Þjóðviljinn - 20.09.1979, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 20.09.1979, Blaðsíða 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 20. september 1979 V arahlutaverslun óskum eftir að ráða starfsmenn til starfa við afgreiðslu á varahlutum sem fyrst. Umsóknir með upplýsingum um aldur, menntun og fyrri störf sendist starfs- mannastjóra, er veitir nánari upp- lýsingar. ^ SAMBAND ÍSLENZKRA SAMVINNUFÉLAGA Starfsmannahald V élgæslumenn Viljum ráða nokkra vana vélgæslumenn til starfa nú þegar. Mötuneyti á staðnum, ódýrt fæði. Talið við Halldór, fyrirspurnum ekki svarað i sima. Kassagerð Reykjavikur h. f. Kleppsvegi 33 Trésmiðir Trésmið eða mann vanan verkstæðisvinnu vantar strax. Trésmiðjan Holt sf. Urðarholti 3 Mosfellssveit simi 66440 Refknistofa Bankanna óskar að ráða starfsmann til simavörslu, vélritunar og annarra skrifstofustarfa. Laun samkvæmt launakerfi bankamanna. Skriflegar umsóknir sendist Reiknistofu Bankanna, Digranesvegi 5, Kópavogi, fyrir 25. sept. nk. á eyðublöðum sem þar fást. REY^jMDUR Aðalbókari — Reykjalundi Aðalbókari óskast til starfa, staðgóð þekking og reynsla i bókhaldi áskilin. Nánari upplýsingar gefur skrifstofustjóri i sima 66200. Vinnuheimilið Reykjalundi Vélaverkfræðingur M.Sc sem lauk námi i Englandi i ár með sér- grein: Explotation of Materials, og hefur auk þess sveinspróf i vélvirkjun, óskar eftir atvinnutilboði til lengri eða skemmri tima. Vinsamlega sendið uppl. til auglýsinga- deildar Þjóðviljans merkt: „Vélaverk- fræðingur”. Fjölmennur móttnœlafundur herstöövaandstæöinga í Sundahöfn Lögreglan varði NATO meö kytfum enda þótt bryndrekamir tveir vœru ekki í sýnilegri hœttu Til átaka kom í gær milli lögreglu og herstöðvaand- stæðinga inni i Sundahöfn er hinir síðarnefndu tóku þátt í friðsamlegum mót- mælaaðgerðum gegn komu fastaflota NATÓ til Reykjavíkur. I upphafi fundar voru taldir rúmlega þrjú hundruð fundarmenn, en síðan streymdi fólk að í hálftíma og má ætla að um 800 herstöðvaandstæðingar hafi verið á fundinum þegar flest var. Bjarki Elíasson yfirlögregluþjónn sagði í gær að á annað hundrað manns hefðu verið inni í Sundahöfn í þessum mótmælum. A útifundinum sem fór friösam- lega fram framan af var flutt ljóðadagskrá þar sem lesin voru ljóð gegn her i landi og á milli ylj- aði heimavarnarliðið i kuldanum með söng slnum. Hrosshausinn á niðstönginni var mættur til leiks og auk þess báru herstöðvaand- stæðingar uppi þorskhausa á löngum prikum i minningu breskra veiðiþjófa sem hér hafa fiskað i skjóli NATO-herskipa, og til þess að minna á þá ógn sem fiskistofnum og lifsafkomu þjóðarinnar stafar af hernaðar- brölti NATO á Norður-Atlants- hafi. Lögreglan hafði afgirt svæðið og voru 6-7 lögregluþjónar við giröinguna, en allmargir biðu þess sem verða vildi að baki úti- fundarins. Þegar herstöövaand- stæðingar hugðust færa sig nær herskipunum sem þarna lágu tvö rofnaði varnarmúr lögreglunnar skyndilega og allmargir fundar- manna komust fram á bryggjuna þar sem hrópað var „Island úr NATO — herinn burt” og þorsk- hausum grýtt i vigdrekana. Liðs- auki frá lögreglunni kom á vett- vang og kvað Bjarki Eliasson þá hafa verið nauðbeygða til þess að taka upp kylfur til þess að ryðja bryggjuna. Lögreglan hefði ekki átt von á áhlaupi sem þessu en úr þessu mætti við öllu búast. Lögreglan beitti siðan bæði kylfum og hnefum til þess að verja bryndrekana sem þó lágu i seilingarfjarlægð frá bryggju og virtust ekki I áberandi hættu. Væntanlega hafa hörkuleg viðbrögð lögreglunnar stafað af ótta viö að ætlun einhverra her- stöðvaandstæöinga væri að hressa upp á stálgráan herskipa- litinn eins og hér um árið. Þjóð- viljanum er þó kunnugt um að af hálfu Miðnefndar samtaka her- stöðvaandstæðinga var allt kapp lagt á að aðgeröirnar færu frið- samlega fram i hvivetna. Astæöa er til þess að minna á það að það er skylda lögreglunnar þegar hún stendur frammi fyrir hugsanlegum mótmælaaðgerðum sem kynnu að leiða til átaka að bera einkennisnúmer á búningum sinum og frökkum. I skjóli nafn - og númerleysis eiga lögreglu- menn ekki að berja á samborg- urum sinum. Töldu sumir her- stöðvaandstæðinga sig hafa verið svipta þeim rétti að fá að vita hverjir það væru sem brygðu á þá kylfum. —ekh/lg Þorskhausarnir gapa á stöngum og lentu siöan flestir á slðum herskipanna tveggja I baksýn. Ljósm. Leifur. Hér snýr annar iögregluþjónninn upp á handlegg um leiö og hinn reiöir höndina upp og slær bylmings- högg. Er nokkuö annað hægtað gera en aðbjóða hinn vangann I slikri stöðu? Ljósm. Leifur.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.