Þjóðviljinn - 12.05.1979, Blaðsíða 3
Laugardagur 12. maí 1979 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3'
Burtfarar-
tónleikar
um helgina
Þrennir tónleikar veröa haldnir
I vikunni á vegum Tónlistarskól-
ans I Reykjavik. Þeir fyrstu eru
burtfararprófstónleikar Sai-
bjargar Sveinsdóttur sunnudag-
inn 13. mal kl. 2.30 i sal Tónlistar-
skólans Skipholti 33. Mánudaginn
14. mai ki. 21 heidur Asgeir H.
Steingrimsson trompettónleika á
Kjarvalsstööum og er þaö siöari
hluti einleikaraprófs hans frá
Tónlistarskólanum i Reykjavik.
Steinunn B. Ragnarsdóttir leik-
ur meö á pianó,en auk þess koma
fram Birna Bragadóttir, Kol-
beinn Bjarnason og Þórunn H.
Guömundsdóttir. A efnisskránni
eru verk eftir Giuseppe Torelli,
Eugene Bozza, A.P. Doppler og
Paul Hindemith. Fimmtudaginn
17. mai kl. 20.30 heldur Anna Guö-
ný Guömundsdóttir burtfarar-
prófstónleika i sal Tónlistarskól-
ans. Aögangur aö öllum tónleik-
unum er ókeypis og öllum heim ill.
Asgeir H. Steingrimsson
Unniö aö uppsetningu afmælissýningarinnar aö Kjarvaisstööum.
(Ljósm. Geröur).
Afmælissýning að
Kjarvalsstöðum
I
Vorsýning Myndlista- og
handiöaskóla Islands verður
opnuö viö hátiðlega athöfn i dag
kl. 2.
Skólinn er 40 ára um þessar
mundir, og þvi er ekkert sparaö
til aö minnast afmælisins á sem
veglegastan hátt. Ragnar
Arnalds menntamálaráðherra
opnar sýninguna með ávarpi.
Allt húsið er lagt undir
myndir og listaverk úr ýmsum
efnum, jafnt salir og gangar
sem útisvæðið. I anddyri er
mynningarsýning um Kurt Zier I
sem lengi var skólastjóri og "
kennari skólans.
Sýningin veröur opin alla “
daga kl. 2—10, frá 12. til 20. mai. |
—ká ■
Útvarpsráð hafnaði
kæru Péturs
Útvarpsráö tók i dag fyrir á
fundi sinum bréf Andófs ’79, þar
sem þaö kvartar yfir meöhöndlun
fréttastofu sjónvarps á úrslitum
BSRB-atkvæöagreiösiunnar. Ut-
varpsráö taldi ekki ástæöu til aö
gera athugasemd viö meöferö
fréttastofunnar, enda haföi
fréttastofan haft viötöl viö aöal-
deiluaöiia eins og venja er i frétt-
um af vinnudeilum.
Aöspurður sagði Ólafur Einars-
son formaður Utvarpsráðs að
hann heföi ekki talið óeðlilegt að
rætt hefði verið við einhverja aö-
ila innan BSRB sem böröust gegn
samþykkt samkomulagsins viö
rikið, td. fjölmenn landssambönd
opinbera starfsmanna sem gert
höfðu mótmælasamþykktir, en
Andóf ’79 væri aðeins sjálfskipað-
ur málsaöili sem fréttastofunni
bæriengin skylda til að leita til.
—ekh
Skógræktarfélag Hafnarfjarðar:
Heitiö á menn að
fara varlega meö eld
Þjóðviljanum hefur borist eftir-
farandi fréttatilkynning frá Skóg-
ræktarfélagi Hafnarfjarðar:
Aðalfundur Skögræktarfélags
Hafnarfjarðar, haldinn I Góö-
templarahúsinu i Hafnarfirði
þann 8. mai 1979, gjörði svohljóð-
andi ályktun:
„Fundurinn harmar það slys,
sem orðið hefur i' dag, er óvitar
Handbók
hestamanna
komin
á markað
Landssamband hestamanna
sendi nýverið frá sér bókina
Hesturinn minn, handbók
hestamanna. Fjórtán höfund-
ar eiga kafla í bókinni og er
fjallaö um flest það sem við-
kemur uppeldi hesta, sjúk-
dóma, skapferli og skynjun,
auk sjálfrar ceiðmennskunn-
ar.
Fjöldi mynda prýðir bókina
jafnt ljósmyndir sem
skýringamyndir og einn kafl-
inn fjallar um það hvernig á
aö taka myndir af hestum
þannig að þeir njóti sin sem
best.
Bókin viröist kjörin fyrir þí
sem vilja kynna sér islenska
hestinn og handhægt aö gripa
til hennar ef eitthvaö óvænt
ber að hjá hrossaeigendum.
—ká
kveikja I skógræktargirðingu
félagsins við Hvaleyrarvatn.
Girðing þessi er um 32 hektarar
að stærð, og hefúr meira en
helmingur þessa lands orðið eld-
inum aðbráð. A þessu landi, sem
brunnið hefur, eru þúsundir
Sitkagrenisplantna, sem vaxið
hafa frábærlega vel siðustu árin,
enda margar þeirra meira en
tveggja áratuga gamlar.
Fundurinn heitir áalla heilvita
menn að gæta þess vel, að óvitar
valdi ekki slysum af þessu tagi
framvegis og væntir þess, að fjöl-
miðlar (blöð, útvarp, sjónvarp)
áminni almenning um þaöaðfara
varlega með eld I hraunum og
skóglendi”.
Vortónleikar
Tónmenntaskólans
Tónmenntaskóli Reykjavikur er
nú aö ljúka 26. starfsári sinu. I
skólanum voru 420 nemendur i
vetur. Kennarar voru alls 29.
Meöal annars starfaöi hljómsveit
viö skólann meö 45 meölimum og
einnig lúörasveit meö 25 meölim-
um. Mikiö hefur veriö um tón-
leikahald á vegum skólans i vetur
og vor.
Siöustu vortónleikar Tón-
menntaskólans verða haldnir i
Austurbæjarbiói n.k. laugardag,
12. mai kl. 2 e.h. A þessum tón-
leikum koma einkum fram eldri
nemendur skólans. A efnis-
skránni verður einleikur, sam-
leikur og hópatriði.
Aðgangur er ókeypis og öllum
heimill.
Góð afla-
brögð í
Grindavík
Þokkaleg aflabrögö eru hjá
Grindavikurbátum þessa dagana.
Trollbátar eru meö þetta 8 — 12
tonn og allt upp 125 tonn af þvi er
viktarmaöur i Grindavik tjáöi
blaðamanni. Tveir Unubátar frá
Keflavik gera út frá Grindavik og
hafa fengið 5 —6tonn á dag.
Smábátaútgerð er sáralítil nú
orðið. Grindvikingar leggja
meira upp úr stærri bátum og af-
kastameiri veiðarfærum.
ká.
Tónlistarfélagiö
Síðustu
tónleikar
vetrarins
Erling Blöndal Bengtsson selló-
leikari og Arni Kristjánsson
pianóleikari leika saman á
tónleikum Tónlistarfélagsins I
Reykjavik á morgun kl. 2,30 i
Þjóöleikhúsinu. A efnisskránni
eru verk eftir F. Schubert, J.S.
Bach, C. Debussy, Hans Werner
Henze og B. Martinu.
Þetta verða siðustu tónleikar
Tónlistarfélagsins á starfsvetr-
inum 1978 — 79, en meöal þeirra
sem þegar er ákveðiö að komi
fram eöa sjái um tónleika með
verkum sinum næsta vetur eru
Hermann Prey, W. Sneiderhan,
Sigriður Ella Magnúsdóttir,
Georgy Pauk, P. Carmirelli, Arni
Kristjánsson, Jessy Norman og
Dalton Baldwin, Sigfús Halldórs-
son og Leifur Þórarinsson.
Kristján
Ragnarsson
Fiskiskipin
að stöðvast
Þjóðviljinn innti Kristján
Ragnarsson, framkvæmdastjóra
Ltt) eftir þvi I gær, hvort sam-
bandið heföi ákveðið aö lýsa yfir
verkbanni, eins og heyrst heföi
undanfarna daga.
Kristján sagði að engin ákvörð-
un hefði verið tekin um slikt, en
það kæmi til greina og margt
hefði verið rætt vegna þess vanda
sem blasir við, nú þegar fyrirsjá-
aniegt er, að fiskiskipin eru að
stöðvast. Frystihúsin eru að
veröa full, þar sem ekkert er flutt
út og geta ekki tekiö við meiri
fiski.
— Það hlýtur að vera öllum
ljóst aö ekki verður búið I þessu
landi ef skipin ekki veiða og fisk-
urinn ekki fluttur á markaö. Það
er þvi ekki um annaö að gera
fyrir okkur en grlpa til einhverra
ráðstafana ef flotinn stöðvast
vegna verkfalls yfirmanna á
kaupskipunum, sagði Kristján
Ragnarsson. —S.dór
Ferðamannamiðstöð við Gullfoss:
Frumdrög aö teíkningu tilbúin
Viö afgreiöslu fjárlaga 1979
fékkst tekin inn í lögin Iántöku-
heimild til handa rikisstjórninni
til greiöslu hönnunarkostnaöar
og byrjunarframkvæmda ferða-
mannamiöstöövar viö Gullfoss.
1 samræmi viö þaö fékk Feröa-
málaráö Hrafnkel Thorlacius til
aö gera frumdög aö bygging-
unni, og i siöasta tölublaöi
Feröamála eru birtar myndir
af þeim teikningum.
Þjóðviljinn hafði sambandi
Likan aö fyrirhugaöri feröamannamiöstöö. Viö hönnun hússins er
fyrst og fremst lögö áhersla á aö form og byggingarefni falli eöli-
lega aö umhverfi sinu.
viö Hrafnkel, og sagöi hann aö
máliö Væri raunar ennþá á
algjöru byrjunarstigi þar sem
hvorki væri búið aö ákveða stað
fyrir ferðamannamiöstöðina né
stærð hennar. Með þessum
fyrstu teikningum og likani væri
hugmyndin að prdfa sig siðan
áfram. Liklegt mætti telja að i
ferðamannamiðstöðinni yrði
skjól fyrir ferðamenn, snyrting,
aðstaða fyrir gæslumann og litil
verslun.
—GFr