Þjóðviljinn - 06.05.1979, Page 8

Þjóðviljinn - 06.05.1979, Page 8
S SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 6. mai 1979. Þaðhefur ekki farið fram hjá blaðalesendum að ritstjórar Morgunblaðsins og Kirkjurits- ins hafa skipst á þungum skeyt- um að undanförnu. í Orðabelg Kirkjuritsins var að þvi fundið að „trúmálaafturhald” trónaði á fremstu siðum Morgunblaðs- ins. Blaðið svaraði meö leiðara þar sem ritstjóri Kirkjuritsins var reyrður upp við svivirðileg- asta ofstæki og lagt að prestum aö reka slikan mann frá mál- gagni þeirra. Ýmislegt fleira hefur gerst i þessum málum, en hér skal látið nægja að fjalla um grein sem séra Jón Auðuns birti i Morgunblaðinu þann 24. april. bar tekur hann ásakanir um „trúmálaafturhald” til sin og snýr þeim upp á andstæðinga sina og itrekar eigin viðhorf sem hann kennir við frjálslyndi og umburðarlyndi. Spiritisminn kemur við sögu eins og oft áður i málflutningi séra Jóns. Fláttskapur Rússa Þvi miður verð ég að byrja þessar athugasemdir á kafla i grein séra Jóns, sem snýr að mér sjálfum. Ritstjóri Kirkju- ritsins hafði látið svo um mælt að annar ritstjóri Þjóðviljans væri viðræðuhæfur um trúmál. Eg vil þakka þessa kurteisi, sem ég reyndar veit ekki hvort makleg er. En hvað um það: séra Jóní finnst illt að Þjóðvilj- anum sé blandað i' málin með þessum hætti, oger það kannski ekki nema von. Hitt er svo verra, að hann notar tækifærið til að tipla út á óheiðarleikafen dylgjustilsins. Hann segir sæt- um’ rómi að hann „væni ekki Arna Bermann um óheilindi”. En i' næsta orði vill hann minna á að „i löndum kommúnista” séu kristnir menn ofsóttir og þó einkum hjá Rússum. Siðan segir hann: „Þeim sem þekkja aðferðir ráðstjórnarmanna tii að koma ár sinni fyrir borð i vestrænum lýðræðisrikjum getur komið i hug aö þeir sjái þann kost vænt- legan að veita stuðning einmitt þeim hópum innan kristninnar, sem liklegastir eru til að gera trúna tortryggilega ogfjarlægja hana almenningi svo að auð- veldari bráð verði hún and- kristilegum stjórnháttum. Er ó- liklegt að þeir liti með velþókn- un þann anda,sem ræður furðu- greininni i Kirkjuritinu? Þeir vita sinn v.eg þeir herrar i Kreml og mikið má vera ef mörgu ágætu, trúuðu fólki óar ekki viö að eiga Þjóðviljann að bandamanni”. Satans englar Jón Auðuns kann sitt fag eins og menn sjá. Hann fullyrðir ekkert, en hann leggur fram út- smoginn likindareikning fyrir þvi, að Þjóðviljamenn hljðti að vera i raun Satans englar sem gangi erinda Kremlverja til að eyðileggja islenska kristni. I leiðinni er svo hægt að láta menn gruna, að Brésjnéf hljóti að hafa sérstaka velþóknun á andstæðingum séra Jóns í þjóð- kirkjunni. Ekki veit ég hvort þessi málflutningur er i anda frjálslyndis, en drengilegur er hann ekki. Hann byggir meðal annars á þeirri óbeinu fölsun sem nú skal nefrid. Séra Jón getur gert ráð fyrir þvi, að dylgjur hans hljómi sannfærandi vegna þess að mjög margir lesendur blaðs hans geri af fordómum sinum ráð fyrir þvi að Þjóðviljarit- stjóri hafi haldið uppi vörnum fyrir trúmálapólitik sovéskra og þar meðgerst þeirra valdhöfum samábyrgur. En i reynd hefi ég meðal annars skrifað þetta um það mál: „Það var h’til ástæða til að hafa samúð með feitri og latri rússneskri rikiskirkju, sem nærðist á svita leiguliða og al- ræði keisarans, meðsek i margri svivirðu (gyðingaof- sóknir t.d.). En annað verður uppi hjá þeim sem sér og heyrir til rússnesks trúfólks I ónáð nýrrar opinberrar hugmynda- fræði. Fólks sem i sinum þunga róðri var sýnu auðugra að mannkostum en sá hugsana- daufi þögli meirihluti sem i öll- um rikjum og löndum játar þvi vélrænt sem að honum er hald- ið”. Er séra Jóni velkomið að leggja útaf slikum texta ef hann vill. Þessir Gyðingar! Jón Auðuns segir i grein sinni að strangtrúarkristindómur og kommúnismi eigi sameiginlega „skefjalausa einrasðishneigð og umburðarleysi í garð annarra. Þetta er þess vegna skiljanlegt, að báðir, kristindómur og kommúnismi, eiga rætur i Gyðingdómi, sem kennir að Guðs útvaldi lýður búi einn yfir öllum sannleika oghefur fætt af sér það ofstæki, sem valdið hefur miklum óheilindum innan kristninnar”. Séra Jón er gjarn á að lofa sjálfan sig fyrir umburðarlyndi i garð annarra trúarbragða, en hér sem stundum áður lætur hann uppi merkilega fordóma i garð Gyðingdóms. Gyðingdómi er allt það að kenna sem séra Jóni er verst við — kommúnismi jafnt sem ofstækisþátturinn i kristnisögunni. Mér er það með öllu óskiljan- legt hvers vegna „kommún- ismi” á að eiga rætur i gyð- ingdómi. Við skulum ekki vera að velta Jóni Auðuns upp úr þvi, að þetta var einmitt eftirlætiskenning nasista, en vel mætti hann gæta að þvi, i hvaða félagsskap hann lendir með þessu hjali sinu. Kommúnismi Marx og Engels á sinar rætur i franskri efnishyggjuheimspeki, breskri hagfræði, þýskri dialektik og þó fyrst og fremst i hlutskipti evrópsks verkalýðs iðnbyltinganna. Ef menn vilja kalla sósíalisk fræði gyðingleg vegna uppruna annars tveggja frumkvöðla marxismans, þá er það álika gáfulegt og að telja sálgreininguna, atómvisindin eða kratismann gyðinglegrar ættar vegna forfeðra Freuds, Einsteins og Bernsteins. Hvað eru trúardeilur? Mér er það einnig óskiljanlegt af hverju verstu afglöp krist- inna manna eiga að vera gyð- ingdómi að kenna. I ofstækis- vangaveltum séra Jóns er að sönnu þann sannleikskjarna að finna, að sigursæl eingyðis- trú er i eðli sinu „ofstækisfull” gagnvart fjölgyðiskerfum — meðan fjölgyðismönnum má standa á sama um það hvort guðum i landi þeirra f jölgar um einn eða þrjáti'u. Og okkur er tjáð, að einmitt Gyðingar séu skrifaðir fyrir eingyðistrú fyrst- ir manna. En hitt er svo annað mál, hvernig i ósköpunum það þarf að vera sérstökum arfi frá Gyðingum aðkenna, að til dæm- is ýmsir kristnir hópar hafa tal- ið sig sitjaað öllum sannleika og fjandskapast við aðra hópa eftir því. Ekki vitum við betur en ofstæki og viskudramb hafi blómgast innan sem utan hins kristna svæðis án þess að menn hafi þurft sérstaka aðstoð frá fomum ritum hebreskum. Auk þess er hér um að ræða hugsan- agang sem lætur sögulegar for- sendur viðburða lönd og leið, eða skilur þær a.m.k. mjög þröngum skilningi. Hér er átt við þá staðreynd, að öldum saman éru harðvitug pólitísk á- tök til dæmis um ríkisvald, eignarhald á landi og réttar- stöðu lágstétta einatt færð i dularbúning átaka um skilning á helgum ritningum, blátt á- fram vegna þess, að menn höfðu i þann tið ekki margt annað að miða við. Biblian var upphaf og endir allra fræða, einnig laga og réttar, og mörgum hættir til að gleyma því, að það sem til dæmis er kallað ofstæki kaþólsku kirkjunnar var i reynd barátta lénsveldis ogóðalsherra við óstýrilæti eða uppreisn bænda eða borgara, sem telja sig geta fundið réttarkröfum sinum stað i ritningum ekki sið- ur en aðrir. Leti og sjálfsagi I grein sinni heldur Jón Auð- uns eins og oft áður uppi máls- vörn fyrir spiritisma og fyrir þvi að menn skoði „ekki-kristin trúarbrögð” opnum huga, og finnst honum þeir menn innan kirkjunnar ofstækisfullir og um- burðarlausir sem ekki eru hon- um samstiga i þessum efnum. Ég ætla mér vitaskuld ekki þá dul að blanda mér i deilur guð- fræðinga um þessi mál, en samt getég ekki stillt mig um að bera fram nokkrar leikmanns athugasemdir um þessa hluti. Ekkert er sjálfsagðara en að taka undir áskoranir um að menn sýni trú og lifsviðhorfum annarra manna skilning — og eins þótt misbrestur verði á sliku hjá áskorandanum sjálf- um. Það er meira en brýn þörf fyrir það umburðarlyndi, sem felstiþvi, aðmennleggja það á sig að setja sig i annarra spor, skilja forsendur þeirra og séu þá einnig reiðubúnir til að beita sér gegn rógi og ofcóknum gegn þeim sem fara aðrar leiðir en hinn þögli meirihluti á hverjum stað. En það er til annað um- burðarlyndi, sem óþarft er að •hlaða á lofi, umburðarlyndi andlegrar leti, sem ekki reynir að brjóta nokkurn skapaðan hlut til mergjar, heldur hrærir öllu saman f yfirþyrmandi karakterleysi, þyrlar upp grá- um reykjarmekki almennt orð- aðra andlegheita þar til ekki sér handa skil. Andspænis sliku umburðar- lyndi er full ástæða til að mæla með þvi „ofetæki”, sem þýðir, að menn eru reiðubúnir að leggja á sig óþægindi margs- konar og átök i nafni sann- færingar sem þeir hafa kostað nokkru til sem trúmenn eða hugsjónamenn. Eða — svo farið sé inn á önnur svið — i nafni sögulegs heimkynnis sins, i nafni þjóðemis og tungu sem þeir hafa tekið i arf. Þetta ,,of- stæki” sjálfsagans er stundum haft i flimtingum, en sem betur fer skilja margir, að án þess mun margt það deyja út og hverfa sem gefur heiminum lif og lit. Og syo var það spíritisminn Spiritismi er vinsæl kenning á íslandieins ogallir vita, llklega er engin kenning vinsælli. Þvi segi ég það enn og aftur, að ég hefi oft undrast litilþægni þeirra sem hampa hugmyndum spirit- ismans, sem ýtir til hliðar öll- um erfiðum gátum og viðfangs- efnum og býður upp á ókeypis aðgöngumiða að þægilegri ei- lifð, sem sýnist einna helst likj- ast Sólarstrandadvöl án timbur- manna. Eða eins og sýnt er I frægu leikriti Einars Kvar- ans: Það er sama hve illur skúrkur Hallsteinn er, hin- ummegin biður hans velvilj- uð Dóra, sem i skjótum svip greiðir götu hans inn i meira ljós. Og það er þá ofur eðlilegt, að til séu þeir prestar og aðrir trúmenn sem láta sér fátt um finnast, blátt áfram vegna þess að f þessu kerfi er ekkert pláss fyrir Krist, hann hefur engu hlutverki að gegna sem sé að ráði öðruvisi en fordæmi ann- arra „háþroskaðra” manna framliðinna. Mér hefur jafnan fundist, að þessir „rétt- trúnaðarmenn” ættu meiri virð- ingu skilda en margir aðrir, vegna þess að þeir hafa hafnað hinum auðveldustu leiðum og lagt sig i þann háska, sem hlýt- ur að fylgja glimu þeirra við þverstæður hins kristna drama. Við skulum heldur ekki gleyma þvi, að þótt svo þurfi ekki endi- lega að fara, þá reynast spirit- isk viðhorf mörgum manni afar steric freisting til að fresta öll- um spurningum um réttlæti i mannlegu félagi til annars heims, þar sem öll vandamál eins og gufa upp átakalaust i sálarþroskanum mikla. AB. Sunnudagspistill Eftir Árna Bergmann

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.