Þjóðviljinn - 06.06.1979, Blaðsíða 16
16 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Mi&vikudagur 6, júni, 1979
Samband borgfirskra kvenna:
Fjölþætt starfsemi
VOf
b
Umsjón: Magnús H.Gíslason
Skemmtileg iþrótt i fögru umhverfi.
Laxveiöar á
V esturlandi
Fertugasti og áttundi aftal-
fundur Sambands borgfirskra
kvenna var haldinn að Brautar-
tungu i Lundarreykjadal dagana
31. mars og 1. april 1979. Um 30
fulltrúar sátu fundinn auk
stjórnar og gesta, sem voru að
þessu sinni formaður Kven-
félagasambands Islands, Sigriður
Thorlacius,og varaformaður K.I.,
Sigurveig Siguröardóttir.
t Sambandi borgfirskra kvenna
eru 17 kvenfélög með 938 félaga
alls.
Sambandið er eignaraðili að
Minningarsjóði Ingibjargar og
Guðmundar Böðvarssonar, bónda
og skálds. Sjöðurinn á og rekur
hús skáldsins að Kirkjubóli á
HvitSrsiöu. A s.l. ári dvaldist
skáldið Guðmundur Ingi Krist-
jánsson i húsinu, sem gestur
sjóðsins. Full nýting er á húsinu
Glúmur
Hó/mgeirsson
segir fréttir
Úr Reykjadal
— Veturinn siðasti var
snjóléttur hér, en óvenju
frostharöur, segir Glúmur
Hólmgeirsson i Vallakosti i
nýútkomnu Norðurlandi.
Upp úr páskum geröi
nokkurra daga góðviðri og
leysingu. Þá fóru menn að
vona að nú væri veturinn á
enda, — en sú von varð fljótt
aö engu, þvi með sumar-
komu brá aftur til noröan-
áttar og kulda. Þó tók stein-
inn úr þegar mai byrjaði
með norðan hörku hriðar-
veðri, frosthörku 10-12 stig
og jafnvel meir. Snjókoma
varö ekki mikil en veðurhæö
mikil, svo skafbylur var.
Ekkert lát virðist enn á
þessari noröankuldatiö (upp
úr 10. mai), þó að hægara
hafi verið siðustu daga og
hriðarlaust, en kuldinn svo
mikill, að varla mun hitinn
hafa komist upp fyrir 0 á C i
skugga um hádaginn. Sól-
bráð er þó um miðjan dag
þegar sól sést. Snjór er það
mikill að mikið meira ber á
honum en auðri jörö og ekki
útlit fyrir aö hann hverfi i
bráð að óbreyttu tiðarfari.
Sauðburður mun almennt
hafinn og verður mönnum
erfiður meðan allur fénaöur
er 1 húsi. Heybirgðir munu
nægja en eitthvað misjafnar
svo miðla veröur á milli
manna.
Lokið er núprófum I barna-
skóla hreppsins. Það hefur
verið regla að ljúka skólan-
um sem fyrst á vorin svo
börnin geti notiö yndis viö
sauðburö og aöra vorönn og
fylgst meö og glaöst yfir hin-
um mikla lofsöng alls llfs á
vorin i litum náttúrunnar.
Það hefur veriö talið þroska-
vænlegra en að loka þau inni
i skólastofum yfir þurru
fræðastagli. Laugaskóli er
nú að taka upp fjölbrauta-
kerfi, en mér er ekki kunnugt
um hve viðtækt það er. Próf
eru þar byrjuð I sumum
greinum.
Agætur baráttufundur
gegn her og Nato var að
Breiðumýri 30. mars.
Hestamenn ráku hér 1-2
mánaða hestatamningaskóla
siöla vetrar eins og undan-
farna vetur. Var sá skóli vel
sóttur þvi sportmennska er
talsverð hér f nálægum
sveitum. g.H.
yfir sumarmánuðina en nokkru
minni að vetrinum.
Þrjár orlofsnefndir starfa á
félagssvæðinu, á Akranesi, i
Borgarnesi og í sveitunum.
Fyrirhuguð er dvöl orlofskvenna
aö Laugarvatni 25. júni n.k. og
þriggja daga orlofsferð um Vest-
firði i júli.
Sambandið er aðili að Borg-
firðingavöku, sem nú er haldin
árlega við vaxandi vinsældir.
Fjáröflunarnefndir starfa á
milli þinga á vegum Sambandsins
svo sem til dvalarheimilis aldr-
aöra i Borgarnesi og á Akranesi
og til byggðasafnsins i Borgar-
nesi.
A fundinum voru margar til-
lögur og áskoranir samþykktar.
Skoraö var á stjórnvöld að hlutast
til um að ibúðalán til ungs fólks,
sem er aö byggja eða kaupa hús-
næöi i fyrsta sinn,verði hækkuð i
ca 80% af kostnaöarveröi Ibúða af
hóflegri stærð og verði veitt til
mun lengri tima en nú er.
Einnig var skorað á heilbrigðis-
yfirvöld að hlutast til um að
læknir verði framvegis i fullu
starfi á Kleppsjárnsreykjum, svo
sem var áður en Heilsugæslu-
stöðin I Borgarnesi tók til starfa.
Taldi fundurinn núverandi fyrir-
komulag afturför frá þvi, sem
var.
Þá var skorað á stjórn Skalla-
grims h.f. að banna reykingar i
svokölluðum „flugvélasal” en
leyfa þær hinsvegar i litla
salnum. Benda fundarkonur á,
máli sinu til stuðnings, að mjög
kalt er ávallt i litla salnum þar
sem nú eru bannaðar reykingar,
og þvi varla hægt að vera þar
fyrir sjúkt fólk eða fólk meö ung-
börn.
Þá var skorað á stjórn Skalla-
grims h.f. og Sæmund i Borgar-
nesi að veita ellilifeyrisþegum^og
öryrkjum riflegan afslátt af far-
gjöldum og hækka afslátt viö
nemendur.
Fundurinn fagnaði stofnun AA
samtaka i Borgarrtesi og á Akra-
nesi og þeim jákvæöa árangri,
sem samtökin hafa náö.
Fundurinn hvetur allt áhugafólk,
sem vill vinna gegn áfengis-
bölinu, að veita A.A.
samtökunum stuðning.
Samband borgfirskra kvenna
veröur 50 ára 1981 og af þvi tilefni
ákvaö fundurinn að gera borö-
fána fyrir S.B.K., sem verði til-
búinn eigi siðar en i júni 1981.
A aðalfundi Sambandsins 1978
var stofnaður ferðasjóður S.B.K., i
er hafa skal það markmið, að i
styrkja konur af félagssvæöinu til
þess að sækja fundi eða orlof
erlendis. I sept. 1978 sótti einn
fulltrúi frá S.B.K. þing Norræna
húsmæðrasambandsins, sem
haldið var i Sandefjörd i Noregi i
og mun nú i ár styrkja einn |
fulltrúa til þess að sækja norrænt |
húsmæðraorlof, sem haldið |
verður I Vinstedcentret um 13 km |
frá Danmörku, sem sænska hús- |
mæörasambandið stendur fyrir |
þvi. Orlof þetta sækja kvenfélags-
konur af öllum Norðurlöndunum.
Mætti fulltrúi S.B.K á kvöldvöku
sambandsins, sem árlega er
haldin i sambandi við aðal-
fundinn, og gerði grein fyrir ferð
sinni til Noregs og þeim mál-
efnum, sem þar voru rædd, en
þingiö var helgað „Ari barnsins”.
I okt. 1978 efndi Sambandið til
ferðar fyrir aldrað fólk á
sambandssvæðinu til Mallorka.
Þótti sú ferð takast svo vel, aö
nú er ráðgert að efna til slikrar
ferðar i sept. n.k. og starfar sér-
stök ferðanefnd til undirbúnings
ferðinni.
Aðalverkefni S.B.K. á þessu
starfsári verður að taka á móti
lándsþingi Kvenfélagasambands
Islands, sem haldið verður að
Varmalandi i Borgarfirði dagana
22.-24. júni, 1979. S.B.K. hefur
leitað stuðnings hjá ýmsum
aðilum, við jákvæðar undirtektir.
Þingfulltrúar munu hittast á
Akranesi að morgni föstudagsins
22. júni og verður þeim sýndur
bærinn og býður S.B.K. til
hádegisverðar. Siðdegis verður
haldið aö Varmalandi, þar
sem þingiö verður sett. Ým-
is erindi verða flutt á þinginu,
svo sem um neytendaþjónustu i
dreifbýli og foreldrafræðslu, sem
Jón Björnsson, félagsmálastjóri á
Akureyri,ræðir um. Kvöldvaka
veröur haldin að Bifröst laugar-
daginn 23. júni, kl. 21.30. Munu
félagskonur S.B.K. sjá um allar
veitingar og þjónustu i sambandi
viö þingið. Eru félagskonur
S.B.K. velkomnar til kvöld-
vökunnar.
Stjórn Sambands borgfirskra
kvenna skipa nú Magdalena Ingi-
mundardóttir, Heiöarbraut 61
Akranesi, formaöur, Kristjana
Höskuldsdóttir, Melaleiti, Hildur
Þorsteinsdóttir, Borgarnesi,
Guðrún Bergþórsdóttir, Varma-
landiyog Gréta Gunnarsdóttir.
Akranesi. • —mgh
1 Vesturlandsblaðinu, þvi siö-
asta, sem út hefur komið, er vitn-
að i skýfslu Veiðimálastofnunar-
innar um laxveiði á landinu á ár-
unum 1975-1978. Bent er á, aö lax-
veiði hefur mjög aukist á siöustu
árum og nefnt sem dæmi að á
vatnasvæði Hvitár i Borgarfirði
veiddust i net og á stöng 5.742 lax-
ar að meöaltali á ári á árunum
1946-1950 en 1975-1977 veiddust
Það mætti vera veiöiréttarhöf-
um á Vesturlandi umhugsunar-
efni, segir Vesturlandsblaðið, —
hvort þeir geti ekki hagað sölu
veiðihlunninda á annan og hag-
kvæmari hátt en nú er. Vestur-
landskjördæmi er á mörgum
sviðum og á að geta verið efna-
hagsleg heild. Það á aö vera
markmið okkar, sem hér búum,
segir blaðið, að bindast sam-
tökum um framgang hinna ýmsu
mála og i þvi skyni að styrkja
þennan landshluta.
Sölu veiðileyfa i ár á Vestur-
13.745 laxar a ð meöaltali. A þessu
30 ára timabili hefur veiði aukist
um tæp 140%. Samkvæmt skýrslu
Veiðimálastofnunarinnar veidd-
ust á landinu öllu 80.578 laxar á
árinu 1978 og 36% af þeim á
Vesturlandi.
A eftirfarandi töflu má sjá hver
veiðin hefur verið I ám á Vestur-
landi s.l. fjögur ár:
landi annast jafn margir aðilar og
árnar eru, og það sem verra er,
að flestir þessir milliliðir búa ut-
an þessa kjördæmis og þangað
rennur arðurinn. Ein sameiginleg
söluskrifstofa allra veiðiréttar-
hafa á Vesturlandi mundi án efa
færa milljónir inn I þetta kjör-
dæmi, sem nú fara annað.
Hér er um byggðastefnumál að
ræða og viö höfum það i höndum
okkar ef viö stöndum saman, seg-
ir Vesturlandsblaðiö.
hbr/mhg
Við leik I ungmennabúöum USAH i fyrra.
Ungmennabúöir
á Húnavöllum
vökur hvert kvöld og sjá þátt-
takendur sjálfir um efni þeirra
að miklu leyti.Dag hvern verður
helgistund og sitthvað fleira
veröur boðið upp á þá daga, sem
ungmennabúðirnar standa.
Nánari upplýsingar veita
Karl Lúðviksson iþrk. Húna-
völlum I sima 95 4416 og sr.
Hjálmar Jónsson Bólstað I sima
95 7109. Þeir taka einnig við
þátttökutilkynningum.
Ungmennasamband Austur-
Húnvetninga hefur ákveöið aö
gangast fyrir ungmennabúöum
aö Húnavöllum i sumar eins og
undanfarin sumur. Ungmenna-
búöirnar hefjast miövikudaginn
6. júni og munu standa i eina
viku. Þátttakendur veröa á
aldrinum 8-12 ára.
I ungmennabúðunum verður
m.a. kennt sund, frjálsar iþrótt-
ir veröa iðkaðar og farið verður
I ýmsa leiki. Þá veröa kvöld-
Laxveiöiá stöng 1975 1976 1977 1978
Laxá I Leirársveit 1654 1288 1154 1252
Andakilsá 331 262 187 237
Grimsá og Tunguá 2116 1439 1103 1952
Flókadalsá 613 432 263 547
Reykjadalsá 275 185 112 120
Þverá 2330 2368 3132
Norðurá 2132 1675 1470 2089
Gljúfurá 522 356 400 461
Langá 2131 1568 1720 2405
Urriðaá 84 112
Alftá 341 204 300 386
Hitará 525 351 346 649
Haffjarðará 609 595 624 950
Straumfjarðará 755 433 466 648
Fróðá 182 199 i 254 255
Setbergsá á Skógarströnd 244
Laxá á Skógarströnd i67 114 190 179
Dunká(Bakká) 83 76
Hörðudalsá 55 55 51
Miðá i Dölum 245 121 146 135
Haukadalsá 914 904 862 926
Laxá i' Dölum 547 488 419 533
Fáskfúð 298 136 242 226
Kjarlaksstaðaá 462 343 342 467
Krossá á Skarðsströnd 120 109 81 106
Netaveiði i Hvitá 8188 . 6258 6341 7673
StangaveiðiiHvitá 498 787