Þjóðviljinn - 17.11.1979, Qupperneq 1
MÚWIUINN
Laugardagur 17. nóvember 1979 251. tbl. 44. árg.
15 dagar til kosninga
Kærufrestur
Kærufrestur til þess að kæra sig inn á kjörskrá rennurúti dag.
i dag eru sfðustu forvöð fyrir þá sem hafa haft búsetuskipti á sið-
ustu árum að kæra sig inn á kjörskrá hafi þeir fallið út. Sérstak-
lega er áriðandi að þeir sem hafa dvalið erlendis kanni hvort þeir
eru á kjörskrá. Skrifstofa Alþýðubandalagsins veitir alla aðstoð
bæði hér i Reykjavik og annarsstaðar. Siminn er 17500.
SPURÐU OLÍUVIÐ-
Liggja fyrir hagstæðari olíutilboð?
SKIPTANEFND
Það er hennar álit en ekki annara sagði ráðuneytis-
stjóri viðskiptaráðuneytisins
„Arangur næst ekki i kosningum nema með
miklu starfi, áróðri og baráttu”, var niðurstaða
fundar nokkurra frambjöðenda G-listans I
Reykjavik á kosningamiðstöðinni að Skipholti 7 i
hádeginu i gær. Frambjóðendur eiga annrikt
þessa dagana en miklu fleiri virkir félagar þurfa
að koma i starf á næstu dögum. Á myndinni eru
frá vinstri Sigurður Magnússon óiafur Ragnar
Grimsson, Páll Bergþórsson, Guðrún Helga-
dóttir, Guðmundur J. Guðmundsson, Esther
Jónsdóttir, Svavar Gestsson, Guðmundur Þ.
Jónsson og ÍJlfar Þormóðsson kosningastjóri.
Epoxy-efni í bilalakki:
Margir veikjast og
hætta hér á landi
Eins og skýrt var frá i Þjóð-
viljanum i gær, hefur komið i ljós
við tilraunir að efnið — Epoxy —
sem mikið er notað i iðnaöi, veld-
ur krabbameini. Þetta efni er
m.a. notað i allskonar lakk, þar á
meðai bilalakk hér á landi. Þjóð-
viljinn kannaði i gær hvernig
hollustuhættir væru á þeim verk-
stæðum sem fást við bllasprautun
og kom i ljós það þeir eru vægt
sagt slæmir.
Af 20 verkstæðum, sem bila-
sprautun er framkvæmd á, eru
aðeins 2 lögleg og sifellt bætast
við hættuleg efni i lakkið. Að sögn
Halldórs Hafsteinssonar fyrr-
verandi formanns Fél. bflamál-
ara hefur hvað eftir annaö verið
leitaö til öryggiseftirlitsins vegna
óhollustu á þessum vinnustöðum
með litlum sem engum árangri.
Hermann Jóhannesson for-
maður Fél. bilamálara segir i
viðtali við Þjóðviljann i dag, að
margir bilamálarar veikist og
verði að hætta. Þeirra á meðal er
fyrrverandi formaður félagsins
Halldór Hafsteinsson hann er
skráður með atvinnusjúkdóm
Eyjólfur Sæmundsson efna-
verkfræðingur segir i viðtali við
Þjóöviljann að eftirlit með notkun
efna i iðnaði hér á landi sé ófull-
komið og að mikið starf sé óunniö
á þessu sviði hér á landi. -S.dór
Um þetta er fjallað á 3ju siðu i
Þjóöviljanum i dag.
1 fréttatilkynningu sem gefin
var út eftir undirritun oiiuvið-
skiptasamninganna við Sovét-
menn i fyrradag, segir að fyrir
liggi tilboð i 100 til 150 þúsund
tonn af gasoliu á HAGSTÆÐARA
VERDI en Sovétmenn bjóða. Um
þetta mál eru vægt sagt skiptar
skoðanir. Blaðamaður Þjóðvilj-
ans varð vitni að snarpri orða-
sennu um máliö i ráðherrabú-
staðnum eftir undirritunina og
voru það annars vegar forstjórar
oliuféiaganna og hinsvegar oliu-
viðskiptanefndarmenn.
Vegna þessa vaknaði grunur
um að ekki væri allt sem skyldi I
þessu máli. Meðal annars má
geta þess að fréttatilkynningin
var ekki vélrituö á pappir merkt-
an viðskiptaráðuneytinu, heldur
var nafn ráðuneytisins vélritaö á
forsiðu og hefur Þjóðviljinn grun
■um að tilkynningin hafi ekki verið
sam i.n i viðskiptaráðuneytinu, né
af starfsmanni þess.
Við leituðum i gær til Þórhalls
Asgeirssonar ráöuneytisstjóra i
viðskiptaráðuneytinu og spurðum
hann hvernig og hvaða tilboð
væru, sem eru hagstæðari en til-
boð Sovétmanna.
— Eg vil ekki svara þessu, það
er best að þú spyrjir Jóhannes
Nordal formann oliuviðskipta-
nefndar. Það er mat nefndarinn-
ar að hagstæðara tilboð liggi fyrir
en ekki annara.
Þvinæst var rætt við Jóhannes
Nordal.
— Ég get ekki sagt frá þvi nú
hvernig né hvaðan þessi tilboð
eru en ég fullyröi að hagstæðari
tilboð liggja fyrir en tilboðin frá
Sovétmönnum. Það á að visu eftir
að ganga frá öllum samningum
og viss atriði sem á eftir að fara
yfir en við höfum fyrir okkur hag-
stæðari tilboð.
Vilhjálmur Jónsson forstjóri
Oliufélagsins sagði þegar hann
var spurður um þetta mál, en
hann var greinilega ekki sam-
mála Jóhannesi Nordal i ráð-
herrabústaðnum i fyrradag:
— Við hjá oliufélögunum höfum
ekki séð nein tilboð á hagstæðara
verði en frá Sovétmönnum og það
er auðvitað erfitt að rengja að svo
sé, þegar maður hefur ekkert séð.
Oliuviðskiptanefnd hefur ekki séð
ástæðu til að ræða þessi mál við
okkur, þrátt fyrir það að við höf-
um spurst fyrir. En ef þessi tilboö
liggja fyrir, hversvegna er þeim
þá ekki tekið?
Loks sneri Þjóðviljinn sér til
Inga R. Helgasonar, sem á sæti i
oliuviðskiptanefnd og bar undir
hann þetta mál. Hann sagðist á
Framhald á bls. 17
Vilhjálmur Þórhallur
Jóhannes Nordal:' fullyrðir að 3
hagstæðari tiiboð liggi fyrir
Þórhaliur Ásgeirsson: spurðu
oiiuviðskiptanefnd
Ingi R. Helgason: eitt tilboð lá
fyrir á siðasta fundi oliuvið-
skiptanefndin, á Rotterdamverði
i aðalatriöum
Vilhjálmur Jónsson forstjóri
OLIS: Við höfum ekkert fengið að
sjá né heyra um þessi tilboð
Framleiðendur
napalmsprengja
og hergagna:
Vildu hér
efnaiðjuver
Bandariski auðhringurinn
Dow Chemical Company, fór þess
á leit við islensk yfirvöld 1973 að
reisa hér efnaiðjuver.
Dow Chemical fór fram á það
i bréfi til Jóhannesar Nordai
stjórnarfomanns Landsvirkjunar
og formanns Viöræðunefndar um
Orkufrekan Iðnað, að raforkan tii
efnaiðjuversins næmi 150-180 MW
og yrði fengin úr Hrauneyjarfoss-
virkjun.
Jóhannes Nordal hefur staðfest
þessar upplýsingar i viðtali við
Þjóðviljann i gær, en kvað við-
ræðurnar aðeins hafa verið á
könnunarstigi. Jóhannes sagði
ennfremur að áhugi Dow Chemi-
cal hafði einkum beinst að fram-
leiðslu magnesium-málma, en
slik framleiðsla væri mjög orku-
frek. Sagði hann að ekkert hefði
komið út úr viðræðunum og þær
hefðu lagst niður.
Dow Chemical Tramleiddi stór-
an hluta napalmsins sem Banda-
rikjaher beitti i sþrengjuarásum
Framhald á bls. 17
mu,
Óreiða „Mér dettur I hug hvort eitt- hvert samband gæti veriö milli þess að notaður hefur verið opinn sjóður á Sigló og þess að i hann vantar 3,6 miljónir króna, þvi hvað segir ekki I kvæðinu góöa: „Gakktu i sjóöinn og - sæktu þér hnefa”? ” Flosi Ólafs- son skrifar að venju I blaöiö I dag og að þessu sinni fáum við vikuskammt af óreiðu. Landssmiðjan „Hér eru allir á móti þessum til- lögum Sjálfstæöisflokksins”, segir starfsmaður Lands- smiðjúnnar i viötali við blaðið i dag, en þaö er m.a. á stefnuskrá Ihaldsins að selja rikisfyrirtæki eins og Landssmiöjuna. „Við erum mjög óánægðir meö skrif Friðriks Sophussonar”, segir annar starfsmaður i smiðjunni og fleiri taka I sama streng. Einnig er birt ábending til Friðriks Sophussonar frá fram- kvæmdastjóra Landssmiðj- unnar. , Bónusinn „Þaö hafa orðiö miklar breyt- ingar hér siöan farið var aö vinna eftir bónusi fyrir rúmu ári. Afköstin hafa aukist um 100%, en kapphlaupið er oröiö mikið, og i kjölfar aukins álags verður þaö algengara að konur vinni bara hálfan daginn. Og þótt tlminn kunni að „llða. hraðar” i bónusnum þá segir^ likaminn til sin og þreytan” segirHerdis ólafsdóttir á Akra- nesi I viðtali við Jafnréttis- siöuna i dag. Jóhann J.E. Kúld Réttfyrirstrið var kominn vel á veg undirbúningur aö griðar- miklu brugghúsi sem átti aö framleiða áfengt öl til Ut- flutnings. Carlsberg og Tuborg höfðu fingur á þeim áformum, sem striöið battendir á. Jóhann J.E. Kúld segir frá nýju bindi endurminningu sinna. Ekki einangrun „Þaö er nákvæmlega jafnmikii- vægt að róttækar konur séú i opinberum ráðastöðum á Alþingi, og I borgar- og sveitar- stjórnum, eins og að konur ein- angrist ekki I dæmigeröum kvennastörfum. Ékki veitir af aðber jast á öllum vigstöðvum”, segir Helga ólafsdóttir meöal annars i grein þar sem hún leggur orð I belg um jafnrétti kynjanna og stöðu Rauðsokka- hreyfingarinnar, en hvort tveggja hefur verið mikið rætt i Þjóðviljanum að undanförnu.
Sjá siðu 2. Sja síðu 5. Sjá siðu 6. Sjá opnu Sjá siðu 9.