Þjóðviljinn - 29.07.1979, Page 23
Sunnudagur 29. júll 1979. ÞJÓÐVILJINN — StÐA 23
Umsjón:
Vilborg
Dagbjartsdóttir
Sagan Nýir kjálkar er um sama efni og sögurnar sem
birtust í síðustu kompu. Hún kom bara eftir að það
blað var farið i prentun. Allir krakkarnir fá bók F
sögulaun. Þær verða póstlagðar í þessari viku.
Nýir
kjálkar
Sólin skein í heiði. Ef
horft var upp með bæjar-
læknum hjá Mýri sást lít-
ill strákur á að giska tiu
ára/ hann gekk í róleg-
heitum upp brekkuna.
Reyndar var hann ell-
efu ára og heitir Ágúst,
lítill eftir aldri, dökkur
yfirlitum með nær svart
hár og dökkbrún augu og
brúnn á hörund. Hann er
klæddur bláum stuttbux-
um og hvítum stutterma-
bol með derhúfu og í
sauðskinnsskóm. Á eftir
honum skokkuðu tveir
hundar, annar brúnn en
hinn svartur og hvítur.
Þessi grey heita Smali og
Týra, fallegir og góðir
smalahundar.
Þau settust öll saman
við uppsprettu lækjarins,
þar er greinilegt að ein-
hver er að byrja að setja
upp hornabú, því að út um
allt liggja horn og leggir
og tálguð ýsubein.
Nú dregur Ágúst poka
undan treyjunni sinni og
dregur upp úr honum sex
kjálka, sem hann fann í
gamla hornabúinu pabba
síns heima við Mýri. Nú
hafði hann eignast kýr í
búið.
Ásdís Ingimarsdóttir, 11
ára,
Egilsstöðum
701 Egilsstaðir.
Ágúst á Mýri leikur sér í búinu sínu. Hornin eru kind-
ur, leggirnir hestar og kjálkarnir kýr.
Kennslubók
í dauðu
tungumáli
eftir
Miroslav
Holub
Þetta er drengur.
Þetta er stúlka.
Drengurinn á hund.
Stúlkan á kött.
Hvernig er hundurinn
á litinn?
Hvernig er kötturinn
á litinn?
Drengurinn og stúlkan
eru að leika sér að
bolta.
Hvert skoppar boltinn?
Lesið
og þýðið
á allar þagnir og öll
tungumál.
Skrifið
hvar þið sjálf
eruð grafin.
(Vilborg
Dagbjartsdóttir þýddi.)
Svartsýni
Kjartan Arnórsson, 14
ára, teiknaði þessa fram-
tíðarmynd. Verur utan úr
geimnum hafa lent á
jörðinni. Ofögur sýn blas-
ir við þeim. Mannkynið
hefur fortímt sjálfu sér
og lagt allt í auðn með
kjarnorkusprengju. Upp
úr rústunum stendur
minnisvarði og á hann er
letrað á ensku: Á ÞESS-
UM STAÐ UNDIRRIT-
AÐI FÓLKIÐ Á JÖRÐ-
INNI FRIÐARSAMNING
ÁRIÐ 1995.
Samskonar svartsýni
kemur fram í Ijóði tékk-
neska skáldsins
Miroslavs Holubs
Kennslubók í dauðu
tungumáli. Skáldið lýsir
með ofur einföldum nán-
ast barnalegum setning-
um, því þetta er kennslu-
bók fyrir byrjendur, frið-
sælum boltaleik, en svo
skoppar boltinn burt. Allt
er búið!
Kannski er mannkynið
eins og börn í boltaleik
með stór sprengju? Hugs-
ar þú nokkurn tíma um
svona skelfilega hluti?
S-2 ON
DUJ3UM
Hver ábréfið?
Nú fór illa. Pósturinn getur ekki lesið úr skriftinni,.
reyndar er það ekki nema von, því utanáskriftin er
myndagáta. Getur þú ráðið hana? Sendu svar til
Kompunnar og mundu að skrifa með því f ullt naf n og
aldur. Kompan sendir þeim krökkum kort sem geta
ráðið gátuna rétt.
Ef þér finnst gátan erfið skaltu biðja einhvern að
hjálpa þér, pabba, mömmu, systkini eða vini. Sendu
svarið innan hálfs mánaðar.
Bréfaskipti
Ef þig langar til að eignast pennavin getur þú auglýst
eftir honum i Kompunni. Sendu nafn, aldur og heimiíis
fang. Ennfremur skalt þú taka það fram ef þú hefur ein
hver sérstök áhugamál eins og t.d. frímerkjasöfnun
iþróttir eða tónlist.
Kompan getur þannig hjálpað þér að eignast vini.