Þjóðviljinn - 29.07.1979, Blaðsíða 3
Sunnudagur 29. júll 1979. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3
Bœklingar
og raögjof
A horni Túngötu og Garða-
strætis eru Hallveigar-
staöir. Þar er til húsa
Kvenfélagasamband Islands. í
húsnæöi félagsins er rekin
leiöbeiningastöö fyrir heimilin og
þangaö geta menn leitaö, svo sem
eftir upplýsingum um notkun
heimilistækja, hvernig ná má
blettum úr fötum, eöa hvernig á
aö elda mat. Þar situr Sigriöur
Haraldsdóttir fyrir svörum og
kunnugir segja aö hún sé gang-
andi alfræöiorðabók.
Þar fyrir utan hafa þær
kvenfélagakonur gefið út fróölega
bæklinga sem þær selja þeim sem
kaupa vilja. Má þar nefna bæk-
ling um nútima mataræði, hrein-
lætiog matseld, glóöarsteikingar,
hreindýrakjöt fundasköp,
bókmenntaleshring og fleira.
Þarna er þvf rekin þjónusta
sem ekki fæst annars staðar, og aö
sögn Sigriöar Haraldsdóttur er
mikiö leitaö til þeirra, enda er
reynt aö leysa úr vanda hvers og
eins.
—ká
Innflutningur:
50 tegundir
af eldavélum,
75 tegundir
af þvotta-
vélum
Svo áfram sé haldið meö
Kvenfélagasambandiö, þá hafa
þær að undanförnu tekiö þátt i
norrænni könnun á endingu
heimilistækja. úrvinnslu er ekki
lokið. en þar kemur fram aö
Islendingar eiga mun meira af
dýrum heimilistækjum en
frændur okkar á Noröurlöndum
én þau endast lika töluvert
lengur. Heimilistæki eru um þaö
bil helmingi dýrari hér en i
Skandinaviu. Hingaö eru fluttar
hvorki meira né minna en 50
tegundir af eldavélum og 75 teg-
undir af þvottavélum. Alls voru
flutt inn heimilistæki fyrir 1252
milljónir króna á sl. ári.
Mest var flutt inn af rafmagns-
kaffikönnum 6532, þar næst koma
kæliskápar alls 4000 stk.
—ká
Kryddpokar
„Bouquet
Gami”
Eitt af þvi sem ég hef stundum
keypt mér þegar ég hef fariö til
útlanda eru skringileg krydd,
„Bouquet Garni” nefnist eitt, en
þaö eru taupokar meö blönduöun^
þurrkuöum kryddjurt-
um. Þetta er mjög gott krydd
i súpur og pottrétti. Pokinn er
settur ofan i pottinn og látinn
sjóöa meö, en siöan dreginn upp
úr og fleygt um leiö og rétturinn
fer á boröiö. Pokana má gjarnan
hengja upp I eldhúsinu, eins og
knippi af þurkkuðu kryddi eöa
hvitlauksgrein. Nú hef ég rekist á
„Bouquet Garni” inni i Hagkaup
og kosta 12 pokar 639 krónur. Þaö
er fyrirtækiö Bart sem framleiöir
þetta krydd og fjöldamörg önnur
sem þarna fást. Þaö má bæta þvi
viö aö þetta merki viröist gott og
kryddiö er selt i pokum þannig
hægt er aö setja þaö f kryddglösin
heima án þess aö borga fyrir
dýrar umbúðir.
Búðaráp
Tómatsalat
þíamin: 0,04 mg, A-vtamin: 400
mg,
Nú hafa tómatarnir hækkaö
aftur og eru komnir í 1610 krónur
kílóiö. Margir eiga ennþá eftir
tómata sem þeir hafa keypt á
gamla verðinu, og væntanlega er
hver siöastur að nýta þá. Eins og
allir vita er ekki hægt að frysta
tómata, nema til að nýta þá i
mauk, saft eða pottrétti. Nýja
tómata á hins vegar aö geyma á
fremur köldum og dimmum staö,
(+10) en lítt þroskaöa tómata á
aö setja i glugga til aö þeir
roöni. Tómatar innihalda aöeins
20 hitaeiningar 100 grömm, en
önnur efni i tómötum eru:
Kalk: 15 mg (pr. 100 gr.), járn:
0,6 mg.
Ribóflavin: 0,03 mg, Niasin: 0,7
mg og C-vitamin: 20 mg.
Hér er uppskift af ljilffengu
tómatsalati. Skerið vel þroskaða
tómata i sneiöar. Geriö lög úr
eftirfarandi: Matarolia, sitrónu-
safi, edik, smátt skorinn laukur,
hvitlaukssalt, steinselja (helst
ný),nýmalaöur pipar og örlitið af
grófu salti. Helliö þessum legi
yfir salatiö og beriö þaö fram
kalt.
Góöir tómatar njóta sin best
einir i þessum legi, en sama lög
er einnig hægt aö nota út á
blandaö grænmetissalat, t.d. með
salati, agúrkum, hvitkáli og
papriku.
Tómatsalat úr vel þroskuöum tómötum er mjög lystugt.
Oft er stuttur tími til stefnu. Til að leysa vanda eða láta drauma
rætast. Þess vegna höfum við bætt við nýjum möguleika:
IB-láni með þriggja mánaða fyrirvara. Er þung afborgun fram-
undan? Eða ferðalag? Lausnin felst í IB-láni.
Her emþtíp valkDStir í 3ja mánaöa floMmum.
SPARNAÐAR- MANAÐARLEG SPARNAÐUR BANKINN RÁDSTÖFUNAR- MÁNAÐARLEG ENDURGR.
TÍMABIL INNBORGUN í LOKTÍMAB. LÁNAR ÞÉR FÉ MEO VÖXTUM ENDURGR. TÍMABIL
3 , 20.000 60.000 60.000 120.800 20.829 3 . man.
40.000 120.000 120.000 241.600 41.657
lílBiil. 75.000 225.000 225.000 453.375 78.107
BaokLþeiim sem hyggja aó fi^amtíóinnL
Iðnaðarbankinn
AóalbanMog útiM