Þjóðviljinn - 06.05.1979, Blaðsíða 5
Sunnudagur 6. mal 1979. ÞJÓDVILJINN — SIÐA 5
Verði ljós!
100 ár frá því Edison „stal”
hugmyndinni að Ijösaperunni
Fyrir nákvæmlega lOOárum sat
Thomas Alva Edison upp-
finningamaður og fletti i bandar-
iska visindaritinu „Scientific
American”. Skyndilega tók
hjarta hans að slá hraðar. 1 blað-
inu var löng grein um Englend-
ing, Joseph Swan, sem tekist
hafði að smíða rafmagnsglóðar-
lampa, sem byggðist á kolarþráð-
um. Þetta var uppfinningin sem
Edison hafði margreynt að koma
i höfn, en án árangurs.
Rafmagnsglóðarlampinn, sem
gengur undir nafninu ljósapera
nú á dögum, var gamall draumur
Edisons, Flestar tilraunir hans
höfðu þó misheppnast, glóðin log-
aði illa á kolþráðununi og ljósið
var alltof veikt. Joseph Swan
hafði hins vegar komist að þvi,
gegnum Þjóðverjann Sprengel,
að ef maður pumpaði allt loft út
úr glerinu og kveikti á kolþráð-
unum rétt áður en lofttæming
perunnar hætti, eyddust siðustu
leifar lofttegundanna og þræð-
irnir brunnu mun betur.
Að visu voru hvorki Edison né
Swan fyrstir að fá hugdettuna um
ljósaperuna. Menn sem Moses
Farmer, Hiram Maxim, Albon
Man og fleiri voru búnir að
þreifa fyrir sér i þessum efnum
löngu fyrr, en Swan komst að
lokalausninni. Og Edison beið
ekki boðanna, „stal” hugmynd-
inni og fullkomnaði hana. M.a.
fann upp kerfi sem gerði það
kleift að margar miljónir pera
loguðu samtimis.
Edison sótti um einkaleyfi i
Bretlandi, en var ekki veitt leyfi.
Þar höfðu menn frétt um Swan.
Edison var ekki af baki dottinn,
enda jafn mikill peningamaður
sem uppfinningamaður. Hann
stofnaði ljósaperuverksmiðju
ásamt Swan i Englandi, sem hér
Edison & Swan United Lighting
Company, sem var þekkt undir
nafninu Ediswan. Og ævintýrið
endaði velfyrirEdison: Hannvar
skráður i söguna sem faðir ljósa-
perunnar, og kannski með réttu
þar sem hann gerði hana nothæfa
fyrir miljónamarkað. En við
skulum samt ekki gleyma Sean.
Edison „stal” hugmynd Swans og
bjó til þessa Ijósaperu, sem hann
tendraði þ. 21. október 1879.
Ljósaperan hans Swan — sú
fyrsta sem brann.
Gód reynsla þeirra fjölmörgu sem auglýsa reglulega í
þjónustuauglýsingum Vísis er til vitnis um ágæti þeirra
og áhrifamátt.
LfoSmi J irslun
& &
í«w* ,r * •x iljæsÍ nn&lk^
Ef þú býður þjónustu af einhverju tagi er smáauglýsing
í Vísi sterkasti vettvangurinn til viðskipta, þar eru þær
lesnar af tugþúsundum og þjóna þúsundum.
86611
smáauglýsingar
ÓDÝRAR m
BÓKAHILLUR
fáanlegarúr
eik og teak
og furu
Stærð:
Hœð 190 cm
Breidd 90 cm
Dýpt 26 cm
Verð aðeins:
kr. 44.500.-
Hvítmálaðar
Stœrð: 50x195 cm - verð kr. 29.600.-
Stærð: 80x195 cm - verð kr. 35.500.-
Húsgagnadeild
JH
Jón Loftsson hf.
Hringbraut 121 Simi 10600
Utgerðarmenn
Atvinnurekendur
Vinnumiðlun Vélskólanema mun útvega
yður góðan mann til starfa frá 14. mai til 1.
september ef þér óskið.
Simanúmer vinnumiðlunarinnar er 19755
frá kl. 16.00-18.00 alla daga vikunnar, til
30. mai, en þá mun Vélstjórafélag íslands
annast þessa þjónustu i sima 29933.
Vélstjórafélag tslands.
Inntökupróf
Myndlista- og handíðaskóla Islands
fyrir skólaárið 1979-1980 fara fram dagana
5.-8. júni n.k.
Umsækjendur fylli út umsóknareyðublöð
sem liggja frammi á skrifstofu skólans,
Skipholti 1 fyrir 20. mai n.k.
I«I Felagsmalastofnun Reykjavíkurborgar
Vonarstræti 4 simi 25500
Starfsfólk óskast
óskast til starfa á Mæðraheimilinu Sól-
vallagötu 10. Vaktavinna.
Upplýsingar gefur forstöðumaður i sima
25881. Umsóknarfrestur er til 10. mai n.k.