Þjóðviljinn - 16.06.1979, Qupperneq 1
Bernhöftstorfan:
DJOÐVIUINN
Laugardagur 16. júni 1979 —134. tbl. 44. árg.
Friöunarsjónarmiö
ofan á í borgarráöi
A fundi borgarráðs I gær var vegna Bernhöftstorfumálsins.
lögð fram tillaga meirihlutans Tillagan er á þessa leið:
Verkbaimið er ólöglegt!
im • om • 1 i a
Ná lögln yfir atvinnurekendur?
Ný staða virðist komin upp I
verkbannsboðun Vinnuveitenda-
sambandsins. Múrarafélag
Beykjavikur hefur ritað VSt og
Múrarameistarafélaginu bréf,
þar sem brigöur eru bornar á lög-
mæti verkbannsins, þar sem at-
vinnurekendur virðast ekki hafa
hlftt lögum við ákvörðun þess og
boöun.
Helgi Steinar Karlsson for-
maður Múrarafélagsins staðfesti,
að múrarar hefðu tilkynnt at-
vinnurekendum, að þeir teldu
ólöglega staðið- að verkbanninu.
Þá ákvörðun grundvölluðu þeir á
ákvæðum i lögum um verkföll og
vinnudeilur. En þar segir i 2.
kafla 15. grein:
„Þegar stéttarfélag eða félag
atvinnurekenda ætlar að hefja
vinnustöðvun, þá er hún þvi
aðeins heimil, að ákvörðun um
hana hafi verið tekin, a) við
almenna leynilega atkvæða-
greiöslu, sem staöið hefur i að
minnsta kosti 24 klst., enda hafi
félagsstjórnin auglýst nægilega,
hvar og hvenær atkvæðagreiðslan
um vinnustöðvunina skyldi fara
fram, eða b) af samninganefnd
eða félagsstjórn sem gefið hefur
verið umboð til að taka ákvöröun
um vinnustöðvunina með al-
mennri atkvæðagreiöslu sem
farið hefur fram á sama hátt og
greint er undir a-lið.”
„Við vitum ekki til þess að
atvinnurekendur hafi fariö að
þessum lögum”, sagði Helgi, „og
teljum þá hafa brotið lög með
verkbannsboöuninni, af þeim
sökum.
Stéttarfélög hafa alltaf orðið að
fylgja þessu eftir, og við viljum
láta reyna á, hvort lögin nái ekki
llka yfir atvinnurekendur”. _öS
Farmannadeilan:
Samninga-
fundir í
gærdag
Litill árangur
Samningafundur yfirmanna á
kaupskipum og atvinnurekenda
hófst klukkan 141 gær og stóð enn
kl. 23 I gærkvöldi er þjóðviljinn
hafði samband við þá Torfa
Hjartarson sáttasemjara og Pál
Hermannsson blaðafulltrúa Far-
manna- og fiskimannasambands-
ins. Ekki var að heyra á máli
þeirra að mikill árangur hefði
náðst á þessum langa fundi. Páll
sagöi að alltaf væri þó von meöan
menn héldu áfram að tala saman
og Torfi sagði að rætt heföi verið
um ýmis atriði sem kynnu að
koma að gagni. Atvinnurekendur
hafa staðið fast við orð sin að
koma ekki með neitt kauptil-
boð. Ekki sá fyrir endann á fund-
inum kl. 23 I gærkvöldi. —GFr.
Egill Skúli Ingibergsson borgarstjóri tekur fyrstu skóflustunguna að menningarmiðstöðinni sem rfsa á I
Hólahverfi I Breiðholti.
Borgarstjóri tók fyrstu skóflustunguna í gœr:
Félags- og menníngar-
miðstöð í Hólahverfi
t gær tók borgarstjórinn i
Reykjavik, Egill Skúli Ingi-
bergsson, fyrstu skófiustunguna
að félags- og menningarmiðstöð
i Hólahverfi i Breiðholti.
Það er framkvæmdanefnd
byggingaráætlunar Reykja-
vikurborgar sem stendur fyrir
byggingunni sem mun verða á
tveimur hæöum, alls 2980 gólf-
fermetrar.
1 miðstöðinni sem verður þri-
skipt til að aögreina starf-
semina sem mest, verður m.a.
stórt bókasafn þar sem hægt
verður að geyma allt að 70 þús.
bækur.
1 bókasafnsdeildinni sem
verður staðsett i austurálmu
miðstöövarinnar verður einnig
sérstök hljómlistardeild. 1
vesturálmunni veröur ýmiss
Framkvœmdir
hafnar við
byggingu 60
raöhúsa á veg-
um verkamanna-
bústaöa
konar félagsstarfsemi en i miö-
byggingunni verður rúmgóður
veitingasalur sem mun rúma
um 100 gesti.
I félagsálmunni verður sam-
komusalur á efri hæðinni auk
þess sem minni herbergi fyrir
fundarhöld og tómstundastarf-
semi veröur þar til húsa.
Þá voru i gær einnig hafnar
framkvæmdir við byggingu
þeirra 60 raöhúsa sem stjórn
verkamannabústaða stendur
fyrir I Hólahverfi. Er ætlunin að
allar þær ibúðir verði tilbúnar á
næsta ári.
Það kom fram i ræðu Eyjólfs
K. Sigurjónssonar formanns
stjórnar verkamannabústaða á
blaðamannafundi i Höfða I gær
að alls voru 638 umsóknir um
þær 216 ibúðir sem stjórn verka-
mannabústaöa bauð út i siðasta
mánuði.
Næstu framkvæmdir stjórnar
verkamannabústaða verða á
Eiðsgrandanum en þar hefur
borgarstjórn veitt stjórn verka-
mannabustaða lóð undir 150
Ibúðir. —ig
Múrarafélag Reykjavíkur:
„Vegna bréfs forsætisráðherra
um niðurrif „brunarústa” Bern-
höftstorfunnar samþykkir borg-
arráð eftirfarandi: Borgarráð
lýsir yfir stuðningi við ályktun
húsfriðunarnefndar sem itrekuð
er með bréfi til menntamálaráð-
herra dagsettu 31. okt. 1978 um
friðun Bernhöftstorfunnar sbr.
einnig ályktun umhverfismáia-
ráös frá 14. feb. 1979.”
Þessi tillaga var lögö fram á
fundinum en afgreiðslu frestað.
Verður málið væntanlega tekið
fyrir á fundi borgarráös á þriðju-
dag.
Það er nú ljóst að friðunarsjón-
armiöin eruofan á i borgarráöi og
fer nú vonandi að sjá fyrir endann
á þessuþófi. Meðanmáliö gengur
á milli ráðuneyta og borgar-
stjórnar, grotna húsin niður og
þvi er afar mikilvægt að lausn fá-
ist sem fyrst.
-ká
Kafbátaleikurinn á
norðurslóðum:
Er að færast
nordur
og út úr
Atlantshafi
A morgun, sunnudag, er rakin
Tér I blaðinu umræða hernaðar-
sérfræðinga I Sviþjóð um kaf-
bátaleik þann, sem Bandarikja-
menn og Sovétmenn eiga i á
norðurslóðum. Þar kemur meðal
annars fram að:
Þróun vigbúnaöar og tækni
sem leitar uppi kafbáta hefur
oröiö til þess, að sovéskir kaf-
bátar og bandariskir munu I vax-
andi mæli flytja af Atlantshafi —
og þá frá svæðum við Island — og
norður á bóginn.
Aðalátakasvæöi kaf-
bátaleiksins verða höfin norður af
Sovétrlkjunum og svo
Noröur-lshafið sjálft.
Tæknilegt forskot Banda-
rikjamanna á þessum sviðum
eykur likur á þvi að þeir reyni aö
nota yfirburði sina til aö heyja
kjarnorkustyrjöld.
Sérfræöingum ber saman um
það, aö i slikri styrjöld yröi þaö
eitt fyrsta verk Sovétmanna að
senda eldflaugar til að eyða
bandariskum herbúnaöi á
islandi.
Sá búnaður til kafbátaleitar
sem staösettur er á Islandi er
þess eölis, að hann er að öllum
likindum nytsamlegur fyrst og
fremst i sambandi við óvænta
árás af fyrra bragði, sem þá
miðaði aö þvi að reyna aö þurrka
út kafbátaflota andstæöingsins.
— Sjá Sunnudagsblaðið
Stefna BSRB:
Langtímamarkmið ráði í kiarasamningum
i tilefni 31. þings BSRB boöaði
stjórn bandalagsins blaöamenn á
sinn fund til aö greina frá helstu
samþykktum þingsins og til að
sitja fyrir svörum.
Þaö voru þeir Kristján Thor-
lacius nýendurkjörinn formaður,
Þórhallur Halldórsson sem tekur
nú sæti I stjórninni sem fyrsti
varaformaður og Haralditr Stein-
þórsson 2. varaformaður sem
ræddu við fréttamenn.
Þeir félagar sögðu að mikil-
vægustu mál þessa þings væru
kjaramálin og samþykktin um
efnahagsmál, einnig hefðu ýmis
önnur hagsmunamál launþega
verið rædd eins og jafnréttismál,
lifeyrissjóösmál og orlofsmál.
Stefna ogkröfur BSRB i kjara-
málum verða mótuð á næstunni,
en búið er að boöa til fyrsta
samningafundar hinn 28. júni.
Kristján var að þvi spurður
hvað hann teldi kjaraskerðingu
opinberra starfsmanna vera
mikla með „Geirs og Ólafs-
lögunum ” og svaraði hanh að hún
væri milli 6% og 8%. Haraldur
Steinþórsson bætti þvi við að
BSRB fólk hefði fengið lltið f sinn
hlut úr félagsmálapakkanum.
Þeir sögöust vilja leggja
áherslu á þá stefnu bandalagsins
að kjaramálin þyrftiaðleysameð
langtimamarkmið i huga. Þaö
þarf að ná verðbólgunni niöur og
ráðast að grundvallarmein-
semdum samfélagsins. Þaö hefur
alltaf verið ráðist á launin þegar
átt hefur að lækka verðbólguna en
áfram þýtur hún samt.
Þeir sögðu aö fjárfestingar-
málin þurfi aö taka til gagngerðr-
ar endurskoðunar.
„Það þarf aö skipuleggja fjár-
festingu” sagöi Kristján. „Það á
ekki að fjárfesta i fyrirtækjum
sem eru óarðbær fyrir þjóðina.
Þjóöhagslegur arður er mikil-
vægastur.”
Þá kom fram aö þeir legðu
áherslu á að stefiia rikisvaldsins
leiddi ekki til atvinnuleysis.
Krafa BSRB er prósentuhækkun
launa og jafnlaunastefna.
Þórhallur sagöist vilja vekja
athygli á stofnun bæjarstarfs-
mannaráðs sem i framtiöinni
verður ráðgefandi fyrir BSRB og
veröur til að veita upplýsingar og
efla samstarf.
Haraldur nefndi atvinnuleysis-
sjóðinn sem nú yrði formlega
stofnaöur með 3ja miljóna kr.
framlagi auk 15% af félags-
gjöldum eöa samtals 22 1/2
miljón.
Þjóðviljinn mun siðar gera
samþykktum skil. —ká