Þjóðviljinn - 06.11.1979, Side 12
12 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 6. nóvember 1979
^sháh
Umsjón: Helgi ólafsson
noj og Timmans eöa Korstnoj og
Petrosjans? Ég fyrir mitt leyti
myndi kjósa siöara einvigiö. Þaö
er altént fróðlegt aö fylgjast meö
skákmönnum slá tvær flugur I
einu höggi. Fyrir það fyrsta
keppa þeir um hvor tefli betur og I
Millisvædamótiö
Þaö voru skákunnendum óneit-
anlega nokkur vonbrigöi aö hol -
lenski stórmeistarinn Han Tim-
ann skyldi detta út úr heims-
meistarakeppninni eftir fræki-
legan endasprett i millisvæöa-
mótinu. Timann byrjaöi illa,
geröi hvert jafntefliö á fætur ööru
og tapaði aö auki einni skák fyrir
Sovétmanninum Balasjov. A
timabili virtist sem þeir HUbner,
Portisch og Petrosjan væru svo
gott sem öruggir I Askorenda-
keppnina. Svo var þó aldeilis
ekki.
Timman tók upp á því aö vinna
hverja skákina á fætur annarri,
og fyrir slöustu umferö átti hann
mikla möguleika á aö tryggja sér
sæti. Hann þurfti að vinna Kúbu-
manninn Guillermo Garcia, en af
fenginni reynslu var þaö verkefni
langt frá þvi að vera auövelt.
Kúbumaöurinn hefur mörg und-
anfarin ár verið sterkasti skák-
maður sinnar þjóöar og á skák-
mótum hefur hann, hvað eftir
annað, velgt Timman undir ugg-
um. Þrátt fyrir hatrammar vinn-
ingstilraunir Hollendingsins
komsthann ekkert áleiðis og varð
að sætta sig við jafnteflið. Það
tryggði þeim félögum Portisch,
Petrosjan og Höbner sæti I Áskor-
endakeppninni. Ýmsir hefðu fús-
lega viljað skipta á t.d. Petrosjan
og Timman I keppni þessari þvi
Armenlumaðurinn hefur verið i
innsta hring heimsmeistara-
keppninnar alit frá árinu 1953. En
eíns og einhver góöur maður
benti mér á um daginn, þá er þaö
orðin viss hefð að hafa gamla
manninn með. Og hvort vildur þú
til dæmis sjá einvigi milli Korts-
ööru lagi keppa þeir um hvor hat-
ar meira! Eða sagði Kortsnoj það
ekki þegar þeir tefldu siðast að
um væri að ræöa einvlgi haturs-
ins? Eftir þvi sem ég kemst næst
þá eru 50% likur á þvl að Korts-
noj tefli við Petrosjan I fyrsta
umgangi keppninnar. En nóg um
það. Hér kemur ein skák frá Rio,
ein af bestu skákum Timmans.
Hvltt: J. Smejkal (Tékkóslóvak-
la)
Svart: J. Timman (Holland)
Enskur leikur
1. c4-Rf6
2. Rc3-e6
3. Rf3-Bb4
4. Dc2-0—0
5. a3-Bxc3
6. Dxc3-b6
7. b3-Bb7
8. Bb2-d6
9. e3-e5
10. d4-Re4
11. Dc2-Rg5
12. Rxg5-Dxg5
13. d5-Rd7
14. g3-c6
15. Bh3-Had8
16. dxc6-Bxc6
17. 0—0-Rc5
18. Bg2-Bxg2
19. Kxg2-Dg6!
20. Dc3-d5!
21. Dce5-dxc4
22. Hadl-Hxdl
23. Hxdl-cxb3
24. Hd4-f6
25. Dd6-h6
26. e4-He8
27. f3-Df7
28. a4-Re6
29. Hd5-Hc8
30. Hd2-Hd8
31. dxd2-Rc5
33. a5-Dd7
34. Db4-Da4
35. Dd2-Dc4
36. axb6-axb6
37. Kf2-Rd3+
38. Ke3-Rxb2
39. Dxb2-Kf7
40. h4-Ke6
41. f4-Dc2
(Biðleikur Timmans. Anderson,
aðstoðarmaður Timmans var
ekki I vandræðum með aö finna
vinninginn.)
42. f5—Kd6 44. Da4-Dc3+
43. Dd4—Kc7
— og hvitur gafst upp.
Akraneskaupstaður
Kjörskrá
Kjörskrá vegna Alþingiskosninga 2. og 3.
desember n.k. liggur frammi á bæjar-
skrifstofunni alla virka daga frá 3. nóvem-
ber til 17. nóvember n.k. kl. 9.30-12 og
12.30-15.30 þó ekki á laugardögum. Kærur
vegna kjörskrár skulu hafa borist á bæj-
arskrifstofuna i siðasta lagi 17. nóvember
n.k.
Akranesil7. nóvember ’79
Bæjarstjóri
Tökum að okkur
viðgerðir og nýsmiði á fasteignum. Smið-
um eldhúsinnréttingar, einnig viðgerðir á
eldri innréttingum. Gerum við leka vegna
steypugalla.
Versiið við ábyrga aðila.
TRÉSMIÐAVERKSTÆÐIÐ
Bergstaðastræti 33, simi 41070
• Blikkiðjan
Ásgaröi 7, Garöabæ
Önnumst þakrennusmiði og
uppsetningu — ennfremur
hverskonar biikksmiöi.
Gerum föst verötilboö
SIMI53468
Umsjón: Magnús H. Gíslason
Hreindýr fara þannig meö gróöurinn aö eftir þau er flag eitt,
segir Halldór Pétursson.
Halldór Pétursson skrifar:
Enn er undir tekið í
Ég er fæddur með þeim
ósköpum að finna að öllu sem
mér finnst rangt, vanhugsaö og
vitlaust. Þar hefur hver sinn
smekk en ekkert sllkt má kyrrt
liggja.
Ég hef fordæmt að hafa hér
hreindýr, þótt mér þyki vænt
um þau. Hérlendis eru engin
dýr, sem eins spilla groðri
landsins. Ég hef nú sjaldan hælt
sauðkindinni, en vil þó hér taka
svari hennar. Henni er kennt
um alla gróðureyöingu en slikt
er fáviska. Hreindýr fara þann-
ig með gróöurinn að eftir þau er
flag eitt, sem uppblásturinn
tekur I sina þjónustu.
Undir þetta tekur Eyþór
Þórðarson á Noröfirði, gamall
sveitungi minn og framámaöur
austur þar um áratuga skeið.
Hann þekkir þetta mikið betur
en ég. Strax er haustar koma
hreindýrin út i beitilönd Fljóts-
dalssveita og haga sér eins og
húsdýr. Hver dalskora á Sustur-
landi morar af þessum dýrum.
A talningu þeirra tek ég lítð
mark. Við höfum engin efni á að
efna til landspjalla. Af þessum
dýrum eru engin not. Þegar
harðnar I ári er hungurdauðinn
eina velsæld þessara dýra. Eru
Islendingar ekki orönir full-
saddir af hordauða fólks og
fénaðar, á hann nú að vera til
prýðis? Gæsin mln er llka skæð,
hún rótnagar svo aö likt og
sviðiö sé, þó grefur hún ekki upp
rótina, eins og hreindýrin.
Henni á að fækka að miklum
mun því hún er mikill gróður-
eyðir.
Þá eru það rándýrin: tófa,
minkur og mávar. Það er svo
undarlegt með þingmenn, sem
stangast eins og griðungar út af
flestum hlutum, að eitt eru þeir
sammála um og það er að halda
viö öllum rándýrum, hvort þau
eru tvl- eða fjórþætt. Þar má
hvergi skerða.
Minkurinn er að gereyða
fiskivötn okkar og ár og ekkert
er gert. Þetta, sem veriö er að
drepa fyrir ærið fé, er eins og
dropi I hafiö. Ég var á spltala
meðeinum gáfaðsta þingmanni
okkar o g þetta b arst I ta 1. — Nei,
ekki að eyða minknum, hann
aðlagar sig landinu.
Kannski rétt á sinn máta.
Þingmenn virðast geta aölagaö
sig mörgu, sem ekki kemur
almenningi að notum. Tófan er
ekki eins skæö en hennar riki er
nú orðið mikið á þeim stöðum,
sem komnir eru I eyði. Hún
drepur þó ekki nema til matar
en minkurinn er Ukari okkur,
drepur sér til skemmtunar.
Ég er þess viss, að það mætti
koma sýki I þessi verstu mein-
dýr: mink, tófu og veiðibjöllu.
Veiöbjallan er nú á góðri leið
meðað tortíma okkar elskulega
æðarfugli. Sá, sem hefur séð
máf gleypa 7-8 æöarfugla I einni
striklotu munþvi seint gleyma.
Það eru óefað mörg ráð til að út-,
rýma veiðibjöllunni en hún á
marga verndarmenn. Ég hef
heyrt að menn á Suðvesturlandi
eigi heilar eyjar þar sem hún
verpi og þangað má enginn
óþveginn líta. Eins er bannað aö
taka egg hennar I Esju, Akra-
fjalli og sjálfsagt vlðar. Þetta
geta orðið hæstaréttarmál.
Yrölinga, minka og tófur ætti
að sýkja og sleppa þeim slöan
og láta þá breiða sýkina út.
Sjálfsagt þykir þetta kulda-
legt talen þeir menn hugsa ekki
um hvernig þessi dýr aflifa
aörar skepnur. Viö höfum
fengið allar okkar dýrapestir
ókeypis og ættum þvi að geta
ráðið við að sýkja rándýrin.
Þessi dýr munu skriða I sín
fylgsni og ljúka þar llfi.
—Halldór Pétursson.
Tómstundarád Vestmannaeyja:
Fjölbreytt starfsemi
í félagsheimilinu
1 skýrslu Tómstundaráös
Vestmannaeyja segir aö notkun
Félagsheimilisins hafi aö flestu
leyti veriö meö svipuöu sniöi og
áöur. Veröur hér á eftir greint
frá helstu þáttum starfeeminn-
ar þar.
Leiktækjasalirnir á efstu hæð
voru opnir frá okt. byrjun til
loka aprílmánaðar, og aö jafn-
aði vel sóttir. Ráðning gæshi-
manns um s.l. áramót auöveld-
aði eftirliti með leiktækjum og
umgengni um húsið en það var
opið mánudaga til fimmtudaga
að báöum dögum meðtöldum,
frá kl. 13.30 til 17.00.
SU nýbreytni var upp tekin s.l.
vetur að efna til borötennismóta
á vegum Bamaskólans og
Gagnfræöaskólans og varð
þátttaka mikil. Fyrirhugað er
að slik mót verði einnig I vetur.
A kvöldin hefur ýmiss konar
félagsstarf verið til húsa á efri
hæðinni og hefur mest borið á
diskótekskemmtunum en alls
voru þær 29 á timabilinu, fyrir
ýmsa aldurshópa.
Mörg félög héldu fundi I
sölunum svo sem Bifreiöa-
iþróttaklúbburinn, Samkórinn,
Taflfélagið o.fl. Þá voru nám-
skeiö I bridge, skákkennsla og
skákmót. Barnastúkan var
þar na einnig m eð sln a s tar fsemi
og Módelklúbbur Tómstunda-
ráös.
Áðalsalur Félagsheimilisins
var mikið notaður og þá ekki
hvað slst af Leikfélaginu sem
var þar bæði með æfingar, sýn-
ingar og leiklistarnámskeið.
Ýmsir aöilar utan Eyja notuöu
ogsalinn: Þjóðleikhúsið, Skóla-
hljómsveit Kópavogs, hljóm-
sveitin Gnýr o.fl. Þá æföi Sam-
kór Vestmannaeyja I salnum I
sumar og bæjaryfirvöld héldu
þar fundi. Enn má nefna kvik-
myndasýningar, sýnikennslu I
meðferð slökkvitækja, sem
Brunavarðafélagiö stóð fyrir
o.fl.
1 litla salnum, (undir sen-
unni), voru basarar, hlutaveltur
o.þ.u.l.
Hér skal látið staöar numið
þótt sitt hvað sé enn ótaliö.
Vonandi kemur aö því sem
fyrst, að viöbygging risi aust-
an við félagsheimiliö, þar sem
Leikfélagið fengi búningsher-
bergi og æfingasvið. Mundi þá
rýmast um aöalsalinn þannig að
fleiri gætu notað hann þótt
æfingar stæöu yfir hjá Leikfé-
laginu.