Þjóðviljinn - 23.10.1979, Blaðsíða 8
8 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 23. október 1979
Þriöjudagur 23. október 1979 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 9
á dagskrá
/ óskilgreindu fjasi um frjálshyggju
felast þau lögmál frumskógarins sem
segja að hinn sterki eigi að ríkja og
verða enn sterkari og hinn veikari
þá um leið að troðast undir
Verða lög um aðstoð við
þroskahefta virk eða ekki?
Skyldur samfélagsins við þá
sem erfiðara eiga uppdráttar
ættu yfir allan efa og deilur að
vera hafnar. Þó hefur þurft til
þess áratuga baráttu þeirra afla I
þjóðfélaginu, sem hafa félags-
hyggjuog samhjálp að leiðarljósi
að fáþarumþokaö tilþessárang-
urs, sem þó má lita i dag.
Engu aö siöur á jafnrétti I raun
hér langt i land enn, þó i engu
skuli úr þvi dregið, en áunnist
hefur. Þar mætti nefna marga
áfangasigra, sem vissulega hafa
verið hinir merkustu og skilað
okkur skref fyrir skref fram á
veginn.
Blikur á lofti
En þar eru blikur á lofti, sem
vel skyldi að gæta. I óskilgreindu
fjasi um frjálshyggju felst í raun
lögmál þeirrar frumskógavilli-
mennsku, sem kapitalisminn
byggir undirstöðu sina á, frjáls-
hyggja þýöir afturhvarf til þess
aðsá sterki eigi að rikja og verða
enn sterkari og hinn veikari þá
um leið aö troðast undir.
Þvi ættu allir sem unna sam-
hjálp og jafnrétti aflra þjóö-
félagshópa að vera vel á verði.
Villimennska þessa frjálsræöis
mundi fyrst bitna á þeim sem
erfiðasta eiga aðstööuna. Þar fel-
ur ekkert frjálshyggjublaður hinn
eina raunverulega tilgang.
Fyrirheit
En aö þvi máli skal ekki fremur
vikið nú, nema sem almennri viö-
vörun, sem vert er að vekja at-
hygli á. En svo að tilefni þessa
greinarkorns sé beint komið, þá
fögnuðum viö á vori sem leið
veigamiklum áfanga á leiö til
jafnréttis fyrir þroskahefta i
landinu. Þann hóp, sem hvað erf-
iðast á með aö berjast sjálfur
fyrir rétti sinum og mannsæm-
andi tilveru.
En lög um aöstoð við þroska-
hefta fólu i sér mikil fyrirheit,
þau fyrirheit þarf að framkvæma
og þá vill oft út af bregða um
áform góð og gildaridi boöskap.
Efndir
S.ett var i frumvarpiö ákvæöi
til bráöabirgöa, sem Alþingi stað-
festi, um að þegar i stað skyldi
hafist handa um stofnun sér-
stakrar deildar 1 félagsmálaráöu-
neytinu, þar sem samræming
heildarstefnu og stjórnunar fer
fram. Stjórnarnefnd hefur verið
komiö á laggirnar og ég fullyrði,
að samstarfsaðilar mínir þar eru
einvalalið, lfklegt til farsællar
forystu og áhrifa, jafn sem at-
hafna.
En deildarstofnunar er enn
beðiö og undirbúningur er þar
hverfandi ef nokkur. Félagsmála-
ráðuneytiö fékk heimild til einnar
stöðu af þrem sem þaö sótti um tií
ýmissa verkefna, þ.á.m. til þessa.
Ekki dreg ég úr þvf aö full þörf
hafi verið á að ráða i stöðu vinnu-
málafulltrúa, svo sem raunin
varð á, en enga dul dreg ég á það,
að enn þýöingarmeira og brýnna
var að nýta stööuheimildina til að
hefja þegar undirbúning að þvf
mikla starfi, sem fyrir höndum er
til að koma ifiálefnum þroská-
heffra f það horf, sem lögin
ákveða sem allra fyrst.
En vonandi fæst þar á bót, svo
lögin megi f þessu verða annaö og
meira en orð á pappír.
t tengslum viö lögin var bætt
inn ákvæðum um framkvæmda-
sjóö öryrkja, verðtryggðum
eyrnamörkuðum sjóði, sem
skyldi tryggja fjárhagslega
framkvæmd laganna betur.
Þroskahjálp gaf hér um sina
umsögn og fagnaði þvi ef hér yröi
um raunverulegt viöbótarfjár-
magn aö ræöa frá hinu opinbera,
þvf það hefur sannarlega mjög
skortá um fjárhagshliöina, hvert
sem litiö er. Hins vegar var varað^
við þvi, ef verkefnum, sem áður '
höföu veriö inni á fjárlögum, yrði
i svo rfkum mæli velt yfir á þenn-
ansjóð, aö þegar upp yröi staðiö,
kynni aukningin að vera harla
smá og lögunum til iftils fram-
dráttar hvað framkvæmdir snert-
ir. I
titreikningar
Nú hefur fjárlagafrumvarp séö
dagsins ljós og það vekur ýmsar
spurningar, sem ósvarað er, þ.e.
hverju er á sjóðinn visað óbeint,
en það mun skýrast siðar, þegar
ráðuneytin hafa gefið stjórnar-
nefndinni skýrslu þar um.
En fyrst skal þó vikiö að þeim
undarlega útreikningi, sem liggur
aö baki þeirri tölu sem fram-
kvæmdasjóðurinn fær Uthlutað i
fjárlögum.
1 yfir 50% verðbólgu heföi veriö
sanngjarnt að a.m.k. 40% hefðu
komið ofan á þær 1000 milljónir,
sem sjóöurinn var að stofni við
setningu laganna eða 1400 mill-
jónir.
Skv. Olafslögum er heimild til
skerðingar lögbundinna útgjalda
eða framlaga af þessu tagi og
með þeim 15%, sem þar munu nú
notuö og er vel að verki staöið við
skuröarborðið, þá hefði upphæðin
þó átt meö 40% verðtryggingunni,
sem sannarlega er þó of lág, að
vera 1190 millj., en er aðeins 1020
millj. Þaö þarf meiri stærðfræöi-
mann en mig til að reikna svona
þó ekki vefjist þaö fyrir þeim sem
vir ðast hafa tileinkað sér eitth vað
af snilli Sölva Helgasonar i þessari
kúnst, þó með öfugum formúlum
sé.
En þá er að huga að verkefnun-
um, sem áöur hafa á fjárlögum
veriö og nú eru á framkvæmda-
sjóðinn lögð. Þar er komiö að al-
vöru málsins, ef menn hyggja
nánar að lögunum og hinum fjöl-
mörgu fjármagnsþáttum, sem
þar þarf aö hyggja aö.
Á bls. 205 I f járlagafrumvarpi
er vitnað til þess, sem beint er til
sjóðsins fært eða eins og þar er
sagt orðrétt: „framlög til
Styrktarsjóðs fatlaðra 08-974, til
Styrktarsjóðs vangefinna 08-975,
til byggingar skóla fyrir þroska-
hömluö börn og 02-793, bygginga-
styrkur til Sjálfsbjargar, lands-
sambands fatlaöra 07-999 og
stofnkostnaður á liönum Stofnan-
ir afbrigðilegra barna 02-797.”
Þessir liðir nema i fjárlögum
þessa árs sem hér segir:
a) Styrktarsjóður fatlaðra, 10.5
millj.
b) Styrktarsjóöur vangefinna,
150 millj.
c) Til byggingar skóla fyrir
þroskahömluö börn, 90.0 millj.
d) Til Sjálfsbjargar, landssam-
bands fatlaðra, 10.5 millj.
e) Til stofnana afbrigðilegra
barna, 20.0 millj.
Samtals eruþetta um 280 millj.
og skal þess þó getiö, að vegna
hreinna mistaka féll niður 50%
hækkun til styrktarsjóðs vangef-
inna á s.l. ári, sem ailir voru i
raun sammála en sem hefði þýtt
þar 225 millj. eða samtöluna 355
millj. aö öllu eölilegu.
Ef 50% reglan til hækkunar er
notuð nú eins og i fyrra og mun
ekki af veita, þá ættu þessir liðir
samtals að gera nú um 530 millj.
og þá eru eftir til allra annarra
liða, sem lögin taka til, aðeins
tæpar 500 millj.
Nú var það ætlunin að ekki að-
eins kæmi til verðbólguhækkun
ein i þessa framkvæmdaliði,
heldur veruleg raungildisaukning
i framhaldi af gildistöku laganna
og þeim forgangi, sem þessi mál
hljóta að mæta i samfélaginu ef
orð og geröir eiga aö fara saman.
Eftir er svo aö sjá, hvaöa önnur
verkefni, annars staðar fjár-
mögnuð áöur, koma inn í þessa
mynd, en þá óttast ég, að frekari
samanburður verði i litlu sam-
ræmi við fyrirheit laganna.
Vanræktar skyldur
Ég vil á engan halla sérstak-
lega i þessu efni og það vel tel ég
mig þekkja hug fjármálaráö-
herra þess, sem frumvarpið legg-
ur fram að ég hlýt að skoða þetta
sem slys, ef slæmar grunsemdir
og beinharöar staðreyndir sýna
endanlega og ótvirætt, að lögin
nái á sinu fyrsta ári næsta litlum
tilgangi.
Það yröu öllum sem hér aö
standa, ómælt áfall, aö ekki sé á
þá minnst,sem það mest bitnar á,
ef illa tekst til. Enn skal hér við
bætt að Kópavogshæliö á og þarf
að fá sérstaka stofnfjárveitingu
beint, sem aöalstofnun rikisins i
þjónustuþroskaheftra og þar þarf
til að koma beint stofnframlag
inn á þann lið, m.a. vegna lag-
anna um aöstoð við þroskahefta.
Þar er um vanræktar skyldur
að ræða, sem ekki veröur nánar
farið út I hér, en átakser þar þörf
til umbóta ekki stækkunar heldur
raunhæfra og sjálfsagðra um-
bóta,sem beðið hefur veriðum og
beöið hefur veriö eftir of lengi.
Að lokum þetta:
Hér er i heildina tekið um brýnt
samfélagslegt málefni að ræða,
sem ég kemst ekki hjá aö vekja
enn einu sinni athygli á, að á aö
hafa forgang, ef við viljum meina
eitthvað með jafnréttishjali okk-
ar og umhyggju fyrir þeim, sem
erfiðastan eiga hlut.
Vonandi ber nýtt þing og nýtt
fjárveitingavald til þess gæfu að
taka þannig á málum að ársins
1980, þess árs, sem lögin um aö-
stoð viö þroskahefta og fram-
kvæmdasjóð öryrkja taka gildi,
verði minnst i sögunni sem tíma-
mótaárs. Þá, en fyrr ekki, getum
viö sem að lagasetningu s.l. vors
stóðum gengiö sæmilega upprétt.
Helgi Seljan
KOSNINGABARÁTTA í DANIVÍÖRKU
4. OG SIÐASTA GREIN
I Danmörku eru starf-
andi þrír sósíallskir flokk-
ar, Sósíalíski þjóöarflokk-
urinn (SF), Kommúnista-
flokkurinn (DKP) og
Vinstrisósíalistar (VS).
Þeir hafa lengi haft sam-
anlagt um 10% atkvæöa, og
skiptast þau nú nokkuð
jafntá milli þeirra. Þó eru
vinstrisósíalistar minnstir,
en hinsvegar í örum vexti.
Hinn Moskuvuholli kommún-
istaflokkur hefur mest verkalýös-
fylgi sósialisku flokkanna, en SF
nýtur einnig fylgis verkafólks,
einkum faglærðra. VS er hins
vegar flokkur róttækra mennta-
manna, námsmanna og annarra
millistétta, hann er I raun af-
sprengi æskulýðsuppreisnarinn-
ar, sem kennd er við 1968.
Sá vandi, sem allir þessir flokk-
ar standa I, er annars vegar að
forðast þá einangrun, sem gjarn-
an fylgir þvi að „halda árunni
hreinni”. Vilji menn hins vegar
taka þátt I dægurpólitik, er kvik-
■1
Y i skráargatinu er listabókstafur Vinstrisósialista, A er listi sósialdemókrata, K kommúnista
og F Sóslaliska þjóðarflokksins.
Vandi sósíalista er
afctaðan til kratanna
syndi umbótahyggjunnar við
hvert fótmál. Vegna þess hve
danskir sósialdemókratar eru öfl-
ugir, felst vandi sósialista hér
ekki sist I þvi að marka stefnu
gagnvart þeim.
Samstarf við krata
eða sósíalískt andóf?
Bæði DKP og SF reyna að sam-
eina samstarf við sisialdemó-
krata og baráttu fyrir sóslalisma.
DKP-forystan hefur á slðustu
misserum sýnt vaxandi sáttfýsi
viö krata, en þar sem sagt var frá
þvi I Þjóðviljagrein 10. okt. sl.,
veröég að þessu sinni margorðari
um SF.
Frá stofnun SF 1958 hefur það
veriö grunntónn stefnu hans, að
sósialisma verði ekki komið á i
Danmörku nema með þátttöku
krata. Starfsemi hans hefur miö-
ast við aö knýja krata til aö fram-
kvæma róttækari umbætur en
ella. 1967 vingaöist flokksforystan
svo við krata, og hún ljáöi þing-
fylgi viö kjaraskeröingar. Þá
kiofnaði vinstri armur flokksins
frá honum og myndaöi VS. Fyrir
nokkrum árum tók á nýjan leik að
bera á vinstri armi I flokknum.
Hann lýsti yfir þeirri skoðun, að
SF bæri að leggja meiri áherslu
á samstarf við önnur sisiallsk öfl
en krata. Gegn þessu stóð hægri
armur flokksins og þ.á.m. flestir
þingmenn hans. I kosningunum
1977 var skipt á þessum þing-
mannsefnum og öðrum róttækari,
og á árinu 1978 varð mikið upp-
gjör I flokknum. Hægri armurinn
vildi að SF tæki upp samstarf viö
krata, m.a. um launastöðvunar-
lög, en þorri flokksmanna hafnaði
þvi, og hrökktust hægrimennirnir
úr flokknum. Vinstri armurinn
náði þó ekki teljandi áhrifum,
heldur réöu miðjumenn mestu,
undir forystu flokksformannsins
Gert Petersen.
1 kosningabaráttunni hefur
gamli hægri armurinn birt yfir-
lýsingu, þar sem skoraö er á fólk
aö kjósa krata fremur en SF.
Þrátt fyrir það, viröist SF ætla að
Einn helsti forystumaður vinstri-
sósialisja, Litten Hansen, hefur
sagt sig 'úr flokknum og telur sig
geta unnið meira gagn utan
flokka.
bæta fylgi sitt úr 3,7% og jafnvel i
5%, og viröist sem óánægðir krat-
ar myndi þetta viðbótarfylgi.
I kosningabaráttunni hefur SF
slegið nokkuð af stefnu sinni
gagnvart krötum. Eftir uppgjöriö
við hægri arminn neitaði SF að
starfa með krötum á meðan þeir
setja launastöðvunarlög. Nú hef-
ur flokkurinn sagt, aö hann muni
áfram berjast gegn sllkum
lögum, en þótt kratar setji þau, sé
hann reiðubúinn til samstarfs viö
krata um umbótaaðgerðir.
DKP hefur nálgast SF að þvi
leyti, aö flokkurinn er i vaxandi
mæli tilleiðanlegur til samninga
við krata. Hins vegar leggja
DKPmenn alla áherslu á sam-
starf við verkalýðsarm krata og
lægri setta flokksmenn i sveitar-
stjórnum. 1 raun vill flokkurinn
efla almenna flokksmenn til and-
stöðu gegn krataforystunni.
Þótt DKP séu orönir „stofuhæf-
ir” I sveitarstjórnum og viða i
verkalýöshreyfingunni, eru þeir
það tæpast á þjóðþinginu. Kratar
munu seint reiða sig á stuðning
DKP, en munu eflaust þiggja
hann I einstökum málum. Vinstri
armur krata vill hins vegar taka
upp varanlegt samstarf við SF að
loknum kosningum, þótt það mæti
mótspyrnu hægri armsins.
Milli lenínisma
og ráðahyggju
Flokkur Vinstrisósialista (VS)
hefur eflst töluvert slðustu ár, og
er skýringin eflaust ekki sist sú að
flokkurinn hafnar I hvívetna
skipulögðu samstarfi við krata. 1
þingræðisstofnunum greiðir hann
atkvæði með tillögum, sem eru
verkalýðnum ótvirætt til bóta, en
gegn öllum skerðingum á kjörum
hans og „umbóta”-tillögum, sem
eru marklitlar i reynd en til þess
ætlaðar að slá ryk I augu verka-
lýðs.
Á grundvelli þessarar stefnu og
einarðs málflutnings I þingræöis-
stofnunum, hefur VS safnaö fylgi
flestra hinna fjölmörgu og sund-
urleitu hópa danskra byltingar-’
sinnaðra slslalista. Á hinn bóginn
er það I raun þröngur hópur, sem
ræður stefnu flokksins, og I þess-
um tviskinnungi felst vaxandi
vandamál.
Nánast frá stofnun VS 1967 hafa
þar togast á andstæöur lenlnisma
og ráðahyggju. Með léninisma er
átt við kenningar Lenins um
flokkinn sem framvaröarsveit
verkalýösins og að skipulag hans
skuli vera „lýöræðislegt mið-
stjórnarvald”, þe. lýðræöisleg
umræða um ákvarðanatekt, en
siðan einhugur útávið undir
stjórn miðstjórnar. Ráðasinnar
leggja hins vegar alla áherslu á
sjálfsskipulagningu verkalýös-
stéttarinnar, einkum á grundvelli
vinnustaöanna. Flokkurinn á ekki
að ætla sjálfum sér forystu, held-
ur ýta undir baráttutilburði þvi að
meö efldri sjálfsskipulagningu
megi vænta öflugrar ráðahreyf-
ingar llkt og I Rússlandi 1917 og
Þýskalandi 1918.
Ráðahyggja og leninsimi eru
klasslskar andstæður i sóslaliskri
hreyfingu, en I VS hafa báðir
straumar blandast „nýju vinstri
hreyfingunni” og ótal áhrifum
sem blómstruðu á árinu eftir 1968.
Fyrsta hálfa áratuginn I sögu
VS yfirgaf hver lenlnistahópurinn
flokkinn á fætur öðrum. Hver um
sig stofnaði „flokksbyggjandi”
samtök. Loks voru nokkur hundr-
uö ráðasinna eftir 1972-3, og
flokkurinn náöi sér nokkuö á strik
undir merkjum sjálfsskipulagn-
ingar verkalýðsins.
Gallinn var bara sá, að það voru
nær eingöngu millistéttarmenn
sem voru virkir I VS. svo aö bar-
áttuleiðin varð orðin tóm.
Smám saman efldust lenlnlskir
straumar á nýjan leik. Vonbrigði
með hugsýn sjálfsskipulagning-
arinnar og meö litlu leninlsku
samtökin ólu á vextr sllkra
strauma I flokknum, og þeir hafa
ráðið honum frá 1975. Flokksagi
hefur verið hertur til muna. T.d.
hafa menn ekki réttindi I flokkn-
um, nema þeir leggi ákveðna
lágmarksvinnu af mörkum, og á
milli flokksþinga tekur miöstjórn
flokksins stefnumótandi ákvarð-
anir I málefnum hans. Td. hefur
miðstjórn svipt þá hópa sjálfræði,
sem starfa á hinum ýmsu vig-
stöðvum, s.s. kvennahreyfingu,
námsmannabaráttu, alþjóða-
samskipti.
Sem dæmi um stefnubreytingu
flokksins má taka kvennabarátt-
una. Þar hafði um árabil ráðið sú
stefna, aö berjast fyrir frelsun
konunnar á öllum vlgstöövum,
ekki slst I fjölskyldu og öðru
einkalifi. A siðasta flokksþingi
var hins vegar mörkuö sú stefna
að leggja megináherslu á að
virkja konur i stéttarfélögum.
í hinni daglegu önn sósiallskrar
baráttu er VS aðeins ein samtök
af mörgum, bæði flokksbrotum og
hreyfingum, sem leggja sjálf-
stætt starf af mörkum. 1 þingræð-
isstarfi er hins vegar litið á þá
sem fulltrúa allrar hinnar sund-
urleitu sóslalisku byltingarhreyf-
ingar. 1 þessu felst ákveðin þver-
sögn, sem verður ekki minni fyrir
þá sök að langflestir frambjöö-
endur þeirra eru úr minnihluta-
hópum flokksins, einkum þó
ráöasinnar. Þannig er talsmaður
þeirra á þjóðþinginu, Preben Wil-
hjelm, ráðasinni, en hann hefur
getið sér orðstir fyrir vandaö
starf og skeleggan málflutning.
Hann og fleiri hafa vakið mikla
athygli á fjölmörgum málum, svo
aö VS er mun meirá áberandi i
opinberri umræðu en svarar til
þingstyrks þeirra.
Nú má sjá þess merki, að
margir ráðasinnar eru orönir
þreyttir á þvi aö vera áhrifalausir
I stefnumótun VS, en þó teflt fram
til aö draga atkvæði að flokknum.
Þannig sagöi Litten Hansen leik-
hússtarfsmaður sig úr flokknum i
haust, en hún var um árabil helsti
fulltrúi hans I borgarstjórn Kaup-
mannahafnar, um tima þingmað-
ur og i vor i fyrsta sæti á fram-
boðslista flokksins til Evrópu-
þingsins. Litten Hansen hefur
ásamt Preben Wilhjelm þótt
Gestur
Guðmundsson
skrifar frá
Kaupmannahöfn
draga flest atkvæði aö flokknum
allra einstaklinga.
Þessi vandi VS hefur enn auk-
ist, þar sem fjögur smásamtök á
vinstrivængnum hafa sótt um
upptöku I flokkinn. Þegar ákvörð-
un verður tekin um það mál,
skommu eftir kosningar, veröa
tekin af öll tvimæli um þaö, hvort
flokkurinn verður á nýjan leik
e.k. regnhlif fyrir hina ýmsu póli-
tisku strauma vinstri hreyfingar-
innar, eöa hann þróast enn frekar
I átt aö samstæðum, en þröngum
flokki. Allt bendir til þess að hann
fari siðari leiöina, en þá er llka
hætt við að fylgi hans minnki á
nýjan leik, og „ókreddubundnir”
sósialistar veröi aftur heimilis-
lausir.
Verða SF og DKP
teknir inn í hlýjuna?
Þar sem allt bendir til þess, aö
Sósialdemókratar myndi minni-
hlutastjórn eftir kosningar og hafi
litið samstarf við borgaraflokk-
ana, verða kratar sennilega að
leita meira til sósiallsku flokk-
anna en fyrr og þá einkum SF og
DKP sem eru samstarfsfúsari en
VS. Mjög llklegt er að kratar
reyni að styðjast við tvenns konar
þingmeirihluta: einhverja borg-
araflokka til að samþykkja
kjaraskeröingar og niðurskurð,
og miðflokkana og SF og DKP,
stundum VS, til aö koma umbót-
um i gegn.
Fjórði sósiallski flokkurinn
býður fram I kosningunum,
Kommunistisk Arbejderparti
(KAP, sem hefur áþekka stefnu
og EIK( m-1) á lslandi. Skv.
skoðanakönnunum fá þeir ótrú-
lega mikiö, eða 1%, og ber senni-
lega að skoða það i ljósi þess að
þeir sýna ótviræðari fjandskap
gegn krötum en aðrir sóslaliskir
flokkar. VS gengur næst KAP I
þvl að sýna afdráttarlausa
andstöðu gegn krötum, og þeir
virðast einnig munu vinna á, frá
2,7% I 4-5%. DKP hefur hins veg-
ar dregiö úr hörku sinni gagnvart
krötum, og þeir eru eini sóslaliski
flokkurinn sem á á hættu að tapa.
SF virðist hins vegar ætla aö
hagnast á þvi aö veita krötum
„gagnrýninn stuöning”, — fá til
þess fulltingi óánægöra krata.
Sósialísk andstaða gegn stétta-
samvinnunni virðist þvl munu
styrkjast lítið eitt I kosningunum.
Hins vegar fer þvi f jarri, aö veru-
legt los komist á áratuga tryggð
dansks verkalýös við umbóta-
hyggjuna. — jafnvel þótt kratar
bjóði tæpast lengur upp á umbæt-
ur heldur niðurskurðinn einan.
Kaupmannahöfn 17. okt. 1979
Gestur Guðmundsson.
Notar minnihlutastjórn krata sósíalískuflokkana
til umbóta, en borgaraflokkana til niðurskurðar?
Sveigjanleg
stefna í
olíuinnkaupum
Oliuviðskiptanefnd sú sem
Svavar Gestsson fyrrverandi viö-
skiptaráöherra skipaöi er nú
komin heim úr för sinni tii aöila
sem hugsanlega gætu haft oliu á
boöstólnum áriö 1980 eöa siöar.
Nefndin vinnur nú úr gögnum sin-
um og mun væntanlega geta gert
grein fyrir niðurstööum viöræön-
anna fljótlega. Samningstilboö
Sovétrikjanna stefndur til 15.
nóvember þannig aö islensk
stjórnarvöld þurfa fyrir þann
tlma aö hafa áttaö sig á þvi hvaö
gert veröur vegna oliuinnkaupa á
næsta ári.
Svavar Gestsson sagöi I viðtali
viö Þjóðviljann i gær aö hann
hefði skipað nefnd þessa, oliuvið-
skiptanefnd,af tveimur ástæöum:
1 fyrsta lagi heföi ollukreppan
sýnt fram á nauösyn þess aö hér á
landi yröi gripið til sérstakra að-
gerða til þess að tryggja oliuinn-
kaup á næstu árum. 1 öðru lagi til
þess að leita hagstæöari oliuvið-
skiptakosta. Hann hefði jafnan
lagt áherslu á nauösyn þess að
fylgt væri sveigjanlegri stefnu i
þessum efnum þannig að Islend-
ingar yrðu ekki alfarið háðir ein-
um aðila I framtiðinni. Ég tel
eðlilegast og heppilegast að
Islendingar eigi örugga við-
skiptakosti á tveimur til þremur
stöðum að þvi er oliuinnflutning
varðar. Þetta er sérstaklega
nauðsynlegt á tímum vaxandi
oliuskorts, sagði Svavar enn-
fremur.
Slagurinn um hráolíuna
Nú er greinilegt að orkuskortur
mun fara vaxandi I heiminum.
Ástandið i þessum efnum er svo
alvarlegt aö það gæti beinlinis
haft ófriö i för með sér. í Banda-
rikjunum rita valdamiklir stjórn-
málamenn greinar þar sem talað
er um nauösyn þess að „beita öll-
um tiltækum ráðum” til þess að
tryggja oliuaöstreymú en Banda-
rikjamenn sóa meiri orku en
flestir aörir, jafnvel Islendingar,
sagði Svavar. 1 bráö þýöir þessi
oliuskortur að baráttan um ork-
una mun harðna aö mun. Hún er
reyndar þegar hafin eins og kem-
ur fram i verðunum á fullunnum
oliuvörum. Þá er og ljóst af frétt-
um siöustu dagana að slagurinn
um hráolluna er hafinn af miklum
ofsa og hún fer sifellt hækkandi 1
veröi. Þaö er nauösynlegt fyrir
okkur Islendingæsagði Svavar,að
tryggja okkur aðgang að hráoliu
helst frá aöilum sem sjálfir eiga
að selja hráoliu. Ég teldi aö skyn-
samlegt gæti verið ef hagstæð og
eðlileg kjör bjóöast að gera
samninga við tvo eða þrjá aöila i
öryggisskyni og til þess að knýja
fram aö verðmiðun oliunnar sé
tengd hráoliuverði af einhverju
tagi.
Olíuviðskiptanefnd áfram
Það er ákaflega athyglisvert að
stjórnvöld hvarvetna i heiminum
eru æ meira að taka oliuvið-
skiptin I sinar hendur. Ég tel
nauðsynlegt hér á landi aö reka
miklu virkari innkaupastefnu i
oliumálum en fylgt hefur verið.
Ég teldi réttast að setja þegar á
laggirnar ákveðinn aöila á vegum
rikisins sem annaðist ollu-
innkaupin. Reynslan sýnir aö
oliufélögin megna ekki að ná
fram neinum viðunandi árangri
I þessum efnum.
Nú þegar samningstilboö við
Sovétrikin rennur út þarf að
Svavar
Gestsson
um stöðu
olíumál-
anna
liggja fyrir hvaða aðrir mögu-
leikar kunna að vera tiltækir. Þá
þarf að meta málið á rökrænum
forsendum en ekki undir áhrifum
af þeirri sefasýki sem hefur ein-
kennt viðbrögð ákveðinna aðila
hér á landi að undanförnu I þess-
um efnum. Þá ætti að þrautkanna
hvort hugsanlegt er að Sovétrlkin
fáist til að breyta tilboði sínu á
nokkurn hátt okkur i hag, þó við
eigum vitaskuld aö taka strax til-
boði þeirra um svartolíukaup
1980. Það er min skoðun nú sem
fyrr aö eðlilegast væri að oliuviö-
skiptanefndin hefði forystu um þá
könnun,enda þekkir hún vafalaust
best hvaöa aörir möguleikar
kunna að vera til staöar. Megin-
atriðið er þaö að tryggja öryggi
landsmanna i bráö og lengd og
auðvitað sem hagstæðust verð. A
það ber þó vitanlega að leggja
höfuöáherslu að við hljótum að
svara orkukreppunni með þvi að
stórauka notkun okkar innlendu
orkugjafa þannig að við verðum
sjálfum okkur nógir innan
tveggja áratuga eða svo með
orkugjafa að mestu eða nær öllu
leyti, sagði Svavar Gestsson að
lokum.
Stjórnvöld
hvarvetna í
heiminum eru œ
meira að taka
olíuviðskiptin
í sínar hendur