Þjóðviljinn - 29.07.1979, Qupperneq 21
Sunnudagur 29. júli 1979. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 21
Til aö frelsa
Framhald af 14. síöu ■
ráni kapltalisks þjóöfélags og af-
neiti pólitlskri ummyndun þess,
þá hjálpar hann okkur að losna
undan staðnaðri gálgagagnrýni
og komast nær þvl stigi, sem ein-
kennir skapandi byltingarsinna.
Sem mótvægi gegn þeirri efna-
hagslegu nauðhyggju, sem flestir
marxistar sögunnar virðast einatt
stranda á, má segja að kenningar
Dlich bjóði upp á að li'ta á Marx
frá nýju sjónarhorni.
Þar sem viö okkur blasir, nú að
öld liðinni, tviþætt sjónarspil
framleiðslukapltalismans, þá er
erfittfyrir okkur að triia i blindni
á félagslegt hlutleysi vinnuaflsins
og á einföld eignaskipti fram-
leiðslutækjanna sem eitthvert
kraftaverk. Illich leggur á þaö
þunga áherslu, að ráöast verði
gegn „framleiðsluháttum iðnrlkj-
anna” og allri þeirri félagslegu
firringu og misrétti sem af þeim
leiöir.
Rikisrekstur er ekki
sósialismi
Viveret segir að eignarhald
verkalýðsstéttarinnar á fram-
leiðslutækjunum hafi ekki áhrif
nema á eina af mótsögnum kapl-
talismans. Að þvi leyti sé þetta
engin lausn á þeim mótsögnum
sem gera kapitaliskt þjóðfélag ó-
þolandifyrir flesta þegna þess, til
að mynda „fetisismanum”
(dýrkun vörunnar), verkaskipt-
ingu og firrandi færibandavinnu.
Þær munistanda eftir sem áður. í
stuttu máli sagt má draga af
þessu þann lærdóm, að rikis-
rekstur er ekki sósialismi.
- Þýtt: ag
Reykjavík
Framhald af 13. siöu.
steiktan hörpuskelfisk, smjör-
steikta humarhala og ýmislegt
annað.
Þá fæst pizza Calzone, Sicil-
iana, Napoletana, Caruso og il
Angelo og veröið er frá 1750 kr. til
2100 kr. Slðast enekkisisterhægt
að fá snigla I hvitlaukssmjöri fyr-
ir 1400 krónur.
Það er einkennilegt að ekkert
veitingahús skuli fyrr hafa sér-
hæft sig I sjávarréttum I landi
fiskveiðanna.
Já, kannski er Reykjavik að
finna sjálfa sig ogverða stór eftir
allt saman. Kannski.
Við förum með trega til vinnu i
sálarlausan Siöumúla á ný og þar
er sólskinið einhvern veginn allt
öðru vlsi en niðri í miðbæ. Þessi
gata er til minningar um kald-
ræna tímabiliö I sögu Reykjavik-
ur — þegar hún þroskaðist ekki en
óx og óx. — GFr
Bækur
Framhald af bls. 7.
andi af lifi, fjölmargar persónur
koma hér við sögu, bæði heims-
kunnar og ókunarfskáldið segir
þroskasögu sina. NáttUrulýsingar
hans verða mjög minnisstæðar,
eins og þær úr ljóðum hans. Rauði
þráðurinn er barátta.Ibúa fööur-
lands hans við erlenda ásælni og
við þá leppa sem gengu og ganga
erinda erlendra gróðaafla. Bók-
inni lýkur með minningum um
Allende og frásögn af baráttu
hans gegn leiguþýjum erlendra
kapitalista, sem tókst með stuðn-
ingi CIA aðná völdunum. Neruda
lést 12 dögum eftir fall Allendes,
þann 23. september 1973. Meðan
lik hans stóð uppi, réðst skrlll inn
I hús hans bæði i' Santíago og Val-
parlso, rændi þar og ruplaöi,
þannig kvöddu hinir nýju vald-
hafar Chile skáldið.
Pétur
Framhald af bls. 24.
— Hvað tekur við hjá þér
þegar Islandsferðinni slepp-
ir?
„Við förum beint til
Þýskalands og tökum þátt I
móti með stórliöum eins og
Benfica, Liverpool og
Schalke 04. Slðan förum við á
mót með Ipswich, Molen-
beck og PSV Eindhoven.
Deildarkeppnin I Hollandi
byrjar svo 18. ágúst. Þetta er
allt saman nokkuð erfitt og
maður gengur I þetta með
hörku. Annað þýöir ekki I at-
vinnumennskunni”.
IngH/öS
Rafsuðumenn
óskum eftir að ráða vana rafsuðumenn.
Stálsmiðjan h.f.
simi 24400
RÍKISSPÍTALARNIR
Lausar stöður
LANDSPÍTALINN
Námsstaða AÐSTOÐARLÆKNIS
við handlækningadeild er laus til
umsóknar. Staðan veitist til eins
árs frá 1. september n.k. Umsóknir
er greini aldur, menntun og fyrri
störf sendist Skrifstofu rikis-
spitalanna fyrir 28. ágúst n.k.
Upplýsingar veita yfirlæknar
handlækningadeildar i sima 29000.
GEÐHJÚKRUNARFRÆÐING,
HJÚKRUNARFRÆÐING,
FÓSTRU, og ÞROSKAÞJALFA
vantar til starfa frá 1. september
á Geðdeild Barnaspitala Hrings-
ins. Einnig óskast MEÐFERÐAR-
FULLTRÚAR til starfa á sama
stað nú þegar eða frá 1. september
n.k. Upplýsingar gefur hjúkrunar-
stjóri i sima 84611.
Reykjavik, 29. júli 1979.
SKRIFSTOFA
RÍKISSPÍTALANNA
EIRÍKSGÖTU 5, SÍMI 29000
Stjórnmál
Framhald af bls. 6.
Gömul hjón með engar tekjur
en ellilffeyri og tekjutryggingu
fá nú I júllmánuði kr. 215.548.- til
að lifa af. Þau fá hvortum sig einn
og hálfan olIustyrk.en ef þau búa
áfram I sinni fyrri meðal-Ibúð,
sem ætluö var fjögurra manna
fjölskyldu, þá þurfa þau samt að
borga úr eigin vasa fyrir kynd-
ingarkostnað kr. 69.179,- á
mánuði á Isafirði, en kr. 8,251.- I
Reykjavlk.
Gömlu hjónin sem búa á tsa-
firði borga nær 33% af þvi sem
þaufá frá almannatryggingunum
I hitunarkostnað, en gömluhjónin
IReykjavik þurfa aöeins aðborga
fyrir hitunarkostnað rúmlega 3%
af þeirri sömu upphæð, sem þau
fá einnig frá almannatryggingun-
um, og hefúr þá fullt tillit verið
tekið til ollustyrksins eins og hann
er nú.
Og skattarnir tvöfalda
þennan mismun
Tökum annað dæmi. Hugsum
okkur ung hjón, sem vinna mikið
og hafa allgóðar tekjur. Gerum
ráð fyrir, að þau nái að vlsu ekki
hæsta skattþrepinu I tekjuskatti,
sem nú er 50%, en segjum að síð-
ustu krónurnar, sem þau vinna
sér inn lendi í 40% tekjuskatti, og
að sjálfsögðu I 2% sjúkragjaldi og
10 eða 11% útsvari. Til einföld-
unar skulum við reikna með að I
allt fari 50% af þessum krónum I
opinber gjöld. Þegar slik hjón á
ísafirði erubúin að ná þeim tekj-
um, sem sambærileg hjón I
Reykjavík láta sér nægja, — þá
eiga hjónin á tsafirði eftir aö
vinna fyrir mismuninum við upp-
hitun Ibúðarhúsnæðis. Og ef þetta
er meðalfjölskylda i meðallbúö,
þá er sá mismunur eins og áður
sagði kr. 696,584.-. En þau eiga
reyndar eftir aö vinna fyrir
meiru, þvl til að halda eftir þeim
krónum sem fara I mismun á
hitakostnaði, þá verða þau I raun
að vinna fyrir helmingi hærri
upphæð af þvi 50% þessara tekna
fara I skatta. Meðalhjónin á tsa-
firði þurfa þannig að afla nær
1.400,000.- fleiri króna yfir árið
heldur en meðalhjónin I Reykja-
vik, ef þau ætla að hafa úr álika
fjármunum að spila tii annarra
þarfa en að halda á sér hita heima
fyrir. Hafa menn tekið eftir
þessu? — Upphæðin er kr.
1.393,168.-. Mismunurinn einn
nemur 7 mánaða launum verka-
manns fyrir dagvinnu, en dag-
vinnulaun verkamanna eru nú I
kringum kr. 200 þús. á mánuði.
Hér er um svo hrapallegar
staðreyndir að ræða að engu tali
tekur. Smáskref til jöfnunar
bjarga litlu. Hér þarf stór skre£
mjög stór, og það sem fyrst. Jafn-
rétti er eðlileg krafa I þéssum
efnum sem öðrum. Dragist úr
hömlu að koma hér fram veru-
legri leiöréttingu, þá er verið að
reka fólk harðri hendu frá fram-
leiðslustöðvunum úti um landið til
Reykjavíkursvæðisins með ó-
fyrirsjáanlegum afleiðingum
fyrir þjóðarheildina.
A það skal að lokum minnt, að
sú dökka mynd, sem hér hefur
verið dregin upp er ekki al-
svört. Sem betur fer eigum
við Islendingar glfurlegan auö
I ónýttum orkulindum. Sá
auður er að margfaldast I veröi
þetta árið fyrir framtlðina. Á
fáum árum getum við útrýmt
oliu við húsahitun og nýtt
okkar eigin orkugjafa I staðinn.
Blóðugt er til þess að vita nú, þeg-
ar ollukreppan hefur leikið okkur
svo hart, aö um 50% af aUri raf-
orkuframleiðslu i landinu skuli
selt erlendri verksmiðju I
Straumsvik og það fyrir smánar-
verö, sem er bundið tU aldamóta.
Þessari ódýru orku allri hefðum
við sjálfir þurft á að halda til aö
minnka stórlega innflutning á
ollu. Oft var þörf en nú er nauð-
syn.
En svo er náttúru lands okkar
fyrir að þakka, að þrátt fyrir
glapræðið I Straumsvlk, eru
erfiðleikarnir, sem við er að
gllma nú aðeins timabundnir.
Fallvötn okkar og jarðvarmi
munu duga til að sigrast á þeim
fyrr en varir.sé skaplega á mál-
um haldið. Hér riður á mestu að
landsmenn taki sameiginlega á
vandanum og vinni að lausn hans
undir merkjum jafnréttis og sam-
hjálpar.
i Við stofnum
sparisjóð
Hafinn er undirbúningur aö stofnun nýs sparisjóös á
höfuðborgarsvæðinu. Auk almennrar sparisjóösstarfsemi
mun sparisjóðurinn beita sér fyrir aðstoð og fyrirgreiðslu
við einstaklinga og félög sem tengjast baráttunni gegn
áfengisbölinu og einnig starfrækja almenna fjármálaráð-
gjöf fyrir einstaklinga. Tekið skal fram aö stofnun og
starfræksla sparisjóðsins verður ekki aö veruleika nema
leyfi stjórnvalda fáist. Þvl betri sem undirtektir verða
þeim mun liklegra verður að telja aö leyf ið veröi veitt.
Söfnun stofnfélaga er nú aö hefjast og er þátttaka öllum
heimil, enda skuldbindi stofnfélagar sig til að greiða kr.
100 þúsund sem stofnframlag innan 3ja mánaöa frá þvl að
ráðherra veitir leyfi til stofnunar sparisjóðsins og stofni
auk þess vaxtaaukareikning með 12 mánaða uppsagnar-
tima I sparisjóðnum strax og hann tekur til starfa og leggi
inn á hann með jöfnum greiðslum fyrsta árið a.m.k. kr.
250 þúsund. Stofnframlag er óafturkræft nema sparisjóðn-
um verði slitið.
Listar fyrir þá sem vilja gerast stofnfélagar munu
liggja frammi á nokkrum stöðum I Reykjavík frá mánu-
deginum 30. júli til þriðjudagsins 7. ágúst n.k. en einnig er
hægt að skrá sig hjá undirbúningsnefndarmönnum. 1
undirbúningsnefnd eru: Albert Guðmundsson, alþm., Arni
Gunnarsson, alþm, Baldur Guðlaugsson, hdl, Björgólfur
Guðmundsson, forstjóri, Ewald Berndsen, forstöðumaö-
ur, Guðmundur J. Guðmundsson, formaður Verkamanna-
sambands Islands, Guðmundur G. Þórarinsson, verk-
fræðingur, Hilmar Helgason, stórkaupmaður, Jóhanna
Sigurðardóttir alþm, Lúövig Hjálmtýsson, framkvæmda-
stjóri, Pétur Sigurösson, formaður Sjómannadagsráðs,
Ragnar Júliusson, skólastjóri, Svava Jakobsdóttir, alþm.,
Sverrir Grétar Jónssori verslunarmaður og Vilhjálmur Þ.
Vilhjálmsson, framkvæmdastjóri
Listarnir liggja einnig frammi hjá eftirtöldum aðilum:
Verslunin Týli h.f., Austurstræti 7
Verslunin Sportval, Laugaveg 116
Þorsteinn Guðlaugsson, endurskoðandi
Háaleitisbraut 68 — Austurver
Vesturbæjar Apótek, Melhaga 20
Árbæjar Apótek, Hraunbæ 102
Lyfjabúð Breiðholts, Arnarbakka 4-6.
Stefnt er að þvl að stofnfundur sparisjóðsins verði hald-
inn fyrir lok ágústmánaðar n.k.
Undirbúningsnefnd.
Barnaheimili Starfsmaður, helst með fóstrumenntun, óskast til starfa á barnaheimilið Ós frá 1. sept. n.k. Umsóknir með upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist á barnaheimilið Ós, Bergstaðastræti 26 b 101 Reykjavik fyrir 7. ágúst. Starfsráð — starfsfólk
Skrífstofustörf Raunvisindastofnun Háskólans óskar að ráða tvo starfskrafta til almennra skrif- stofustarfa. Vélritunarkunnátta er nauð- synleg og starfsreynsla æskileg. Umsóknir sendist framkvæmdastjóra Raunvisindastofnunar Háskólans Dun- haga 3 fyrir 10. ágúst n.k.
Tökum að okkur
viðgerðir og nýsmiði á fasteignum.
Smiðum eldhúsinnréttingar: einnig við-
gerðir á eldri innréttingum. Gerum við
leka vegna steypugalla.
Verslið við ábyrga aðila
TRÉSMIÐAVERKSTÆÐIÐ
Bergstaðastræti 33,
simar 41070 og 24613