Þjóðviljinn - 29.07.1979, Page 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 29. júll 1979.
UÖWIUINN
Málgagn sósíalisma, verkalýðs
hreyfingar og þjóðfrelsis
Ctgefandi: Otgáfuféiag Þjóöviljans
Framkvæmdastjóri: Eiöur Bergmann
Ritstjórar: Arní Bergmann, Einar Karl Haraldsson.
Fréttastjóri: Vilborg Harbardóttir
L'msjónarmaóur Sunnudagsblaós: Ingólfur Margeirsson.
Kekstrarstjóri: Olfar Þormóösson
Auglýsingastjóri: Rúnar Skarphéöinsson
Afgreiöslustjóri: Filip W. Franksson
Blaöamenn: Alfheiöur Ingadóttir, Einar örn Stefánsson, Guöjón
Friöriksson, Ingibjörg Haraldsdóttir, Magnús H. Gislason, Sigurdór
Sigurdórsson.
Erlendar fréttir: Halldór Guömundsson. lþróttafréttamaöur:
Ingólfur Hannesson. Þingfréttamaöur: Siguröur G. Tómasson.
Ljósmyndir: Einar Karlsson, Leifur Rögnvaldsson.
Ctlit og hönnun: Guöjón Sveinbjörnsson, Sævar Guöbjörnsson.
Handrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elias Mar.
Safnvöröur: Eyjólfur Arnason
Auglýsingar: Sigrföur Hanna Sigurbjörnsdóttir, Þorgeir Olafsson.
Skrifstofa: Guörún Gúövaröardóttir, Jón Asgeir Sigurösson.
Afgreiösla: Guömundur Steinsson, Hermann P. Jónasson, Kristtn Pét-
ursdóttir.
Sfmavarsla: ólöf Halldórsdóttir, Sigriöur Kristjánsdóttir.
Bflstjóri: Sigrún Báröardóttir
Ilúsmóöir: Jóna Siguröardóttir
Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jónsdóttir.
Ctkeyrsla: Sölvi Magnússon, Rafn Guömundsson.
Ritstjórn. afgreiösla og auglýsingar: Siöumúla 6. Reykjavik, slmi g 13 M.
Prentun: Blaðaprent hf.
Byröar fluttar
Hann fór ekki fram hjá landsmönnum hamagangur
AAorgunblaðsins á síðastliðnum vetri vegna skattlagn-
ingar og fjárlagagerðar. Þá spáði blaðið því að stefnt
yrði í áður óþekkta skattpíningu á þeirri örmu þjóð sem
þetta land byggir. Því er ekki að neita að blaðinu tókst að
telja fjölmörgu fólki trú um sannleiksgildi þessa
áróðurs.
Því kom það mörgum meðal- og lágtekjumanninum
þægilega á óvart að fá skattseðilinn sinn. Grýluáróður
AAorgunblaðsins reyndist ekki haf a við nein rök að styðj-
ast. Allf lestir sem við er rætt reynast hafa fengið minni
skatta en þeir áttu von á, og f lestir telja álögurnar sann-
gjarnar.
En það eru ekki allir ánægðir með skattana sína,
sem betur fer leyfir Þjóðviljinn sér að segja. Ýmsir
þeirra gæðinga sem AAorgunblaðinu eru hjartfólgnastir
þurfa nú að greiða mun meira til samfélagsins en þeir
eru vanir. Þetta stafar af þeirri stefnubreytingu sem
varð í skattamálum á síðasta Alþingi. Þá var m.a. sam-
þykkt að hækka tekjuskatt fyrirtækja, hækkun á eigna-
skatti var ákveðin og nýju skattþrepi upp á 50% var bætt
inn í fyrir háar tekjur. Auk þess var ákveðin sérstök
skattlagning á skrifstofu- og verslunarhúsnæði, til þess
að heimta eitthvað af verðbólgugróðanum úr höndum
steinsteypukónga milliliðastéttarinnar.
Allar þessar hækkanir auka skatta þeirra sem betur
mega sín, og það þolir Sjálfstæðisf lokkurinn ekki. Hann
er nefnilega flokkur hinna betur settu. Enda þarf ekki
lengi að fletta í nýútkomnum skattskrám til að sjá
hverjir það eru sem nú eru farnir að borga allverulega
skatta. Það eru upp til hópa stóreignamenn og milliliða-
kóngar og flestir eru þeir tengdir Sjálfstæðisf lokknum.
Eitt af megin slagorðum Sjálfstæðisflokksins um
þessar mundir er: „Afnemum skatta vinstri stjórnar-
innar". Þeir skattar sem Sjálfstæðisflokkurinn vill
afnema eru áðurnefndir skattar, sem fyrst og fremst
koma við hátekju- og stóreignamenn. Þess í stað vill
flokkurinn velta auknum byrðum yfir á þá lægra laun-
uðu. Enn sem fyrr vita menn hvar Sjálfstæðisf lokkinn
er að finna. Það er í miðjum óvinaflokki verkafólks í
landinu.
Fyrirmyndar
bærinn
Seltjarnarnes er einn þeirra bæja þar sem Sjálf-
stæðismenn hafa haft hreinan meirihluta í bæjarstjórn.
AAorgunblaðið gumaði mikiðaf því að ekki var lagt fullt
útsvar á bæjarbúa þar sem í öðrum bæjum. Þarna var
fyrirmyndarbær íhaldsmanna kominn, svona yrði þetta
allsstaðar undir stjórn Sjálfstæðismanna. Útsvar og
aðrir skattar yrðu hreinlega lækkaðir.
Nú þegar ár er liðið frá bæjarstjórnarkosningum er
mesti glansinn farinn að fara af þessari paradís skatt-
leysingjanna. Því að sjálfsögðu hefur það sýnt sig að
með þessari pólitík hefur framkvæmdageta bæjarins
verið lömuð, á Seltjarnarnesi eru framkvæmdir bæjar-
ins í algjöru lágmarki.
Eina verulega verkef nið sem unnið er að er bygging
heilsugæslustöðvar. Og slíkt verkefni er heldur létt á
bæjarsjóðnum, því rfkið borgar 85% af kostnaðinum.
Eina stórverkefnið í bæ íhaldsdraumanna er verkefni
sem almenningur í Reykjavík, Akureyri, ísafirði, Norð-
firði og víðar um landið borgar fyrir Seltirninga að
mestu leyti.
AAorgunblaðið reynir að draga yfir þessar stað-
reyndir í frásögnum sínum af framkvæmdum bæjar-
sjóðs Seltjarnarness og segir að þar séu í byggingu
heilsugæslustöð, bókasafn og tónlistarskóii, Blaðið
gleymir bara að geta þess að þetta er allt ein og sama
byggingin,semsé heilsugæslustöðin, og að allt er óákveð-
ið með það hvort af notkun hennar til áðurnefndra við-
bótarhluta getur orðið.
Þarna er árangur ómengaðrar íhaldsstefnu hvað
greinilegastur í bæjarmálum hérlendis. Sameiginlegar
framkvæmdir í þágu allra bæjarbúa eru látnar sitja á
hakanum í nafni einkaneyslunnar. Slíkt hið sama verður
uppi á teningnum ef Sjálfstæðisflokkurinn kemst til
valda á landsmælikvarða. Byrðunum verður létt af
hátekjufólki og opinberar framkvæmdir minnkaðar.
-eng
* úr aimanakinu
Um fræðslu-
mál og stjórnlist
Alþýðubandalagsins
Þetta eru kannski vonlaus
skrif, hugsaöiégmeö mér þegar
ég sat úti á stétt fyrir framan
Þjóöviljahúsiö hálfnakinn og
pikkaöi þessar línur á papplr.
Hver helduröu virkilega aö
nenni aö fara aö lesa grein um
sósialiskt fræöslustarf þegar
menn keppast viö aö liggja i sól-
baöi og neyta til þess allra ráöa
likt og þú sjálfur, sem ert flúinn
út i sólbaö til aö skrifa þessa
grein? Og þó, þaö skyldi ekki
vera aö menn gæfu sér betri
tima til lestrar og almennrar
hugsunar þar sem þeir liggja og
sleikja sólina, oghvi þá ekki aö
hugsa einhverntimann alvar-
lega úti sósialiskt fræöslustarf
eins og hvaö annaö?
mæta óánægju sifellt stærri
hóps flokksmanna um störf og
stefnu okkar manna á þessum
tveimur aöalvigstööum flokks-
ins sem áöur voru
nefndar? Hver er sú stjórnlist
sem ræöur lögum og lofum
þar? Jú, einmitteinhvers konar
málamiölun viö borgaralega
flokka um aö lapp aöeins betur
upp á hiö borgaralega hagkerfi
auðvaldsins.
Æskulýösnefnd Alþýðu-
bandalagsins var á slðasta
flokksráösfundi I nóv. á siöasta
ári faliö þaö verkefni aö halda
uppi starfi fræöslumiöstöðvar
flokksins sem þá haföi
legiö algjörlega niöri undanfar-
ýmis konar fræösluritaútgáfu á
vegum fræösluhópsins, og er
nú verið aö fullganga frá efni i
fyrsta bæklinginn sem vonandi
kemur út i byrjun september.
Þá má ekki gleyma aö minn-
ast á útgáfu á pólitisku dagatali
sem Óskar Guðmundsson hefur
unniö aö I sumar, en Fjölvis sér
um útgáfuna. Búist er viö aö
dagataliö komi i bókaverslanir
og i aöra dreifingu innan skól-
anna fljótlega upp úr mánaöa-
mótunum.
Þessir hlutir eru aðeins til-
færöir hér til að benda á, aö
mikill áhugi er hjá stórum hópi
manna að koma á virku og fjöl-
breyttu fræöslustarfi innan
Það er nefnilega dálítið
skritið, aö hversu mikið sem
rætt er og ritaö um sósialiska
fræöslu af hálfu Alþýðubanda-
lagsins sem flokksapparats þá
viröist alltaf minna veröa úr
verki. Eða hefur nokkuö veriö
unniö aö sósialiskri uppfræöslu
á vegum Alþýöubandalagsins
frá þvi' aö floldiurinn var form-
lega stofnaöur áriö 1968? Hver
man eftir þvi? Er þaö kannski
ekki einmitt þess vegna sem
menn hafa verið aö reka sig æ
meira á þaö aö Alþýðubanda-
lagið starfar alls ekki sem
sósialiskur flokkur, þvi aö
flestir flokksmenn, eöa eigum
viö heldur aö segja stuönings-
menn flokksins. vita ósköp tak-
markaö um hvaö sósialismi er
og hvernig unniö skuli aö
sósialiskri umsköpun. Meö
öörum orðum, fiestir flokks-
menn og þar meö talinn ég
sjálfúr vita sáralltiö sem ekkert
um hvernig stjórnlist sósialista
á tslandi skuli háttaö.
Er ekki löngu oröiö timabært
að ræða þessi mál, i stað þess aö
vakna upp viö þaö einn daginn
aö vera orðnir stjórnendur I
höfuöborg landsins og aðilar aö
rikisstjórn landsins, án þess aö
hafa nokkra markaöa stefnu i
stjórnlist til sósialiskrar
umsköpunar? Mér er spurn,
þarf nokkur aö undrast rétt-
in ár. Tveir flokksmenn voru
kosnir af miöstjórn til að sinna
þessu verkefni ásamt Æsku-
lýösnefndinni.
Fræöslustarfshópur æsku-
lýösnefndarinnar ákvaö fljót-
lega aö beina öllu starfi sinu til
aö byrja meö aö framhalds-
skólunum á Stór-Reykjavikur-
svæðinu, og var unniö I þeim
málum meö fræöslufundum og
dreifibréfaútgáfu ásamt
félagsmáianámskeiöum fyrir
nemendur fram aö vori, en þá
var haldin ágætis ráðstefna um
starfsemi vinstri sinnaöara
félaga i framhaldsskólum.
Starfshópur sem var
myndaöur eftir þá ráöstefnu
mun taka til fullra starfa núna
upp úr næstu mánaöa-
mótum.
Mikiö hefur veriö rætt um
Alþýöubandalagsins. Sú út-
gáfustarfsemi sem þegar er
komin I gang á vonandi eftir aö
hljóta góöar undirtektir hjá
flokksmönnum og eins virka
hvetjandi á alla pólitiska um-
ræöu um störf og stefnu sósial-
iskrar hreyfingar á Íslandi.
Þaö hefúr sýnt sig æ betur á
siöustu mánuöum að það sem
flesta flokksmenn skortir, er
næg þekking á þeim málefnum
sem þeir segjast vera aö berjast
fyrir, og nægur pólitískur þroski
tilaö geta tekiö réttar pólitiskar
ákvaröanir þegar á rföur, svo
ekki þurfi aö koma fyrir önnur
eins stórslys og þegar stærstur
hluti flokksmanna á flokksráös-
fundi i fyrrahaust greiddi at-
kvæöi meö þátttöku Alþýöu-
bandalagsins I þeirri rikisstjórn
sem viö sitjum nú sem fastastir
LúövíkGeirsson.
Luðvík