Þjóðviljinn - 23.10.1979, Blaðsíða 2
2 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 23. október 1979
Nýtt verd á
bræðslusfld
Yfirnefnd Verölagsráðs sjávar-
útvegsins ákvaö á fundi sinum s.l.
fimmtudag nýtt verö á sild og
sildarúrgangi til bræöslu á síldar-
vertiö 1979.
Sild seld frá fiskvinnslnstöð til
fiskim jölsverksmiöju, 24 kr.
hvert kg. Sildarúrgangur, sem
reiknast 25 kg. á hverja uppsalt-
aða tunnu af hausskorinni og
slógdreginni sild, 18 kr. hvert kg.
Sild undir 25 cm. sem seld er til
fiskvinnslustööva eða sild sem
seld er beint frá fiskiskipum til
fiskimjölsverksmiðja, 20,17 kr.
hvert kg.
Auk verðs samkvæmt b) skal
lögum samkvæmt greiða fyrir
sildina 10% gjald til stofnfjár-
sjóðs fiskiskipa og 9% oliugjald,
sem ekki kemur til skipta. Kaup-
endum ber þannig á grundvelli
þessarar verðákvöröunar að
greiða heildar verð samkvæmt b)
hvert kg. kr. 24.00.
Veröið er miðað viö sildina og
Gröndal leikstjóri
Gamaldags kómedíu!
Skemmtilegt mismæli heyrðist
i útvarpsfréttum um helgina. Var
frá þvi greint að Benedikt Grön-
dal væri leikstjóri Gamldags
kómediu. Þetta var siðan leiðrétt,
en vel er það skiljanlegt að svona
nokkuð skreppi út úr mönnum um
þessar mundir. Eða má þetta
ekki til sanns vegar færa, þegar
grannt er skoðað?
— eös
sildarúrganginn kominn i verk-
smiöjuþró.
Verðið var samþykkt með at-
kvæðum oddamanns og fulitrúa
kaupenda gegn atkvæðum full-
trúa seljenda.
1 yfirnefndinni áttu sæti: Ólafur
Daviðsson, sem var oddamaður,
Guðmundur Kr. Jónsson og
Gunnar Ölafsson af hálfu kaup-
enda og Jón Þ. Arnason og Páll
Guðmundsson af hálfu seljenda.
Guðni, Erna
og Markús
Öm
Ranghermt var I fyrirsögn á
frétt I þjóðviljanum s.l. laugar-
dag aö þaö heföu veriö Arni
(Gunnarsson), Eiöur (Guöna-
son), Ellert (Schram) og Friörik
(Sophusson) sem heföu staöiö aö
myndun meirihiuta I útvarpsráöi
um aö fella tillögu um könnun
sjónvarps á fylgi stjórnmála-
flokkanna fyrir komandi al-
þingiskosningar.
Það voru kratarnir Arni
Gunnarsson og Guðni Guðmunds-
son og ihaldsmennirnir Erna
Ragnarsdóttir og Markús Orn
Antonsson sem þetta gerðu og
hefur sá siðasttaldi augsýnilega
ekki viljað hafa neina samkeppni
i skoðanakönnununum við Frjálsi
framtak og siðdegisblööin.
laðberar
óskast
Austurborg:
Bergstaðastræti-
Grundarstígur (strax)
Oðinsgata-
Skólavörðustígur (strax)
Laufásvegur-
Sóleyjargata (strax)
Hátún-
Miðtún (afleysingar
strax)
Austurstræti-
Aðalstræti (afleysingar
strax)
Blönduhlíð-
Hamrahlíð (1. nóv.)
DJOÐVIUINN
81333.
Skúli Bjarnfriður
Alexandersson Leósdóttir
Sveinn
Kristinsson
Rikharö
Brynjólfsson
Engilbert
Guömundsson
Þórunn Kristjón Einar Siguröur Jónas
Eiriksdóttir Sigurösson Karlsson Þorsteinsson Arnason
Alþýðubandalagiö í Vesturlandskjördæmi:
Varð fyrst tíl að
tílkynna framboð
Kjördæmisráö Alþýöubanda-
lagsins I Vesturlandskjördæmi
kom saman til aöalfundar á
Akranesi um helgina. Formaöur
var kjörin Sigrún Gunnlaugsdótt-
ir, Akranesi.
1 upphafi fundarins var sam-
þykkt að fara ekki I forval sökum
timaskorts og var siðan kjörin
uppstillinganefnd. Lagði hún
fram tillögu um listann eins og
hann var að lokum samþykktur,
en ein breytingartillaga barst um
2. sætið og var hún felld með
þorra atkvæða gegn 9.
A fundinum var skipaður
framboöslisti Alþýöubandalags.
ins I kjördæminu viö komandi
alþingiskosningar.
1. Skúli Alexandersson oddviti
Hellissandi.
2. Bjarnfriður Leósdóttir vara-
formaður Verkalýðsfélags Akra-
ness.
3. Sveinn Kristinsson skóla-
stjóri Laugagerði.
4. Rikharð Brynjólfsson kenn-
ari við Bændaskólann á Hvann-
eyri.
5. Engilbert Guðmundsson kon-
rektor Fjölbrautaskólans á Akra-
nesi.
6. Þórunn Eiriksdóttir húsfrú,
Kaðalstöðum.
7. Kristjón Sigurðsson rafvirki,
Boðardal.
8. Einar Karlsson formaður
Verkalýðsfélags Stykkishólms.
9. Sigurður Þorsteinsson sjó-
maður ólafsvik.
10. Jónas Arnason rithöfundur
Kleppjárnsreyk jum.
Alþýðubandalagiö í Norðurlandskjördœmi eystra:
Framboð ákveðið
Stefán
Jónsson
Soffía
Guömundsdóttir
Helgi
Guömundsson
Steingrfmur
Sigfússon
María
Kristjánsdóttir
Jóhann
Antonsson
Kjördæmisráö Alþýöubanda-
lagsins i Noröurlandskjördæmi
eystra kom saman tii fundar á
Akureyri um helgina. Rætt var
um útgáfumái, framboösmál og
samþykkt stjórnmálaályktun. A
fundi kjördæmisráösins voru
samþykktar reglur um forval og
ákveðið aö hafa þann hátt á viö
rööun á framboöslista i framtiö-
inni. Hinsvegar var ákveöið aö
stilla upp framboöslista fyrir
komandi kosningar á fundi ráös-
ins og var gengiö frá honum á
sunnudagskvöld.
A kjördæmisþinginu voru sam-
þykktar forvalsreglur en sökum
naums tima nú var felld tillaga
um forval með 21 atkvæði gegn
13. A þinginu fór fram leynileg
skoðanakönnun meðal rúmlega 30
fulltrúa sem það sóttu en um nið-
urstöðu hennar náðist ekki sam-
staða. Var samþykkt tillaga um
listann eins og hann er hér að ofan
en hann er að mestu óbreyttur frá
i fyrra.
Lista Alþýðubandalagsins i
Norðurlandskjördæmi eystra við
komandi alþingiskosningar skipa
eftirtaldir.
1. Stefán Jónsson fyrrv. alþing-
ismaður, Syöra-Hóli, Suöur-Þing-
eyjarsýslu.
2. Soffia Guömundsdóttir tón-
listarkennari, Akureyri.
3. Helgi Guðmundsson, tré-
smiður Akureyri.
4. Steingrimur Sigfússon nemi,
Gunnarsstöðum, Þistilfirði,
Noröur-Þing
5. Marla Kristjánsdóttir kenn-
ari, Húsavik.
6. Jóhann Antonsson viðskipta-
fræðingur, Dalvik.
7. Kristján Asgeirsson fram-
kvæmdastjóri, Húsavik.
8. Málfrlður Sigurðardóttir hús-
frú, Jaðri, Reykjadal, Suður -
Þing.
9. Þorsteinn Hallsson form.
Verkalýðsfélags Raufarhafnar,
Raufarhöfn.
10. Geirlaug Sigurjónsdóttir
iðnverkakona, Akureyri.
11. Björn Þór ólafsson iþrótta-
kennari, Ólafsfirði.
12. Höskuldur Stefánsson iðn-
verkamaður, Akureyri.