Þjóðviljinn - 06.05.1979, Síða 2
2 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 6. mal 1979.
1
T ■'Y'-
| y&ik. 1
11 [| %|
^ .JL. 'JLt.
Tom Robinson Band er
ein af f jölmörgum bresk-
um nýbylgjuhljómsveit-
um sem komu fram á
sjónarsviðið við síðustu
poppsprengingu í Bret-
landi.
Ásamt Elvis Costello,
Graham Parker & The
Rumour, lan Dury & The
Blockheads pg ýmsum
fleirum er Tom Robinson
Band meðal höfuðpostula
nýju bylgjunnar. Með
nýjustu afurðinni, Tom
Robinson Band Two sem
út kom fyrir nokkru, hafa
þeir sannað stöðu sína
enn frekar.
Misjafnir dómar
TRB Two hefur reyndar feng-
iö æði misjafna dóma breskra
gagnrýnenda. Hafa þeir flestir
keppst um að rifa hana niður á
allan hátt, þó hafa einstakir
gagnrýnendur gefið henni sann-
gjarna dóma. Það sem T.R.B.
Two er helst fundið til foráttu er
að platan þykir ófrumleg,
textarnir of pólitiskir, söngur-
inn lélegur og þar fram eftir
götunum.
Tom Robinson, bassaleikari,
lagasmiður, textahöfundur og
höfuðpaur hljómsveitarinnar,
er einn helsti forsvarsmaður
kynvillinga i Bretlandi. Jafn-
framt því er hljómsveitin ein
þeirra sem standa að hreyfing-
unni „Rokk gegn kynþáttamis-
rétti”. Þetta eitt sér er nægjan-
leg ástæða fyrir ýmsa af eldri og
ihaldsamari skólanum til að
veitast harkalega að öllu sem
frá T.B.R. kemur.
Grá Cortina
Tom Robinson er aö mörgu
leyti dæmigeröur Breti af al-
þýöuætt. Draumar hans snúast
um • veraldleg gæði aö vissu
marki, en jöfnuður og réttlæti er
honum þó efst I huga. Þetta
sýna lögin og textarnir á fyrstu
plötunni glöggt. 1 lögum eins og
2, 4, 6, 8, — Motorway sem gerði
hann frægan og Grey Cqrtina,
útlistar hann dæmigerða
drauma breskra pilta, um að
bruna á eigin ökutæki frjálsir og
óháðir um þjóðvegina. Draum-
ínn um að eignast sjálfur gráa
Cortinu. Eftir frægðina og
tekjurnar sem af henni leiddi
hefur Tom Robinson reyndar
keypt sér gráa Cortinu, sem
hann ekur um á. En býr samt
ennþá i leiguibúð i miðri Lon-
don, þó hann gæti vel veitt sér
meiri munað.
Taktu afstöðu
Hann syngur ótrauður „Sing
if your glad to be gay”:
„Syngdu ef þú gleðst yfir að
vera hýr” og fær alla til að
syngja með sér á tónleikum,
sama hvaða skoðun áhorfendur
hafa á málefninu.
Hann kemur hita i fólk á tón-
leikum og hrifur það með. Fær
það til að taka afstöðu, eins og i
laginu „Better decide what side
your on” eöa „Ain’t gonna take
it; Up against the wall” og
„Power in the darkness” af
fyrstu plötunni; 1 þessum lögum
kemur glöggt fram pólitisk vit-
und Tom Robinsons. Hann er
ásamtsvo mörgum öðrum utan-
garðsmaður, en hann tekur
opinbera afstöðu til mála og
geldur fyrir þaö á ýmsan hátt.
Um nýju plötuna sina sagði
hann I viötali við blaðamann
breska tónlistarblaðsins Melody
Maker:
„Við áttum i miklum erfiðleik-
um að koma plötunni út. Vanda-
mál sem ég get ekki talað um.
Vandamál sem viö höfum aldrei
átt við að striða hvorki með
,Glad to be gay” eða „Power in
the darkness”, en með vissum
undanslætti, með þvi. að undir-
rita viss skjöl...”.
Tom Robinson kom fram á baráttuhátlð kynvilltra f febrúar fyrir
rúmu ári . Mark Ambler fyrrum hljómborðsleikari TRB leikur á
bassann, Tom syngur og Danny Kustow leikurá kassagftar. Myndin
er tekin á Trafalgar Square f London
Taktu
afstöðu
Bim. — Var það trygging um
skaðabætur?
Tom: „Já, en ég vil ekki fara
nánar úti þá sálma. Staðfesta
okkar að halda okkur við grund-
vallaratriði, að halda okkur við
það sem við trúum á, hefur að
ýmsu leyti styrkst, þar sem við
þurfum ekki að svelta lengur.
Viö þénum vel fyrir okkar lifi-
brauöi...”. „Nú þurfum við ekki
að sætta okkur við aðrar mála-
miðlanir en henta okkur, þvi að
við búum við fullkomin þægindi,
þakka þér fyrir”.
„Ég get borgað leiguna mina.
Ég á Cortinuna mina. Ég get
greitt fyrir matinn minn. Og
hlutirnir ganga vel. Ég hef
meira að segja efni á að hjálpa
fólki og málefnum sem ég trúi
Boðið til Kúbu
9
Tom Robinson er baráttu-
maður. Allt sem hann kemur
nálægt er I nánu samhengi við
pólitik. „Pólitik er ekki aðeins
útvarpsumræður stjórnmála-,
flokka og almennar kosningar.
Pólitik er þegar systir þin fær
ekki fóstureyðingu, þegar besti
vinur þinn er settur inn fyrir að
eiga eina marijúanasigarettu..,
pólitik er hið daglega lif rokkað-
dáandans, hið daglega lif allra
þeirra sem hafa ekki vellaunað
starf eða eiga ekki rika for-
eldrai’.
Tom Robinson hefur tekist að
vekja verulega athygli á málefn-
um vinstrimanna og allra utan-
garðsmanna. Tom Robinson
FlfSIGRARIM
vakti m.a. athygli ekki ómerk-
ari manns en Fidel Castró. Bauð
Castró Tom til Kúbu til hljóm-
leikahalds og spjalls um pólitfk.
Tom afþakkaði hins vegar boðiö
af pólitiskum ástæðum.
TBR 2
TRB Two er ekki aðeins nafnið
á nýjustu hljómpiötunni, heldur
gengur hljómsveitin einnig und-
irþessu nafni, óformlega þó. Er
það vegna þess að tveir af upp-
haflegu liðsmönnunum TRB 1
eru ekki með á nýjustu plötunni.
Eru það þeir Mark Ambler
hljómborðsleikari og „Dolphin”
Taylor trommari sem yfirgaf
hljómsveitina rétt áður en
hljóðritanir TRB Two hófust.
Þeir Danny Kustow gitarleik-
ari og Tom héldu ótrauðir
áfram ásamt hljómborðs-
leikaranum Ian Parker, sem
verið hafði i hljómsveitinni um
nokkurt skeið. Sér til aðstoðar
fengu þeir Preston Hyman
trommuleikara Kate Buch
Band, tveimur dögum áður en
upptökur hófust. Preston þessi
Hyman ætti að vera einhverjum
tslendingum kunnur, þvi hann
er einmitt sá sami og kom með
Jakobi Magnússyni hingað til
lands fyrir nokkrum árum.
Störfuðu þeir saman i „White
Bachman Trio” og Stuðmönn-
um á hringferð þeirra um land-
ið. Einnig lék Preston með
Kobba i nokkrum lögum á plöt-
unni „Horft i roðann”.
Svona skipuð tók hljómsveitin
plötuna upp á mjög skömmum
tima undir stjórn Todd Rund-
gren (producer Meatloaf ofl.).
Misrétti
Sem fýrr er umfjöllunarefni
Tom Robinson Band misrétti af
ýmsu tagi. Lögin eru létt rokk
eins og það gerist best. Það
bregöur ekki fyrir mörgum nýj-
Grá Cortina og Fender bassi.
Þessir tveir hlutir eru nokkuð
einkennandi fyrir Tom Robin-
um brögðum. Maður þekkir
þessa tónlist strax. Spila-
mennskan er örugg og vönduð
eins og við var að búast og allt
pottþétt. Hvergi veikan hlekk að
finna.
Það eru hins vegar textarnir og
innihald þeirra sem lyfta TRB
Two upp fyrir meðalmennsk-
una. Eru þeir vel samansettir I
flestum tilfellum og er gengið
beint að efninu. Hins vegar er
mikill galli við plötuna að ekki
skuli fylgja textablað.
Þó gefa nöfn laganna nokkuð
til kynna hvert innihald þeirra
er. „Why should I mind”, Black
angel”, „Let my people be”,
„Blue murder”, „Hold out”.
Þessi nöfn fela ýmislegt I sér.
Og á umslaginu gefur að finna
tilvitnun fyrir neðan nafn hvers
lags sem veitir lykilinn að inni-
haldi textans.
Kúgun
1 laginu Black angel fjallar
hann til dæmis um töffarann i
skólanum sem allt getur og er
þvi fyrirmynd krakkanna. En
svo bregsthann algerlega þegar
hann verður ástfanginn af
svartri stúlku.
„Steve was a rebel and a
boozer
The Ace King of teenage cool
He was a cleancut calculating
cruiser
Broke the heart of every kid
in school
I never had him figured for a
looser
Till the morning no one could
foresee
He fell in love with a sweet
black angel..”
Og I laginu Blue Murder fjall-
ar hann um ungan svartan
strák, Liddle Towers, sem lenti i
höndum lögreglunnar eftir aö*
fengið sér nokkra bjóra. Þegar
hann var handjárnaður reyndi
hann að rifa dálitiö kjaft með
þeim afleiðingum að lögreglan
barði hann hressilega og stakk
honum sfðan inn. Þrátt fyrir
neyðaróp úr klefa sinum um
nóttina var honum ekki komið
til hjálpar. Þá nótt dó hann af
völdum barsmiðanna. Að sjálf-
sögöu neituðu lögregluþjónarnir
að hafa gert nokkurn hlut eöa
heyrt hrópin.
„So if you figure on staying
alive
button your lips and just
swallow your pride
Don’t make trouble when your
hands are tied
Liddle died”.
Þetta eru aðeins tvö sýnis-
horn sem segja ekki mikið. Tom
Robinson kemur víða við i um-
fjöllun sinniy en fyrst og fremst
tekur hann afstöðu með ýmsum
minnihlutahópum, sem eiga um
sárt að binda.
Þaö er ekki hægt að neita þvi
sem breskir gagnrýnendur
benda á, að Tom Robinson hefur
ekki mikla söngrödd, og ekki er
hann mjög frumlegur lagasmið-
ur. En Tom er likt og Dylan,
Jagger o.fl. söngvari tilfinning-
ar og meiningar. Hann gefur
tónlist sinni athyglisverðan blæ
með beitingu raddarinnar. Og
fyrir bragðið verður mikilvægi
textanna áhrifameira.
—jg
Neyslupunktar
Það má með sanni segja að
hiti hafi verið farinn að færast i
koshingabaráttuna i Bretlandi
rétt fyrir kosningarnar. Breski
Verkamannaflokkurinn barðist
á öllum vigstöðvum harðri bar-
áttu um að halda stjórnartaum-
unum. Auglýstu þeir m.a. heil-
siðu auglýsingu i breska popp-
blaðinu New Musical Express. í
auglýsingunni strið „Don’t just
rock aj»ainst racism. Vote agai-
nst it. Vote Labour”. Sem gæti
útlagst á fslensku: „Ekki er nóg
að rokka gegn kynþáttamisrétti.
Kjósiö gegn þvi. Kjósið Verka-
mannaflokkinn.” Og ekki er öll
sagan sögð enn.
Kvikmynd um ævi og störf
Reggae-skáldsins og baráttu-
mannsins,Linton Kwesi Johnson
sem sagt hefur verið frá hér á
siðunni, átti að taka til sýningar
i þættinum Omnibus i BBC um
miþjan apríl. En ráðamenn
sjónvarpsins „ritskoðuðu”
myndina og komust að þeirri
niðúrstöðú að hún „hæfði ekki til
sýningar svona rétt fyrir kosn-
ingar”. En það væri allt i lagi að
sýnp hana eftir kosningarnar.
Astæðan er sú, að Linton
Kwpsi Johnson segir nokkur vel
valjn orð um afstööu Ihalds-
flokksins og Margareth Tatcher
til kynþáttamisréttis og innflytj-
endú i Bretlandi.
Dagskrárstjórinn Franco
Rosso brást ókvæða við þegar
tekíð var svona fram fyrir hend-
urnar á honum og sagði: „Núna
rétt fyrir kosningarnar er ein-
mitt rétti timinn fyrir fólk að
hugleiða kynþáttavandamálið
og pólitik. Það ætti ekki að sópa
þessum málum undir teppið.”
' I ~jg
Umsjón: Jónatan Garðarsson