Þjóðviljinn - 23.10.1979, Síða 11
Þriöjudagur 23. október 1979 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11
iþróttir (g
Úr einu í annað
Valur dróst gegn ensku
liði og Víkingur þarf i
aðra Sviarimmu
I gærkvöldi var dregið i 1. um-
ferð Evrópukeppnanna i hand-
bolta. Valsmenn leika i keppni
meistaraliða og þeir leika gegn
Brentwood frá Englandi. Þar
ættu þeir að vera nokkuð örugg-
ir áfram.
Bikarmeistarar Vikings fá
sænska liðið Heim frá Gauta-
borg. Þeir lenda þvi aftur i
sænsku liði, en i fyrra léku þeir
gegn Ystad eins og frægt er orð-
ið vegna eftirmála þess leiks.
t kvennakeppninni leika
stelpurnar úr Fram gegn Bayer
Leverkrusen, Vestur-Þýska-
landi. Hætt er við að þeim kunni
að reynast sá róður þungur.
Þess má geta að Axel Axels-
son og Jón Pétur frá Dankersen
eiga að leika gegn Bagsvdrd frá
Danmörku.
Tony tókst
ætlunarverkið
Tony Knapp og Vikingunum
frá Stavangri tókst ætlunar-
verkið þ.e. að sigra i deild og
bikar i norsku knattspyrnunni i
ár. Um helgina léku þeir til úr-
slita i bikarkeppninni gegn 2.
deildarliðinu Haugar og sigruðu
2-1 eftir að hafa verið undir i
hálfleik 0-1.
Viggó markahæstur
Viggó Sigurðssyni, handknatt-
leiksmanni úr Vikingi, og félög-
um i spænska liðinu Barcelona
gengur flest i haginn þessa dag-
ana og trónir liðið nú i efsta sæti
1. deildar handboltans þar. I
siðasta leik liðsins átti Viggó
stórleik og skoraði 9 mörk.
Hann er nú markahæsti leik-
maður Barcelona.
Fyrsti ósigur
Celtic
Orslit i skosku knattspyrn-
unni á laugardaginn urðu þessi:
Aberdeen-Partick 1-1
Dundee-Dundee Utd. 1:0
Kilmarnock-St. Mirren 1-1
Morton-Celtic 1-0
Rangers-Hibernian 2-0
Celtic tapaði þarna sinum
fyrsta leik á yfirstandandi
keppnistimabili og var það
Thompson sem skoraði mark
Morton.
Staða efstu liða skosku úr-
valsdeildarinnar er eftirfar-
andi:
Celtic 10 6 3 1 23-10 15
Morton 10 6 2 2 24-15 14
Aberdeen 10 5 2 3 22-12 12
Partick 10 4 4 2 12-10 12
Rangers 10 4 3 3 17-13 11
Kilmarnock 10 4 3 3 12-16 11
Bjarni og
Halldór sigruðu
Annað stórmót júdðmanna
var haldið um helgina og var
það haustmót JSI. Körlunum
var skipt i 2 þyngdarflokka og
urðu úrslit þessi:
Yfir 78 kg:
1. Bjarni Friðriksson A.
2. Garðar Skaftason, A
3. Kolbeinn Gislason, A
Undir 78 kg:
1. Halldór Guðbjörnsson, JFR.
2. Ömar Sigurðsson, UMFK.
3. Niels Hermannsson, A.
Hjá konunum var keppt i ein-
um flokki og þar urðu úrslit eft-
irfarandi:
1. Anna L. Friðriksdóttir, A.
2. Margrét Þráinsdóttir, A.
3. Anna Lindal, A.
tsland með á Norður-
landamóti i borðtennis
Island mun taka þátt i Norð-
urlandamótinu I borðtennis,
sem fram fer i Bergen i Noregi
um næstu helgi. Keppt er i
flokkum fullorðinna og unglinga
á mótinu og munu íslending-
arnir senda lið til keppni i ung-
lingaflokknum.
I eldri flokki unglinga verða
eftirtaldir keppendur: Tómas
Sölvason, KR, Kristján Jónas-
son, Vikingi, og Bjarni Krist-
björnsson, UMFK. I yngri
flokknum keppa Einar Einars-
son, Vikingi og Bjrögvin Björg-
vinsson, KR. Fararstjórar eru
Gunni Jó og Stefán Snær.
Eftir NM-mótið er a^tlunin að
halda til Danmerkur og æfa með
danska meistaraliðinu Virum
og hvetja landann i heimsmeist-
arakeppni unglinga i handbolta.
Misjafnt gengi
íslendingaliðanna
Pétur Pétursson og félagar
hjá Feyenoord náðu aðeins jafn-
tefli á heimavelli gegn Go ahead
Eagles um helgina. Leikurinn
endaði 1-1 og skoraði van Thil)
mark Feyenoord, sem er i 2.
sæti 1. deildar, en á leik til góða.
I belgisku knattspyrnunni bai
það helst til tiðinda að Standard
tapaði á útivelli fyrir Charleroi
1-2, en hins vegar náði Lokeren,
lið Arnórs- Guðjohnsen jafntefli
á útivelli gegn Molenbeek og
heldur efsta sætinu 11. deildinni.
Enn ein skrautfjöður
hatt Grétu Waitz
Norska hlaupakonan Grete
Waitz náði um helgina besta
tima i heiminum til þessa i
maraþonhlaupi. Hún tók þátt i
miklu hlaupi i New York þai
sem þátttakendur voru 14 þús
und og sigraði i kvennaflokki
með miklum yfirburðum, hljóp
á 2:27.32klst. tfyrra sigraði hún
einnig i þessu hlaupi, en þá var
timi hennar 2:32.30 klst. Ein
ungis 104 karlmenn hafa hlaupið
maraþonhlaup (42.6 km) á betri
tima. Gréta er án efa ein mesta
hlaupadrottning sem uppi hefur
verið og m.a. unnið yfir 50
meiriháttar sigra á ferli sinum
1 karlaflokki maraþonhlaups-
ins i Nýju Jórvik sigraði Banda
rikjamaðurinn Bill Rodgers.
Landi hans með austurriska
nafnið Pfeffer varð annar og
þriðji Kenyon Bretlandi.
'v' -V5C.-^."Ai^C.' - * JUC •
,,Ég hálfpartinn kviöi fyrir aö hlaupa svona langt,” sagöi Gréta
Waitz áöur en hún lagöi upp i maraþonhlaupiö I Nýju Jórvfk.
Mark Christiansen og Tim Dwyer „kóngarnir”, háöu heijarmikla rimmu á sunnudaginn. sem segja má
aö hafi endaö meö jafntefii.
Valur á toppnum
í úrvalsdeildinni
eftir sigur í hörkuleik gegn ÍR-ingum 83-79
Valsmenn eru eina ósigraða liðið í úrvalsdeildinni i
körfubolta eftir að 2 umferðir hafa verið leiknar. A
sunnudaginn lögðu Valsararnir iR-inga að velli eftir
mjög skemmtilegan og spennandi leik. Það var öðru
fremur góður endasprettur sem tryggði sigur Vals.
Bæði lið voru mjög lengi i gang
og eftir að 4 min. höfðu verið
leiknar var einungis búið að skora
11 stig, 7-4 fyrir IR. IR-ingarnir
léku næstu minúturnar af miklum
krafti og þeir virtust ætla að kaf-
sigla Valsmennina, 13-8 og 26-17.
Þó að Valsararnir hristu nokkuð
af sér slenið allt til hálfleiks var
forystan ætið örugglega i höndum
ÍR, 26-21, 32-29 og i hálfleik 42-35.
Valur lék af mikilli hörku i upp-
hafi seinni hálfleiks og ekki leið á
löngu þar til þeir höfðu jafnað 48-
48. Þeir skoruðu 2 næstu körfur og
náðu þar meö undirtökunum, 52-
48. ÍR-ingarnir voru ekkert á þvi
að gefast upp og þeir voru ,,I hæl-
unum” á Valsmönnum.
Að visu náði Valur 10 stiga for-
skoti um tima, 62-52, en ör-
skömmu seinna var þaö forskot
komið niöur i 2 stig, 64-62. Þegar 5
min. voru til leiksloka og staðan
var 70-66 fékk Dwyer sina 5. villu
og héldu þá margir að leikur
Valsaranna myndi hrynja, þvi
einnig Kristján var kominn útaf
með 5 villur. IR minnkaði muninn
i 2 stig 72-70, en þá varð Mark að
yfirgefa völlinn með 5 villur. IR
jafnaði, 74-74, en Rikharður skor-
aði 3 stig fyrir Val I næstu sókn,
77-74, Kristinn skoraði næst fyrir
1R 77-76, en þá tók Torfi Magnús-
son til sinna ráða og skoraði 2
körfur á mikilvægum augnablik-
um og breytti stöðunni i 81-77 og
leikurinn unninn. Hvort lið skor-
aði siðan eina körfu, 83-79.
Það sem varð IR að falli i þess-
um leik var að einungis 3 menn
léku af sama styrkleika og Vals-
mennirnir, Mark, Kristinn og
Kolbeinn. Þessir 3 leikmenn voru
reyndar betri en flestir Valsar-
anna. Þá ná einnig nefna að IR
hirðir ekki nógu mörg fráköst og
fær þ.a.l. færri tækifæri til að
skora. Hvað um það þá voru IR -
ingarnir mun betri i fyrri hálf-
leiknum og þegar Jón Jörundsson
er búinn að finna fjölina sina
vinna þeir örugglega marga og
stóra sigra.
Aldrei þessu vant var vörn Vals
léleg framanaf og þar mynduöust
oft stórar veilur. Þá voru þeir ó-
venjulega seinir aftur i vörnina i
fyrri hálfleiknum og fengu þvi
mörg stig á sig úr hraðaupp-
hlaupum IR-inganna. I seinni
hálfleik var allur annar svipur á
leik liðsins, sannkallaðir meist-
aratantar.
Kristján, Þórir, Dwyer og Torfi
voru bestir Valsmanna i leiknum,
en mikla athygli vakti að Torfi
var ekki i byrjunarliðinu. Furðu-
leg ráðstöfun það, en á sér e.t.v.
eðlilegar skýringar. Þá áttu Jó-
hannes og Sigurður góðan enda-
sprett.
Stig ÍR-inga vkoruðu: Kristinn
24, Mark 18, Kolbeinn 17, Stefán 8,
Jón J 7, erlendur 4 og Jón I 2.
Stig Valsmanna skoruðu: Dwy-
er 20, Þórir 14, Torfi 14, Kristján
13, Rikharður 10, Sigurður 6 og
Jóhannes 6. —Ingh.
staöan
•mmmm—mm~~mmmmmmm^^' mmmmmmmammmmmmmmmmmmmmmmd
Staðan i úrvalsdeildinni i
kröfuknattleik að afloknum 2.
umferðum er nú þessi:
Valur...............2 2 0 1 89:176 4
tS..................2 1 1 160:155 2
UMFN................2 1 1 158:154 2
KR .................2 1 1 144:146 2
ÍR................. 2 1 1 153:156 2
Fram................2 0 2 163:180 0
/*V