÐILDARFÉLÖG FARMANNA-
OG FISKIMANNASAMBANDS
ÍSLANDS
auglýsa breyttan skrifstofutima frá 1. mai
til 31. ágúst.
í sumar verða skrifstofur undirritaðra
félaga opnar frá kl. 08.00 til kl. 16.00
mánudaga til föstudaga:
Vélstjórafélag íslands
Skipstjóra- og stýrimannafélagið
Aldan -— Stýrimannafélag Islands
Skipstjórafélag Islands
Sjómannablaðið Víkingur
Rafvirkjar - Keflavík
Rafafl svf
óskar að ráða rafvirkja til starfa i Kefla-
vik.
Upplýsingar i sima 28022 og 53522
H) ÚTBOÐ ®
Tilboð óskast i ræstingu á áningarstaðn-
um á Hlemmi fyrir Strætisvagna Reykja-
vikur.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri
Frikirkjuvegi 3 Reykjavik.
Tilboðin verða opnuð á sama stað mið-
vikudaginn 16. mai nk. kl. 14 e.h.
^ INNKAUPASTOFNUN REYK3AVÍKURBORGAR Fnkirkjuvegi 3 — Sími 25800
BLAÐBERAR
ÞIÓÐVILIANS
Rukkunarheftin eru tilbúin.
Vinsamlegast sækið þau á afgreiðslu
blaðsins sem fyrst. Afgreiðslan er opin i
dag frá kl. 9—12 f.h.
Þjóðviljinn, Síðumúla 6,
Tvisýn úrslit
í Bretlandi
íhald og frjálslyndir vinna á
íhaldsblaðiö Daily Telegraph
lýsti með svofelldum hætti vonum
þeim sem breskir hægrisinnar
binda við sigur Margaret
Tatcher I kosningunum sem
fram fóru I gær:
„Þessar kosningar eru próf-
raun á þjóðareinkenni okkar. Frú
Tatcher býður upp á að við snúum
aftur til þeirra grundvallarreglna
sem eitt sinn gerðu þjóð okkar
mikla og engin þjóð getur þrifist
án: frelsi,lög og regla, refeing og
umbun, svigrúm fyrir lögmætan
metnað, allir séu sjálfbjarga og
sjálfstæðir nema hinir fátæku og
sjúku, blanda af frjálshyggju og
ihaldssemi, ættjarðarást, spar-
semi og iðjusemi endurnýjuð til-
finning fyrir von og ævintýri.”
Ef boði hennar er hafnað þá
er það þeim mun verr fyrir hana
og okkur, segir blaðið ennfremur.
thaldsfokkurinn tók aftur vin-
sældarstökk i allra siðustu
skoðanakönnunum sem birtar
voru i gær. Fór flokkurinn aftur
upp fyrir Verkamannaflokkinn i
vinsældum, en þó var óvist hvort
það nægði honum til að fá hreinan
meirihluta á þingi.
Foringi Ihaldsmanna — frú
Margrét — hefur hins vegar farið
heldur halloka i keppninni við
Callaghan um vinsældir fólksins.
Þannig sýndu skoöanakannanir i
lok kosningabaráttunnar, að hún
hafði helmingi minna peráónu-
fylgi meðal kjósenda en Callag-
han. Um 57% kjósenda kváðu
Callaghan trausts verðan, en ekki
nema 23% höfðu eftirlæti á
Thatcher. Steel, oddviti Frjáls-
lynda flokksins, var meira að
segja vinsælli en Járnfrúin, og
hafði traust um 28% kjósenda.
Talið er að þaö séu fyrst og
fremst hinir miklu persónulegu
yfirburðir þessa vinsæla leiðtoga
Verkamannaflokksins sem valda
þvi hversu saman hefur dregið
með flokkunum tveimur.
Síðustu fréttir úr kosninga-
slagnum sýna að margt getur enn
gerst óvænt. Þannig hefur Frjáls-
lyndi flokkurinn skyndilega aukið
fylgi sitt nokkuö og það rennir
gildari stoðum undir þá skoðun
margra, að hvorugur stóru flokk-
ABURÐARVERKSMIÐJA
RtKISINS
AUGLÝSING
UM ÁBURÐARVERÐ 1979
Heildsöluverð fyrir hverja smálest eftir-
taiinna áburðartegunda er ákveðið þannig
fyrir árið 1979:
Viö skipshiiö á
ýmsum höfnum Afgreitt á bíla
umhverfis land: I Gufunesi:
Kjarni 33%N kr. 74.500 kr. 75.900
Magni 1 26%N kr. 61.300 kr. 62.700
Magni 2 20%N kr. 53.200 kr. 54.600
Græðir 114-18-18 kr. 90.900 kr. 92.300
Græðir la 12-19-19 kr. 89.300 kr. 90.700
Græðir 2 23-11-11 kr. 84.700 kr. 86.100
Græðir 3 20-14-14 kr 86.200 kr. 87.600
Græðir 4 23-14-9 kr. 88.500 kr. 89.900
Græðir 4 23-14-9+2 kr. 90.900 kr. 92.300
Græðir 5 17-17-17 kr. 87.600 kr. 89.000
Græðir 6 20-10-10+14 kr. 83.300 kr. 84.700
Græðir 7 20-12-8+14 kr. 85.100 kr. 86.500
N.P. 26-14 kr 87.200 kr. 88.600
N.P. 23-23 kr. 97.800 kr. 99.200
Þrifosfat 45% P2O5 kr. 76.000 kr. 77.400
Kaliktórfð 60% K20 kr. 52.700 kr. 54.100
Kallsúlfat 50% K20 kn 65.200 kr. 66.600
Uppskipunar- og 1 afhendingargjald er ekki
innifalið í ofangreindu verði fyrir áburð kom-
inn á ýmsar hafnir. Uppskipunar- og af-
hendingargjald er hinsvegar innifalið í ofan-
greindu verði fyrir áburð sem afgreiddur er á
bíla í Gufunesi.
ÁBURÐARVERKSMIÐJA RÍKISINS
Ætli Magga verði borubrött i
kvöld?
anna tveggja fái hreinan meiri-
hluta heldur verði stjórnin að
treysta á stuðning smærri flokka
og þá verður að likindum biðlað
heitast til fjrálslyndra.
I gær var fremur vont veður
víða á Bretlandi en þrátt fyrir það
flykktist fólk á kjörstað.. Kjör-
sókn mun þvi aö öllum likindum
verða fremur góð en það er talið
hagstætt fyrir Verkamannaflokk-
inn.
Þrátt fyrir öll stóru orðin sem
féllu á báða bóga er næsta vist, að
fhaldsflokkurinn myndi vart hafa
önnur úrræði á takteinum gagn-
vart efnahagsvandanum en þau
sem Callaghan stærir sig af að
hafa beitt með góöum árangri. En
þrátt fyrir að honum og flokki
hans hafi tekist að minnka verð-
bólguna verulega þá er hitt eigi
að siður staðreynd að á valdatima
hans hefur þeim fjölgaö sem búa
við eða undir svo kölluðum
fátækramörkum. Að sama skapi
hefur hinum auðugu safnast enn
meiri auður. Það er þvi kald-
hæönislegt en samt ekki fjarri
sanni þegar margir vonsviknir
bretar segja að það skipti litlu
máli fyrir hina snauðu i hvaða
höndum stjórnartaumarnir leika
á næstu árum. Það halli undan
fæti, hvort sem er á vinstri hliö
eða hægri... áb/ös
Úr
þjóðar-
djúpinu
Eplavíns-
bruggarinn
Það er kunnara en frá þurfi að
segja, að erlendir blaðamenn
geta sjaldnast farið rétt með
staðreyndir um land vort og lýð,
þó þeir þvælist hér fyrir hunda
fótum og manna svo vikum
skiptir. Einn slikur danskur
dandalaðist um landið i sumar og
njörvaði svo niður langhund i
blað sitt, þar sem ekki var allt i
samræmi við veruleikann. Þann-
ig erum við islenskir sósialistar
sárreiðir yfir þeirri útreið sem
Svavar okkar Gestsson fékk hjá
danskinum, sem útblés hann sem
einn mesta eplavinsbruggara
landsins. Auðvitað er þetta lygi
eins og Svavar hefur réttilega
skýrt frá á rikisstjórnarfundi.
Hann hefur aldrei bruggað epla-
vin. A hinn bóginn krækti öngull
það uppúr manni sem býr á
Holtsgötunni að fáir lumuðu á
jafn góðri hvitvinsuppskrift og
ráðherrann...
Kókakóla
í sjónvarpinu
Það vakti nokkra undrun
þeirra, sem börðu augum sjón-
varpsþátt með „HLH-flokknum”
(Halli, Laddi og Björgvin
Halldórsson) nýlega, að i bak-
sviði leikmyndar trónaði heljar-
stórkókflaska. Þótti mönnum
með óllkindum að svo auðsæ aug-
lýsing skyldi hafa villst inn á um-
ráðasvæði hinnar sómakæru LSD
sjónvarpsins. Raddir úr þjóðar-
djúpinu fullyrða, að þeir félagar
hafi fengið litlar þrjár miljónir
fyrir snúðinn. Skömmu eftir sjón-
varpsþáttinn var breiðskifa HLH-
flokksins send á markað — og viti
menn — á plötuumslaginu er
stærðar auglýsing frá Coca Cola.
Er þetta hægt, Jón....?
Fréttaritarinn
í Mílanó
Þjóðviljinn hefur undanfarið
flutt ýtarlegar fréttir af átökum
forystunnar i Sjálfstæðisflokkn-
um og ekki dregið undan furðu
styrka stöðu Alberts Guðmunds-
sonar i reiptoginu um formanns-
sætið. Þetta hafa ýmsir fjand-
menn Alberts túlkað sem stuðn-
ing blaðsins við hann, og úr grein
eftir Matthlas Bjarnason mátti
lesa að I rauninni væru' það
kommúnistar sem stæðu á bak
við framboð Alberts!
Þvi miður er taumhaldið á Al-
bert ekki svo gott, en hitt er rétt
að samband hans við blaðið hefur
ætið verið með ágætum. Hann var
ásamt Frimanni heitnum Helga-
syni, fyrrverandi iþróttaritstjóra
blaðsins, einn af „drengjunum
hans _Friðriks” sem spörkuðu
saman'bolta i Val, og milli þeirra
tveggja var ætið góð vinátta.
Þegar Albert var I atvinnu-
mennsku á italiu með Milanólið-
inu skrifuðust þeir félagar á og
Frlmann birti stundum Iþrótta-
kafla úr bréfum Alberts I blaðinu.
Það er þvi ekki furða þó blaðið sé
fremur hallt undir Albert i for-
mannsátökunum, þar sem hann
er eiginlega fyrrverandi fréttarit-
ari Þjóðviljans i Milanó...
á